Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 451–500 af 2979
    Raða eftir:
    10. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Starfshópur skipaður um fóstur- og nýburaskimun

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem gera á tillögu að stefnu um fóstur- og nýburaskimun. Í stefnunni skal koma fram fyrir hverju eigi að skima, hvenær skuli boðið upp á skimun, hvernig hún skuli framkvæmd og hvar. Hópnum er einnig ætlað að fjalla um fósturvísagreiningar. Formaður starfshópsins er Henry Alexander Henrysson.

    09. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    64 ný hjúkrunarrými á Hrafnistu í Kópavogi

    Félags- og húsnæðismálaráðherra, heilbrigðisráðherra, bæjarstjóri Kópavogs og forráðamenn Hrafnistu opnuðu í dag nýtt 64 rýma hjúkrunarheimili í Boðaþingi í Kópavogi. Fyrir eru 44 rými í Boðaþingi og eru hjúkrunarrýmin þannig orðin 108 talsins. Óhætt er að segja að um mikilvægan áfanga sé að ræða í uppbyggingu hjúkrunarheimila hér á landi, enda eru biðlistar langir, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Eignarhald er sameiginlega á hendi ríkisins og Kópavogsbæjar en Hrafnista annast reksturinn.

    09. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    64 ný hjúkrunarrými á Hrafnistu í Kópavogi

    Félags- og húsnæðismálaráðherra, heilbrigðisráðherra, bæjarstjóri Kópavogs og forráðamenn Hrafnistu opnuðu í dag nýtt 64 rýma hjúkrunarheimili í Boðaþingi í Kópavogi. Fyrir eru 44 rými í Boðaþingi og eru hjúkrunarrýmin þannig orðin 108 talsins. Óhætt er að segja að um mikilvægan áfanga sé að ræða í uppbyggingu hjúkrunarheimila hér á landi, enda eru biðlistar langir, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Eignarhald er sameiginlega á hendi ríkisins og Kópavogsbæjar en Hrafnista annast reksturinn.

    07. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Geðheilsumiðstöð barna efld með áherslu á styttri bið eftir þjónustu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra tilkynnti í dag um aukið fjármagn til Geðheilsumiðstöðvar barna (GMB). Þetta gerir GMB kleift að fjölga stöðugildum í greiningarteymum miðstöðvarinnar um tvö í því skyni ​að stytta bið barna eftir þjónustu. Miðstöðin veitir annars stigs geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra um allt land. „Þessi ákvörðun endurspeglar áherslu ríkisstjórnarinnar á að stytta bið barna eftir mikilvægri þjónustu og setja geðheilbrigðismál í forgang. Ég er sannfærð um að þetta er góð ákvörðun, því þörfin er brýn og með þessu fjárfestum við jafnframt í framtíðinni“ segir Alma.

    06. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Breyting á reglugerð um iðgjald vegna sjúklingatryggingar

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur staðfest breytingu á reglugerð um iðgjald vegna sjúklingatryggingar. Breytingin felur í sér víðtækari skilgreiningu á starfssambandi rekstraraðila við starfsfólk og þar með hvenær heilbrigðisstarfsmaður telst starfsmaður tiltekinnar starfseiningar eða sjálfstætt starfandi. Þetta gerir kleift að fella fleiri en einungis launþega undir sjúklingatryggingu rekstraraðila.

    05. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjarskiptalæknir bráðaþjónustu á sólarhringsvakt vegna illviðris um allt land

    Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samráði við Landspítala að tryggja sólarhringsmönnun fjarskiptalæknis bráðaþjónustu meðan illviðri gengur yfir landið.

    05. feb. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Lífshlaupinu ýtt úr vör

    Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, og Alma D. Möller heilbrigðisráðherra fluttu ávarp við setningu Lífshlaupsins í Barnaspítala Hringsins í dag. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem ætlað er að stuðla að aukinni daglegri hreyfingu, þátttakendum til heilsubótar.

