Úrskurður nr. 401/2026
Hinn 17. september 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 401/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU25120108
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 21. desember 2025 kærði [...]kt. [...], ríkisborgari Íran (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. desember 2025, um að synja umsókn hans um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið, sbr. 78. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Með ákvörðuninni var kæranda jafnframt ákvörðuð brottvísun og tveggja ára endurkomubann, sbr. 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á endurnýjun umsóknar hans um dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við landið. Þá krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði ógilt. Til þrautavara er þess krafist að brottvísun kæranda verði ógilt með vísan til 102. gr. laga um útlendinga.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Hinn 23. september 2011 fékk kærandi fyrst útgefið dvalarleyfi hér á landi og hefur frá þeim tíma haft dvalarleyfi hér á landi, síðast á grundvelli sérstakra tengsla við landið sem hafði gildistíma til 4. mars 2025. Kærandi lagði fram umsókn um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið 31. janúar 2025. Útlendingastofnun taldi fylgigögn með umsókn kæranda ekki vera fullnægjandi. Með bréfi Útlendingastofnunar til kæranda, dags. 29. apríl 2025, var kæranda leiðbeint um að leggja fram gögn sem sýni fram á trygga framfærslu á gildistíma dvalarleyfis. Kærandi lagði fram greinargerðir til Útlendingastofnunar 29. maí, 1. og 4. ágúst 2025, ásamt fylgigögnum. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. desember 2025. Í ákvörðuninni kemur fram að stofnunin hafi ekki forsendur til að líta svo á að kærandi teljist hafa sýnt fram á með viðhlítandi hætti að geta framfleytt sér á því tímabili sem hann sæki um dvalarleyfi, sbr. 1. mgr. 55. gr. laga um útlendinga, sbr. 56. gr. sömu laga. Var því umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla synjað og honum brottvísað frá Íslandi á grundvelli 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda samdægurs.
Hinn 21. desember 2025 lagði kærandi fram stjórnsýslukæru. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 22. desember 2025, var kæranda veittur frestur til að leggja fram greinargerð. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 9. janúar 2026. Frekari gögn bárust 22. janúar, 22. apríl, 29. apríl, 8. maí, 20. maí, 28. maí, 2. júní, 9. júní, 18. júní, 25. ágúst, 11. og 13. september 2026.
III. Málsástæður og rök kæranda
Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið samkvæmt 78. gr. laga um útlendinga. Kærandi fjallar um 1. og 2. mgr. 55. gr. laga um útlendinga. Óumdeilt sé að kærandi hafi dvalið hér á landi frá árinu 2011 og hafi komið að atvinnurekstri og [...] um árabil. Ekki verði séð að tengsl kæranda hafi minnkað eða skerst með öðrum hætti. Kærandi vísar til þess að hann hafi aldrei þegið greiðslur í formi félagslegrar aðstoðar frá hinu opinbera hér á landi. Þá fjalli Útlendingastofnun um innistæðu á bankareikningi hans en að mati Útlendingastofnunar sé framlagt gagn ófullnægjandi. Kærandi telji sig hafa skýrt með greinargóðum hætti hvernig uppruna fjárins sé háttað. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar nr. 903/2025 frá 27. nóvember 2025. Kærandi telji sig uppfylla bæði skilyrði 78. gr. laga um útlendinga um tengsl við landið ásamt því að uppfylla 55. gr. sbr. 56. gr. laganna.
Til vara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði ógilt og að málinu verði vísað aftur til nýrrar meðferðar. Kærandi vísar til þess að í bréfi Útlendingastofnunar, dags. 29. apríl 2025, sé vísað til lágmarksviðmiðs um framfærslu. Kærandi hafi framvísað ráðningarsamningi við tiltekið fyrirtæki þar sem kveðið sé á um mánaðarleg laun sem séu hærri en framangreint lágmarksviðmið. Að auki hafi kærandi framvísað öðrum ráðningarsamningi þar sem kveðið sé á um mánaðarlegar launagreiðslur. Kærandi telji að ekki sjáist af lestri ákvörðunarinnar hvers vegna stofnunin telji að ráðningarsamband milli hans og nafngreinds fyrirtækis sé óvirkt. Kærandi hafi þá sýnt fram á nægilegt fjármagn í formi bankainnistæðu og ráðningarsamninga. Þau mál sem kærandi hafi til meðferðar hjá Ríkisskattstjóra séu óskyld umsókn hans um áframhaldandi dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við landið. Kærandi telji að ákvörðunin sé ekki nægilega rökstudd og að Útlendingastofnun hafi ekki lagaheimild fyrir jafn víðtækri gagnaöflun og raun beri vitni. Kærandi vísar til lögmætisreglunnar í þessu samhengi.
