Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 351–400 af 3845
    Raða eftir:
    19. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1330/2025. Úrskurður frá 19. desember 2025

    Málið varðaði beiðni um aðgang að kirkjubókum í vörslum presta þjóðkirkjunnar. Ákvörðun þjóðkirkjunnar að hafna beiðninni var byggð á því að henni væri það óheimilt nema ef óskað væri upplýsinga um sig sjálfan. Úrskurðarnefndin taldi að þjóðkirkjan, eða færsla hennar á kirkjubókum, félli ekki undir gildissvið upplýsingalaga. Því væri ákvörðun þjóðkirkjunnar ekki kæranleg til úrskurðarnefndarinnar á grundvelli laganna. Þá lyti beiðni kæranda ekki að skjölum sem féllu undir lög um opinber skjalasöfn. Kærunni var því vísað frá.

    18. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1329/2025. Úrskurður frá 18. desember 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu Seðlabanka Íslands sem vörðuðu F fasteignafélag ehf. Ákvörðun bankans að hafna beiðni kæranda var byggð á því að gögnin hefðu að geyma upplýsingar sem þagnarskylda ætti að ríkja um samkvæmt lögum um bankann, auk þess sem hluti þeirra teldist vinnugögn samkvæmt upplýsingalögum. Úrskurðarnefndin taldi að engin gagnanna teldust vera vinnugögn samkvæmt upplýsingalögum. Nefndin taldi nokkur gagnanna innihalda þagnarskyldar upplýsingar og staðfesti ákvörðun bankans að því er varðaði þau gögn. Að öðru leyti var lagt fyrir bankann að veita aðgang að þeim gögnum sem aðgangur kæranda hafði verið takmarkaður að.

    18. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1328/2025. Úrskurður frá 18. desember 2025

    Deilt var um ákvörðun embættis landlæknis að hafna beiðni um aðgang að verðupplýsingum vegna innkaupa á mótefninu Beyfortus og bóluefninu Gardasil. Ákvörðunin var einkum byggð á því að gögn sem innihéldu upplýsingarnar vörðuðu mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni samningsaðila landlæknis. Úrskurðarnefndin taldi að afhending upplýsinga um einingarverð gæti haft í för með sér neikvæðar afleiðingar fyrir þau bæði með tilliti til samkeppni við samkeppnisaðila á mark­aði sem og samninga fyrirtækjanna við aðra kaupendur bóluefna, og verið til þess fallið að valda þeim tjóni. Ákvörðun landlæknis var staðfest.

    18. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1327/2025. Úrskurður frá 18. desember 2025

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum í vörslum Sorpu bs. sem vörðuðu samninga eða viljayfirlýsingar Sorpu og tiltekinna félaga um niðurdælingu á CO2 frá Sorpu. Sorpa byggði ákvörðun sína á því að upplýsingar um mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni félaganna stæðu í vegi fyrir afhendingu gagnanna. Úrskurðarnefndin lagði fyrir Sorpu að veita afhenda kæranda hluta umbeðinna gagna með tilteknum takmörkunum. Að öðru leyti var beiðni kæranda vísað aftur til Sorpu til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    17. des. 2025Dómsmálaráðuneytið, Aðgerðir gegn spillingu og mútubrotum, Forsætisráðuneytið

    Fimmtu úttektinni um varnir gegn spillingu lokið

    Samtök ríkja innan Evrópuráðsins gegn spillingu (GRECO) hafa lokið fimmtu úttekt sinni á Íslandi um varnir gegn spillingu og eflingu heilinda hjá æðstu handahöfum framkvæmdarvalds og löggæsluyfirvöldum.

    11. des. 2025Forsætisráðuneytið

    Helgi Valberg Jensson verður ritari þjóðaröryggisráðs

    Forsætisráðherra hefur fallist á tillögu Þórunnar J. Hafstein, ritara þjóðaröryggisráðs, um að hún láti af störfum sem ritari ráðsins um næstu áramót. Helgi Valberg Jensson tekur við starfi ritara þjóðaröryggisráðs frá sama tíma.

