16 október 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið

Aukið aðgengi að aðgerðum með nýju samkomulagi

{image.Description}

Sjúkratryggingar og Klíníkin Ármúla ehf. hafa gert samkomulag um að hefja framkvæmd efnaskiptaaðgerða á grundvelli gildandi samnings aðila um valdar aðgerðir utan heilbrigðisstofnana ríkisins. Einnig hafa Sjúkratryggingar aukið aðgerðamagn í tengslum við gildandi samninga við Klíníkina Ármúla og Orkuhúsið um valdar aðgerðir utan heilbrigðisstofnana ríkisins, með fjölgun bakaðgerða, liðskiptaaðgerða og kviðsjáraðgerða.

„Það er mjög ánægjulegt að tekist hafi samningar um að fjölga þessum aðgerðum. Þetta skiptir miklu máli fyrir sjúklingana sem um ræðir. Með þessu er verið að nýta krafta alls heilbrigðiskerfisins, óháð rekstrarformi með áherslu á þarfir sjúklinga og aukið aðgengi að þjónustu“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.