Náttúruvernd
Stjórnvöldum ber skylda til að vernda íslenskra náttúru og fjölbreytni hennar fyrir komandi kynslóðir, s.s. líffræðilega og jarðfræðilega fjölbreytni, óbyggð víðerni og fjölbreytni landslags. Mikilvægt er að vernda það sem er sérstætt en einnig að stuðla að því að endurheimta röskuð vistkerfi og auka þol íslenskra vistkerfa gegn náttúruhamförum og hnattrænum umhverfisbreytingum.
Nýta þarf náttúruauðlindir á sjálfbæran hátt og stuðla að því að með umgengni sinni spilli maðurinn ekki náttúrunni. Um leið er mikilvægt að auðvelda fólki að upplifa og kynnast náttúrunni.
Meðal verkefna á þessu sviði eru stjórnun landnýtingar, friðlýsing lands, búsvæða og tegunda, umsjón þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða, stjórnun veiða og vöktun og rannsóknir á náttúrunni.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Helstu lög um náttúruvernd má finna undir kaflanum Umhverfismál í lagasafni Alþingis
Umhverfismál - lagasafn Alþingis
Reglugerðir sem falla undir þessi lög má finna á reglugerd.is
Umhverfismál - reglugerðasafnGagnlegir tenglar
Vernd náttúru og lífríkis - XII. Umhverfisþing 2020NáttúrufræðistofnunNáttúruverndarstofnunVatnajökulsþjóðgarðurÞjóðgarðurinn ÞingvöllumNáttúrurannsóknarstöðin við Mývatn (RAMÝ)BreiðafjarðarnefndFréttir
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
15 október 2026
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Ný skýrsla sýnir leiðir að 30% vernd lands og ferskvatns á Íslandi
15 október 2026
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Fyrsta skóflustungan tekin til endurheimtar votlendis á ríkisjörðum
02 október 2026