    05. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Drög að aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi

    Drög að aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Áætlunin tekur til áranna 2025 til 2030. Í henni eru lagðar til 26 aðgerðir sem snúa að öllum stigum sjálfsvígsforvarna; forvörnum, íhlutunum og stuðningi eftir sjálfsvíg. Sjálfsvíg eru alvarlegur lýðheilsuvandi sem hefur víðtækar afleiðingar fyrir samfélagið allt. Árangursrík aðgerðaáætlun er því mikilvæg til að stuðla að bættri heilsu landsmanna.

    31. jan. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Margrét Guðnadóttir ráðinn forstöðumaður Miðstöðvar í öldrunarfræðum

    Margrét Guðnadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Miðstöðvar í öldrunarfræðum. Miðstöðin er starfrækt undir heilbrigðisvísindastofnun Háskóla Íslands í samvinnu við Landspítala. Hún hefur það að markmiði að efla nýsköpun og þróun í þjónustu við eldra fólk, meðal annars með því að styrkja samstarf fræðimanna á sviði öldrunarfræða og safna saman á einn stað heildstæðum upplýsingum um stöðu eldra fólks á Íslandi.

    30. jan. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Guðmann Ólafsson skipaður skrifstofustjóri fjármála

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Guðmann Ólafsson skrifstofustjóra á skrifstofu fjármála í heilbrigðisráðuneytinu. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við mat ráðgefandi nefndar sem skipuð var til að meta hæfni umsækjenda, líkt og kveðið er á um í lögum um Stjórnarráð Íslands.

    27. jan. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Unnið að skilgreiningu á hlutverki SAk sem varasjúkrahúss

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur falið starfshópi að skilgreina hvaða kröfur Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) þurfi að uppfylla til að geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu sem varasjúkrahús Landspítala (LSH). Í lögum um heilbrigðisþjónustu er kveðið á um að SAk sé varasjúkrahús LSH en hvergi er skilgreint hvað felist í því hlutverki. „Þetta þarf að vera skýrt ef á reynir, þ.e. hvaða þjónustu sjúkrahúsið þarf að geta veitt og hvaða búnaður þarf að vera fyrir hendi, einkum á sviði bráðaþjónustu“ segir heilbrigðisráðherra.

    24. jan. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisráðherra fundar með heilbrigðisráðherra Póllands

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra fundaði í liðinni viku með Izabela Leszczyna heilbrigðisráðherra Póllands í Varsjá. Fundurinn var haldinn í tengslum við ráðstefnuna „Together for the Health of Europe – Strategic Directions and Actions of the Public Health Sector,“ sem markaði upphaf formennskutímabils Póllands í ráðherraráði Evrópusambandsins.

    20. jan. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál

    Ráðherra viðstaddur opnun farsóttareiningar á Landspítala

    Farsóttareiningin varð til með flutningi göngudeildar smitsjúkdóma og bráðadagdeild lyflækninga undir sama þak í Fossvogi en deildirnar voru áður á sitthvorum staðnum á spítalanum.

    20. jan. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Ráðherra heimsótti Sjúkratryggingar Íslands

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra heimsótti í vikunni Sjúkratryggingar Íslands, kynnti sér starfsemina og ræddi við starfsfólk.

    14. jan. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Ársskýrsla Landsráðs um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu júní 2023 til júní 2024

    janúar 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Ársskýrsla Landsráðs um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu júní 2023 til júní 2024 Ársskýrsla Landsráðs um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu júní 2023 til júní 2024

    13. jan. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra heimsótti Lyfjastofnun

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra heimsótti Lyfjastofnun í liðinni viku, fundaði með framkvæmdaráði stofnunarinnar og kynnti sér starfsemina. Lyfjastofnun starfar á grundvelli lyfjalaga sem hafa það meginmarkmið að tryggja landsmönnum nægilegt framboð af nauðsynlegum lyfjum með öryggi sjúklinga að leiðarljósi.

    13. jan. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Jón Magnús og Guðríður Lára aðstoðarmenn heilbrigðisráðherra

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ráðið sem aðstoðarmenn sína Jón Magnús Kristjánsson lækni og Guðríði Láru Þrastardóttur lögfræðing.

    09. jan. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breytingar á sjúklingatryggingu tóku gildi 1. janúar

    Ný lög um sjúklingatryggingu tóku gildi 1. janúar síðastliðinn, ásamt nýrri reglugerð um iðgjöld vegna sjúklingatryggingar. Lögin fela í sér ýmsar breytingar sem styrkja réttarstöðu sjúklinga sem verða fyrir heilsutjóni í tengslum við veitta heilbrigðisþjónustu. Verklag við meðferð bótamála hefur verið samræmt og hámarksbætur hækkaðar um 50%, úr u.þ.b. 14 m.kr. í 21 m.kr.

    07. jan. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fimm umsækjendur um embætti landlæknis

    Fimm sóttu um embætti landlæknis sem auglýst var laust til umsóknar um miðjan desember síðastliðinn. Umsóknarfrestur rann út í gær.

    22. des. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Alma D. Möller tekin við embætti heilbrigðisráðherra

    Alma D. Möller kom til starfa í heilbrigðisráðuneytinu í dag sem heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Alma tekur við embættinu af Willum Þór Þórssyni.

    21. des. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 31/2024

    Útdráttur: Kærður var málshraði embættis landlæknis í máli sem varðaði tilkynningu um rekstur heilbrigðisþjónustu til embættisins. Í málinu hélt kærandi því fram að málsmeðferð embættisins í málinu hefði dregist óhæfilega. Þá hefði embættið ekki gert tilraun til að upplýsa kæranda um hvenær ákvörðunar væri að vænta í málinu svo sem kærandi óskaði ítrekað eftir. Embætti landlæknis hélt því fram að um fordæmalaust mál væri að ræða og hefja þyrfti málsmeðferð þess að nýju frá grunni, en málið hefur áður komið til kasta ráðuneytisins. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að embættið hefði boðað tiltekna viðamikla málsmeðferð án þess að gera tilraun til að marka henni tímaramma eða upplýsa kæranda um mögulegan málsmeðferðartíma. Var málsmeðferð embættisins af þeim sökum talin fara í bága við 3.…

    20. des. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 30/2024

    Útdráttur: Kærður var málshraði embættis landlæknis í máli sem varðaði tilkynningu um breytingu á rekstri í heilbrigðisþjónustu. Í málinu hélt kærandi fram að málið hefði dregist úr hófi fram. Þá hefðu engar upplýsingar borist frá embættinu um mögulegan málsmeðferðartíma eða hvenær ákvörðunar væri að vænta. Þá hefði málið áður verið til meðferðar hjá embættinu sem hefði engu að síður talið að tilkynningin krefðist ítarlegrar rannsóknar. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að embættið hefði ekki óskað eftir umsögnum við fyrsta hentugleika svo sem kveðið er á um í stjórnsýslulögum. Þar sé jafnframt kveðið á um skyldu til að upplýsa um fyrirsjáanlegar tafir á máli og hvenær ákvörðunar sé að vænta, sbr. 2. og 3. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.…

    17. des. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur við MetamorPhonics um endurhæfingu og inngildingu

    Ráðherrar heilbrigðisráðuneytis, félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, mennta- og barnamálaráðuneytis og menningar- og viðskiptaráðuneytis undirrituðu fyrir skömmu styrktarsamning við MetamorPhonics um frumkvöðla- og samstarfsverkefni á sviði endurhæfingar. Samningurinn, sem gildir frá ársbyrjun 2025 til ársloka 2026, miðar að því að styðja við tónlistarverkefni sem nýtist einstaklingum í endurhæfingu. Endurhæfingarstarfið felst í námskeiðum og þátttöku í tónlistarsmiðjum. Áhersla er lögð á þátttöku fólks með geðvanda sem þurfa aðstoð til aukinnar þátttöku í samfélaginu og vinna þannig gegn jaðarsetningu hópsins. Verkefnið er unnið í samstarfi MetamorPhonics við Listaháskóla Íslands, Tónlistarborginga Reykjavík, Hörpu og starfsendurhæfingarstöðvar um allt land.

    17. des. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Embætti landlæknis laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið hefur auglýst embætti landlæknis laust til umsóknar. Um embættið fer samkvæmt lögum nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu. Umsóknarfrestur er til 6. janúar næstkomandi. Skipað verður í embættið frá 1. mars 2025. Heilbrigðisráðherra fer með yfirstjórn heilbrigðismála og skipar landlækni til fimm ára í senn að fengnu mati nefndar skv. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007.

    13. des. 2024Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Unnið að úrbótum úrræða og þjónustu vegna einstaklinga sem nauðsynlegt þykir að sæti sérstökum öryggisráðstöfunum

    Minnisblað með fyrstu tillögum starfshóps sjö ráðuneyta um úrbætur á úrræðum og þjónustu vegna einstaklinga sem nauðsynlegt þykir að sæti sérstökum öryggisráðstöfunum var kynnt á fundi ríkisstjórnar í dag.

    10. des. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Verkefnastyrkir til fjarheilbrigðisþjónustu á grundvelli byggðaáætlunar

    Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið úthlutun styrkja til verkefna á sviði fjarheilbrigðisþjónustu á grundvelli byggðaáætlunar stjórnvalda. Kallað var eftir tillögum að verkefnum frá stofnunum heilbrigðisráðuneytisins. Alls bárust umsóknir um styrki til níu verkefna frá sex stofnunum. Við úthlutun styrkja var byggt á forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu og ætlaðan ávinning af verkefnunum. Fimm verkefni hlutu styrk, samtals 43,2 milljónir króna.

    09. des. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Hvítbók um lyfjafræðilega þjónustu í apótekum

    Birt hefur verið skýrsla starfshóps sem heilbrigðisráðherra fól að skrifa hvítbók um stöðumat lyfjafræðilegrar þjónustu í apótekum í samanburði við hinar Norðurlandaþjóðirnar og gera tillögur að úrbótum. Skýrslan er nú til umsagnar í samráðsgátt og er umsagnarfrestur til 6. janúar næstkomandi.

    09. des. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Stöðumat á lyfjafræðilegri þjónustu íslenskra apóteka í samanburði við nágrannalönd og tillögur - Skýrsla starfshóps - hvítbók

    desember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Stöðumat á lyfjafræðilegri þjónustu íslenskra apóteka í samanburði við nágrannalönd og tillögur - Skýrsla starfshóps - hvítbók Stöðumat á lyfjafræðilegri þjónustu íslenskra apóteka í samanburði við nágrannalönd og tillögur - Skýrsla starfshóps - hvítbók

    09. des. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Almenn líknarmeðferð á hjúkrunarheimilum - Skýrsla starfshóps

    desember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Almenn líknarmeðferð á hjúkrunarheimilum - Skýrsla starfshóps Almenn líknarmeðferð á hjúkrunarheimilum - skýrsla starfshóps

    09. des. 2024Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mönnun ljósmæðra nú og til framtíðar með áherslu á sem besta nýtingu fagþekkingar ljósmæðra innan heilbrigðisþjónustunnar - Skýrsla starfshóps

    desember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Mönnun ljósmæðra nú og til framtíðar með áherslu á sem besta nýtingu fagþekkingar ljósmæðra innan heilbrigðisþjónustunnar - Skýrsla starfshóps Mönnun ljósmæðra nú og til framtíðar með áherslu á sem besta nýtingu fagþekkingar ljósmæðra innan heilbrigðisþjónustunnar

    02. des. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 28/2024

    Útdráttur: Kærandi kærði ákvörðun embættis landlæknis um að synja henni um starfsleyfi sem sálfræðingur. Embættið byggði ákvörðun sína á því að nám kæranda uppfyllti ekki skilyrði reglugerðar nr. 1130/2012 til að hljóta starfsleyfi, enda væri það nám sem hún hefði stundað erlendis verulega frábrugðið því námi sem krafa væri gerð um í reglugerðinni. Kærandi taldi að embættið þyrfti að túlka aðstæður hennar með rýmri hætti. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að skýrt væri kveðið á um kröfur sem gerðar væru til menntunar til að hljóta starfsleyfi sem sálfræðingur í reglugerð nr. 1130/2012. Þar sem nám kæranda var verulega frábrugðið þeim kröfum sem gerðar væru í reglugerð, bæði að umfangi og efni, var það niðurstaða ráðuneytisins að staðfesta ákvörðun embættisins um synjun starfsleyfis.

