Úrskurður nr. 68/2026
Hinn 30. janúar 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 68/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU24120042
Kæra […] á ákvörðun Útlendingastofnunar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 11. desember 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Venesúela (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. nóvember 2024, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi, ásamt því að veita henni dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 25. maí 2023. Kvaðst kærandi vera komin til landsins með syni sínum, eiginkonu hans og tveimur barnabörnum í því skyni að sækja um alþjóðlega vernd. Kváðust þau vera í leit að betra og öruggara lífi. Sonur kæranda hafi orðið fyrir ofsóknum og hótunum. Kvaðst kærandi vera með [...], þá gekk illa að ná fingraförum hjá henni.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 14. mars 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi kvaðst eiga fjölskyldu í heimaríki, hafa starfað sem [...] hjá ríkisreknu fyrirtæki, en átt erfitt með að eiga nóg fyrir mat. Kærandi kvaðst stundum hafa fengið matarpakka frá yfirvöldum. Kærandi hafi komið með syni sínum (hér eftir A), konu hans og börnum þeirra til landsins. Annar sonur kæranda (hér eftir B) hafi verið að glíma við [...] og meðferð hans hafi verið dýr. Kærandi kvaðst hafa óskað eftir hjálp frá ríkinu eftir að B hafi látist, en ekki fengið neina aðstoð. Kærandi kvaðst glíma við [...], hún þurfi að pissa oft, sé afar illt í hnjánum og þjáist af [...]. Þá greindi hún frá því að [...] vegna upplifana í heimaríki. Kærandi kvaðst hafa beðið eftir aðgerð í heimaríki vegna [...], en hún hafi ekki fengið tíma í aðgerð. Kærandi hafi þurft að kaupa öll lyf sjálf og þurft að selja eigur sínar til að eiga fyrir þeim. Hún kvaðst einnig þurfa aðgerð vegna [...] (e. arthrosis) í hnjám. Kærandi kvaðst taka lyf vegna [...] og [...] í heimaríki.
Kærandi kvaðst hafa flúið heimaríki vegna atvika sem hafi hafist í ársbyrjun 2019 í tengslum við störf A. Kærandi greindi frá því að A hafi starfað hjá [...] (s. Petróleos de Venezuela, S.A) í um 18 ár, en þann 15. janúar 2019 hafi A uppgötvað fölsuð skjöl. A hafi tilkynnt það til yfirmanns sem í kjölfarið hafi leitt til atburða sem hafi leitt til flótta þeirra. Yfirmaður A hafi sagt hann vera undir rannsókn en A hafi tilkynnt ummæli yfirmanns í hans garð til öryggisdeildar innan fyrirtækisins. Kæranda hafi fundist erfitt að A sætti ofsóknum á sama tíma og B hafi verið að berjast við [...]. Tveir yfirmenn A hafi verið handteknir og A borið vitni gegn þeim og þeir hlotið fangelsisdóm sem hafi verið mikið til umræðu í fjölmiðlum. Greindi kærandi frá atvikum er vörðuðu A s.s. að kveikt hafi verið í vinnutölvu hans, þrír menn með hulin andlit hafi komið og haldið A í 18 klukkustundir. Kærandi taldi að umræddir menn hafi verið frá DGCIM sem sé öryggisfyrirtæki fyrir ríkið. A hafi einnig verið veitt eftirför þegar hann hafi verið að aka bifreið sinni, sem hafi leitt til þess að A hafi ekið út af og velt bílnum. Kærandi greindi frá því að yfirmaður A hafi farið í fangelsi og saksóknari hafi greint frá hlutverki A á fjölmiðlafundi og ásakað hann um spillingu. A hafi einnig verið nafngreindur á samfélagsmiðli og í kjölfarið hafi fjölskyldunni borist hótanir og áreiti. Kærandi kvaðst ekki sjálf hafa fengið beinar hótanir en taldi sig hafa verið í hættu sökum tengsla við A og vegna þess að hún hafi búið í sama húsi og hann. Kærandi greindi frá því að hafa fengið læknisvottorð vegna líkamlegra og andlegra áhrifa þessa tímabils og hafi fengið leyfi frá vinnu í kjölfar andláts B. Kærandi kvaðst ekki hafa leitað aðstoðar yfirvalda í Venesúela þar sem yfirvöld hafi tengst máli A og hún hafi óttast að leita aðstoðar vegna málsins. Kærandi kvaðst hafa fengið lífeyri frá ríkinu sem hafi verið um 4 dollarar á mánuði og bætur vegna látins eiginmanns. Kærandi hafi fengið um 12 dollara í heild á mánuði og því þurft að treysta á A til að framfleyta sér. Kærandi taldi sig ekki geta flutt innanlands vegna aðstæðna í landinu og stöðu fjölskyldu sinnar. Kærandi kvaðst óttast að snúa aftur til Venesúela vegna þess að hún sjálf gæti orðið fyrir áreiti af hálfu yfirvalda, yfirheyrslum og handtöku. Kærandi kvaðst óttast líf sitt og öryggi í heimaríki og aðstæður séu þannig að hún hafi ekki haft aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd en veitt dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 11. desember 2024. Greinargerð barst nefndinni 30. desember 2024.