Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 351–400 af 2979
    Raða eftir:
    04. ágú. 2025Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Málefni eldra fólks, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Uppbygging ríflega 600 hjúkrunarrýma 2026-2028

    Ráðgert er að afla ríflega 600 nýrra hjúkrunarrýma á árunum 2026-2028, til viðbótar við þau 120 rými sem tekin verða í notkun á þessu ári.

    21. júl. 2025Tímabundnar nefndir, Heilbrigðisráðuneytið

    Fagráð um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu Hlutverk fagráðsins er að stuðla að gagnreyndri, sanngjarnri og gagnsærri forgangsröðun heilbrigðisþjónustu. Ráðið skal vinna að því að tryggja að heilbrigðisþjónusta sé nýtt á skilvirkan hátt, að forgangur sé veittur þeim sem mest þurfa þjónustu og að heilbrigðiskerfið sé sjálfbært til framtíðar. Ráðið er ráðgefandi og skal skila tillögum til ráðherra

    17. júl. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Varað við fölsuðum OxyContin töflum

    Heilbrigðisráðuneytið vekur athygli á því að í gær birtist viðvörun Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði um falsaðar OxyContin töflur sem bárust þeim nýverið til greiningar, annars vegar frá Norðurlandi og hins vegar frá höfuðborgarsvæðinu.

    14. júl. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 7.- 11. júlí 2025

    14 júlí 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 7. - 11. júlí 2025 7

    08. júl. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Unnið að verkefnum til að stytta bið barna eftir greiningum og þjónustu

    Heilbrigðisráðuneytið hefur á liðnum mánuðum unnið að umfangsmikilli greiningu á geðheilbrigðisþjónustu við börn á öllum þjónustustigum heilbrigðiskerfisins. Markmiðið er að skipuleggja umbreytingar með áherslu á að stytta biðtíma, einfalda boðleiðir, auka skilvirkni og bæta þjónustu. Gert er ráð fyrir að hægt verði að kynna fyrsta áfanga fyrirhugaðra breytinga í haust.

    07. júl. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 30. júní - 4. júlí

    07 júlí 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 30. júní - 4. júlí 30

    01. júl. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tilvísun ekki lengur forsenda greiðsluþátttöku vegna þjónustu sérgreinalækna við börn

    Frá og með deginum í dag er þjónusta sérgreinalækna við börn án endurgjalds, óháð því hvort fyrir liggi tilvísun frá heilsugæslu eða ekki. Reglugerð Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra þessa efnis tók gildi í dag. Ráðherra segir ljóst að núverandi fyrirkomulag tilvísana barna hafi ekki skilað ætluðum tilgangi. Því verði ráðist í skoðun á því hvernig haga megi hliðvörslu í heilbrigðiskerfinu á skynsamlegan, faglegan og skilvirkan hátt.

    01. júl. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Bráðaviðbragð skipulagt í Öræfum til framtíðar

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að styrkja heilbrigðisþjónustu og bráðaviðbragð í Öræfum árið um kring. Vinnuhópur, mannaður starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, mun skoða fyrirkomulag um veitingu nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu í Öræfum árið um kring og skila tillögum til ráðherra í lok október. Ráðherra hefur jafnframt ákveðið að framlengja núverandi fyrirkomulag bráðaviðbragðs í Öræfum til loka þessa árs. Byggir hún þá ákvörðun m.a. á sameiginlegu mati forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) og sveitarstjórnar Hornafjarðar um nauðsyn þess.

    01. júl. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Skimun fyrir ofbeldi hjá börnum. Tillaga að framtíðarferli og verkefnum

    júlí 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Skimun fyrir ofbeldi hjá börnum. Tillaga að framtíðarferli og verkefnum Skimun fyrir ofbeldi hjá börnum

    01. júl. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna á breiðum grunni – stöðutaka

    Ný stöðutaka aðgerðahóps stjórnvalda gegn ofbeldi meðal og gegn börnum sýnir nauðsyn áframhaldandi markvissra aðgerða til að mæta þörfum barna í mestum vanda.

    01. júl. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skimun fyrir ofbeldi hjá börnum – skýrsla um ferlið og framtíðarverkefni

    Innleiðing skimunar fyrir ofbeldi í grunnskólum hefst í haust sem reynsluverkefni. Til framtíðar er markmiðið að innleiða slíka skimun í öllum grunnskólum landsins. Í meðfylgjandi skýrslu eru raktar helstu forsendur að baki ákvörðuninni, m.a. tölfræði um ofbeldi gagnvart börnum ásamt annarri greiningarvinnu og upplýsingum um stöðu þessara mála hjá grannþjóðum. Þar koma einnig fram tillögur um framtíðarferli skimana í grunnskólum hér á landi og tengd verkefni sem ráðist verður í samhliða innleiðingunni.

    30. jún. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 23.- 27. júní 2025

    30 júní 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 23. - 27. júní 2025 23

    26. jún. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stefna um mönnun heilbrigðisþjónustu til ársins 2030

    Heilbrigðisráðuneytið hefur gefið út stefnu um mönnun heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 þar sem meginmarkmiðið er að tryggja sjálfbæra og örugga mönnun heilbrigðisþjónustu á Íslandi með áherslu á gæði þjónustunnar, öryggi sjúklinga og skynsamlega notkun fjármuna. Byggt er á heilbrigðisstefnu til ársins 2030 en nánar fjallað um framtíðarsýnina, helstu áskoranir og á hvaða þætti þarf einkum að leggja á áherslu til að ná markmiðum stefnunnar.

    26. jún. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Mönnunarstefna í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030

    júní 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Mönnunarstefna í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 Mönnunarstefna í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030

    23. jún. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 16.- 20. júní 2025

    23 júní 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 16. - 20. júní 2025 16

    19. jún. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breyting á lögum um neyslurými til frekari skaðaminnkunar

    Alþingi samþykkti í vikunni frumvarp Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um ávana og fíkniefni. Markmið breytinganna er að mæta betur þörfum jaðarsettra einstaklinga um allt land og draga úr skaða af völdum vímuefnanotkunar. Neyslurými hafa til þessa eingöngu verið ætluð þeim sem nota vímuefni í æð. Með breytingunni verður það ekki skilyrði, heldur geta notendur einnig reykt þar vímuefni eða notað aðra þá aðferð sem þeir kjósa. Þá verður heilbrigðisstofnunum og frjálsum félagasamtökum heimilt að stofna og reka neyslurými en sú heimild var áður bundin við sveitarfélögin.

    19. jún. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Áform um lagasetningu: Varnir gegn tóbaki og nikótíni

    Birt hafa verið til umsagnar áform Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra um gerð frumvarps til heildarlaga um varnir gegn tóbaki og nikótíní. Með frumvarpinu verður lagt til að sameina ákvæði laga um tóbaksvarnir, nr. 6/2002 og ákvæði laga um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur nr. 87/2018 í eina heildarlöggjöf um varnir gegn tóbaks- og nikótínvörum. Umsagnarfrestur er til 2. júlí. Markmið áformaðrar lagasetningar er að draga úr notkun tóbaks- og nikótínvara, sérstaklega meðal ungmenna.

    18. jún. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillögur starfshóps um endurbætur á þjónustu talmeinafræðinga við börn

    Starfshópur skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2023 hefur skilað ráðherra skýrslu með tillögum sínum og greinargerð. Hópurinn leggur til að talmeinaþjónusta við börn verði veitt á þremur stigum í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Miðað skuli að því að tryggja snemmtækan stuðning, einfaldara þjónustukerfi og að þjónustan fari sem mest fram í nærumhverfi barna.

    18. jún. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Þjónusta talmeinafræðinga við börn - Skýrsla starfshóps

    júní 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Þjónusta talmeinafræðinga við börn - Skýrsla starfshóps Þjónusta talmeinafræðinga við börn - Skýrsla starfshóps

    16. jún. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Útskrift 30 sjúkraliða úr diplómanámi á sviði öldrunar- heimahjúkrunar og samfélagsgeðhjúkrunar

    Þriðji hópur sjúkraliða sem lýkur diplómaprófi frá Háskólanum á Akureyri útskrifaðist um nýliðna helgi. Námið er tveggja ára fagnám á tveimur kjörsviðum til diplómaprófs, annars vegar á sviði öldrunar- og heimahjúkrunar og hins vegar samfélagsgeðhjúkrunar. Námið er sveigjanlegt sem gerir nemendum sem vilja auka þekkingu sína á þessum sviðum kleift að sinna náminu samhliða starfi.

    16. jún. 2025Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Þjónusta við konur með endómetríósu tryggð - grein ráðherra

    16 júní 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Þjónusta við konur með endómetríósu tryggð - grein ráðherra Greinin birtist á Vísi 16. júní 2025 Aðgerðir fyrir konur með endómetríósu tryggður út þetta ár og komið á samtali um framtíðarþjónustu fyrir þennan hóp. Endómetríósa er langvinnur sjúkdómur sem getur haft djúpstæð áhrif á lífsgæði kvenna, frjósemi, atvinnuþáttöku og heilsu

    16. jún. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Þjónusta við konur með endómetríósu tryggð

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að láta vinna samræmt verklag um þjónustu við konur með endómetríósu samkvæmt alþjóðlegum klínískum leiðbeiningum. Jafnframt verður komið á fót einum miðlægum biðlista fyrir þennan sjúklingahóp. Markmiðið er að tryggja yfirsýn, jafnræði og samræmda, faglega þjónustu og skapa grundvöll fyrir langtímaáætlunum um aðgerðafjölda í samræmi við þjónustuþörf. Til að koma í veg fyrir rof í þjónustu við hópinn hefur ráðherra ákveðið að fela Sjúkratryggingum Íslands að semja við Klíníkina um fleiri endómetríósuaðgerðir á þessu ári.

    16. jún. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 9.- 13. júní 2025

    16 júní 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 9. - 13. júní 2025 9

    13. jún. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum og þjónusta við þolendur

    Heilbrigðisráðuneytið undirbýr að hefja skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum landsins og koma á fót móttöku á Landspítala fyrir börn sem beitt hafa verið ofbeldi. Stefnumótunarvinna stendur yfir og unnið er að gerð tilheyrandi fræðsluefnis og leiðbeininga. Einnig er áformað að setja á fót miðstöð fyrir börn sem þolendur ofbeldis og hafa Stjórnendur Minningarsjóðs Bryndísar Klöru lýst vilja til að styðja myndarlega við verkefnið. Horft er til þess að sjóðurinn kaupi eða fjármagni standsetningu á hentugu húsnæði undir slíka miðstöð sem myndi m.a. hýsa geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn sem sætt hafa ofbeldi.

    12. jún. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Upphafsfundur nefndar WHO um lýðheilsu og loftslagsbreytingar

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra tók þátt í upphafsfundi nefndar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) um lýðheilsu og loftslagsbreytingar sem fram fór í Hörpu í gær. Formaður nefndarinnar er Katrín Jakobsdóttir en í henni sitja ellefu fulltrúar, m.a. fyrrverandi stjórnmálaleiðtogar og áhrifamiklir einstaklingar með þekkingu á sviði loftslags- og heilbrigðismála. Dr. Hans Kluge, framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofu WHO kom til Íslands af þessu tilefni. Hann og Alma áttu tvíhliða fund þar sem þau ræddu m.a. um smáríkjasamstarf WHO, lýðheilsu og forvarnir, geðheilbrigðismál, aðgerðir gegn ofbeldi og síðast en ekki síst ástand heilbrigðismála á Gaza.

    11. jún. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjármagn tryggt til kaupa á heilaörvunartæki við Sjúkrahúsið á Akureyri

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur tryggt fjármagn sem gerir Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) kleift að innleiða heilaörvunarmeðferð einstaklinga með meðferðarþrátt þunglyndi. Áætlað er að á upptökusvæði SAk séu um 240 einstaklingar sem gætu nýtt sér slíka meðferð árlega.

    09. jún. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 2.- 6. júní 2025

    09 júní 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 2. - 6. júní 2025 2

    06. jún. 2025Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 6/2025

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að gera kröfu um uppbótarráðstafanir sem undanfara að því að veita kæranda starfsleyfi sem talmeinafræðingur á Íslandi. Kærandi byggði á því að hún hefði fengið útgefið starfsleyfi sem talmeinafræðingur í Póllandi og ætti rétt á viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi. Þá væri nám hennar ekki svo frábrugðið því námi sem krafa er gerð um á Íslandi til veitingu starfsleyfis sem talmeinafræðingur að hún þyrfti að undirgangast uppbótarráðstafanir áður en hún fengi útgefið slíkt starfsleyfi. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að af gögnum málsins væri ljóst að nám kæranda í Póllandi, sem var grundvöllur starfsleyfis hennar þar, væri töluvert styttra en nám sem krafa er gerð um á Íslandi.…

