Skipaður 6. október 2026
Ísland er háð innflutningi á jarðefnaeldsneyti og getur röskun á aðfangakeðjum, hvort sem hún stafar af alþjóðlegum átökum, truflunum í flutningum, náttúruhamförum, bilunum í mikilvægum innviðum eða öðrum ófyrirséðum atvikum, haft veruleg áhrif á samfélagslega mikilvæga starfsemi. Ekki er nú fyrir hendi heildstætt lögbundið kerfi sem tryggir sérstakar neyðarbirgðir eldsneytis til að mæta slíkum aðstæðum.
Á undanförnum árum hefur mikilvægi neyðarbirgða eldsneytis verið áréttað í ýmiss konar vinnu stjórnvalda. Þar má m.a. nefna skýrslu starfshóps forsætisráðuneytis um neyðarbirgðir frá árinu 2022 og skýrslur Þjóðaröryggisráðs um mat á ástandi og horfum í þjóðaröryggismálum. Þá hefur, við vinnu stjórnvalda við mat og kortlagningu á áfallaþoli íslensks samfélags með hliðsjón af grunnviðmiðum Atlantshafsbandalagsins um viðnámsþrótt, verið lögð áhersla á að tryggt aðgengi að eldsneyti sé einn af grundvallarþáttum í áfallaþoli samfélagsins.
Umhverfis- og orkustofnun hefur unnið greiningu á stöðu eldsneytisbirgða og birgðarýmis hér á landi, alþjóðlegum viðmiðum og birgðaþörf við mismunandi sviðsmyndir og áætluðum kostnaði við mismunandi hlutfall raunbirgða og annarra leiða til að uppfylla tiltekið birgðaviðmið. Sú vinna hefur einkum tekið mið af því fyrirkomulagi að birgðaskylda hvíli á innflytjendum eldsneytis. Ekki hefur hins vegar farið fram heildstæður samanburður á mismunandi stofnana-, eignarhalds- og fjármögnunarleiðum með tilliti til áhrifa á fjárhagsstöðu og rekstur markaðsaðila, fjármagnskostnaðar, samkeppni, nýtingar birgðarýmis og mögulegrar aðkomu ríkisins.
Verkefni starfshópsins er að framkvæma hagræna og rekstrarlega greiningu og bera saman mismunandi leiðir við fyrirkomulag neyðarbirgða eldsneytis. Til skoðunar geta meðal annars komið dreifð birgðaskylda innflytjenda, miðlægt fyrirkomulag á vegum sérstaks lögaðila eða birgðaeiningar, með mismunandi aðkomu ríkisins og markaðsaðila, og blandaðar leiðir þar sem ábyrgð og birgðahald skiptist milli miðlægrar einingar og markaðsaðila. Hópurinn skal gera tillögu að fyrirkomulagi sem hann metur hagkvæmast fyrir samfélagið en þó þannig að ásættanlegu öryggi sé náð.
Starfshópurinn er hluti af skipulagi samhæfingar um eflingu áfallaþols og er hópurinn skipaður tímabundið sem einn þeirra vinnuhópa sem heyra undir stýrihóp Stjórnarráðsins um áfallaþol.
Starfshópurinn skal skila niðurstöðum sínum til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eigi síðar en 1. febrúar 2026.
Starfshópurinn er þannig skipaður:
Jón Ásgeirsson, formaður, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti,
Steinar Örn Jónsson, lögfræðingur, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti,
Daníel Svavarsson, skrifstofustjóri, forsætisráðuneyti,
Hinrika Sandra Ingimundardóttir, verkefnastjóri, utanríkisráðuneyti,
Ólafur Heiðar Helgason, sérfræðingur, fjármála- og efnahagsráðuneyti,
Sigurður Páll Ólafsson, skrifstofustjóri, fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Jón Ásgeir Haukdal Þorvaldsson, teymisstjóri, Umhverfis- og orkustofnun,