    29. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vel heppnað heilbrigðisþing um heilsugæsluna – myndir og upptaka frá þinginu

    Yfir 300 manns sóttu árlegt heilbrigðisþing heilbrigðisráðherra sem haldið var á Reykjavík hótel Nordica í gær og fjöldi fylgdist með í beinu streymi. „Heilsugæslan, svo miklu meira…" var yfirskrift þingsins þar sem fjallað var um heilsugæslu í víðu samhengi, hugmyndafræði þjónustunnar, þróun hennar, stöðuna í dag og áskoranir og sóknarfæri til framtíðar. Upptaka frá þinginu er aðgengileg á vef ráðuneytisins og eins eru birtar hér svipmyndir frá því.

    29. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Staða framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma og framhald til ársins 2028

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Staða framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma og framhald til ársins 2028 Staða framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma og framhald til ársins 2028

    29. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Staða framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt skýrslu með uppfærðri stöðu framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma til ársins 2028. Á framkvæmdaáætluninni eru alls 934 rými, þar af fjölgun rýma um 724, en bætt aðstaða í 210 rýmum.

    29. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Lokaskýrsla starfshóps um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Lokaskýrsla starfshóps um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun Lokaskýrsla starfshóps um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun

    28. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lokaskýrsla starfshóps um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun

    Starfshópur sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skipaði til að móta drög að fyrstu stefnu stjórnvalda á sviði skaðaminnkunar og leggja til aðgerðaáætlun á grunni hennar hefur skilað skýrslu með niðurstöðum sínum.

    28. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    „Mannafli í læknisþjónustu til framtíðar“ – skýrsla starfshóps

    Staða mönnunar í læknisþjónustu á Íslandi, spá til næstu ára og tillögur um aðgerðir og leiðir til að tryggja mönnun þessarar mikilvægu þjónustu til framtíðar er viðfangsefni nýrrar skýrslu starfshóps, skipuðum af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra. Í skýrslunni er lögð fram tillaga að aðgerðaáætlun um þetta stóra verkefni.

    28. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    EMT sveit á Íslandi - Skýrsla undirbúningshóps

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið EMT sveit á Íslandi - Skýrsla undirbúningshóps EMT sveit á Íslandi - Skýrsla undirbúningshóps

    27. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Mannafli í læknisþjónustu til framtíðar - Skýrsla starfshóps

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Mannafli í læknisþjónustu til framtíðar - Skýrsla starfshóps Mannafli í læknisþjónustu til framtíðar - Skýrsla starfshóps

    27. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Skyndimóttaka á höfuðborgarsvæðinu - skýrsla með tillögum starfshóps

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Skyndimóttaka á höfuðborgarsvæðinu - skýrsla með tillögum starfshóps Skyndimóttaka á höfuðborgarsvæðinu - skýrsla með tillögum starfshóps

    27. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skyndimóttaka á höfuðborgarsvæðinu – tillögur starfshóps

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að kanna möguleika þess að setja á fót skyndimóttöku á höfuðborgarsvæðinu hefur skilað skýrslu með tillögum sínum. Markmið slíkrar móttöku væri að létta álagi af bráðamóttöku Landspítala og bæta þjónustu við sjúklinga.

    26. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Mönnunarviðmið í hjúkrun - skýrsla og tillögur starfshóps

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Mönnunarviðmið í hjúkrun - skýrsla og tillögur starfshóps Mönnunarviðmið í hjúkrun

    26. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Vottorð og vottorðavottorð. Getum við einfaldað kerfið?

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Vottorð og vottorðavottorð. Getum við einfaldað kerfið? Vottorð og vottorðavottorð

    26. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skýrsla um mönnunarviðmið í hjúkrun

    Mönnunarviðmið í hjúkrun á bráðalegudeildum sjúkrahúsa skulu byggja á gagnreyndri þekkingu og skýru kerfisbundnu verklagi sem er samræmt milli stofnana. Þau þurfa að byggja á umfangi og gæðum þjónustunnar, starfsumhverfinu og hæfni og þekkingu starfsfólks og veita sveigjanleika sem nauðsynlegur er í daglegum rekstri. Ábyrgð og vald stjórnenda við ákvörðun mönnunarviðmiða þarf að vera skýrt. Þetta er meginniðurstaða vinnuhóps sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fól að leggja fram mönnunarviðmið í hjúkrun á bráðalegudeildum Sjúkrahússins á Akureyri og Landspítala. Formaður vinnuhópsins var Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir.

