Starfshópur um endurskoðun ETS-kerfisins

Skipaður 14. október 2026

Hlutverk starfshópsins er að undirbúa viðbrögð við löggjafartillögum framkvæmdastjórnar ESB vegna endurskoðunar ETS-kerfisins sem kynntar voru 17. júlí sl., þ.e. COM (2026) 616 og tengdar gerðir, byggt m.a. á greiningum Umhverfis- og orkustofnunar, greiningu DNV á áhrifum veðurs á orkunotkun skipaflutninga til Íslands og greiningu ICF á áhrifum fyrirhugaðra breytinga á  flugstarfsemi undir ETS, auk áhrifamats framkvæmdastjórnarinnar.  

Starfshópurinn setji fram tillögu að umsögn stjórnvalda til framkvæmdastjórnarinnar meðan regluverkið er á tillögustigi og geri tillögu að afstöðu stjórnvalda þegar kemur að upptöku endurskoðaðra ETS-reglna í EES-samninginn. 

Starfshópurinn eigi samráð við viðeigandi sérfræðinga í Stjórnarráðinu, stofnanir, loftslagsráð og hagaðila, eftir því sem við á.

Starfshópurinn starfar þar til að ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar liggur fyrir um upptöku reglugerða vegna ETS-endurskoðunar í EES-samninginn. Gert er ráð fyrir að starfshópur utanríkisráðherra vegna hagsmunagæslu vegna ETS og millilandaflugs verði leystur frá störfum frá sama tíma og að þessi hópur taki yfir hlutverk þess hóps.

Án tilefningar
Sandra Ó. Snæbjörnsdóttir, formaður
Sigríður Rós Einarsdóttir, varafulltrúi

Darri Sigþórsson
Erla Sigríður Gestsdóttir, varafulltrúi

Vanda Liv Úlfrún Hellsing

Samkvæmt tilnefningu utanríkisráðuneytis
Emma Adolfsdóttir,
Daníel Arnar Magnússon, varafulltrúi,

Samkvæmt tilnefningu innviðaráðuneytis
Vala Hrönn Viggósdóttir
Katrín Pálsdóttir 
Friðfinnur Skaftason, varafulltrúi
Ágúst Bogason, varafulltrúi

Samkvæmt tilnefningu fjármála- og efnahagsráðuneytis
Guðrún Birna Finnsdóttir

Samkvæmt tilnefningu Umhverfis- og orkustofnunar
Aðalbjörg Egilsdóttir
Einar Halldórsson, varafulltrúi