Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Utanríkismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 351–400 af 1852
    Raða eftir:
    09. okt. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra Palestínu í heimsókn á Íslandi

    Á tvíhliða fundum með utanríkisráðherra Palestínu, Dr. Varsen Aghabekian, voru efst á baugi fréttir um að samist hafi um vopnahlé á Gaza; en einnig sú vinna sem nú þarf að möguleiki sé á því að friður verði varanlegur.

    09. okt. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ

    Árangursrík haustlota í mannréttindaráðinu

    Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna afgreiddi 37 ályktanir á haustlotu ráðsins, sem lauk í Genf í gær. Um var að ræða þriðju fundarlotu Íslands í mannréttindaráðinu, eða síðan Ísland tók þar sæti í upphafi árs.

    08. okt. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Öryggismál í brennidepli á fundum í Helsinki

    Fjölþáttaógnir og öryggismál í Evrópu voru ofarlega á baugi á fundi sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti með Elinu Valtonen, utanríkisráðherra Finnlands í Helsinki í dag.

    08. okt. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Vegna handtöku íslensks ríkisborgara um borð í skipi á leið til Gaza

    október 2025 / Utanríkisráðuneytið Vegna handtöku íslensks ríkisborgara um borð í skipi á leið til Gaza Utanríkisráðuneytinu er kunnugt um að ísraelsk stjórnvöld hafa í dag farið um borð í skip, Conscience, sem sigldi áleiðis í áttina til Gaza. Íslenskur ríkisborgari sem var um borð hefur verið handtekinn

    07. okt. 2025Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Sendiráð Íslands í Helsinki, Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Alþjóðamál

    Undirrituðu tvíhliða samstarfsyfirlýsingu um varnarmál

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Antti Häkkänen, varnarmálaráðherra Finnlands, undirrituðu í dag tvíhliða samstarfsyfirlýsingu um varnarmál í Helsinki. Undirritunin fór fram í tengslum við opinbera heimsókn Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, til Finnlands.

    06. okt. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Utanríkisráðuneytið

    Samþykkt að stofna rannsóknarnefnd um mannréttindabrot í Afganistan

    Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti samhljóða í dag ályktun um að stofna óháða rannsóknarnefnd um stöðu mannréttinda í Afganistan. Aðeins Kína sagði sig frá ákvörðun ráðsins. Ísland hefur lengi kallað eftir því að rannsóknarnefnd verði stofnuð og leiddi sameiginlega yfirlýsingu þess efnis í ráðinu í mars, í samstarfi við Suður-Afríku og Chile.

    03. okt. 2025Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Sendiráð Íslands í Freetown, Utanríkismál

    Nýr leikskóli opnaður og heilsugæsla endurnýjuð í Síerra Leóne með stuðningi Íslands

    Nýr leikskóli sem opnaður var í vikunni í sjávarþorpinu Konacrydee í Síerra Leóne markar tímamót í lífi íbúa á svæðinu. Leikskólinn er liður í stærra samstarfsverkefni Íslands, stjórnvalda í Síerra Leóne og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF).

    29. sep. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Utanríkisráðuneytið, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Sendiskrifstofa

    Aðildarskjöl Íslands að Vínarsamningnum um milliríkjasamninga afhent Sameinuðu þjóðunum

    Utanríkisráðherra afhenti aðildarskjöl Íslands að Vínarsamningi um milliríkjasamninga til vörslu Sameinuðu þjóðanna þegar hún var í New York í liðinni viku í tilefni leiðtogaviku 80. allsherjarþings stofnunarinnar.

    27. sep. 2025Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Úkraína, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Mannréttindaráð SÞ, Sendiskrifstofa

    Færa þurfi aftur til öndvegis hugsjónir sem leiddu til stofnunar Sameinuðu þjóðanna

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í dag.

    27. sep. 2025Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkisráðuneytið, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra ávarpar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í dag

    Annasamri viku er að ljúka á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra flytur ávarp Íslands í leiðtogaumræðu allsherjarþingsins síðdegis í dag, laugardag.

    26. sep. 2025Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Sendiráð Íslands í Kampala, Utanríkisráðuneytið

    Stuðningur við unglingsmæður og börn þeirra í Úganda skilar árangri

    Hátt í þúsund fátækar mæður á unglingsaldri og börn þeirra njóta góðs af fjárstuðningi í tengslum við verkefni Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Úganda sem Ísland fjármagnar. Stuðninginn nota stúlkurnar til að skapa lífsviðurværi fyrir sig og börn sín. Með verkefninu er freistað að rjúfa þann vítahring sem ungar mæður og börn þeirra festast í.