    10. des. 2025Forsætisráðuneytið

    Aðgerðahópur leggur til tímasetta áætlun um brúun umönnunarbilsins

    Aðgerðahópur um brúun bilsins á milli fæðingarorlofs og leikskóla hefur skilað skýrslu sinni og tillögu að tímasettri áætlun um brúun umönnunarbilsins. Skýrslan og tillögur hópsins voru til umræðu á fundi ríkisstjórnarinnar í gær.

    05. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1326/2025. Úrskurður frá 5. desember 2025

    Málið varðaði beiðni um aðgang að gögnum í vörslu Landsnets hf. í tengslum við Suðurnesjalínu 2. Fyrirtækið kvað umbeðin gögn ekki liggja fyrir. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að vefengja þá staðhæfingu og staðfesti ákvörðun fyrirtækisins um afgreiðslu beiðni kærenda.

    05. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1325/2025. Úrskurður frá 5. desember 2025

    Málið varðaði beiðni um aðgang að gögnum í vörslu Sveitarfélagsins Voga. Sveitarfélagið kvað umbeðin gögn ekki liggja fyrir. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að vefengja þá staðhæfingu og staðfesti ákvörðun sveitarfélagsins um afgreiðslu beiðni kærenda.

    05. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1324/2025. Úrskurður frá 5. desember 2025

    Málið varðaði beiðni til Kópavogsbæjar um upp­lýs­ingar um heildarkostnað við fram­kvæmdir á nýjum Barnaskóla Kársness og Kársnesskóla. Bærinn kvað gagn með umbeðn­um upp­lýsingum ekki liggja fyrir hjá bænum og að óskylt væri að taka upplýsingarnar saman til þess að verða við beiðni kær­anda. Úrskurðarnefndin taldi að meðferð Kópvogsbæjar á beiðninni hefði ekki verið í samræmi við ákvæði upplýsingalaga, því ljóst þætti að í vörslu bæjarins lægju fyrir gögn sem geymdu upplýsingarnar sem óskað væri eftir en kæranda hefði ekki verið leiðbeint um að afmarka beiðni sína við. Var beiðni kæranda því vísað til Kópavogsbæjar til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    05. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1323/2025. Úrskurður frá 5. desember 2025

    Málið varðaði beiðni til mennta- og barnamálaráðuneytis um gögn og upplýsingar í tengsl­um við erindi sem þeir beindu til ráðuneytisins í febrúar 2023 og mál sem þeir teldu að hefði verið stofnað í málaskrá ráðuneytisins við það tilefni. Ráðuneytið kvað að mál hefði ekki verið stofnað fyrr en í október 2024 og því lægju engin gögn fyrir um stofnun máls frá því í febrúar 2023. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að draga þá staðhæfingu í efa og staðfesti ákvörðun ráðuneytisins.

    05. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1322/2025. Úrskurður frá 5. desember 2025

    Málið varðaði beiðni til mennta- og barnamálaráðuneytis um gögn og upplýsingar í tengsl­um við erindi sem þeir beindu til ráðuneytisins í júlí 2023 og mál sem þeir teldu að hefði verið stofnað í málaskrá ráðuneytisins við það tilefni. Ráðuneytið kvað að mál hefði ekki verið stofnað fyrr en í október 2024 og því lægju engin gögn fyrir um stofnun máls frá því í júlí 2023. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að draga þá staðhæfingu í efa og staðfesti ákvörðun ráðuneytisins.

    05. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1321/2025. Úrskurður frá 5. desember 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu Menntaskólans í Kópavogi um rekstur Leiðsöguskóla Íslands. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að vefengja þá staðhæfingu skólans að hluti umbeðinna gagna lægi ekki fyrir. Ákvörðun skólans var því að hluta til staðfest en að öðru leyti vísað aftur til skólans til nýrrar meðferðar og afgreiðslu þar sem skólinn hefði ekki sinnt leiðbeiningarskyldu sinni gagnvart kæranda með fullnægjandi hætti.

