24. feb. 2026Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stjórnsýslukærur - úrskurðir, Úrskurðir
Úrskurður fjármála- og efnahagsráðuneytis nr. 1/2026 vegna ákvörðunar Skattsins um ráðstöfun greiðslna inn á skattskuldir fyrrverandi maka á tímabilinu 28. október til 7. nóvember 2024
Ráðuneytinu hefur borist stjórnsýslukæra […], dags. 14. apríl 2025. Þess er aðallega krafist að ákvörðun Skattsins um ráðstöfun greiðslna inn á skattskuld maka á grundvelli sjálfskuldarábyrgðar, skv. 116. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, verði felld úr gildi og ofgreiddar fjárhæðir endurgreiddar. Til vara er þess krafist að ráðstöfun Skattsins verði breytt. Til þrauta vara er þess krafist að ráðstöfunin verði ómerkt og lagt verði fyrir embættið að taka nýja ákvörðun um ráðstöfun greiðslna kæranda inn á skattskuldina. Með kærunni fylgdi rökstuðningur Skattsins, dags. 13. janúar 2025, fyrir ráðstöfun greiðslna inn á fjárkröfur sem fjárnám var gert fyrir og önnur gögn og samskipti embættisins og kæranda.