    02. jún. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 26.- 30. maí 2025

    02 júní 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 26. - 30. maí 2025 26

    31. maí 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Skýrsla vinnuhóps um endurskoðun á sjúkra- og slysadagpeningum

    maí 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Skýrsla vinnuhóps um endurskoðun á sjúkra- og slysadagpeningum Skýrsla vinnuhóps um endurskoðun á sjúkra- og slysadagpeningum

    31. maí 2025Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stöðumat á lyfjafræðilegri þjónustu íslenskra apóteka í samanburði við nágrannalönd - Hvítbók

    maí 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Stöðumat á lyfjafræðilegri þjónustu íslenskra apóteka í samanburði við nágrannalönd - Hvítbók Stöðumat á lyfjafræðilegri þjónustu íslenskra apóteka í samanburði við nágrannalönd og tillögur - Hvítbók

    27. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mikilvægt skref í stafrænni þróun á landsvísu

    Heilbrigðisráðuneytið hefur undanfarið unnið ýtarlega úttekt á stafrænum sjúkraskrárkerfum fjögurra heilbrigðisstofnana og notkun þeirra. Tilgangurinn er að meta hve greiðlega upplýsingar um sjúklinga skila sér milli þjónustuveitenda þannig að þær nýtist sem best í þágu sjúklinga sem þurfa að leita sér heilbrigðisþjónustu á ólíkum stöðum og mismunandi þjónustustigum. Niðurstöður úttektarinnar verða kynntar og ræddar á vinnustofu í byrjun júní.

    26. maí 2025Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 5/2025

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja kæranda um starfsleyfi sem sálfræðingur. Kærandi byggði á því að hún ætti rétt á starfsleyfi á grundvelli reglugerðar nr. 510/2020 þar sem hún hefði lokið námi og starfað sem sálfræðingur í Hollandi. Embætti landlæknis taldi að meta ætti nám hennar samkvæmt reglugerð nr. 1130/2012, sem gildir um starfsleyfi sálfræðinga á Íslandi, og synjaði umsókn hennar, m.a. á grundvelli umsagnar frá sálfræðideild Háskóla Íslands. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að þegar metið væri hvort einstaklingur ætti rétt á viðurkenningu á faglegri menntun eða hæfi samkvæmt reglugerð nr. 510/2020 þyrfti að ganga úr skugga um hvort um sama starf væri að ræða, af gögnum málsins mætti ráða að embætti landlæknis hefði ekki gert það.…

    26. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tilvísanakerfi fyrir börn vegna heilbrigðisþjónustu afnumið

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að afnema tilvísanakerfi fyrir börn vegna heilbrigðisþjónustu. Samhliða verður skipaður starfshópur til að móta tillögur um hliðvörslu í heilbrigðiskerfinu til framtíðar. Með afnámi tilvísanaskyldu verður þjónusta sérgreinalækna við börn gjaldfrjáls, óháð tilvísun. Reglugerð um afnám tilvísanakerfis fyrir börn tekur gildi 1. júlí.

    23. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisráðherra átti tvíhliða fund með heilbrigðisráðherra Palestínu

    Alma Möller heilbrigðisráðherra átti tvíhliða fund með Maged Awni Abu Ramadan heilbrigðisráðherra Palestínu á mánudaginn en þau sóttu bæði allsherjarþing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) í Genf. Á fundinum ræddu þau stöðu heilbrigðismála í Palestínu, einkum á Gaza svæðinu og þær gríðarmiklu áskoranir sem Palestínumenn standa frammi fyrir vegna linnulausra árása Ísraelshers og þeirra takmarkana á aðgengi að mannúðaraðstoð sem Ísraelsher hefur sett.

    22. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Alþjóðlegur farsóttarsáttmáli samþykktur á þingi WHO

    Aðildarríki Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) hafa samþykkt einróma á þingi sínu í Genf, nýjan farsóttarsáttmála. „Sáttmálinn er sigur fyrir lýðheilsu, vísindi og fjölþjóðlega samvinnu og tryggir að við getum í sameiningu varið heimsbyggðina betur gegn vá af völdum farsótta í framtíðinni“ segir Dr. Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri WHO.