    05. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1320/2025. Úrskurður frá 5. desember 2025

    Mál þetta varðaði beiðni um aðgang að gögnum í vörslu mennta- og barnamálaráðuneytis. Ákvörðun ráðuneytisins var byggð á því að gagn með umbeðnum upplýsingum lægi ekki fyrir. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að vefengja þá staðhæfingu og staðfesti ákvörðun ráðuneytisins.

    03. des. 2025Innviðaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Samgöngur, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ríkisstjórnin kynnir nýja samgönguáætlun og stofnun innviðafélags

    Ríkisstjórnin kynnti í dag nýja samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 og stofnun innviðafélags um stærri samgönguframkvæmdir.

    02. des. 2025Forsætisráðuneytið

    Halldór Oddsson ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar

    Halldór Oddsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar. Hann leysir af Önnu Rut Kristjánsdóttur sem er í tímabundnu leyfi.

    27. nóv. 2025Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Mikilvægi Íslands í sameiginlegum vörnum Atlantshafsbandalagsins

    Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), heimsótti í dag Ísland í sinni fyrstu vinnuheimsókn og átti fundi með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Hann skoðaði einnig öryggissvæðið í Keflavík og fundaði með þingmönnum á Alþingi.

    22. nóv. 2025Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Leiðtogar NB8-ríkjanna ítreka stuðning sinn við Úkraínu

    Leiðtogar Norrænu ríkjanna fimm og Eystrasaltsríkjanna þriggja áttu í dag símafund með Volodómír Selenskí Úkraínuforseta þar sem nýjustu vendingar og friðarumleitanir voru ræddar. Hafa leiðtogarnir í kjölfarið sent frá sér stuðningsyfirlýsingu.

    21. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1319/2025. Úrskurður frá 21. nóvember 2025

    Beiðni um endurupptöku máls sem lauk með úrskurði nr. 1305/2025 var hafnað þar sem skilyrði stjórnsýslulaga voru ekki uppfyllt auk þess sem ekki væru rökstuddar vísbendingar um að á úrskurðinum væru verulegir annmarkar að lögum.

    21. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1318/2025. Úrskurður frá 21. nóvember 2025

    Deilt var um aðgang að gögnum um uppsögn sveitarstjóra. Úrskurðarnefndin taldi gögnin í málinu heyra undir 7. gr. upplýsingalaga og staðfesti ákvörðun sveitarfélagsins.

    21. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1317/2025. Úrskurður frá 21. nóvember 2025

    Deilt var um afgreiðslu utanríkisráðuneytis á upplýsingabeiðni kæranda. Ráðuneytið byggði afgreiðslu sína á því að erindi kæranda fæli ekki í sér beiðni um gögn í skilningi upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin staðfesti ákvörðun ráðuneytisins að hluti beiðninnar teldist ekki beiðni um gögn. Að öðru leyti var beiðni kæranda vísað aftur til ráðuneytisins til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    21. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1316/2025. Úrskurður frá 21. nóvember 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum um kortaveltu frá færsluhirðum og öðrum greiðsluþjónustuaðilum í vörslu Seðlabanka Íslands. Ákvörðun bankans var byggð á því að að gögnin innihéldu upplýsingar sem féllu undir þagnarskylduákvæði laga um Seðlabanka Íslands. Úrskurðarnefndin taldi að hluti beiðninnar lyti að gögnum sem ekki væru fyrirliggjandi. Að öðru leyti var ákvörðun Seðlabanka Íslands staðfest.

    20. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Ávarp Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á ráðstefnu um framtíðina á Bakka - 20. nóvember 2025

    nóvember 2025 / Forsætisráðuneytið Ávarp Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á ráðstefnu um framtíðina á Bakka - 20. nóvember 2025 Kæru gestir og gestgjafar — Húsvíkingar og áhugafólk um atvinnulíf á Norðurlandi: Takk fyrir framtakið

    17. nóv. 2025Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins heimsækir Ísland

    Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, er væntanlegur í vinnuheimsókn til Íslands 27. nóvember næstkomandi. Er þetta fyrsta heimsókn Mark Rutte til Íslands í stöðu framkvæmdastjóra sem hann tók við af Jens Stoltenberg í október 2024.

