28. des. 2012Rit og skýrslur, Neytendamál, Atvinnuvegaráðuneytið
Stjórnvöld setja í fyrsta sinn fram stefnu í neytendamálum
<p>Starfshópur um skipulag neytendamála sem innanríkisráðherra skipaði hefur skilað tillögum sínum. Leggur hópurinn meðal annars til að að stjórnvöld móti stefnu í neytendamálum sem sett verði fram sem þingsályktunartillaga og að ráðherra flytji Alþingi árlega skýrslu um stöðu neytendamála. Hér er ekki um að ræða samþykktar tillögur ráðherra heldur er einungis verið að kalla eftir sjónarmiðum varðandi þau efnisatriði sem koma fram í skýrslunni. Gefinn er frestur til og með 18. janúar til að skila inn ábendingum á netfangið <a href="mailto:[email protected]">[email protected]</a>.</p>