15 október 2026
/

Halla Sif ein af kvenhetjum FAO

{image.Description}

Halla Sif ein af kvenhetjum FAO.

Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna í Róm tileinkar daginn 15. október ár hvert konum í dreifbýli og dagurinn eftir, sá 16., er tileinkaður konum sem starfa í landbúnaði og við framleiðslu matvæla. Stofnunin veitti í því tilefni 100 kvenhetjum í landbúnaði, og sem skarað hafa fram úr hver á sínu sviði, sérstaka viðurkenningu fyrir starf sitt og árangur.   Kvenhetjurnar fást við verkefni sem spanna virðiskeðjuna alla og gegna ólíkum hlutverkum sem tengjast framleiðslu matvara.  Meðal kvenhetja FAO er Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, rúmlega þrítugur garðyrkjubóndi á Flúðum.

Í viðurkenningarorðum um Höllu segir að hún sé frumkvöðull sem hafi byggt upp öflugt fyrirtæki í garðyrkju á grunni nýsköpunar, með áherslu á að auka fjölbreytni í staðbundinni framleiðslu og að styrkja tengsl neytenda og framleiðenda. Sem stofnandi Sólskins grænmetis á Flúðum í Hraunamannahreppi framleiði hún grænmeti allan ársins hring við krefjandi umhverfisskilyrði og smáan heimamarkað. Hún hafi komið upp einföldu sölukerfi með stuttum boðleiðum og leggi áherslu á sjálfbæra fæðuframleiðslu. Starf hennar stuðli að styrkri, neytendamiðaðri og umhverfisvænni garðyrkju á Íslandi.

Til hamingju Halla Sif!

Tengill á síðu FAO https://www.fao.org/100-women-heroes/en