Til þrautavara krefst kærandi þess að brottvísun verði felld niður með vísan til 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi sérstök tengsl við landið, sbr. skilyrði 78. gr. laga um útlendinga. Kærandi eigi jafnframt aldraða móður hér á landi sem sé honum háð. Verði kæranda brottvísað án móður sinnar muni það verða henni til ama og íþyngjandi í daglegum athöfnum. Móðir kæranda hafi ekki sterkt bakland eða félagslegt tengslanet hér á landi sem auki umönnunarþörf hennar. Kærandi vísar til þess að íslenskt velferðarkerfi sinni aðeins litlum hluta þeirrar umönnunar sem kærandi hafi sinnt.
Í viðbótarathugasemdum kæranda, dags. 20. maí 2026, kemur fram að hann hafi nú lagt fram lögmannsreikninga og staðfestingu á viðskiptum hans við Íslandsbanka. Kærandi hyggist sýna fram á að hann hafi næg fjárráð enda hafi staða á reikningi í hans eigu verið 3,75 milljónir króna 25. apríl 2025. Kærandi leggi fram framangreinda reikninga til að sýna fram á að hann hafi þurft að greiða lögmönnum sínum og þess vegna hafi bankainnistæða hans hreyfst. Þá leggi kærandi áherslu á að millifærslur milli eigin reikninga hans séu vegna leigugreiðslna og annars daglegs kostnaðar. Þá hafi kærandi jafnframt lagt fram gögn sem sýni fram á hagnað af rafmyntkaupum. Kærandi hafnar því að laun hafi ekki verið greidd út en hann telji sig á fyrri stigum málsins hafa lagt fram kvittanir til stuðnings útgreiðslu þeirra en hann hafi fengið þessi laun greidd í formi reiðufjár.
Í viðbótarathugasemdum kæranda, dags. 2. júní 2026, kemur fram að kærandi telji sig uppfylla skilyrði um örugga framfærslu, sbr. 55. gr. laga um útlendinga. Við málsmeðferð kærunefndar hefur kærandi lagt fram margvísleg ný gögn sem sýni fjárhagsstöðu hans. Kærandi vísar til framlagðs skjals sem sýni skjáskot af niðurstöðu álagningar en það gagn ásamt áður framlögðum gögnum sýni fram á öruggar tekjur kæranda og þar með uppfylli hann skilyrði laga um útlendinga um örugga framfærslu.
Í viðbótarathugasemdum kæranda, dags. 18. júní 2026, kemur fram að kærandi telji óheimilt að brottvísa honum með vísan til meginreglu flóttamannaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement), sem lögfest sé í 42. gr. laga um útlendinga. Aðstæður í heimaríki kæranda séu óstöðugar og vopnuð átök hafi geisað þar undanfarna mánuði með vopnahléum inn á milli. Yrði kæranda gert að snúa aftur til heimaríkis sé lífi hans og frelsi hætt komið. Kærandi vísar til rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 78. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi á grundvelli þess að hann teljist hafa sérstök tengsl við landið, að fullnægðum skilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr. laganna, sé hann eldri en 18 ára og falli ekki undir ákvæði um önnur dvalarleyfi samkvæmt lögum þessum eða fullnægi ekki skilyrðum þeirra. Í 2. mgr. 78. gr. sömu laga kemur fram að til sérstakra tengsla geti m.a. talist tengsl sem útlendingur hefur stofnað til meðan á dvöl hans hér á landi hefur staðið samkvæmt útgefnu dvalarleyfi sem verður ekki endurnýjað eða hefur verið afturkallað vegna breyttra aðstæðna eða annarra atvika. Í 3. mgr. 78. gr. laganna er kveðið á um að heildstætt mat skuli fara fram á tengslum umsækjanda við landið. Við það mat skuli að jafnaði horft til lengdar lögmætrar dvalar. Jafnframt sé heimilt að líta til fjölskyldutengsla, þ.e. fjölskyldusamsetningar umsækjanda með tilliti til umönnunarsjónarmiða, sbr. a-lið 3. mgr. 78. gr. laga um útlendinga, og félagslegra og menningarlegra tengsla við landið á grundvelli atvinnuþátttöku eða annarra sambærilegra tengsla, sbr. b-lið 3. mgr. 78. gr. laganna. Þá má jafnframt ráða af 2. málsl. 5. mgr. 78. gr. laga um útlendinga að um fjölskyldutengsl fari samkvæmt VIII. kafla laga um útlendinga.
