30 janúar 2026
/
Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 69/2026

Hinn 30. janúar 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 69/2026

í stjórnsýslumálum nr. KNU24100183 og KNU24100184

Kæra [...] þeirra

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 29. október 2024 kærðu […], fd. […] (hér eftir M) og […], fd. […] (hér eftir K), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 20. febrúar , um að synja þeim og börnum þeirra, […], fd. […] (hér eftir A) og […], fd. […] (hér eftir B), ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi, ásamt því að veita þeim dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og börn þeirra eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Venesúela og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 25. maí 2023.

Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 18. mars 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. Kærendur greindu frá því að M hafi starfað hjá ríkisrekna olíufyrirtækinu [...] (s. Petróleos de Venezuela, S.A) í um 18 ár og sinnt verkefnum sem hafi lotið að skráningu og samræmingu olíusendinga. K greindi frá því að hún hafi unnið hjá auglýsingafyrirtæki í Venesúela og hafi fengið um 20 dollara í laun á mánuði. Hún kvað kærendur hafa átt erfitt með að tryggja nauðsynjar, þar á meðal mat og hreint vatn og að þau hafi reglulega þurft að sjóða vatn til drykkjar. Kærendur og börn þeirra væru heilsuhraust og hafi fengið heilbrigðisþjónustu þegar þau hafi leitað eftir henni en þurft að greiða úr eigin vasa þegar sjúkratrygging þeirra hafi verið felld niður. Kærendur hafi búið í eigin húsnæði. Kærendur kváðust hvorki vera aðilar að stjórnmálaflokki eða virk í þágu nokkurs málsstaðar í heimaríki.

Kærendur kváðu flótta þeirra mega rekja til þess að M hafi við starf sitt hjá [...], fengið tölvupóst þann 15. janúar 2019 með skjali þar sem hafi komið fram að hann hafi borið ábyrgð á sölu á dýrum farmi. Nafn M hafi verið á skjalinu, en hann ekki kannast við skjalið og taldi það falsað. M hafi farið til næsta yfirmanns og tilkynnt þetta til hennar. Yfirmaður M hafi upplýst hann um hún hafi vitað af þessu og að verið væri að rannsaka hann. M hafi í kjölfarið upplýst innri öryggisdeild fyrirtækisins um atvikið. Yfirmaður hans hafi orðið reið og að sögn K hafi verið reynt að reka M í sömu viku. M greindi frá því að hafa orðið fyrir miklu áreiti af hálfu yfirmannsins og að hún hafi dregið til baka samning um ákveðið vinnufyrirkomulag sem hafi verið í gildi frá árinu 2016 vegna veikinda bróður M og komið í veg fyrir beiðnir M, m.a. til forseta [...], um aðstoð vegna veikinda bróður hans. M hafi verið fluttur á milli deilda innan fyrirtækisins og orðið fyrir auknum þrýstingi í starfi. M greindi frá því að hann hafi lagt fram formlega kvörtun á hendur yfirmanni sínum og í kjölfarið hafi áreitið aukist verulega. Hann hafi talið fólk innan fyrirtækisins, sem tengist hernum og pólitískum hópum, líta á hann sem ógn sökum þess að hann hafi bent á spillingu innan fyrirtækisins. M kvað nafn sitt og síðar nafn K hafa verið birt í fjölmiðlum og af háttsettum stjórnvöldum í tengslum við spillingu innan fyrirtækisins. Kærendur greindu frá því að hafa orðið fyrir ítrekuðum hótunum í gegnum símtöl í heimasíma þeirra. M greindi þá frá atviki sem hafi átt sér stað í nóvember 2019 þar sem hann hafi verið að keyra þegar honum hafi verið fylgt eftir af vopnuðum, grímuklæddum mönnum á mótorhjólum. M hafi misst stjórn á bíl sínum og ekið út af veginum en sloppið ómeiddur. Í annað skipti hafi ótilgreindir aðilar reynt að brjótast inná heimili þeirra. M kvað öryggisstofnanir hafa reynt að handtaka hann í nóvember 2019 og apríl 2020 ásamt því að hann hafi verið sakaður um að eyða gögnum og vinna gegn hagsmunum ríkisins. Kærendur greindu frá því að fjölskylda þeirra hafi einnig orðið fyrir áreiti. Í nóvember 2019 hafi [...] og þegar kærendur hafi leitað á spítala með hana hafi þau komist að því að búið væri að loka sjúkratryggingu sem þau hafi notið í gegnum atvinnu M. K taldi að lokun sjúkratryggingar fjölskyldunnar hafi verið afleiðing af máli M. K kvaðst hafa þurft að leita á nokkra spítala til þess að fá nauðsynlega heilbrigðisþjónustu fyrir A. Þá hafi þau þurft að greiða fyrir lyf og heilbrigðisþjónustu úr eigin vasa.

