15 október 2026
/
UNDER með Hildi Guðnadóttur forsýnd í París
Sendiráð Noregs og Íslands í París stóðu nýverið fyrir sérstakri sýningu á tónleikakvikmyndinni Under, í samstarfi við aðstandendur myndarinnar og sjónvarpsstöðina ARTE.
Eitt okkar fremsta tónskáld, Hildur Guðnadóttir, er í aðalhlutverki kvikmyndarinnar, bæði sem höfundur og flytjandi tónlistarinnar, ásamt Óperuhljómsveitinni í Osló undir stjórn Sébastien Glas. Tónleikarnir fara fram í hinu sérstæða neðansjávarhúsi Under í Noregi, fimm metrum undir sjávarmáli, þar sem tónlist, arkitektúr, ljós og haf fléttast saman.
Hægt er að sjá kvikmyndina UNDER á sjónvarpsstöðinni ARTE.