    24. sep. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Átakanleg örlög brottnuminna úkraínskra barna rædd í New York

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók í gær þátt í viðburði um úkraínsk börn, sem Úkraínuforseti og forsætisráðherra Kanada, ásamt eiginkonum þeirra, skipulögðu í tengslum við setningu allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna (SÞ). Rússar hafa numið á brott þúsundir úkraínskra barna og ungmenna frá því ólögleg innrás þeirra í Úkraínu hófst fyrir meira en þremur og hálfu ári síðan. Kanada og Úkraína leiða saman hóp 41 ríkis, sem vinnur að því að tryggja að börnin fái að snúa aftur heim.

    24. sep. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Atvinnuvegaráðuneytið, Fastanefnd Íslands í Róm

    Ísland og FAO undirrita nýjan samstarfssamning

    Íslensk stjórnvöld og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) hafa undirritað nýjan samstarfssamning til þriggja ára, sem ætlað er að efla samstarf Íslands og stofnunarinnar. Samningurinn var undirritaður miðvikudaginn 24. september í Safnahúsinu af Dr. QU Dongyu forstjóra FAO, sem er í stuttri heimsókn á Íslandi ásamt sendinefnd, og Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra í fjarveru Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem stödd er á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York.

    23. sep. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Sendiskrifstofa

    Ísland styður við málefni hinsegin fólks

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra flutti í dag ávarp á sérstökum fundi ríkjahóps um hinsegin réttindi hjá Sameinuðu þjóðunum, LGBTI Core Group, og í gær undirritaði hún samning um áframhaldandi stuðning Íslands við samtökin Outright International en þau sinna mikilvægum stuðningi við grasrótarsamtök hinsegin fólks, auk málsvarastarfs á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.

    22. sep. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja 80. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í þessari viku. Í dag sátu þær sérstakan hátíðarviðburð í tilefni áttatíu ára afmælis samtakanna, fundað var með Antonio Guterres aðalframkvæmdastjóra og síðar í dag fer fram sérstakur leiðtogafundur um tveggja ríkja lausnina í Mið-Austurlöndum.

    19. sep. 2025Utanríkismál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Ísland tekur þátt í að „rampa upp Úkraínu“

    Samningur um 60 milljóna króna stuðning íslenskra stjórnvalda við verkefnið „Römpum upp Úkraínu,“ næstu fjögur árin var undirritaður í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í gær. Forvígismaður verkefnisins, Haraldur Þorleifsson, réðst sem kunnugt er í sambærilegt verkefni hér á landi fyrir nokkrum árum, sem leiddi til þess að tæplega tvö þúsund aðgengisrampar voru byggðir víðsvegar um land.

    19. sep. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Frumvarp um innleiðingu BBNJ samningsins í samráðsgátt

    Stjórnvöld hafa birt drög að frumvarpi um innleiðingu á lagalegum skuldbindingum „BBNJ-samningsins“ (e. Biodiversity beyond national jurisdiction), um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja, í Samráðsgátt stjórnvalda.

    18. sep. 2025Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Sendiskrifstofa

    Baráttan fyrir launajafnrétti á heimsvísu

    Alþjóðlegi jafnlaunadagurinn var í dag, 18. september, en tilurð hans má rekja til ályktunar Íslands sem lögð var fram í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna árið 2018 og fylgt eftir með ályktun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna ári síðar.

    18. sep. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Kynntu sér mikilvægt framlag Íslands til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins

    Mannvirkjasjóðsnefnd Atlantshafsbandalagsins heimsótti Ísland á dögunum og fékk kynningu á varnarmannvirkjum og innviðum, og framlagi Íslands til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins. Skoðaði nefndin sig m.a. um á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og heimsótti Grindavík og ratsjár- og fjarskiptastöð Atlantshafsbandalagsins á Bolafjalli.

    17. sep. 2025Utanríkismál, Utanríkisviðskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Fríverslunarsamningur EFTA og Mercosur undirritaður

    Fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna fjögurra, Íslands, Noregs, Liechtenstein og Sviss, og Mercosur-ríkjanna, sem samanstanda af Argentínu, Brasilíu, Paragvæ og Úrugvæ, var undirritaður við hátíðlega athöfn í Ríó de Janeiro í gær.

    15. sep. 2025Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Aðalræðisskrifstofa Íslands í Nuuk, Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra styrkti böndin á Grænlandi og fylgdist með varnaræfingu

    Heimsókn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir utanríkisráðherra til Grænlands lauk í dag en hún var mikilvægur liður í samstarfi Íslands og Grænlands hvað varðar norrænt samráð um öryggis- og varnarmál. Þá átti utanríkisráðherra tvíhliða fund með Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, þar sem málefni norðurslóða, áskoranir sem svæðið stendur frammi fyrir og tækifæri til frekara samstarfs ríkjanna í ört breytilegum heimi var til umræðu.

    15. sep. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Utanríkisráðuneytið

    Alþjóðasamningur um ríkisstyrki í sjávarútvegi tekur gildi

    Samningur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um takmörkun ríkisstyrkja í sjávarútvegi tók gildi í dag þegar tilskyldum fjölda aðildarríkja, sem hafa fullgilt hann, var náð. Ísland var eitt af fyrstu aðildarríkjum stofnunarinnar til að fullgilda samninginn og tilkynnti formlega um það 23. maí 2023.

    12. sep. 2025Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í Madríd

    Fyrsti íslenski sendiherrann með aðsetur á Spáni

    Kristján Andri Stefánsson sendiherra afhenti í dag Felipe VI Spánarkonungi trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands á Spáni. Hann er jafnframt fyrsti íslenski sendiherrann sem hefur aðsetur í Madrid höfuðborg Spánar og þjónar umdæminu þaðan.

    09. sep. 2025Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Breytt landslag þróunarsamvinnu í brennidepli á fundi OECD-DAC í Hörpu

    Stórfelldur niðurskurður stórra framlagsríkja til opinberrar þróunaraðastoðar á yfirstandandi ári setti mark sitt á Tidewater-fund Þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD-DAC), sem fram fór í Hörpu í dag. Þar var breytt landslag alþjóðlegrar þróunarsamvinnu efst á baugi, en fyrirséð er að miklar breytingar verði á hefðbundinni fjármögnun opinberrar þróunarastoðar af þessum sökum.

    05. sep. 2025Utanríkismál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Ísland afhendir Úkraínu kæligáma undir fallna hermenn

    Íslensk stjórnvöld brugðust við ákalli varnarmálaráðuneytis Úkraínu og hafa afhent stjórnvöldum í Kænugarði 25 kæligáma sem notaðir verða til að varðveita líkamsleifar fallinna hermanna. Gámarnir hafa þegar verið fluttir á réttarmeinadeildir víðsvegar um Úkraínu.

    05. sep. 2025Utanríkismál, Norrænt samstarf, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Norrænir þróunarmálaráðherrar funduðu í Finnlandi

    Umbætur á starfsemi Sameinuðu þjóðanna ​og þær áskoranir sem alþjóðasamfélagið stendur frammi fyrir á tímum mikils niðurskurðar til þróunarsamvinnu bar hæst á fundi þróunarmálaráðherra Norðurlandanna sem haldinn var í Finnlandi í dag. Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, sótti fundinn fyrir hönd utanríkisráðherra.

    04. sep. 2025Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra fundaði með vararáðherra Indlands í umhverfis-, skógar- og loftslagsmálum

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók í morgun á móti Kirti Vardhan Singh, vararáðherra Indlands í umhverfis-, skógar- og loftslagsmálum, í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn.

    02. sep. 2025Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Alþjóðamál, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ

    Ísland styður við mannréttindaverndara

    Samningur um 20 milljóna króna framlag íslenskra stjórnvalda til starfsemi frjálsu félagasamtakanna International Service for Human Rights (ISHR) var undirritaður í Genf í dag. Einar Gunnarsson sendiherra skrifaði undir samninginn fyrir hönd Íslands.

    30. ágú. 2025Utanríkismál, Evrópusamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra tók þátt í óformlegum fundi utanríkisráðherra ESB um Úkraínu

    Ólöglegt og blóðugt innrásarstríð Rússlands í Úkraínu, frekari þvingunaraðgerðir og mögulegar aðgerðir til að stemma stigu við skuggaflota Rússlands voru í brennidepli á óformlegum fundi utanríkisráðherra Evrópusambandsríkjanna sem fram fór í Kaupmannahöfn í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var sérstakur gestur á þessum hluta fundarins, ásamt utanríkisráðherra Noregs og ráðherra Evrópumála Bretlands.

    29. ágú. 2025Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Conflict in the Middle East, Utanríkisráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing sex utanríkisráðherra um ástandið í Palestínu

    Utanríkisráðherrar Íslands, Írlands, Lúxemborgar, Noregs, Slóveníu og Spánar fordæma harðlega í sameiginlegri yfirlýsingu nýjar hernaðaraðgerðir Ísraels á Gaza og áform um varanlega viðveru ísraelskra hermanna í Gaza-borg.