M kvaðst hafa áfram tilkynnt til yfirmanna sinna um ýmis mál sem hann tengdi við spillingu innan félagsins, s.s. fermingu skipa sem ekki hafði verið greitt fyrir olíufarminn. DGCIM hafi mætt heim til kærenda til þess að reyna að þvinga M til þess að skrifa undir skjöl og fara formlega og leggja fram kæru sem M hafi ekki viljað. M greindi frá því að eftir að hann hafi verið kvaddur til að bera vitni gegn fyrrum yfirmanni sínum árið 2022, hafi yfirvöld og hópar tengdir ríkinu sett enn meiri þrýsting á hann, þar á meðal kvaðst M hafa neitað að undirrita játningar sem hann taldi falsaðar eða gagnstæðar sannleikanum. Í byrjun árs árið 2022 hafi kviknað í tölvu M þegar hann hafi mætt til vinnu og í kjölfarið hafi hann verið sakaður um að hafa reynt að eyða gögnum og látin sæta yfirheyrslu í einhverja klukkutíma. Í kjölfarið hafi lögreglumenn neytt hann til þess að skrifa undir uppsögn og skjöl þar sem honum hafi verið meinað að vinna fyrir [...] eða önnur olíufyrirtæki hvort sem væri innanlands eða erlendis. Þá hafi honum verið hótað að gefa ekki upp upplýsingar um fyrirtækið á samfélagsmiðlum eða annarsstaðar ellegar myndi hann verða handtekinn. Kærendur kváðust hafa orðið fyrir alvarlegri árás í febrúar 2023 þegar skotið hafi verið inn í svefnherbergi A. Þau hafi talið atvikið sýna að aðilar tengdir ríkinu eða vopnaðir glæpahópar sem starfi fyrir ríkið hafi viljað hræða þau eða þagga niður í þeim. K greindi frá því að atvikið hafði átt sér stað þegar þau hafi verið heima og að þau hafi fyrst talið að hleypt hafi verið af skotvopni í nágrenni þeirra, en síðar séð för eftir byssukúlu inná heimili þeirra. K greindi frá því að hafa ekki þorað að senda A í skólann vegna hræðslu við að henni yrði rænt og aðrar hefndaraðgerðir síðustu tvo mánuðina áður en þau hafi yfirgefið landið. Kváðust kærendur hafa lifað við stöðugan ótta og eftir að nafn M hafi birst í fjölmiðlum í tengslum við rannsókn á spillingu og eftir að fyrrverandi yfirmaður M hafi verið látin laus úr fangelsi hafi þau talið rétt að flýja land. M hafi selt nokkra bíla til að fjármagna ferðina til Íslands. M telji yfirmenn [...], öryggissveitir og hópa innan ríkisins líta á hann sem uppreisnarmann sökum þess að hann hafi tilkynnt um spillingu innan [...] og borið vitni gegn yfirmönnum sínum. Kærendur kváðu lögregluna í [...] vera undir stjórn sömu aðila og hafi staðið í hótunum gagnvart kærendum og því hafi ekki verið hægt að leita verndar af hálfu ríkisins. Kærendur telja sig og börn sín eiga hættu á handtöku, ofbeldi og jafnvel lífláti verði þau send aftur til heimaríkis.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barna kærenda kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við þau með vísan til ungs aldurs þeirra og framburðar foreldra þeirra.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kærendum og börnum þeirra synjað um alþjóðlega vernd en veitt dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 29. október 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum. Viðbótargögn bárust nefndinni 7. júlí 2025 og 27. nóvember 2025.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kærenda lýst með sambærilegum hætti og í viðtölum kærenda.

Í greinargerð kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt.

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og börnum þeirra verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja á því að þau séu flóttamenn á grundvelli þess að þau hafi ástæðuríkan ótta við að vera ofsótt vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi og vegna stjórnmálaskoðana. Þá þurfi einnig að taka tillit til almennra aðstæðna í Venesúela.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og börnum þeirra verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggja kærendur á því að einstaklingsbundnar aðstæður með hliðsjón af almennu ástandi í Venesúela leiði til þess að skylt sé að veita þeim viðbótarvernd. Kærendur byggja á því að þau eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þau send aftur til heimaríkis. M hafi orðið fyrir viðvarandi hótunum, áreiti, innbrotum og árásum allt frá árinu 2019.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar um veitingu dvalarleyfis á grundvelli 2. mgr. 74. gr. verði staðfest.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Er því mótmælt að ritaður vitnisburður M hafi verið virtur að vettugi án frekari rökstuðnings en að um einhliða frásögn sé að ræða. Þá sé vísað ítrekað í skjöl sem kærendur hafi lagt fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun í trúverðugleikamati, en ávallt haldið því fram að gögnin séu ekki til þess fallin að renna stoðum undir ástæðu kærenda um flótta þeirra frá Venesúela og hafi því ekki þýðingu fyrir niðurstöðu málsins. Því er mótmælt að litið sé fram hjá gögnum með slíkri röksemdarfærslu. Það sé brot á rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins að stofnunin hafi afskrifað gögn málsins án þess að lagt hafi verið mat á hvert skjal, samhengi þess og þýðingu fyrir úrlausn mála kærenda. Þá hafi með framangreindu sönnunarbyrðin alfarið verið lögð á kærendur. Frásagnir kærenda, framlögð gögn og heimildir hafi gefið stofnuninni tilefni til frekari rannsóknar og rökstuðnings. Byggja kærendur einnig á því að Útlendingastofnun hafi í hinni kærðu ákvörðun ekki fjallað um þá meðferð sem ríkisborgarar Venesúela urðu fyrir, við komu þeirra til heimaríkis þann 15. nóvember 2023 og hvaða þýðingu það hefði fyrir kærendur.

Kærunefnd hefur við meðferð málsins gert sjálfstætt og heilstætt mat á frásögnum kærenda, framlögðum gögnum, aðstæðum í heimaríki og þeim sjónarmiðum sem byggt er á í kærunni. Þrátt fyrir að fallast megi á það með kærendum að rökstuðningi stofnunarinnar sé að einhverju leyti áfátt hvað varðar framlögð gögn kærenda verðu þó eins og hér stendur sérstaklega á ekki séð að Útlendingastofnun hafi með framangreindu brotið gegn rannsóknarskyldu hennar með þeim hætti að það haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins, og þykir því ekki ástæða til að ógilda ákvörðun Útlendingastofnun af þeim sökum.

Þó fallast megi á það með kærendum að farið hefði betur á því að Útlendingastofnun ávarpaði atvik er hafi átt sér stað í kjölfar flutnings ríkisborgara Venesúela til heimaríkis síns á vegum íslenskra stjórnvalda er ljóst að afstaða íslenskra stjórnvalda hvað framangreint varðar er sú að ekkert bendi til þess að almennir borgarar sem snúa til baka til Venesúela eigi á hættu að sæta áreiti eða meðferð af hálfu stjórnvalda sem nái því marki að teljast ofsóknir, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í ljósi niðurstöðu mála kærenda hvað varðar einstaklingsbundnar aðstæður þeirra er ekki um annmarka á ákvörðunum Útlendingastofnunar að ræða sem leiða til ógildingar þeirra.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru að öðru leyti í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

  1. ríkið,

  2. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

  3. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

5.3 Auðkenni

Umsækjanda um alþjóðlega vernd er skylt að veita atbeina sinn til að upplýsa hver hann er, sbr. 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og börn sín. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og börn þeirra hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og börn þeirra séu venesúelskir ríkisborgarar.

5.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
  • ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Punished for Seeking Change, Killings, Enforced Disappearences and Arbitrary Detention following Venezuela‘s 2024 Election (Human Rights Watch, 30. apríl 2025);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 13. ágúst 2025);
  • UNHCR Venezuela Operational update, May 2025 (The UN Refugee Agency, 7. maí 2025);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Venezuela Factsheet April 2025 (The UN Refugee Agency, 9. apríl 2025);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezuela (Britannica, síðast uppfært 18. ágúst 2025);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 18. ágúst 2025);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders
  • (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
  • World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025).

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi styrkt völd sín á kostnað löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvalds landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019 í kjölfar umdeildra forsetakosninga, sem sætt hafi gagnrýni fyrir að vera hvorki óháðar né sanngjarnar. Nicolás Maduro hefur neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningunum. Í kjölfarið hafi hluti stjórnarandstöðunnar lýst Juan Guaido sem bráðabirgðaforseta, en stjórnvöld undir forystu Maduro haldið áfram að fara með raunveruleg völd ríkisins og notið stuðnings öryggissveita. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hafi stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en tekið þátt í sveitarstjórnarkosningum árið 2021 sem hafi farið fram undir alþjóðlegu kosningareftirliti, en framkvæmd þeirra hafi verið ábótavant. Samningaviðræður milli ríkisstjórnar Maduro og stjórnarandstöðunnar hafi hafist á ný í nóvember 2022 og þar komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnarandstaðan leyst upp bráðabirgðastjórn Juan Guaido í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar hafi enn verið að koma Maduro frá völdum. Ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan hafi samþykkt á fundi í Barbados 17. október 2023 að halda forsetakosningar í Venesúela seinni hluta ársins 2024 undir alþjóðlegu eftirliti. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og samningurinn undirritaður með milligöngu Noregs. Hinn 22. október 2023 valdi stjórnarandstaðan Maríu Corinu Machado sem fulltrúa sinn í kosningunum. Hinn 30. október 2023 ógilti Hæstiréttur Venesúela þá niðurstöðu og frestaði forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið valdi stjórnarandstaðan Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn og staðfesti landskjörstjórnin valið 26. mars 2024. Forsetakosningar fóru fram 28. júlí 2024 í Venesúela og landkjörstjórn lýsti því yfir að Maduro hafi hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan mótmælti niðurstöðum kosninganna og sagði Gonzalez vera rétt kjörinn forseta. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, aðrar þjóðir og alþjóðlegir aðilar hafi lýst yfir áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspeglaði ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og var kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar, sem hafi enn ekki verið gert.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld hafi áfram takmarkað borgaraleg réttindi og sótt pólitíska andstæðinga sína til saka án réttlátrar málsmeðferðar. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur fram að handtökur og varðhöld yfirvalda á pólitískum andstæðingum, aðgerðir gegn mótmælum, lokun fjölmiðla og pyndingar og ómannúðleg meðferð ætlaðra og raunverulegra stjórnarandstæðinga grafi undan tjáningarfrelsi og rétti til mótmæla. Í skýrslum Freedom House frá 2024 og 2025 er það mat staðfest að stjórnvöld hafi lokað nánast öllum rásum fyrir pólitíska mótstöðu og viðhaldið kerfisbundnum takmörkunum á borgaralegum og pólitískum réttindum, þar á meðal með handahófskenndum handtökum og pólitískri misnotkun réttarkerfisins. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína og öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað beitt mótmælendur ofbeldi, þar á meðal barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og væru dómsmálayfirvöld samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með útgáfu afturvirkra handtökuheimilda og fyrirskipana um gæsluvarðhöld án fullnægjandi sönnunargagna.

Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 kemur fram að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið alvarleg og kerfisbundin mannréttindabrot frá árinu 2014, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæp gegn mannkyni (e. Crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í því skyni að þagga niður andstöðu við ríkisstjórn Maduro og hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) komust að sambærilegri niðurstöðu í skýrslum sínum frá 2020 og 2021, þar sem m.a. er greint frá þúsundum tilvika aftaka án dóms og laga, handahófskenndum handtökum, þvinguðum mannshvörfum og ýmsum aðferðum pyndinga s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 tilkynnti saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) í nóvember 2021 þá ákvörðun dómstólsins að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknaranum verið heimilað að opna skrifstofu sína í Karakas. Samkvæmt skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hafði dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita, þó talið var að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafi í júní 2023 tilkynnt að rannsókninni yrði haldið áfram í Venesúela og að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas. Fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjuðu framangreindri ákvörðun en beiðni þeirra um að stöðva rannsóknina hafi verið hafnað 1. mars 2024.

Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað og ásakanir um óréttmætar kosningar aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Aðgerðir hafi m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um slíkt, sem og að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Öryggissveitir hafi verið sendar á heimili einstaklinga og margir handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi kosningaviðburðum stjórnarandstöðunnar, þar á meðal fyrirtækjaeigenda, starfsmanna og fjölskyldna þeirra, m.a. fyrir að útvega ýmis aðföng vegna slíkra viðburða. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, án ákæru og látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmæla hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi jafnframt rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga, aðgerðasinna, blaðamanna og mannréttindasinna, þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka í aðdraganda kosninganna og í kjölfar þeirra. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti né hafi verið gætt að réttlátri málsmeðferð. Telji nefndin að stjórnvöld hafi með þessum aðgerðum framið verknað sem geti talist glæpur gegn mannkyni, gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og teljist raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.

Samkvæmt m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni og hafi yfirvöld stefnt að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins hafi stjórn yfirvalda á öryggissveitum landsins minnkað undanfarin ár og ríkisstjórn Maduro í auknum mæli treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr mótmælum. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir fjölda vopnaðra hópa sem starfa víða um landið og styðja ríkisstjórnina. Þótt óljóst sé að hve miklu leyti yfirvöld hafi formlega stjórn á þessum hópum, hafi þeir tekið þátt í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro.

Í skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Þrátt fyrir fækkun slíkra dauðsfalla á árunum 2018 til 2019 sé það ekki talið til marks um minnkandi ofbeldi í landinu, fremur hafi vopnahópum tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states),sem dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi einnig rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað m.a. vegna erfiðleika við greiðslu lausnargjalda í kjölfar óðaverðbólgu. Nú á síðari árum hafi orðið aukning á glæpum á borð við rán, mannrán og fjárkúgun, einkum í tengslum við lögleiðingu og greiðara aðgengi að erlendum gjaldmiðlum, sem hafi jafnframt leitt til þess að smærri glæpahópar hafa sameinast við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslur um glæpatíðni í landinu. Samkvæmt skýrslu stofnunarinnar fyrir árið 2020 hafi morðtíðni í landinu það ár verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa.Í skýrslu þeirra fyrir árið 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis hafi lækkað í 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa, samanborið við 40,4 árið 2022, en áfram hafi verið skráður verulegur fjöldi ofbeldistilvika, þar á meðal dauðsföll af hálfu yfirvalda og fjöldi tilvika þar sem gerendur hafi verið ótilgreindir.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hafi fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Skotmörk slíkra brota séu einkum fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. innflutnings-, flutninga- og þjónustufyrirtæki auk smærri atvinnurekenda. Greiðslukröfur séu að jafnaði miðaðar við greiðslugetu þolanda og geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 dollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum og fylgi henni oft alvarlega hótanir, eignaspjöll og ofbeldi, þar á meðal árásir á heimili og fyrirtæki þolenda, auk hótana í gegnum síma og samskiptamiðla á borð við WhatsApp. Í skýrslunni eru einnig rakin dæmi þar sem einstaklingar hafi verið myrtir eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópa. Morðin hafi verið tekin upp og birt á samfélagsmiðum til að senda skilaboð til annarra að verða við kröfum hópsins. Þá kemur fram að fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist. Slíkar fjárkúganir eigi sér oftast stað í formi kröfu um mútugreiðslu, m.a. við eftirlitsstöðvar eða við leyfisveitingu. Samkvæmt skýrslu EUAA sé engin áreiðanleg tölfræði til um umfang fjárkúgunar í Venesúela, enda leggi þolendur sjaldnast fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Heimildir bendi jafnframt til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi og þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki átt annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi, að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Stjórnarskráin tryggi jafnframt sjálfstæði kirkna í landinu, rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín og banni dreifingu áróðurs gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríki almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í landinu og einstaklingar sæti að jafnaði ekki fordómum vegna trúar sinnar og lítið sé um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Þó hafi verið dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað trúarleiðtogum sem gagnrýnt hafi stjórnvöld.

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

Samkvæmt skýrslu EASO frá 2020, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, leiddi mikil lækkun olíuverðs í kjölfar þess að Maduro varð forseti árið 2013, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki gagnvart atvinnulífinu, til djúprar niðursveiflu efnahags Venesúela. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind ríkisins og um helmingur tekna ríkissjóðs komið frá olíuvinnslu. Óðaverðbólga og efnahagskreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir hækkanir á lágmarkslaunum hafi meginþorri almennings ekki getað framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Í skýrslunni kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfi og föðurlandskortið (s. Sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda fyrir aðgangi að opinberri aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til eftirlits með íbúum og sumum einstaklingum neitað um aðstoð vegna þess að þeir verið taldir á móti ríkisstjórninni og þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar. Árið 2022 hafi stjórnvöld hafið notkun smáforritsins VenApp, sem geri íbúum kleift að tilkynna truflanir á veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns, en notkun þess krefjist samþykkis fyrir aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því jafnframt tæki til að fylgjast með íbúum. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 hafi flestir íbúar Venesúela þá verið í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Þá hafi rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta eða verið á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 segir að hagkerfi Venesúela hafi byrjað að sýna merki um bata frá árinu 2021 í kjölfar aukningu á olíuframleiðslu slökunar á ströngum reglum um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Talið er að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022, en fátæktin sé enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þrátt fyrir aukið framboð matvæla og lyfja eftir lægri verðbólgu og rýmkun innflutningsreglna hafi stór hluti íbúa ekki efni á nauðsynjavörum vegna lágra launa. Um 50% heimila hafi verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafa Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hefur aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum.

Í skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022, en það hafi ekki skilað sér í bættri almannaþjónustu, s.s. samgöngum, menntun og heilbrigðisþjónustu. Af heimildum má ráða að hagvöxtur hafi verið um 4-5% árið 2023, um 8% árið 2024 og 9% árið 2025. Í skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 er jafnframt fjallað um endurnýjuð stjórnmálasamskipti Venesúela við önnur ríki frá árinu 2022, m.a. enduropnun landamæra við Kólumbíu, endurnýjun stjórnmálasambands við argentínsk yfirvöld og samkomulag stjórnvalda í Venesúela og stjórnarandstöðunnar í nóvember 2022 um aukna mannúðaraðstoð. Samkomulagið hafi falið í sér úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Sameinuðu þjóðunum, Bandaríkjunum og öðrum löndum. Bandaríkin hafi dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Heimildir benda til þess að hluti þeirra þvingana sem aflétt hafi verið hafi verið komið á á ný eða aðrar settar á eftir forsetakosningarnar í júlí 2024 og aðgerða stjórnvalda gegn stjórnarandstæðingum í kjölfarið.

