27. mar. 2026Úrskurðarnefnd velferðarmála - Greiðsluaðlögunarmál, Úrskurðir, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Mál nr. 56/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 639/2025
Miðvikudaginn 18. mars 2026
A
gegn
Sjúkratryggingum Íslands
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Skúli Gunnarsson læknir.
Með kæru, dags. 3. október 2025, kærði B lögmaður, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands frá 9. júlí 2025 um bætur til kæranda úr sjúklingatryggingu.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um bætur úr sjúklingatryggingu með umsókn, dags. 30. janúar 2024, vegna afleiðinga meðferðar sem fór fram í C og á Landspítala. Sjúkratryggingar Íslands synjuðu umsókn kæranda með ákvörðun, dags. 9. júlí 2025. Umsókn um bætur vegna meðferðar í C var synjað þar sem sú meðferð var ekki talin heyra undir sjúklingatryggingu samkvæmt 1.…