Í 55. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um grunnskilyrði dvalarleyfis. Samkvæmt 1. mgr. 55. gr. er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi í samræmi við ákvæði VI.-IX. kafla samkvæmt umsókn uppfylli hann skilyrði stafliða a-d ákvæðisins, en í a-lið kemur fram að framfærsla útlendings skv. 56. gr. og sjúkratrygging þurfi að vera örugg. Samkvæmt 1. mgr. 56. gr. laga um útlendinga þarf útlendingur sem er eldri en 18 ára og sækir um dvalarleyfi að sýna fram á að framfærsla hans sé trygg þann tíma sem hann sækir um að fá að dveljast hér á landi. Þá segir í 4. mgr. 56. gr. að ráðherra sé heimilt, í samráði við ráðherra sem fer með félagsmál, að setja í reglugerð nánari ákvæði um kröfu um trygga framfærslu, þ.m.t. um hvað teljist trygg framfærsla, hvernig framfærslu skuli háttað og í hvaða tilvikum heimilt sé að víkja frá þeim kröfum. Ráðherra hefur ekki útfært nánar í reglugerð hvað telst trygg framfærsla. Í úrskurðarframkvæmd kærunefndar, sbr. einkum úrskurði nr. 229/2018, dags. 12. júlí 2018, og nr. 122/2021, dags. 17. mars 2021, hefur nefndin lagt áherslu á að framfærsla einstaklings sé sjálfstæð eða frá einstaklingi sem beri lögbundna framfærsluskyldu gagnvart honum. Í framkvæmd hefur verið byggt á tekjum sem viðkomandi aflar af atvinnu eða fé sem hann fer með sannanleg yfirráð yfir, t.d. innstæðu á bankareikningi sem skráður er á nafn viðkomandi eða ef innstæða á reikningi á öðru nafni er tryggð viðkomandi með öruggum hætti.
Líkt og að framan greinir hefur ráðherra heimild til að setja í reglugerð nánari ákvæði um kröfu um trygga framfærslu, en hefur ekki nýtt þá heimild. Samkvæmt ákvæði 4. mgr. 56. gr. laga um útlendinga og skýringum við ákvæðið í frumvarpi til laganna er þar einkum átt við upphæðir og aðra hlutlæga mælikvarða við mat á tryggri framfærslu. Ákvæði laga um útlendinga sem fjalla um trygga og örugga framfærslu eru matskennd en í því felst að löggjafinn hefur eftirlátið stjórnvöldum sem annast framkvæmd laganna, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga, að leggja mat á aðstæður sem byggist á málefnalegum sjónarmiðum.
Krafa um trygga og örugga framfærslu er eitt grunnskilyrða dvalarleyfis samkvæmt lögum um útlendinga. Þeir hagsmunir sem búa að baki því skilyrði snúa bæði að einstaklingnum sjálfum og íslensku samfélagi. Er því ætlað að tryggja að útlendingur fái raunhæft tækifæri til að dvelja hér á landi til samræmis við skilyrði og tilgang dvalarleyfis, geti séð fyrir sér án þess að lenda í fjárhagsvandræðum, s.s. varðandi húsnæði og daglegar þarfir, sem og til að koma í veg fyrir að viðkomandi verði útsettur fyrir misneytingu vegna bágrar fjárhagsstöðu. Er þá horft til þess að dvalarleyfishafar búa að jafnaði við skertara öryggisnet en í heimaríki, s.s. varðandi aðstoð fjölskyldu, vina og aðgangs að félagslegu kerfi. Jafnframt er spornað við því að útlendingar sækist í ólögmæta atvinnu sem gæti gert þá útsetta fyrir mansali, kynbundnu ofbeldi og annarri nauðung.