Samkvæmt skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 hafi fólksflutningur yfir landamæri Venesúela verið stöðugur, bæði inn í landið og út úr því. Á landamærum við Kólumbíu hafi fleiri snúið aftur til Venesúela en farið úr landi, en á landamærum við Brasilíu séu fleiri sem leiti þangað en áður í von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria og vegna brottvísana frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins dregið úr kaupmætti og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna, einkum meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega. Flóttamannastofnunin hafi leitast við að aðstoða þá sem verst sé settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri endurkomu fólks til Venesúela. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 er heilbrigðiskerfi Venesúela veikburða. Þótt bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir starfi í landinu hafi aðeins um 3% íbúa tök á að nýta sér einkarekna þjónustu. Opinber sjúkrahús hafi glímt við langvarandi skort á lyfjum, búnaði og starfsfólki, og aðgangur að rafmagni og vatni hafi verið ótryggur. Barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með bólusetningum hafi aukist og heilbrigðiskerfið hafi verið illa í stakk búið til að takast á við Covid-19 faraldurinn. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi árið 2022 stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins sé aðbúnaði áfram ábótavant og mikill skortur á heilbrigðisstarfsfólki, meðal annars vegna þess að það hafi flúið land í miklum mæli. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökunum af hálfu yfirvalda vegna opinberrar gagnrýni á stöðu heilbrigðiskerfisins. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 og 2025 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir íbúa hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafa rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu og yfir níu milljónir ekki haft efni á nauðsynlegum lyfjum eða meðferð. Samkvæmt skýrslum Landinfo frá 2023 og Human Rights Watch frá 2025 hafi Venesúela um árabil glímt við alvarlegan lyfjaskort, þótt aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þau sem geti greitt fyrir það en mörg fái lyf send frá útlöndum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við sjálfviljuga heimför til Venesúela. Í kjölfarið bárust fregnir af því að sumir hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hafi verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Íslensk stjórnvöld settu sig í samband við þá einstaklinga sem náðist til og óskuðu eftir upplýsingum um afdrif þeirra. Voru meginniðurstöður þeirra svara sem bárust að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili var kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskur ríkisborgari aðstoð við sjálfviljuga heimför til Venesúela á árinu 2024. Hafi íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela. Þá kemur fram í tölfræði Útlendingastofnunar fyrir árið 2025 að á árinu hafi verið afgreiddar beiðni 345 einstaklinga frá Venesúela um aðstoð við sjálfviljuga heimför.

Á árunum 2024 og 2025 héldu bandarísk stjórnvöld áfram viðskiptaþvingunum gegn Venesúela, þar á meðal aðgerðum sem beindust að olíuútflutningi, sjóflutningum og fjármálastarfsemi. Í desember 2025 tilkynnti Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna um nýjar markvissar refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum innan stjórnkerfis Venesúela, ættingjum eiginkonu forsetans, Ciliu Flores, auk fyrirtækja og skipa sem talin hafi verið tengjast ólöglegum olíuflutningum. Nokkur olíuskip hafi verið talin veita stjórnvöldum í Karakas fjárhagslegan stuðning og vera hluti af svokölluðum skuggaflota (e. Shadow-fleet) sem hafi reynt að komast undan refsiaðgerðum Bandaríkjanna. Frá seinni hluta árs 2025 jókst þrýstingur Bandaríkjanna á Venesúela enn frekar í formi aukinna refsiaðgerða, hernaðarlegra aðgerða og efnahagsþvingana. Í desember 2025 hóf Bandaríkjastjórn átak sem hafði það að markmiði að stöðva olíuútflutning sem talinn var styðja við stjórn Maduro og fjármagna stjórnvöld í Karakas. Á þessum tíma beittu bandarísk yfirvöld kyrrsetningu á fjölda olíuskipa sem sögð voru reyna að komast hjá refsiaðgerðum og flytja olíu ólöglega úr landi. Þá buðu bandarísk stjórnvöld 50 milljónir dollara í verðlaun fyrir upplýsingar sem gætu leitt til handtöku Maduro. Þann 16. desember 2025 tilkynnti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna um algert hafnarbann gegn öllum skipum sem reyndu að flytja olíu til eða frá Venesúela. Aðgerðinni var lýst sem hluta af víðtækari stefnu til að rjúfa flutningsleiðir olíugeirans og auka þrýsting á stjórnvöld í Venesúela.

Hinn 3. janúar 2026 stóðu bandarísk yfirvöld að umfangsmiklum hernaðaraðgerðum í Karakas. Í kjölfar þeirra tilkynntu bandarísk yfirvöld að Nicolás Maduro, forseti Venesúela og eiginkona hans Cilia Flores, hefðu verið handtekin. Var það sagt byggja á ákærum bandarískra yfirvalda á hendur Maduro, meðal annars vegna meintrar fíkniefna hryðjuverkastarfsemi (e. Narco-terrorism), kókaíninnflutnings til Bandaríkjanna og vörslu á ólöglegum skotvopnum. Í kjölfar aðgerðanna voru Maduro og Flores flutt til Bandaríkjanna þar sem þau verði sótt til saka. Þá greindi Trump frá því að Bandaríkin myndu stýra Venesúela tímabundið á meðan valdaskipti ættu sér stað og eitt af forgangsmálum væri að koma olíuflutningi aftur í gang og nýta olíuauðlindir landsins í þágu almennings og fjármögnunar á uppbyggingu Venesúela. Í kjölfar handtöku Maduro héldu bandarískar hernaðar- og löggæslusveitir áfram að leggja hald á olíuskip sem reyndu að sniðganga bandarískar þvingunaraðgerðir. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu jafnframt að fyrstu birgðir af venesúelskri olíu, sem hafi verið haldlögð yrðu seld fyrir um 500 milljónir Bandaríkjadala, með þeim rökum að söluandvirðið myndi nýtast bæði Bandaríkjunum og efnahagslegri uppbyggingu í Venesúela.