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst með sambærilegum hætti og í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á upplifun og ástæðuríkum ótta við ofsóknir vegna aðildar að þjóðfélagshópi og stjórnmálaskoðana, sem móðir og fjölskyldumeðlimur A. Að auki telur kærandi að líta verði á málið með hliðsjón af almennu ástandi í landinu.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að einstaklingsbundnar ástæður hennar með hliðsjón af almennu ástandi í Venesúela uppfylli skilyrði viðbótarverndar.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar um veitingu dvalarleyfis á grundvelli 2. mgr. 74. gr. verði staðfest.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi og fjölskylda hennar lögðu fram mikið af gögnum við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun og er því mótmælt í greinargerð að vitnisburður kæranda og fjölskyldu hennar sé virtur að vettugi án frekari rökstuðnings en að um einhliða frásögn sé að ræða. Kærandi telur brotið á rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins með því að afskrifa gögn málsins án þess að lagt sé mat á hvert skjal, samhengi þess og þýðingu fyrir úrlausn máls. Með því sé rannsóknarskyldunni alfarið velt yfir á kæranda. Kærandi byggir einnig á því að Útlendingastofnun hafi í hinni kærðu ákvörðun ekki fjallað um þá meðferð sem ríkisborgarar Venesúela urðu fyrir, við komu þeirra til heimaríkis þann 15. nóvember 2023 og hvaða þýðingu það hefði fyrir kæranda.
Útlendingastofnun fjallaði um framlögð gögn í máli kæranda í ákvörðunum A og eiginkonu hans og vísar stofnunin til umfjöllunar í ákvörðun A og niðurstöðu sína í máli A í ákvörðun sinni í máli kæranda. Þar sem flest gögnin hafi varðað A og stöðu hans hafi ekki verið talin sérstök ástæða til að fjalla um þau sérstaklega í máli kæranda. Þar sem kærandi byggði umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún væri í afleiddri hættu vegna stöðu A í heima ríki verður ekki fallist á með kæranda að um brot sé að ræða á rannsóknarreglu af hálfu stofnunarinnar hvað varðar framangreind gögn. Þá er ljóst er að fjallað var um þau gögn sem lutu sérstaklega að kæranda sjálfri og aðstæðum hennar. Þá hefur kærunefnd farið yfir hina kærðu ákvörðun og framkvæmt mat á öllum þáttum málsins og ekki er fallist á að vitnisburður kæranda hafi verið virtur að vettugi í hinni kærðu ákvörðun enda vísað til viðtals við kæranda í ákvörðun Útlendingastofnunar.
Þó fallast megi á það með kæranda að farið hefði betur á því að Útlendingastofnun ávarpaði atvik er hafi átt sér stað í kjölfar flutnings ríkisborgara Venesúela til heimaríkis síns á vegum íslenskra stjórnvalda er ljóst að afstaða íslenskra stjórnvalda hvað framangreint varðar er sú að ekkert bendi til þess að almennir borgarar sem snúa til baka til Venesúela eigi á hættu að sæta áreiti eða meðferð af hálfu stjórnvalda sem nái því marki að teljast ofsóknir, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í ljósi niðurstöðu máls kæranda hvað varðar einstaklingsbundnar aðstæður hennar er ekki um annmarka á ákvörðun Útlendingastofnunar að ræða sem leiða til ógildingar hennar.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er að öðru leyti í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
ríkið,
hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Umsækjanda um alþjóðlega vernd er skylt að veita atbeina sinn til að upplýsa hver hann er, sbr. 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelsku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé venesúelskur ríkisborgari.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
- ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Punished for Seeking Change, Killings, Enforced Disappearences and Arbitrary Detention following Venezuela‘s 2024 Election (Human Rights Watch, 30. apríl 2025);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 13. ágúst 2025);
- UNHCR Venezuela Operational update, May 2025 (The UN Refugee Agency, 7. maí 2025);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Venezuela Factsheet April 2025 (The UN Refugee Agency, 9. apríl 2025);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezuela (Britannica, síðast uppfært 18. ágúst 2025);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 18. ágúst 2025);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024, uppfærð í apríl 2025);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders
- (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
- World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025).