    22. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Líf og heilsa

    Þrjú ráðuneyti styrkja Hjálparsíma Rauða krossins 1717

    Heilbrigðisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra, undirrituðu í dag samning við Rauða krossinn á Íslandi (RKÍ) sem felur í sér 25 milljóna króna styrk til reksturs Hjálparsímans 1717. Framkvæmdastjóri RKÍ segir þetta ómetanlegt. Þannig verði unnt að halda þjónustunni opinni allan sólarhringinn og sinna sálfélagslegum stuðningi fyrir stóran hóp fólks sem þarf á slíkri hjálp að halda.

    21. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Bólusetning gegn HPV veirunni útvíkkuð – eykur vörn gegn krabbameinum

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita fjármagn til HPV bólusetningar fyrir drengi upp í 18 ára aldur og hefjast bólusetningar næsta vetur: „Þetta er gríðarlega mikilvæg forvörn gegn krabbameinum og með þessu fjárfestum við í heilsu til framtíðar“ segir Alma. Bólusetning gegn HPV veirunni hófst hér á landi árið 2011, fyrst eingöngu hjá stúlkum en hefur síðan verið útvíkkuð og fyrir tveimur árum var farið að bjóða slíka bólusetningu óháð kyni fyrir tiltekna aldurshópa.

    19. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Bráðaviðbragð heilbrigðisþjónustu í Öræfasveit í sumar

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur falið Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) að skipuleggja bráðaviðbragð í Öræfasveit til að auka öryggi íbúa og ferðamanna á svæðinu. Í viðbragðinu felst stöðug viðvera sjúkabíls með reyndum sjúkraflutningamanni sem sinnir bráðaþjónustu í góðu samstarfi við björgunarsveitina Kára í Öræfum. Markmiðið er að tryggja skjót viðbrögð, s.s. ef meta þarf áverka eftir slys, bregðast við bráðaveikindum, veita fyrstu hjálp og undirbúa flutning á sjúkrastofnun ef með þarf.

    16. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisstofnun Suðurlands tryggt nýtt tölvusneiðmyndatæki – kærkomin og mikilvæg endurnýjun

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur tryggt Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) rúmlega 140 milljóna króna fjárveitingu til kaupa á nýju tölvusneiðmyndatæki. Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU segir að nýtt tölusneiðmyndatæki muni skipta sköpum í þjónustu við sjúklinga, einkum við greiningu og meðferð bráðatilfella.

    14. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heimsókn heilbrigðisráðherra til Svíþjóðar

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra var með í för í opinberri heimsókn forseta Íslands til Svíþjóðar í liðinni viku. Í ferðinni átti hún meðal annars fundi með Acko Ankarberg Johansson heilbrigðisráðherra, Jakob Forssmed félagsmálaráðherra og Björn Eriksson forstjóra Socialstyrelsen um málefni sem eru sameiginleg viðfangsefni landanna tveggja á sviði heilbrigðis- og velferðarmála. Meðal annars var rætt um stöðu sérnáms í læknisfræði og gagnkvæma viðurkenningu á sérnámsgrunni lækna. Heilbrigðisráðherra heimsótti jafnframt barnahús og Sylviahemmet sem er sérhæfð dagdvöl fyrir einstaklinga með minnissjúkdóma. ​

    13. maí 2025Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 4/2025

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja kæranda um CCPS-vottorð á þeim grundvelli að hún hefði ekki fengið útgefið námslokavottorð frá Landspítala vegna sérnámsins, sem þarf að hluta til að stunda erlendis. Kærandi hafði áður fengið útgefið sérfræðileyfi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum. Í málinu lá meðal annars fyrir umsögn kennsluráðs í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum þar sem fram kom það mat ráðsins að það teldi að kærandi hefði að fullu lokið sérnámi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum í samræmi við gildandi marklýsingu á Íslandi um námið. Hins vegar taldi kennsluráðið sér ekki fært að gefa út námslokavottorð vegna námsins þar sem ekki er í boði að stunda allt námið á Landspítala, þrátt fyrir að marklýsing gildi um námið í heild sinni.…

    08. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stækkun bráðamóttöku Landspítala – verklok í desember

    Bráðamóttaka Landspítala í Fossvogi verður stækkuð með 700 fermetra viðbótarhúsnæði sem á að vera tilbúið í fyrir lok þessa árs. Samningur Nýs Landspítala og Verkheima ehf. um verkið var undirritaður í dag. „Þetta mun stórbæta aðstæður sjúklinga og starfsfólks og skipta sköpum fyrir þessa mikilvægu starfsemi þar til ný bráðamóttaka verður opnuð í meðferðarkjarnanum við Hringbraut“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

    08. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samstíga um málefni offitu á Íslandi

    Heilbrigðisráðuneytið stóð fyrir þverfaglegri vinnustofu undir heitinu Samstíga um málefni offitu á Íslandi þann 5. maí síðastliðinn á veitingastaðnum Nauthól. Vinnustofan er hluti af vinnu við innleiðingu tillagna starfshóps ráðuneytisins um stefnumarkandi áherslur í forvörnum, heilsueflingu og meðferð, sem lagðar voru fram í skýrslu í mars 2024. Alls voru þátttakendur 60, frá 12 stofnunum og þremur félagasamtökum, fólk með fjölbreyttan bakgrunn og breiða þekkingu.

    07. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra heimsótti Geislavarnir ríkisins

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra heimsótti í liðinni viku Geislavarnir ríkisins. Verkefni stofnunarinnar eru á breiðu sviði og felast í eftirliti með allri notkun geislavirkra efna og geislatækja, rannsóknum, vöktun á geislavirkum efnum í umhverfinu og viðbúnaði vegna geislavár, auk fræðslu og gerð leiðbeininga um geislavarnir.

    06. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði til að móta aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi hefur skilað ráðherra skýrslu sinni þess efnis. Áætlunin tekur til áranna 2025–2030 og felur í sér 26 aðgerðir um markvissar og gagnreyndar sjálfsvígsforvarnir á öllum stigum, bæði almennar og sértækar.

    05. maí 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi 2025-2030

    maí 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi 2025-2030 Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi 2025-2030 Ensk þýðing: Strategic Action Plan for suicide Prevention, Intervention and Postvention

    05. maí 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Samþætt heimaþjónusta fyrir eldra fólk í Árborg

    Unnið er að því að koma upp samþættri heimaþjónustu fyrir eldra fólk í Árborg og sjá til þess að rétt þjónusta sé veitt af réttum aðila og á réttum tíma. Samkomulag þessa efnis var staðfest í Árborg í dag. Viðstödd voru Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, og Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, auk fjölda gesta. Liður í samþættingu heimaþjónustunnar í Árborg er að koma upp sérstöku móttöku- og matsteymi og munu allar beiðnir um heimaþjónustu berast til teymisins. Þverfaglegu heimaendurhæfingarteymi verður einnig komið á fót og gert ráð fyrir að flestir sem sæki um heimaþjónustu fari í þjónustu teymisins til að byrja með.

    02. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Færni- og hermikennsla í heilbrigðisvísindum stórefld með HermÍs

    Hermi- og færnikennsla í heilbrigðisvísindum stóreflist með nýju Hermisetri Háskóla Íslands (HÍ) og Landspítala (HermÍs) sem opnað var formlega í vikunni. Setrið er ætlað nemendum Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og starfsfólki Landspítalans og býr að kennsluaðstöðu sem mun efla íslenskar heilbrigðisstéttir til framtíðar og auka öryggi sjúklinga. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra sagði í ávarpi við opnunina að með hermisetrinu hefjist nýtt tímabil í þjálfun heilbrigðisstarfsfólks sem feli í sér mikið framfaraskref. Jón Atli Benediktsson rektor HÍ og Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala fluttu einnig ávörp við opnun setursins og er ljóst af máli þeirra þriggja að setrið er ómetanlegur fengur fyrir kennslu og þjálfun í heilbrigðisgreinum og felur í sér mikil tækifæri.

    30. apr. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælti fyrir frumvarpi um viðbrögð við lyfjaskorti

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi sínu sem hefur að meginmarkmiði að sporna við lyfjaskorti. Með frumvarpinu er einkum kveðið á um ýmsar heimildir fyrir Lyfjastofnun sem gera henni kleift að bregðast við ef lyfjaskortur er fyrir hendi eða yfirvofandi og lágmarka áhrif lyfjaskorts á sjúklinga. Ráðherra hefur nú mælt fyrir öllum sjö frumvörpum sínum á þingmálaskrá yfirstandandi þings.

    • First
    • Prev
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband