Föstudagspóstur 16. október 2026
Heil og sæl,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, endurnýjaði við Slysavarnarfélagið Landsbjörgu samstarfssamning um Íslensku alþjóðabjörgunarsveitina í gær. Alþjóðabjörgunarsveitin okkar starfar í umboði íslenska ríkisins og verkefni sveitarinnar geta meðal annars falist í leit og björgun fólks úr húsarústum, sjúkraaðstoð, fjarskiptum og rekstri neyðarbúða á hamfarasvæðum.
Árlega friðarráðsstefnan Imagine Forum fór fram í Reykjavík á mánudaginn sl. Í tilefni þess að fjörutíu ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Höfða var litið til fortíðar á ráðstefnunni og rætt hvaða lærdóm megi draga af þeim tómamótafundi og hvort ríki heims geti enn unnið að diplómatískum lausnum á tímum vaxandi spennu í heiminum. Ráðherra flutti opnunarávarp á ráðstefnunni.
Ráðherra fundaði með Volker Türk, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, sem var staddur í vinnuferð á Íslandi og tók m.a. þátt í pallborði um stöðu mannréttinda í heiminum á friðarráðstefnunni. Einnig fundaði Þorgerður Katrín með Izumi Nakamitsu, framkvæmdastjóra afvopnunarmála hjá Sameinuðu þjóðunum. Nakamitsu var einnig stödd á Íslandi til að taka þátt í friðarráðstefnunni.
Í tilefni af alþjóðadegi stúlkubarnsins 11. október studdi sendiráðið okkar í Freetown, Síerra Leóne, við viðburð og samstöðugöngu gegn kynferðisofbeldi, kynfæralimlestingum, og hjónaböndum barna.
Svo er gaman að geta deilt myndbandi sem fjallar um áhrifaríkt þróunarsamvinnuverkefni á vegum Íslands og Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna í Síerra Leóne, en í dag er einmitt alþjóðlegi matvæladagurinn.
Pétur Ásgeirsson, sendiherra okkar í Kaupmannahöfn, opnaði myndlistarsýningu Elísabetar Olku At male et Digt í Næstved Kunstforening.
Svo er hægt að skoða sýningu Þórdísar Erlu Zoega, Samrými, í sendiráði Íslands þangað til 11. nóvember.
Árni Þór Sigurðsson, formaður embættismannanefndar Eystrasaltsráðsins, kynnti áherslur Íslands á formennskutímabili Íslands í ráðinu. Viðburðinn sóttu sendiherrar aðildar- og áheyrnarríkja ráðsins, auk fulltrúa Noregs í embættismannanefndinni.
Ragnar Kristjánsson, sendiherra Íslands í Noregi, sótti í vikunni fund hjá sendiráði Eistlands gagnvart Noregi þar sem samstarfsfólk frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum komu saman og ræddu við Anitu Nergaard, skrifstofustjóra öryggispólitískra málefna norska utanríkisráðuneytisins.
Sendiráð Íslands í Róm tók á móti Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis, og sendinefnd Alþingis sem sótti Rómarborg heim í tilefni Evrópuráðstefnu forseta þjóðþinga (ECPP).
Farandsýningin Stockfish Journey var frumsýnd með glæsibrag á alþjóðlegu matvæla- og menningarhátíðinni Terra Madre - Salone del Gusto í Tórínó Ítalíu fyrir stuttu. Áætlað er að 45.000 - 50.000 manns hafi sótt skreiðarhjallinn!
Svo að lokum mætti einnig segja frá því að starfsfólk Héraðsdóms Reykjavíkur heimsóttu sendiráðið fyrir stuttu og fengu kynningu hjá Berglindi Bragadóttur, staðgengli sendiherra, og Giulia Marcellini, starfsmanni sendiráðsins, um verkefni og störf utanríkisþjónustunnar og sendiráðsins sjálfs. Það vildi svo til að aðili úr hópnum hafði glatað vegabréfi í ferðinni og var því brugðist skjótt við að útvega viðkomandi neyðarvegabréfi til þess að koma aðilanum heim til Íslands. Þau voru vitaskuld afar þáttklát fyrir svo skjóta þjónustu!
Heimildarmyndin Heimkoma (Return) var sýnd í kvikmyndahúsinu Victoria í Stokkhólmi í samstarfi við sendiráðið. Myndin er dæmi um árangursríkt samstarf Íslendinga og Svía á sviði kvikmyndagerðar en leikstjórar hennar eru Titti Johnson frá Svíþjóð og Helgi Felixson frá Íslandi. Þess má geta að Helgi var einn þátttakenda í sendinefnd forseta Íslands á sviði kvikmyndagerðar í ríkisheimsókn árið 2025. Myndin var upprunalega frumsýnd á kvikmyndahátíðinni Skjaldborg, þar sem hún hlaut verðlaun dómnefndar. Í Svíþjóð verður hún gerð aðgengileg á streymisveitu sænska ríkissjónvarpsins, SVT.
Elín Rósa Sigurðardóttir, sendiherra í Stokkhólmi, tók ásamt sendiherrum Noregs og Finnlands í Svíþjóð þátt í pallborðsumræðum á málþingi um menningarpólitík sem skipulagt var af fagsamtökum á sviði safna og sviðslitsta. Þar var meðal annars rætt um mikilvægi öflugs menningarstarfs fyrir bæði börn og fullorðna og áherslur stjórnvalda hvers lands í málaflokknum.
Í tilefni af sænskri útgáfu ljóðabókarinnar Mara kemur í heimsókn eftir Natöshu S. tók skáldið þátt í samtali við forleggjara sinn, Per Bergström, í embættisbústað sendiráðsins. Natasha S. er fædd í Rússlandi en hefur verið leiðandi rödd í nýrri bylgju íslenskra skálda sem fædd eru erlendis. Árið 2024 varð Natasha S. fyrsta skáldið sem ekki hefur íslensku sem móðurmál til þess að hljóta ljóðabókaverðlaunin Maístjörnuna. Útvarpsmaður Sveriges Radio var viðstaddur og tók viðtal við Natöshu sem hlusta má á hér. Þess má geta að forleggjarinn, Per Bergström hjá forlaginu Rámus, var nýverið skipaður ræðismaður Íslands í Malmö en hann hefur meðal annars gefið út fjölda bóka eftir Sjón og Eirík Örn Norðdahl.
Meira verður það ekki í bili,
Upplýsingadeild