Við mat á því hvort framfærsla teljist örugg og trygg skal leggja heildstætt mat á aðstæður útlendings hverju sinni. Við það mat þarf m.a. að skoða hvort fjárhæð framfærslu sé næg og hvort trúverðugt sé að sú framfærsla sem byggt er á verði aðgengileg kæranda á gildistíma þess dvalarleyfis sem sótt er um.
Hinn 23. september 2011 fékk kærandi fyrst útgefið dvalarleyfi hér á landi og hefur frá þeim tíma haft dvalarleyfi hér á landi, síðast á grundvelli sérstakra tengsla við landið sem hafði gildistíma til 4. mars 2025. Hinn 31. janúar 2025 sótti kærandi um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið. Þegar metið er hvort umsækjendur um tímabundið dvalarleyfi hér á landi geti framfleytt sér á gildistíma dvalarleyfis hefur verið stuðst við framfærsluviðmið sveitarfélaga sem nemur 239.895 krónum á mánuði. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi lagt fram upplýsingar um stöðu á bankareikningi ásamt ráðningarsambandi við tvö nafngreind fyrirtæki. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra hafi kærandi og félög tengd honum verið til rannsóknar af ýmsum ástæðum. Ríkisskattstjóri telji að lítil starfsemi sé hjá framangreindum félögum en kærandi hafi ekki sýnt fram á að honum hafi verið greidd laun á árunum 2024 og 2025 þrátt fyrir að hafa fengið skráðar færslur í staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra liggi engin gögn fyrir um að launagreiðslur hafi í raun verið inntar af hendi. Útlendingastofnun taldi ráðningarsamninga sem kærandi lagði fram við úrvinnslu umsóknar ekki til þess fallna að sýna fram á að hann muni hafa tekjur, þar sem fyrirtæki þau sem hann hafi ráðningarsamband við hafi samkvæmt gögnum Ríkisskattstjóra ekki verið með starfsemi síðustu ár. Þá hafi Útlendingastofnun óskað eftir færsluyfirliti á bankareikningi kæranda til að sýna fram á að sú innstæða sem þar væri, hefði verið aflað með lögmætum hætti en kærandi ekki fengið lán til skamms tíma með það fyrir augum að sýna fram á að hann gæti framfleytt sér á meðan dvöl stæði. Kærandi hafi lagt fram færsluyfirlit yfir annan reikning en krotað hafi verið yfir reikningsnúmer og rétt reikningsnúmer fært handskrifað inn. Taldi Útlendingastofnun að gögn frá banka þar sem leiðrétting væri handskrifuð inn á áður dagsett vottorð vera ótraust og óábyggilegt. Með vísan til framangreinds taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði því ekki sýnt fram á að umsókn hans uppfyllti skilyrði um trygga framfærslu á gildistíma dvalarleyfis, sbr. 1. mgr. 55. gr. laga um útlendinga, sbr. 56. gr. sömu laga.
Líkt og að framan er rakið þarf útlendingur að sýna fram á að hann geti framfleytt sér hér á landi með eigin framfærslu eða frá einstaklingi sem beri framfærsluskyldu gagnvart umsækjanda, svo sem tekjum sem viðkomandi aflar sjálfur eða fé sem hann fer með sannanleg yfirráð yfir, t.d. innstæðu á bankareikningi sem skráður er á nafn viðkomandi eða ef innstæða á reikningi á öðru nafni er tryggð viðkomandi með öruggum hætti. Verður ekki séð að kærandi hafi fært fullnægjandi sönnur á það við málsmeðferð Útlendingastofnunar. Við meðferð málsins á kærustigi lagði kærandi m.a. fram ráðningarsamning við nafngreint fyrirtæki þar sem fram kemur að starfshlutfall sé 100% og að mánaðarlaun séu 550.000 krónur. Í ljósi þess að nú liggur fyrir nýtt gagn í máli kæranda sem áhrif getur haft á niðurstöðu málsins er það mat kærunefndar að nauðsynlegt sé að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun þar sem lagt sé mat á hið nýja gagn. Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að stuðla að réttaröryggi aðila máls með skoðun máls hans á tveimur stjórnsýslustigum. Með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga er það mat kærunefndar að málið þarfnist frekari rannsóknar að því er varðar framlagt gagn kæranda.
Að framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný. Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er að mati kærunefndar ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.
The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.
Jóna Aðalheiður Pálmadóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir