24. jan. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Evrópuráðið, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið
Oddný Mjöll Arnardóttir kjörin dómari við Mannréttindadómstól Evrópu
Þing Evrópuráðsins kaus í dag Oddnýju Mjöll Arnardóttur dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Oddný Mjöll var ein af þremur sem tilnefnd voru sem dómaraefni af hálfu íslenskra stjórnvalda.