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi styrkt völd sín á kostnað löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvalds landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019 í kjölfar umdeildra forsetakosninga, sem sætt hafi gagnrýni fyrir að vera hvorki óháðar né sanngjarnar. Nicolás Maduro hefur neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningunum. Í kjölfarið hafi hluti stjórnarandstöðunnar lýst Juan Guaido sem bráðabirgðaforseta, en stjórnvöld undir forystu Maduro haldið áfram að fara með raunveruleg völd ríkisins og notið stuðnings öryggissveita. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hafi stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en tekið þátt í sveitarstjórnarkosningum árið 2021 sem hafi farið fram undir alþjóðlegu kosningareftirliti, en framkvæmd þeirra hafi verið ábótavant. Samningaviðræður milli ríkisstjórnar Maduro og stjórnarandstöðunnar hafi hafist á ný í nóvember 2022 og þar komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnarandstaðan leyst upp bráðabirgðastjórn Juan Guaido í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar hafi enn verið að koma Maduro frá völdum. Ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan hafi samþykkt á fundi í Barbados 17. október 2023 að halda forsetakosningar í Venesúela seinni hluta ársins 2024 undir alþjóðlegu eftirliti. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og samningurinn undirritaður með milligöngu Noregs. Hinn 22. október 2023 valdi stjórnarandstaðan Maríu Corinu Machado sem fulltrúa sinn í kosningunum. Hinn 30. október 2023 ógilti Hæstiréttur Venesúela þá niðurstöðu og frestaði forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið valdi stjórnarandstaðan Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn og staðfesti landskjörstjórnin valið 26. mars 2024. Forsetakosningar fóru fram 28. júlí 2024 í Venesúela og landkjörstjórn lýsti því yfir að Maduro hafi hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan mótmælti niðurstöðum kosninganna og sagði Gonzalez vera rétt kjörinn forseta. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, aðrar þjóðir og alþjóðlegir aðilar hafi lýst yfir áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspeglaði ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og var kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar, sem hafi enn ekki verið gert.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld hafi áfram takmarkað borgaraleg réttindi og sótt pólitíska andstæðinga sína til saka án réttlátrar málsmeðferðar. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur fram að handtökur og varðhöld yfirvalda á pólitískum andstæðingum, aðgerðir gegn mótmælum, lokun fjölmiðla og pyndingar og ómannúðleg meðferð ætlaðra og raunverulegra stjórnarandstæðinga grafi undan tjáningarfrelsi og rétti til mótmæla. Í skýrslum Freedom House frá 2024 og 2025 er það mat staðfest að stjórnvöld hafi lokað nánast öllum rásum fyrir pólitíska mótstöðu og viðhaldið kerfisbundnum takmörkunum á borgaralegum og pólitískum réttindum, þar á meðal með handahófskenndum handtökum og pólitískri misnotkun réttarkerfisins. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína og öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað beitt mótmælendur ofbeldi, þar á meðal barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og væru dómsmálayfirvöld samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með útgáfu afturvirkra handtökuheimilda og fyrirskipana um gæsluvarðhöld án fullnægjandi sönnunargagna.
Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 kemur fram að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið alvarleg og kerfisbundin mannréttindabrot frá árinu 2014, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæp gegn mannkyni (e. Crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í því skyni að þagga niður andstöðu við ríkisstjórn Maduro og hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) komust að sambærilegri niðurstöðu í skýrslum sínum frá 2020 og 2021, þar sem m.a. er greint frá þúsundum tilvika aftaka án dóms og laga, handahófskenndum handtökum, þvinguðum mannshvörfum og ýmsum aðferðum pyndinga s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 tilkynnti saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) í nóvember 2021 þá ákvörðun dómstólsins að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknaranum verið heimilað að opna skrifstofu sína í Karakas. Samkvæmt skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hafði dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita, þó talið var að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafi í júní 2023 tilkynnt að rannsókninni yrði haldið áfram í Venesúela og að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas. Fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjuðu framangreindri ákvörðun en beiðni þeirra um að stöðva rannsóknina hafi verið hafnað 1. mars 2024.
Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað og ásakanir um óréttmætar kosningar aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Aðgerðir hafi m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um slíkt, sem og að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Öryggissveitir hafi verið sendar á heimili einstaklinga og margir handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi kosningaviðburðum stjórnarandstöðunnar, þar á meðal fyrirtækjaeigenda, starfsmanna og fjölskyldna þeirra, m.a. fyrir að útvega ýmis aðföng vegna slíkra viðburða. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, án ákæru og látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmæla hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi jafnframt rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga, aðgerðasinna, blaðamanna og mannréttindasinna, þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka í aðdraganda kosninganna og í kjölfar þeirra. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti né hafi verið gætt að réttlátri málsmeðferð. Telji nefndin að stjórnvöld hafi með þessum aðgerðum framið verknað sem geti talist glæpur gegn mannkyni, gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og teljist raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.
Samkvæmt m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni og hafi yfirvöld stefnt að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins hafi stjórn yfirvalda á öryggissveitum landsins minnkað undanfarin ár og ríkisstjórn Maduro í auknum mæli treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr mótmælum. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir fjölda vopnaðra hópa sem starfa víða um landið og styðja ríkisstjórnina. Þótt óljóst sé að hve miklu leyti yfirvöld hafi formlega stjórn á þessum hópum, hafi þeir tekið þátt í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro.
Í skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Þrátt fyrir fækkun slíkra dauðsfalla á árunum 2018 til 2019 sé það ekki talið til marks um minnkandi ofbeldi í landinu, fremur hafi vopnahópum tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states),sem dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi einnig rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað m.a. vegna erfiðleika við greiðslu lausnargjalda í kjölfar óðaverðbólgu. Nú á síðari árum hafi orðið aukning á glæpum á borð við rán, mannrán og fjárkúgun, einkum í tengslum við lögleiðingu og greiðara aðgengi að erlendum gjaldmiðlum, sem hafi jafnframt leitt til þess að smærri glæpahópar hafa sameinast við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslur um glæpatíðni í landinu. Samkvæmt skýrslu stofnunarinnar fyrir árið 2020 hafi morðtíðni í landinu það ár verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa.Í skýrslu þeirra fyrir árið 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis hafi lækkað í 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa, samanborið við 40,4 árið 2022, en áfram hafi verið skráður verulegur fjöldi ofbeldistilvika, þar á meðal dauðsföll af hálfu yfirvalda og fjöldi tilvika þar sem gerendur hafi verið ótilgreindir.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hafi fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Skotmörk slíkra brota séu einkum fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. innflutnings-, flutninga- og þjónustufyrirtæki auk smærri atvinnurekenda. Greiðslukröfur séu að jafnaði miðaðar við greiðslugetu þolanda og geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 dollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum og fylgi henni oft alvarlega hótanir, eignaspjöll og ofbeldi, þar á meðal árásir á heimili og fyrirtæki þolenda, auk hótana í gegnum síma og samskiptamiðla á borð við WhatsApp. Í skýrslunni eru einnig rakin dæmi þar sem einstaklingar hafi verið myrtir eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópa. Morðin hafi verið tekin upp og birt á samfélagsmiðum til að senda skilaboð til annarra að verða við kröfum hópsins. Þá kemur fram að fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist. Slíkar fjárkúganir eigi sér oftast stað í formi kröfu um mútugreiðslu, m.a. við eftirlitsstöðvar eða við leyfisveitingu. Samkvæmt skýrslu EUAA sé engin áreiðanleg tölfræði til um umfang fjárkúgunar í Venesúela, enda leggi þolendur sjaldnast fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Heimildir bendi jafnframt til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi og þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki átt annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi, að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Stjórnarskráin tryggi jafnframt sjálfstæði kirkna í landinu, rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín og banni dreifingu áróðurs gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríki almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í landinu og einstaklingar sæti að jafnaði ekki fordómum vegna trúar sinnar og lítið sé um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Þó hafi verið dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað trúarleiðtogum sem gagnrýnt hafi stjórnvöld.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.