    26. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Vottorð og vottorðavottorð

    Útgáfa vottorða í heilbrigðiskerfinu hleypur á hundruðum þúsunda á ári. Síðastliðið ár gáfu heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu og Landspítali út tæplega 190.000 vottorð. Flest eru gefin út að beiðni opinberra stofnana til að tryggja réttindi einstaklinga í tengslum við ýmsa þjónustu. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sem fjallaði um leiðir til að einfalda vottorðakerfið: „Markmiðið er að nýta betur tíma heilbrigðisstarfsfólks, minnka álag, auka skilvirkni og bæta þjónustu við almenning“ segir ráðherra.

    26. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Þróunarverkefnið „Gott að eldast“ hefst í Dalvíkurbyggð

    Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN), Dalvíkurbyggð og hjúkrunarheimilið Dalbær á Dalvík hafa undirritað samning um rekstur samhæfðrar þjónustu eldri borgara í sveitarfélaginu. Samningurinn er byggður á aðgerðaáætlun stjórnvalda, "Gott að eldast", sem samþykkt var á Alþingi þann 10. maí 2023.

    25. nóv. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 27/2024

    Útdráttur: Kærandi kærði málshraða embættis landlæknis vegna kvörtunar sinnar til embættisins sem varðaði athugasemd við þjónustu tiltekins lýtalæknis. Taldi kærandi að dráttur í málinu hafi verið úr hófi fram. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að kanna þyrfti hvort erindi kæranda gæti fallið undir ákvæði 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu. Skipti þar mestu máli hvort kærandi hafi notið heilbrigðisþjónustu í umrætt skipti. Var það niðurstaða ráðuneytisins að þrátt fyrir að hugtakið heilbrigðisþjónusta væri túlkað með víðtækum hætti gæti það ekki náð yfir ágreining um greiðslu fyrir þjónustu sem aldrei fór fram. Af þeim sökum væri um athugasemd við þjónustu að ræða sem endaði ekki með stjórnvaldsákvörðun. Málshraði vegna slíkra erinda sætti því ekki kæru til ráðuneytisins.

    25. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    „Hvert á ég að leita?" Geðheilbrigðisþjónusta fyrir einhvera 18 ára og eldri - niðurstaða ferlagreiningar

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið „Hvert á ég að leita?" Geðheilbrigðisþjónusta fyrir einhvera 18 ára og eldri - niðurstaða ferlagreiningar „Hvert á ég að leita?" Geðheilbrigðisþjónusta fyrir einhvera 18 ára og eldri - niðurstaða ferlagreiningar

    25. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Greining á geðheilbrigðisþjónustu fyrir fullorðna einhverfa og tillögur til úrbóta

    Ein af megináskorunum í geðheilbrigðisþjónustu er að tryggja notendum samfellda, samþætta og heildræna þjónustu. Vísbendingar eru um að fólk með einhverfu fái ekki geðheilbrigðisþjónustu sem mætir þörfum þeirra með árangursríkum hætti. Verkefnahópur sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fól að gera ferlagreiningu á geðheilbrigðisþjónustu fyrir þennan hóp og koma með tillögur til úrbóta hefur skilað ráðherra niðurstöðum sínum.

    25. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mikil áfengisdrykkja Evrópubúa veldur áhyggjum – WHO hvetur til aðgerða

    Fullorðnir Evrópubúar drekka að meðaltali 9,2 lítra af hreinu áfengi árlega sem er met á heimsvísu, samkvæmt nýlegri skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Stofnunin hvetur Evrópuþjóðir til að herða tafarlaust aðgerðir sínar til að sporna við áfengisneyslu. Aðgerðaleysi í þeim efnum sé dýru verði keypt í ljósi víðtækra og alvarlegra afleiðinga fyrir einstaklinga og samfélög.

    • First
    • Prev
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband