22. maí 2017Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Jafnrétti, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti
Aðildarríki Evrópuráðsins beiti sér fyrir vernd mannréttinda, lýðræðis og réttarríkis
Utanríkisráðherrafundur Evrópuráðsins var haldinn á Kýpur í dag. Á dagskrá voru mál sem eru ofarlega á baugi í Evrópu í dag, s.s. pópúlismi og baráttan gegn hryðjuverkum, málefni flóttamanna og stofnanakerfi mannréttindasáttmálans og framtíðarþróun Mannréttindadómstólsins.