Samkvæmt skýrslu EASO frá 2020, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, leiddi mikil lækkun olíuverðs í kjölfar þess að Maduro varð forseti árið 2013, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki gagnvart atvinnulífinu, til djúprar niðursveiflu efnahags Venesúela. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind ríkisins og um helmingur tekna ríkissjóðs komið frá olíuvinnslu. Óðaverðbólga og efnahagskreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir hækkanir á lágmarkslaunum hafi meginþorri almennings ekki getað framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Í skýrslunni kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfi og föðurlandskortið (s. Sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda fyrir aðgangi að opinberri aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til eftirlits með íbúum og sumum einstaklingum neitað um aðstoð vegna þess að þeir verið taldir á móti ríkisstjórninni og þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar. Árið 2022 hafi stjórnvöld hafið notkun smáforritsins VenApp, sem geri íbúum kleift að tilkynna truflanir á veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns, en notkun þess krefjist samþykkis fyrir aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því jafnframt tæki til að fylgjast með íbúum. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 hafi flestir íbúar Venesúela þá verið í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Þá hafi rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta eða verið á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 segir að hagkerfi Venesúela hafi byrjað að sýna merki um bata frá árinu 2021 í kjölfar aukningu á olíuframleiðslu slökunar á ströngum reglum um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Talið er að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022, en fátæktin sé enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þrátt fyrir aukið framboð matvæla og lyfja eftir lægri verðbólgu og rýmkun innflutningsreglna hafi stór hluti íbúa ekki efni á nauðsynjavörum vegna lágra launa. Um 50% heimila hafi verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafa Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hefur aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum.
Í skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022, en það hafi ekki skilað sér í bættri almannaþjónustu, s.s. samgöngum, menntun og heilbrigðisþjónustu. Af heimildum má ráða að hagvöxtur hafi verið um 4-5% árið 2023, um 8% árið 2024 og 9% árið 2025. Í skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 er jafnframt fjallað um endurnýjuð stjórnmálasamskipti Venesúela við önnur ríki frá árinu 2022, m.a. enduropnun landamæra við Kólumbíu, endurnýjun stjórnmálasambands við argentínsk yfirvöld og samkomulag stjórnvalda í Venesúela og stjórnarandstöðunnar í nóvember 2022 um aukna mannúðaraðstoð. Samkomulagið hafi falið í sér úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Sameinuðu þjóðunum, Bandaríkjunum og öðrum löndum. Bandaríkin hafi dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Heimildir benda til þess að hluti þeirra þvingana sem aflétt hafi verið hafi verið komið á á ný eða aðrar settar á eftir forsetakosningarnar í júlí 2024 og aðgerða stjórnvalda gegn stjórnarandstæðingum í kjölfarið.
Samkvæmt skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 hafi fólksflutningur yfir landamæri Venesúela verið stöðugur, bæði inn í landið og út úr því. Á landamærum við Kólumbíu hafi fleiri snúið aftur til Venesúela en farið úr landi, en á landamærum við Brasilíu séu fleiri sem leiti þangað en áður í von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria og vegna brottvísana frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins dregið úr kaupmætti og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna, einkum meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega. Flóttamannastofnunin hafi leitast við að aðstoða þá sem verst sé settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri endurkomu fólks til Venesúela. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 er heilbrigðiskerfi Venesúela veikburða. Þótt bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir starfi í landinu hafi aðeins um 3% íbúa tök á að nýta sér einkarekna þjónustu. Opinber sjúkrahús hafi glímt við langvarandi skort á lyfjum, búnaði og starfsfólki, og aðgangur að rafmagni og vatni hafi verið ótryggur. Barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með bólusetningum hafi aukist og heilbrigðiskerfið hafi verið illa í stakk búið til að takast á við Covid-19 faraldurinn. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi árið 2022 stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins sé aðbúnaði áfram ábótavant og mikill skortur á heilbrigðisstarfsfólki, meðal annars vegna þess að það hafi flúið land í miklum mæli. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökunum af hálfu yfirvalda vegna opinberrar gagnrýni á stöðu heilbrigðiskerfisins. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 og 2025 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir íbúa hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafa rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu og yfir níu milljónir ekki haft efni á nauðsynlegum lyfjum eða meðferð. Samkvæmt skýrslum Landinfo frá 2023 og Human Rights Watch frá 2025 hafi Venesúela um árabil glímt við alvarlegan lyfjaskort, þótt aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þau sem geti greitt fyrir það en mörg fái lyf send frá útlöndum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við sjálfviljuga heimför til Venesúela. Í kjölfarið bárust fregnir af því að sumir hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hafi verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Íslensk stjórnvöld settu sig í samband við þá einstaklinga sem náðist til og óskuðu eftir upplýsingum um afdrif þeirra. Voru meginniðurstöður þeirra svara sem bárust að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili var kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskur ríkisborgari aðstoð við sjálfviljuga heimför til Venesúela á árinu 2024. Hafi íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela. Þá kemur fram í tölfræði Útlendingastofnunar fyrir árið 2025 að á árinu hafi verið afgreiddar beiðni 345 einstaklinga frá Venesúela um aðstoð við sjálfviljuga heimför.