    26. ágú. 2025Utanríkismál, Evrópusamvinna, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Yfirhershöfðingi þýska hersins heimsækir Ísland

    Carsten Breuer, yfirhershöfðingi þýska heraflans, sótti Ísland heim í vikunni og átti í dag fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Jónasi G. Allanssyni, skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.

    21. ágú. 2025Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing um landtökubyggðir

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er meðal tuttugu og fimm utanríkisráðherra, auk utanríkismálastjóra Evrópusambandsins, sem fordæmir í sameiginlegri yfirlýsingu ákvörðun ísraelskra yfirvalda um að samþykkja nýjar landtökubyggðir á svæðum Palestínumanna.

    19. ágú. 2025Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Stuðningur við Úkraínu í brennidepli á utanríkisráðherrafundi Norðurlandanna og Kanada

    Vaxandi áskoranir á sviði öryggismála, áframhaldandi stuðningur við Úkraínu og málefni Mið-Austurlanda voru í brennidepli á árlegum sumarfundi utanríkisráðherra Norðurlandanna sem lauk í Nuuksio, Finnlandi, í dag. Utanríkisráðherra Kanada var sérstakur gestur fundarins.

    12. ágú. 2025Conflict in the Middle East, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs

    Sameiginleg yfirlýsing um mannúðaraðstoð á Gaza

    Utanríkisráðherra á hlut að sameiginlegri yfirlýsingu tuttugu og níu utanríkisráðherra, auk utanríkismálastjóra Evrópusambandsins, um aðgengi mannúðaraðstoðar inn á Gaza.

    10. ágú. 2025Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing átta utanríkisráðherra

    Utanríkisráðherrar Íslands, Írlands, Lúxemborgar, Möltu, Noregs, Portúgals, Slóveníu og Spánar fordæma ákvörðun ísraelskra stjórnvalda að útvíkka hernaðaraðgerðir sínar og hernám á Gaza.

    29. júl. 2025Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Fastanefnd Íslands hjá S.þ.

    Utanríkisráðherra sótti ráðstefnu í New York um tveggja ríkja lausnina

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um tveggja ríkja lausnina svokölluðu. Í ávarpi áréttaði hún að eina raunhæfa leiðin að friði milli Ísraela og Palestínumanna fælist í að ríki heims viðurkenndu og raungerðu sjálfsákvörðunarrétt Palestínumanna og að sjálfstætt ríki Palestínu tæki sér stöðu við hlið Ísraelsríkis.

    21. júl. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Spánn sinnir loftrýmisgæslu við Ísland í fyrsta sinn

    Flugsveit spænska flughersins er væntanleg til landsins í vikunni, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin samanstendur af sex F-18 orrustuþotum og allt að 130 liðsmönnum.

    21. júl. 2025Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing 30 ríkja um málefni Palestínu

    Utanríkisráðherrar 30 ríkja kalla í dag eftir tafarlausum lyktum stríðsins á Gaza. Ráðherrarnir fordæma í yfirlýsingu hvernig staðið er að veitingu mannúðaraðstoðar á Gaza og dráp á óbreyttum borgurum.

    17. júl. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópusamvinna, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Aukið samstarf Íslands og ESB á sviði öryggis- og varnarmála

    Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) átti í dag fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á öryggissvæðinu í Keflavík í vinnuheimsókn hennar til landsins.

    16. júl. 2025Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Kröfum Iceland hafnað fyrir dómi

    Almennur dómstóll Evrópusambandsins (e. General Court) hefur fallist á niðurstöðu Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) íslenskum stjórnvöldum í vil varðandi vörumerkið ICELAND. Dómstóllinn hafnaði í dag kröfum Iceland Foods Ltd. um ógildingu á niðurstöðu EUIPO, sem hafði komist að þeirri niðurstöðu að vörumerkjaskráning verslunarkeðjunnar á orðmerkinu ICELAND væri ógild í heild sinni.

    13. júl. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópusamvinna, Forsætisráðuneytið

    Forseti framkvæmdastjórnar ESB sækir Ísland heim

    Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) heimsækir Ísland dagana 16.-18. júlí nk. og fundar með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Efnt er til heimsóknarinnar í kjölfar fundar forsætisráðherra með Von der Leyen í Brussel í apríl.

    11. júl. 2025Utanríkismál, Utanríkisviðskipti, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Utanríkisráðuneytið

    Ísland og EFTA-ríkin ljúka viðræðum við Singapúr um stafrænt hagkerfi

    EFTA-ríkin, það er Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss, hafa komist að samkomulagi við Singapúr um samning um stafrænt hagkerfi. Samkomulagið verður hluti af fríverslunarsamningi EFTA-ríkjanna og Singapúr, sem hefur verið í gildi frá árinu 2003.

    11. júl. 2025Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Flutningar forstöðumanna sendiskrifstofa

    Flutningar forstöðumanna sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni standa nú fyrir dyrum. Um er að ræða reglubundna flutninga sem jafnan eru ákveðnir að hausti en tilkynntir þegar samþykki gistiríkja liggja fyrir.

    10. júl. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra heimsótti USS Newport News í Grundartangahöfn

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra heimsótti bandaríska kafbátinn USS Newport News, í höfninni á Grundartanga í dag. Um er að ræða reglulega þjónustuheimsókn kjarnorkuknúna bandarískra kafbáta á Íslandi, en þá fyrstu sem fram fer í höfn. Áhöfn USS Newport News telur um 140 einstaklinga, en báturinn er Los Angeles-gerðar og ber ekki kjarnavopn.

    08. júl. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ

    Áhersla á jafnréttismálin á sumarlotu Sameinuðu þjóðanna sem lauk í dag

    Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna afgreiddi 26 ályktanir á sumarlotu ráðsins sem lauk í Genf í dag. Um var að ræða aðra fundarlotuna sem Ísland tekur þátt í sem aðildarríki mannréttindaráðsins tímabilið 2025-2027.

    03. júl. 2025Utanríkismál, Jafnrétti, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Jafnrétti og valdefling kvenna forsenda þróunar á viðsjárverðum tímum

    Fjármögnun þróunar, skuldamál þróunarríkja og þróunarsamvinna voru í brennidepli á fjórðu ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um fjármögnun þróunar (Financing for Development 4, FfD4) sem lauk í Sevilla á Spáni í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti fundinn fyrir hönd Íslands og flutti ávarp á aðalfundi ráðstefnunnar auk þess að taka þátt í hringborðsumræðum um þróunarsamvinnu.

    02. júl. 2025Utanríkismál, Utanríkisviðskipti, Utanríkisráðuneytið

    EFTA og Mercosur-ríkin ná samkomulagi um fríverslunarsamning

    EFTA-ríkin, þ.e. Ísland, Noregur, Liechtenstein og Sviss, hafa náð samkomulagi við Mercosur-ríkin, sem samanstanda af Argentínu, Brasilíu, Paragvæ og Úrugvæ, um fríverslunarsamning. Þetta var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Buenos Aires í Argentínu í dag, þar sem ráðherrafundur Mercosur-ríkjanna fór fram. Ragnar G. Kristjánsson, sendiherra og skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, tók þátt í athöfninni fyrir hönd Íslands.

    30. jún. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Sendiráð Íslands í Lilongwe, Utanríkisráðuneytið

    Ísland styður við fæðuöryggi skólabarna í Malaví

    Nýju skólamáltíðarverkefni á vegum Íslands og Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) var nýverið hleypt af stokkunum í Malaví. Fulltrúar sendiráðs Íslands í Lilongwe sóttu sérstakan setningarviðburð af þessu tilefni, ásamt menntamálaráðherra Malaví og yfirmanns WFP. Viðburðurinn fór fram í Dzikondilose grunnskólanum sem er einn af skólunum sem hlotið hefur stuðning frá Íslandi.

    26. jún. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Ísland veitir viðbótarframlag til starfsemi UNRWA

    Utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 150 milljóna króna viðbótarkjarnaframlag til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, tilkynnti um framlagið á ársfundi ráðgjafaráðs UNRWA (Advisory Commission) sem haldinn var á fjarfundarformi í gær, 25. júní. Þá hefur einnig verið ákveðið að veita 30 milljóna króna viðbótarframlag til svæðissjóðs Samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) fyrir Palestínu (OCHA oPt).

    26. jún. 2025Utanríkismál, Evrópuráðið, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Sögulegur dómstóll vegna glæpa gegn friði í Úkraínu

    Sögulegt skref var stigið í gærkvöldi þegar Volodómír Selenskí, forseti Úkraínu, og Alain Berset, aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðsins, undirrituðu samning um stofnun sérstaks dómstóls vegna glæpa gegn friði í Úkraínu. Viðburðurinn fór fram í Evrópuráðinu í Strassborg að viðstöddum fulltrúum aðildarríkja. Þá ávarpaði Selenskí einnig Evrópuráðsþingið, en þingmenn Íslandsdeildar Evrópuráðsins tóku þátt í þinginu þessa viku.

    • First
    • Prev
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband