16 október 2026
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Sviðsmyndaæfing stjórnvalda um mögulega veikingu veltihringrásar Atlantshafsins

{image.Description}
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ávarpar þátttakendur í sviðsmyndaæfingu um AMOC.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið stóð í gær fyrir sviðsmyndaæfingu um mögulega veikingu eða hrun veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC) vegna loftslagsbreytinga. Þar var rýnt í þær samfélagslegu, efnahagslegu og öryggistengdu áskoranir sem slíkur atburður gæti haft fyrir íslenskt samfélag og hvernig kunni að vera hægt að viðbúast.

Þátttakendur komu víða úr stjórnkerfinu en markmiðið með æfingunni var að efla skilning stjórnvalda á loftslagsáhættu, vendipunktum og áhrifum á Ísland og að æfa viðbrögð við flóknum loftslagstengdum áskorunum sem snerta öryggi samfélagsins.

Sviðsmyndaæfingin er hluti af alþjóðlegu verkefni á vegum Strategic Climate Risks Initiative (SCRI) í samstarfi við UCL Climate Action Unit og Global Systems Institute við Exeter-háskóla. Æfingin á Íslandi er sú fjórða í röðinni en fyrri æfingar hafa bæði farið fram í Evrópu og Bandaríkjunum. Verkefnið er styrkt af Rockefeller-stofnuninni.

 

„Eitt af lykilhlutverkum stjórnvalda er að greina ógnir og búa samfélagið undir þær. Þannig nálgumst við eldgos og farsóttir og það sama á að gilda um loftslagsáhættu. Með því að rýna sviðsmyndir, kortleggja veikleika og æfa viðbrögð sjáum við betur hvar við stöndum og hvað er brýnast að styrkja. Eftir sem áður er hraðari samdráttur í losun á heimsvísu öruggasta leiðin til að draga úr þessari áhættu,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Frá vinstri: Daniel Jonusas verkefnisstjóri hjá UCL Climate Action Unit, Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Laurie Laybourn framkvæmdastjóri hjá Strategic Climate Risks Initiative og Theo Cox sérfræðingur í stefnumótun hjá Strategic Climate Risks Initiative
Frá vinstri: Daniel Jonusas verkefnisstjóri hjá UCL Climate Action Unit, Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Laurie Laybourn framkvæmdastjóri hjá Strategic Climate Risks Initiative og Theo Cox sérfræðingur í stefnumótun hjá Strategic Climate Risks Initiative

Samstillt viðbrögð þvert á stjórnkerfið

AMOC hefur verið á dagskrá íslenskra stjórnvalda frá því að tugir vísindamanna beindu opnu bréfi til Norrænu ráðherranefndarinnar á Arctic Circle í október 2024. Haustið 2025 vísaði ríkisstjórn Íslands málinu til þjóðaröryggisráðs og var það í fyrsta sinn sem tiltekin loftslagsáhætta var lögð formlega fyrir ráðið.

Síðan þá hefur verið unnið að samstilltum viðbrögðum þvert á stjórnkerfið og er sviðsmyndaæfingin liður í þeirri vinnu. Jóhann Páll skipaði stýrihóp sérfræðinga sem fer yfir stöðu vísindalegrar þekkingar á AMOC og öðrum loftslagsvendipunktum og greinir möguleg viðbrögð Íslands. Um leið hefur Jóhann Páll farið fyrir vitundarvakningu í alþjóðasamfélaginu um að loftslagsáhætta sé öryggisógn við samfélög, svo sem á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 2025, með samstarfi við fremsta vísindafólk í heimi á þessu sviði, í gegnum Norrænu ráðherranefndina og nýverið á Arctic Circle.

Þátttakendur á sviðsmyndaæfingunni komu víða úr stjórnkerfinu.
Þátttakendur á sviðsmyndaæfingunni komu víða úr stjórnkerfinu.