06 nóvember 2025
Nefnd um fæðuöryggi fundar í Róm
Hungruðum og fæðuóöruggum í heiminum fer heldur fækkandi að mati nefndar Sameinuðu þjóðanna um fæðuöryggi – Committee on World Food Security - sem er fremsti alþjóðlegi milliríkjavettvangur umræðu um fæðuöryggi og næringu í heiminum. Nefndin hélt árlegan fund sinn í Róm vikuna 20-25. október.