Aðgerðir Bandaríkjanna hafa verið afar umdeildar á alþjóðavettvangi. Sameinuðu þjóðirnar, fjölmörg ríki og mannréttindasamtök hafa gagnrýnt þær harðlega og haldið því fram að þær brjóti gegn alþjóðalögum og hafrétti. Þá hefur verið kallað eftir formlegri umfjöllun innan Sameinuðu þjóðanna um afleiðingar þeirra varðandi viðskipti, stjórnmál og mannréttindi. Þá er óljóst hvað framhaldið verður hvað varðar stjórn í Venesúela. Sem stendur hefur varaforseti landsins, Delcy Rodriguez, tekið við forsetaembættinu í fjarveru Maduro. Hefur hún verið í samskiptum við bandarísk stjórnvöld um framtíð landsins og stjórn þess. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja að eina leiðin til þess að endurreisa lýðræðið í Venesúela eftir nýleg brot á fullveldi landsins og áralanga einræðisstjórn sé að virða vilja venesúelsku þjóðarinnar, tryggja ábyrgð og sjálfákvörðunarrétt og tryggja fullvalda og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda þeirra í samræmi við alþjóðalög.

Þrátt fyrir framangreindar aðgerðir Bandaríkjanna liggur ekki fyrir að almennt öryggi borgara í Venesúela hafi raskast verulega í kjölfarið. Alþjóðlegir fjölmiðlar og opinberar yfirlýsingar bandarískra stjórnvalda hafa ekki greint frá því að viðvarandi átök, almennar óeirðir eða víðtæk mótmæli hafi brotist út í kjölfar aðgerðanna, heldur virðist öryggisástand að mestu hafa haldist stöðugt utan þeirra afmörkuðu hernaðaraðgerða sem framkvæmdar voru í Karakas við handtöku Maduro. Fjölmiðlar hafa greint frá því að stjórnsýsla og opinber þjónusta hafi að meginstefnu haldið áfram starfsemi sinni, þrátt fyrir pólitíska óvissu í kjölfar aðgerðanna. Jafnframt liggja ekki fyrir heimildir um að aðgangur að heilbrigðisþjónustu eða lyfjum hafi almennt verið hindraður. Þá benda heimildir til þess að landamæri Venesúela séu opin og að almenningur geti ferðast til og frá landinu. Að lokum liggja ekki fyrir heimildir sem benda til þess að einstaklingar sem snúi aftur til Venesúela eigi almennt hættu á að verða fyrir handahófskenndri meðferð, auknu eftirliti eða refsiaðgerðum einungis vegna aðgerða Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Venesúela hafi þá unnið að því að láta lausa pólitíska fanga og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu frjálsu félagasamtakanna Foro Penal frá 18. janúar 2026, hafði 143 pólitískum föngum verið sleppt frá 8. janúar 2026. Kveða samtökin þær tölur verulega lægri en opinberar tölur stjórnvalda í Venesúela og kalla eftir gegnsæi í upplýsingum stjórnvalda. Telja samtökin að enn séu um 700 pólitískir fangar í haldi. Af yfirlýsingu sérstaks erindreka Sameinuðu þjóðanna fyrir Venesúela frá 12. janúar 2026 hafði aðeins 50 pólitískum föngum verið sleppt af þeim um 800 sem hafi verið í haldi stjórnvalda í Venesúela, ítrekaði erindrekinn kröfu um skilyrðislausa lausn allra þeirra sem hafi verið í haldi.

5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja kröfu sína á því að þau hafi upplifað og búi við ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli þess að þau tilheyri tilteknum þjóðfélagshópi og vegna stjórnmálaskoðana. Auk þess telja kærendur að líta beri á málið með hliðsjón af almennu ástandi í heimaríki þeirra.

Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.

M byggir á því að hafa orðið fyrir ofsóknum sökum aðildar að þjóðfélagshópi og stjórnmálaskoðana. M hafi verið ríkisstarfsmaður hjá [...] sem hafi ljóstrað upp um spillingu tveggja yfirmanna innan fyrirtækisins, sem jafnframt hafi verið meðlimir ríkisstjórnarflokks Venesúela. Í greinargerð kærenda er byggt á því að um pólitíska athöfn hafi verið að ræða sem hafi myndað grundvöll ofsókna vegna stjórnmálaskoðana, hvort sem þær hafi verið raunverulegar eða ætlaðar. Þá er byggt á því að K og börn kærenda teljist aðilar sama þjóðfélagshóps sem fjölskyldumeðlimir M. Kærendur eigi á hættu ofsóknir af hálfu fyrrum yfirmanna M hjá [...], sem hafi tilheyrt ríkisstjórnarflokknum og hafi tengst valdamiklum aðilum. Reynt hafi verið að koma sök á M fyrir spillingu innan fyrirtækisins með þeim hætti að nafn hans hafi verið notað á fölsuð gögn. Þá hafi starfskjör M og sjúkratryggingar verið skert og hafi hann ekki lengur getað veitt [...] aðstoð né fengið viðunandi heilbrigðisþjónustu fyrir A þegar hún hafi veikst. Þá greindu kærendur frá því að Colectívos hafi lagt líf M í hættu þegar þeir hafi veitt honum eftirför við akstur og neytt hann út af veginum með þeim afleiðingum að bíll hans hafi oltið. M hafi verið handtekin eða reynt að handtaka hann. Síðast þegar M hafi verið handtekinn hafi hann verið í haldi í 18 klukkustundir. Þá hafi hann verið neyddur til að segja upp starfi sínu og sæta atvinnubanni. Kærendur greindu einnig frá því að skotið hafi verið á heimili þeirra og telji þau það tengjast fyrrverandi yfirmönnum M. M hafi verið atvinnulaus frá febrúar 2022. Kærendur greindu jafnframt frá því að yngsta barn þeirra hafi [...] vegna þess álags sem ofsóknirnar hafi haft á fjölskylduna.

Kærendur lögðu fram mikinn fjölda skjala hjá íslenskum stjórnvöldum sem og skriflega frásögn af atvikum. Skrifleg frásögn kærenda er í megindráttum í samræmi við frásagnir kærenda í viðtölum hjá Útlendingastofnun auk skýrrar tímalínu atburða sem tengjast M og störfum hans sem og málsmeðferð spillingarmála tengdum [...] í Venesúela. Er stór hluti gagna kærenda fréttir af þeirri málsmeðferð sem og almenn gögn sem M kveður tengjast spillingu innan [...] og falsaðra skjala varðandi farma olíuskipa og viðskipti með olíu í Venesúela. Eru þau gögn til þess fallin að styðja við frásögn kærenda af spillingarmálum innan olíufyrirtækja í Venesúela og aðgerðum stjórnvalda hvað þau varðar en koma frásögnum kærenda af ástæðum flótta þeirra frá heimaríki að öðru leyti ekki við. Það sama á við um gögn er vörðuðu persónulega hagi kærenda. Lögðu kærendur fram m.a. staðfestingu á menntun, ökuskírteini M, fæðingarvottorð B og gögn um veikindi hennar og samskipti M við yfirmenn sína vegna fjarveru frá vinnu af þeim sökum. Þau gögn sem kærendur lögðu fram í formi ljósmynda og myndbanda styðja almenna frásögn þeirra, en varða flótta kærenda frá heimaríki ekki sérstaklega. Þá lögðu kærendur einnig fram alþjóðlegar skýrslur, greinar og yfirlit frá stofnunum og fjölmiðlum í tengslum við stjórnmálaumhverfi í heimaríki og aðgerðir stjórnvalda gagnvart einstaklingum sem tengdir eru spillingarmálum eða uppljóstrun um slík mál, en þau gögn varða kærendur ekki persónulega.

Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga í efa að M hafi starfað hjá [...] eða að hann hafi frá árinu 2019 orðið var við spillingu innan fyrirtækisins sem hann hafi greint yfirmönnum sínum frá. Þá er ekki ástæða til þess að efast um að næsti yfirmaður M sem hann hafi sakað um að tengjast spillingunni hafi brugðist illa við og beitt völdum sínum innan [...] til þess að þrengja að starfskjörum M. Af frásögn kærenda verður þó ráðið að yfirvöld hafi tekið við ábendingum M og rannsakað málin, þá hafi fjöldi yfirmanna innan [...], bæði háttsettir aðilar innan PSUV stjórnarflokksins sem og innan hersins, verið handteknir og sakfelldir fyrir aðild að spillingu innan fyrirtækisins. Er það og í samræmi við heimildir sem kærunefnd hefur kynnt sér og framlögð gögn kærenda, sem benda til þess að venesúelsk stjórnvöld hafi gripið til aðgerða til að sporna við ólöglegri starfsemi í tengslum við olíuiðnaðinn, þar á meðal innan ríkisfyrirtækja. Verður að telja að slíkar aðgerðir beri með sé að einstaklingar og fyrirtæki sem stundi ólöglega starfsemi á þessu sviði njóti almennt ekki verndar yfirvalda í Venesúela.

Nýlegar heimildir benda til þess að dæmi séu um að starfsmönnum [...] hafi verið neitað um að segja upp störfum en ekki verður ráðið að starfsmenn sem hætt hafi störfum hjá fyrirtækinu sé meinað að starfa í öðrum störfum í Venesúela eftir uppsögn. Með vísan til framangreinds telur kærunefnd ekki unnt að útiloka að í samningi kæranda hjá [...] hafi verið ákvæði um atvinnubann fyrir önnur félög á sama vettvangi en ekki verður fallist á að bannið nái til annarra starfsgreina en olíuiðnaðarins.

Verður þó ekki fallist á það með kærendum að þau eigi á hættu ofsóknir af hálfu yfirvalda eða háttsettra aðila í heimaríki sínu í tengslum við uppljóstranir M. Kærunefnd horfir til þess að M kvaðst hafa unnið í fyrirtækinu í um 17 ár og ekki hætt störfum fyrr en í byrjun árs 2022, eftir að fyrrum yfirmenn hans höfðu verið handteknir og sakfelldir fyrir aðild sína í spillingarmálum. Kvað M að hann hafi verið neyddur til að segja upp í febrúar 2022 eftir að kviknað hafi í vinnutölvu hans einn daginn og hann hafi verið sakaður um að eyða gögnum. Kvaðst kærandi geta lagt fram gögn þessu til sönnunar. Gögn sem kærandi lagði fram hvað þetta varðar eru myndir og myndband af tölvu sem rýkur úr en ekki verður af þeim ráðið að kveikt hafi verið í tölvunni frekar en að um eðlilega bilun hafi verið að ræða. Þá er ekkert sem tengir framangreinda tölvu við M. Ennfremur lagði kærandi fram skjal nr. 46 sem nefnt er Renuncia Forzada. Er um að ræða afrit skjals sem þýtt hefur verið með Google Lens. Þar kemur fram að undirritaður, M, afhendi þrjú skjöl þar á meðal uppsagnarbréf og má ráða að bréfið hafi verðið afhent aðila að nafni [...] í mars 2022. Veður ekki fallist á það með M að skjalið staðfesti að hann hafi verið þvingaður af lögreglumönnum eða öðrum aðilum til að segja upp vinnu sinni. Ennfremur er ekkert sem gefur ástæðu til að ætla að bílvelta M sem hann rekur til eftirfarar grímuklæddra manna á mótorhjólum tengist störfum M eða uppljóstrunum hans á nokkurn hátt þrátt fyrir að ekki sé ástæða til þess að efast um að M hafi verið eltur af glæpamönnum sem hafi leitt til útaf aksturs. Ennfremur verður ekki fallist á að myndir sem sýna göt á gluggahlíf við íbúð kærenda sanni að skotið hafi verið að þeim eða að skotárás hafi sérstaklega verið beint að kærendum. Kærendur greina frá því að M hafi verið tekinn til yfirheyrslu í tvö skipti í tengslum við rannsókn á spillingu innan [...]. Slíkt eitt og sér leiðir þó ekki til þeirrar niðurstöðu að hann hafi verið sérstaklega til rannsóknar eða að fyrir liggi að hann eigi hættu á að vera kærður eða sakfelldur fyrir aðild að spillingarmálum innan fyrirtækisins. Þá er litið til þess að kærendur hafi fengið útgefin vegabréf í febrúar og nóvember 2022, sem þau hafi notað til að fara úr landi í maí 2023. Útgáfa slíkra persónuskilríkja og heimild kærenda til brottfarar án hindrana bera ekki með sér að kærendur hafi verið undir sérstöku eftirliti stjórnvalda eða eigi á hættu ofsóknir af þeirra hálfu vegna aðildar M að umræddu spillingarmáli innan [...]. Þá verður ekki ráðið af gögnum að kærendur séu útilokuð frá því að sækja sér opinbera þjónustu, s.s. heilbrigðisþjónustu, menntun eða fjárhagslega aðstoð af þessum sökum. Kærunefnd telur því framangreint ekki ná því marki að teljast ofsóknir af hálfu stjórnvalda eða annarra aðila í skilningi 38. gr. laga um útlendinga.

Frásagnir kærenda bera ekki með sér að þau séu nú sérstaklega berskjölduð eða eigi á sérstakri hættu að verða aftur fyrir sambærilegum atvikum, né að þeim sé ómögulegt að leita aðstoðar lögreglu telji þau ástæðu til. Þótt fallast megi á að skilvirkni lögreglu og dómstóla í Venesúela sé ábótavant og að spilling sé til staðar innan dómskerfisins, er það mat kærunefndar, með vísan til fyrirliggjandi gagna, að yfirvöld í landinu geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi meðal annars með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur geti því leitað til lögreglu telji þau ástæðu til þess.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að óttast að A yrði rænt í heimaríki. Heimildir sem kærunefnd hefur skoðað benda til þess að vopnaðir glæpahópar í heimaríki kærenda stundi glæpi á borð við fjárkúgun, eiturlyfjasmygl og mannrán. Ekkert í frásögn kærenda eða gögnum málsins bendir hins vegar til þess að kærendur eða börn þeirra hafi verið ofsótt af glæpahópum eða að þau eða börn þeirra hafi eða eigi slíkt á hættu umfram aðra í heimaríki þeirra. Heimildir bera ekki með sér að yfirvöld stundi mannrán eða mansal á börnum eða að mannrán barna sé kerfisbundið vandamál í Venesúela. Þrátt fyrir að rán á börnum eigi sér stað í Venesúela þá hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að börn kærenda séu sérstaklega berskjölduð eða útsett fyrir mannráni sem kærendur hafa greint frá að óttast.

Kærendur hafa tekið þátt í mótmælaaðgerðum hér á landi til að berjast fyrir mannréttindum Venesúelabúa. Lögðu kærendur fram ljósmyndir þess til stuðnings. Verður ráðið að kærendur byggi á því að þau eigi á hættu ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana þeirra.

Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Af framburði kærenda verður ekki ráðið að þau hafi verið áberandi innan stjórnarandstöðuhreyfingarinnar í Venesúela. Þrátt fyrir að kærendur hafi talað fyrir réttindum venesúelskra ríkisborgara hér á landi bera gögn málsins með sér að kærendur hafi ekki sætt sérstöku áreiti eða eftirliti stjórnvalda af þeim sökum. Þá er ljóst af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað að tugir þúsunda manna hafa mótmælt ríkjandi stjórnvöldum í landinu á síðasta áratugi. Af gögnum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir. Af gögnum málsins verður ekki séð að kærendur hafi vegna stöðu sinnar notið meiri athygli en aðrir í sambærilegri stöðu og þau. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu stjórnvalda vegna stjórnmálaskoðana í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur börnum kærenda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barna þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja kröfu sína um viðbótarvernd á því að einstaklingsbundnar aðstæður með hliðsjón af hinu almenna ástandi í Venesúela nái því alvarleikastigi að það falli undir verndarsvið 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Þó öryggisástand í Venesúela sé á ákveðnum svæðum ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafa átök að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu og Brasilíu. Benda almennar heimildir ekki til þess að aðstæður í landinu nái því marki að sérhver einstaklingur sem þangað fari eigi á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Stjórnvöld í Venesúela hafi viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og unnið að því í samstarfi við alþjóðasamfélagið að bæta slíka aðstoð. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin hagvöxtur hafi aukist þrátt fyrir viðskiptaþvinganir og vöruframboð aukist að einhverju leyti þrátt fyrri hátt verðlag. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Hvað varðar hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela og handtöku Maduro og eiginkonu hans af hálfu bandarískra stjórnvalda er ekkert sem bendir til þess að þær aðgerðir hafi leitt til þess að aðstæður í landinu hafi versnað fyrir almenning í landinu. Benda heimildir til þess að stjórnvöld hafi brugðist við með því að setja í embætti varaforseta landsins og að stjórn og innviðir landsins séu eins og er stöðugir. Þá hafa ekki brotist út mótmæli eða vopnuðu átök sem eða komið upp önnur atvik sem benda til þess að almennar aðstæður séu slíkar að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreinds verða frekari persónulegir þættir að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barna þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka. Við það mat hefur kærunefnd sérstaklega litið til málsástæðna kærenda um að M hafi verið ríkisstarfsmaður sem hafi borið vitni í máli fyrrum yfirmanna hjá [...].

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í [...] í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er [...] í norðurhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur og börn þeirra hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur og börn þeirra eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur og börn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

Kærendur hafa gert kröfu um að ákvarðanir Útlendingastofnunar um veitingu mannúðarleyfis verði staðfestar verði ekki fallist á aðrar kröfur þeirra. Með vísan til þess og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,

Vera Dögg Guðmundsdóttir