    14. nóv. 2025Forsætisráðuneytið

    Fátækt algengari meðal fólks af erlendum uppruna

    Fátækt er talsvert algengari og dýpri meðal fólks af erlendum uppruna en hjá fólki með íslenskan bakgrunn. Á árinu 2023 voru tæp tuttugu prósent innflytjenda undir lágtekjumörkum miðað við tæp átta prósent þeirra sem voru með íslenskan bakgrunn og hefur sá munur farið vaxandi á undanförnum árum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem unnin var fyrir forsætisráðherra og er hluti rannsóknaverkefnis sem hófst árið 2022 um fátækt og áætlaðan samfélagslegan kostnað.

    14. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Atvinnustefna

    Drög að atvinnustefnu birt í samráðsgátt stjórnvalda

    Forsætisráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að atvinnustefnu í samráðsgátt stjórnvalda, ásamt stöðugreiningu um þróun efnahags- og atvinnulífs 2010-2024 þar sem dregin eru fram lykilviðfangsefni og áskoranir.

    13. nóv. 2025Forsætisráðuneytið

    Karl Guðmundsson ráðinn verkefnastjóri stórfjárfestinga

    Karl Guðmundsson hefur verið ráðinn í starf verkefnastjóra stórfjárfestinga á sviði atvinnuþróunar með aðsetur í forsætisráðuneytinu. Starfið tengist vinnu stjórnvalda við mótun nýrrar atvinnustefnu fyrir Ísland og er tímabundið til loka árs 2027.

    07. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1315/2025. Úrskurður frá 7. nóvember 2025

    Kæru var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem erindi kæranda til Vinnueftirlitsins bar ekki með sér að vera beiðni um gögn í skilningi upplýsingalaga.

    07. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1314/2025. Úrskurður frá 7. nóvember 2025

    Í málinu var deilt um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu embættis forseta Íslands. Af hálfu embættisins var vísað til þess að gögnin sem óskað var eftir lægju ekki fyrir og að þeim gögnum sem lægju fyrir ætti kærandi ekki rétt til aðgangs af því þau vörðuðu starfssamband starfsmanns við embætti forseta Íslands eða teljist vera bréfaskipti við sérfróða aðila. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti ákvörðun embættisins að stærstum hluta.

    07. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1313/2025. Úrskurður frá 7. nóvember 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gagni í vörslu embættis ríkislögmanns sem var aflað í tilefni af fram kominni bótakröfu til embættis forseta Íslands og hafði að geyma umsögn um kröfur og röksemdir kæranda. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að samskipti stjórnvalds við ríkislögmann vegna könnunar á réttarstöðu eða vegna dómsmáls féllu undir takmörkunarákvæði í 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Nefndin taldi að ríkislögmanni hefði verið heimilt að hafna beiðni kæranda um aðgang að gagninu og staðfesti ákvörðun embættisins.

    07. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1312/2025. Úrskurður frá 7. nóvember 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum varðandi auglýsingu Skagafjarðar um ósk um tilboð í skólaakstur, sem sýndu fram á hæfi þess fyrirtækis sem varð hlutskarpast til að sinna akstrinum. Afstaða Skagafjarðar að kærandi ætti ekki rétt til aðgangs að gögnunum var á því byggð að þau hefðu að geyma viðkvæmar fjárhagsupplýsingar um fyrirtækið. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að um rétt kæranda að gögnunum gilti III. kafli upplýsingalaga, nr. 140/2012. Nefndin taldi að kærandi ætti rétt til aðgangs að hluta þeirra gagna sem honum hafði verið synjað um aðgang að.

    07. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1311/2025. Úrskurður frá 7. nóvember 2025

    Mál þetta varðaði beiðni um aðgang að tveimur ráðningarsamningum í vörslu Vestmannaeyjabæjar. Afstaða bæjarins að kærandi ætti ekki rétt til aðgangs að þeim var byggð á að óskylt væri að afhenda þá. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að ráðningarsamningur væri gagn í máli um ráðningu í starf og að réttur kæranda næði samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, ekki til aðgangs að samningunum. Var ákvörðun Vestmannaeyjabæjar því staðfest.

    07. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1310/2025. Úrskurður frá 7. nóvember 2025

    Málið varðaði beiðni um aðgang að samningum í vörslu heilbrigðisráðuneytis um kaup á bóluefnum vegna kórónuveirufaraldursins. Afstaða ráðuneytisins að kærandi ætti ekki rétt til aðgangs að þeim var einkum á því byggð að samningarnir innihéldu upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir og að afhending þeirra væri til þess fallin að valda tjóni á mikilvægum almannahagsmunum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gögnin og staðfesti ákvörðun ráðuneytisins.

    06. nóv. 2025Forsætisráðuneytið

    Þarf að uppfæra embættismannakerfið?

    Forsætisráðuneytið býður til málþings þriðjudaginn 11. nóvember nk. kl. 13−16 undir yfirskriftinni Þarf að uppfæra embættismannakerfið? Þar verður fjallað um skýrslu og tillögur starfshóps um hlutverk og starfsskilyrði embættismanna. Málþingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica.

    29. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar kynntur

    Fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar var kynntur á blaðamannafundi í Úlfarsárdal í dag. Pakkinn felur í sér aðgerðir sem fjölga íbúðum, lækka verð og gera húsnæðisstuðning markvissari. Þá verður dregið úr hvata til að safna íbúðum og ráðist í tímabæra tiltekt í húsnæðiskerfinu.

    26. okt. 2025Annað, Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá forsætisráðherra 13.-19. október 2025

    október 2025 / Forsætisráðuneytið Dagskrá forsætisráðherra 13. -19

    26. okt. 2025Annað, Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá forsætisráðherra 6.-12. október 2025

    október 2025 / Forsætisráðuneytið Dagskrá forsætisráðherra 6. -12

    26. okt. 2025Annað, Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá forsætisráðherra 29. september-5. október 2025

    október 2025 / Forsætisráðuneytið Dagskrá forsætisráðherra 29. september-5

    26. okt. 2025Annað, Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá forsætisráðherra 22.-28. september 2025

    október 2025 / Forsætisráðuneytið Dagskrá forsætisráðherra 22. -28

    26. okt. 2025Annað, Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá forsætisráðherra 15.-21. september 2025

    október 2025 / Forsætisráðuneytið Dagskrá forsætisráðherra 15. -21

    24. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1309/2025. Úrskurður frá 24. október 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu forsætisráðuneytis um örugg farsímakerfi sem unnin voru að beiðni þáverandi forsætisráðherra. Ákvörðun ráðuneytisins að hafna beiðni kæranda var byggð á því að gögnin innihéldu upplýsingar um öryggi ríkisins og samskipti við önnur ríki sem rétt væri að yrðu ekki afhentar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi með vísan til þess að upplýsingar í gögnunum væru settar fram með almennum hætti og í ljósi þess hve langt væri síðan gögnin urðu til, að mikilvægir almannahagsmunir kölluðu ekki á að þeim væri haldið leyndum. Þá taldi nefndin að afhending upplýsinganna væri ekki til þess fallið að skaða samskipti og gagnkvæmt traust gagnvart öðrum ríkjum. Nefndin lagði því fyrir ráðuneytið að veita kæranda aðgang að gögnunum.

    24. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1308/2025. Úrskurður frá 24. október 2025

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál barst beiðni um endurupptöku máls sem lauk með úrskurði nefndarinnar nr. 1292/2025 frá 21. ágúst 2025. Nefndin taldi að skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, fyrir endurupptöku máls væru ekki uppfyllt. Þá væru ekki heldur skilyrði til endurupptöku málsins á ólögfestum grundvelli. Beiðni um endurupptöku málsins var því hafnað.