Á árunum 2024 og 2025 héldu bandarísk stjórnvöld áfram viðskiptaþvingunum gegn Venesúela, þar á meðal aðgerðum sem beindust að olíuútflutningi, sjóflutningum og fjármálastarfsemi. Í desember 2025 tilkynnti Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna um nýjar markvissar refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum innan stjórnkerfis Venesúela, ættingjum eiginkonu forsetans, Ciliu Flores, auk fyrirtækja og skipa sem talin hafi verið tengjast ólöglegum olíuflutningum. Nokkur olíuskip hafi verið talin veita stjórnvöldum í Karakas fjárhagslegan stuðning og vera hluti af svokölluðum skuggaflota (e. Shadow-fleet) sem hafi reynt að komast undan refsiaðgerðum Bandaríkjanna. Frá seinni hluta árs 2025 jókst þrýstingur Bandaríkjanna á Venesúela enn frekar í formi aukinna refsiaðgerða, hernaðarlegra aðgerða og efnahagsþvingana. Í desember 2025 hóf Bandaríkjastjórn átak sem hafði það að markmiði að stöðva olíuútflutning sem talinn var styðja við stjórn Maduro og fjármagna stjórnvöld í Karakas. Á þessum tíma beittu bandarísk yfirvöld kyrrsetningu á fjölda olíuskipa sem sögð voru reyna að komast hjá refsiaðgerðum og flytja olíu ólöglega úr landi. Þá buðu bandarísk stjórnvöld 50 milljónir dollara í verðlaun fyrir upplýsingar sem gætu leitt til handtöku Maduro. Þann 16. desember 2025 tilkynnti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna um algert hafnarbann gegn öllum skipum sem reyndu að flytja olíu til eða frá Venesúela. Aðgerðinni var lýst sem hluta af víðtækari stefnu til að rjúfa flutningsleiðir olíugeirans og auka þrýsting á stjórnvöld í Venesúela.
Hinn 3. janúar 2026 stóðu bandarísk yfirvöld að umfangsmiklum hernaðaraðgerðum í Karakas. Í kjölfar þeirra tilkynntu bandarísk yfirvöld að Nicolás Maduro, forseti Venesúela og eiginkona hans Cilia Flores, hefðu verið handtekin. Var það sagt byggja á ákærum bandarískra yfirvalda á hendur Maduro, meðal annars vegna meintrar fíkniefna hryðjuverkastarfsemi (e. Narco-terrorism), kókaíninnflutnings til Bandaríkjanna og vörslu á ólöglegum skotvopnum. Í kjölfar aðgerðanna voru Maduro og Flores flutt til Bandaríkjanna þar sem þau verði sótt til saka. Þá greindi Trump frá því að Bandaríkin myndu stýra Venesúela tímabundið á meðan valdaskipti ættu sér stað og eitt af forgangsmálum væri að koma olíuflutningi aftur í gang og nýta olíuauðlindir landsins í þágu almennings og fjármögnunar á uppbyggingu Venesúela. Í kjölfar handtöku Maduro héldu bandarískar hernaðar- og löggæslusveitir áfram að leggja hald á olíuskip sem reyndu að sniðganga bandarískar þvingunaraðgerðir. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu jafnframt að fyrstu birgðir af venesúelskri olíu, sem hafi verið haldlögð yrðu seld fyrir um 500 milljónir Bandaríkjadala, með þeim rökum að söluandvirðið myndi nýtast bæði Bandaríkjunum og efnahagslegri uppbyggingu í Venesúela.
Aðgerðir Bandaríkjanna hafa verið afar umdeildar á alþjóðavettvangi. Sameinuðu þjóðirnar, fjölmörg ríki og mannréttindasamtök hafa gagnrýnt þær harðlega og haldið því fram að þær brjóti gegn alþjóðalögum og hafrétti. Þá hefur verið kallað eftir formlegri umfjöllun innan Sameinuðu þjóðanna um afleiðingar þeirra varðandi viðskipti, stjórnmál og mannréttindi. Þá er óljóst hvað framhaldið verður hvað varðar stjórn í Venesúela. Sem stendur hefur varaforseti landsins, Delcy Rodriguez, tekið við forsetaembættinu í fjarveru Maduro. Hefur hún verið í samskiptum við bandarísk stjórnvöld um framtíð landsins og stjórn þess. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja að eina leiðin til þess að endurreisa lýðræðið í Venesúela eftir nýleg brot á fullveldi landsins og áralanga einræðisstjórn sé að virða vilja venesúelsku þjóðarinnar, tryggja ábyrgð og sjálfákvörðunarrétt og tryggja fullvalda og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda þeirra í samræmi við alþjóðalög.
Þrátt fyrir framangreindar aðgerðir Bandaríkjanna liggur ekki fyrir að almennt öryggi borgara í Venesúela hafi raskast verulega í kjölfarið. Alþjóðlegir fjölmiðlar og opinberar yfirlýsingar bandarískra stjórnvalda hafa ekki greint frá því að viðvarandi átök, almennar óeirðir eða víðtæk mótmæli hafi brotist út í kjölfar aðgerðanna, heldur virðist öryggisástand að mestu hafa haldist stöðugt utan þeirra afmörkuðu hernaðaraðgerða sem framkvæmdar voru í Karakas við handtöku Maduro. Fjölmiðlar hafa greint frá því að stjórnsýsla og opinber þjónusta hafi að meginstefnu haldið áfram starfsemi sinni, þrátt fyrir pólitíska óvissu í kjölfar aðgerðanna. Jafnframt liggja ekki fyrir heimildir um að aðgangur að heilbrigðisþjónustu eða lyfjum hafi almennt verið hindraður. Þá benda heimildir til þess að landamæri Venesúela séu opin og að almenningur geti ferðast til og frá landinu. Að lokum liggja ekki fyrir heimildir sem benda til þess að einstaklingar sem snúi aftur til Venesúela eigi almennt hættu á að verða fyrir handahófskenndri meðferð, auknu eftirliti eða refsiaðgerðum einungis vegna aðgerða Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Venesúela hafi þá unnið að því að láta lausa pólitíska fanga og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu frjálsu félagasamtakanna Foro Penal frá 18. janúar 2026, hafði 143 pólitískum föngum verið sleppt frá 8. janúar 2026. Kveða samtökin þær tölur verulega lægri en opinberar tölur stjórnvalda í Venesúela og kalla eftir gegnsæi í upplýsingum stjórnvalda. Telja samtökin að enn séu um 700 pólitískir fangar í haldi. Af yfirlýsingu sérstaks erindreka Sameinuðu þjóðanna fyrir Venesúela frá 12. janúar 2026 hafði aðeins 50 pólitískum föngum verið sleppt af þeim um 800 sem hafi verið í haldi stjórnvalda í Venesúela, ítrekaði erindrekinn kröfu um skilyrðislausa lausn allra þeirra sem hafi verið í haldi.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hún hafi ástæðuríkan ótta við að vera ofsótt vegna aðildar hennar að þjóðfélagshópi og stjórnmálaskoðana, sem móðir A. Að auki allra málsatvika telur kærandi að líta beri á málið með hliðsjón af hinu almenna ástandi í heimaríki.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.
Kærandi greinir frá því að A hafi verið fyrrum ríkisstarfsmaður hjá [...] sem hafi orðið var við spillingu innan fyrirtækisins. Hann hafi tilkynnt það til yfirmanns og það hafi hrundið af stað atburðarrás sem hafi leitt til handtöku tveggja yfirmanna A hjá [...]. Byggir kærandi á því í greinargerð að um pólitíska athöfn hafi verið að ræða hjá A, sem hafi myndað grundvöll ofsókna vegna stjórnmálaskoðana, hvort sem þær séu raunverulegar eða ætlaðar. Þá er byggt á því að vegna stöðu A tilheyri hann tilteknum þjóðfélagshóp. A hafi borið vitni gegn yfirmönnum sínum og orðið enn meira áberandi í kjölfarið. A hafi m.a. verið nafngreindur á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum í tengslum við spillingarmálið innan ríkisfyrirtækisins. Þá hafi A orðið fyrir m.a. áreiti, hótunum og mismunun í starfi. Kærandi telur sig því eiga á hættu ofsóknir af hálfu fyrrum yfirmanna A sem tilheyri ríkisstjórnarflokknum og valdamiklum aðilum tengdum þeim, vegna tengsla hennar við A.
Í ljósi þess að þau atvik sem kærandi greindi frá í viðtali hafi beinst í meginatriðum að A en ekki kæranda sjálfri er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hún hafi áður en hún flúði heimaríki sitt upplifað ofbeldi, áreiti eða hótanir af hálfu stjórnvalda eða annarra aðila sem nái því alvarleikastigi að fela í sér ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Þá hefur kærandi ekki sýnt fram á að þau atvik sem hún greinir frá að A hafi orðið fyrir, skapi raunhæfa og einstaklingsbundna hættu fyrir hana sjálfa eða að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Í þessu sambandi lítur kærunefnd jafnframt til úrskurðar nefndarinnar í máli A og fjölskyldu hans, þar sem ekki var talið að þau eigi hættu á að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Að því virtu og með hliðsjón af því að mál kæranda byggir að verulegu leyti á sömu málsástæðum og atvikum, verður ekki talið að kærandi eigi hættu á ofsóknum í heimaríki vegna tengsla sinna við A. Þá greindi kærandi ekki frá stjórnmálaskoðunum né þátttöku í stjórnmálastarfsemi í viðtali hjá Útlendingastofnun og er því ekki talið sýnt fram á að hún eigi hættu á ofsóknum í heimaríki á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að þær athafnir sem kærandi hefur lýst hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Enn fremur varða framangreind atvik ekki kynþátt kæranda, trúarbrögð, þjóðerni, aðild að tilteknum þjóðfélagshópi eða stjórnmálaskoðanir hennar og eru þ.a.l. ekki ástæður sem talist geta til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst þá óttast að verða handtekin eða sæta viðurlögum vegna þess að hún hafi yfirgefið heimaríki sitt. Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela geti verið í hættu við endursendingu.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hún eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína um viðbótarvernd á því að einstaklingsbundnar aðstæður með hliðsjón af hinu almenna ástandi í Venesúela nái því alvarleikastigi að það falli undir verndarsvið 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Þó öryggisástand í Venesúela sé á ákveðnum svæðum ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafa átök að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu og Brasilíu. Benda almennar heimildir ekki til þess að aðstæður í landinu nái því marki að sérhver einstaklingur sem þangað fari eigi á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Stjórnvöld í Venesúela hafi viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og unnið að því í samstarfi við alþjóðasamfélagið að bæta slíka aðstoð. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin hagvöxtur hafi aukist þrátt fyrir viðskiptaþvinganir og vöruframboð aukist að einhverju leyti þrátt fyrri hátt verðlag. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Hvað varðar hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela og handtöku Maduro og eiginkonu hans af hálfu bandarískra stjórnvalda er ekkert sem bendir til þess að þær aðgerðir hafi leitt til þess að aðstæður í landinu hafi versnað fyrir almenning í landinu. Benda heimildir til þess að stjórnvöld hafi brugðist við með því að setja í embætti varaforseta landsins og að stjórn og innviðir landsins séu eins og er stöðugir. Þá hafa ekki brotist út mótmæli eða vopnuðu átök sem eða komið upp önnur atvik sem benda til þess að almennar aðstæður séu slíkar að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreinds verða frekari persónulegir þættir að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda, s.s. heilsufar hennar, leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsett í [...] í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er [...] í norðurhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kæranda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir í heimafylki kæranda eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
Kærandi hefur gert kröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar um veitingu mannúðarleyfis verði staðfest verði ekki fallist á aðrar kröfur hennar. Með vísan til þess og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration regarding the appellant’s application is affirmed.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Vera Dögg Guðmundsdóttir