    24. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1307/2025. Úrskurður frá 24. október 2025

    Mál þetta varðaði beiðnir kæranda um aðgang að gögnum, sem lagðar voru fram á fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps, og hefðu ekki verið afgreiddar. Ljóst var að kærandi væri fulltrúi í hreppsnefndinni. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísaði til þess að sem sveitarstjórnarfulltrúi hefði kærandi rýmri rétt til aðgangs að umbeðnum gögnum á grundvelli sveitarstjórnarlaga en samkvæmt upplýsingalögum. Ákvarðanir sveitarfélags og tafir á afgreiðslu beiðna um gögn yrðu þannig ekki kærð til úrskurðarnefndarinnar og var kærunni því vísað frá nefndinni.

    24. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1306/2025. Úrskurður frá 24. október 2025

    Mál þetta varðaði beiðni um aðgang að tölfræðilegum upplýsingum hjá Reykjavíkurborg um úthlutun félagslegs húsnæðis. Ákvörðun borgarinnar var byggð á því að gagn með upplýsingunum lægi ekki fyrir og að óskylt væri á grundvelli upplýsingalaga að taka þær saman. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti ákvörðun Reykjavíkurborgar.

    24. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1305/2025. Úrskurður frá 24. október 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að fjárhagsáætlun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. sem samþykkt hefði verið á stjórnarfundi félagsins í október 2024. Ákvörðun félagsins var byggð á því að áætlunin væri vinnugagn og yrði ekki afhent þriðja aðila. Við meðferð málsins hjá úrskurðar¬nefndinni varð ljóst að samþykkt áætlun af stjórnarfundinum lægi ekki fyrir í vörslu félagsins. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að vefengja þá staðhæfingu og staðfesti ákvörðun félagsins.

    23. okt. 2025Ráð og stjórnir, Forsætisráðuneytið

    Atvinnustefnuráð Atvinnustefnuráð starfar sjálfstætt og veitir ráðgjöf í tengslum við mótun og eftirfylgni atvinnustefnu stjórnvalda. Ráðið starfar með samstarfshópi ráðuneyta að tillögugerð um mótun atvinnustefnu og veitir forsætisráðherra, ráðherranefnd um efnahagsmál og ríkisstjórn ráðgjöf um áherslur og framkvæmd stefnunnar. Skipað var í ráðið í september 2025

    23. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Rit og skýrslur

    Kjölfesta í hringiðu lýðræðisins – skýrsla starfshóps um íslenska embættismannakerfið

    október 2025 / Forsætisráðuneytið Kjölfesta í hringiðu lýðræðisins – skýrsla starfshóps um íslenska embættismannakerfið Kjölfesta í hringiðu lýðræðisins – skýrsla starfshóps um íslenska embættismannakerfið Viðaukar við skýrslu um embættismannakerfið

    23. okt. 2025Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Atvinnumál á Húsavík og nágrenni

    október 2025 / Forsætisráðuneytið Atvinnumál á Húsavík og nágrenni Atvinnumál á Húsavík og nágrenni - tillögur starfshóps

    22. okt. 2025Forsætisráðuneytið

    Kjölfesta í hringiðu lýðræðisins – forsætisráðherra afhent skýrsla um embættismannakerfið

    Starfshópur um hlutverk og starfsskilyrði embættismanna hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni. Í skýrslunni gerir starfshópurinn tillögur að breytingum sem ætlað er að stuðla að auknu sjálfstæði, hreyfanleika og hæfni embættismanna og þar með trausti til stjórnsýslunnar.​

    21. okt. 2025Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Flýta vinnu við undirbúning viðskiptasamnings milli Íslands og Grænlands

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var í dag í opinberri vinnuheimsókn í Nuuk í Grænlandi og fundaði með Jens-Frederik Nielsen, formanni grænlensku landsstjórnarinnar, ásamt því að heimsækja stofnanir, skóla og fyrirtæki í höfuðstað landsins. Í heimsókninni áréttuðu leiðtogarnir órofa samstöðu þessara tveggja vinaþjóða og nánu granna á Norðurslóðum og ræddu framgang samstarfs milli landanna á grunni samstarfsyfirlýsingar Íslands og Grænlands frá 2022.

    • First
    • Prev
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband