Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 251–300 af 2979
    Raða eftir:
    20. nóv. 2025Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 16/2025

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja kæranda um sérfræðileyfi í ljósmóðurfræðum. Í ákvörðun embættisins kom fram að synjun þess væri byggð á því að nám kæranda, sem umsóknin sótti stoð sína í væri ekki skilgreint innan þess sérsviðs sem umsóknin tók til skv. reglugerð nr. 1089/2012. Kærandi byggði á að synjun embættisins væri í ósamræmi við langa stjórnsýsluframkvæmd og hefði verið breytt án fyrirvara án þess að vera kynnt. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að embætti landlæknis hefði ekki kynnt breytinguna með neinum hætti áður en hún öðlaðist fyrirvaralaust gildi í byrjun árs 2025. Þá hafði kærandi ekkert svigrúm til að grípa til aðgerða áður en breyting á stjórnsýsluframkvæmdinni tók gildi.…

    19. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fullt hús á heilbrigðisþingi um endurhæfingu – bein útsending

    Endurhæfing – leiðir til betra lífs, er yfirskrift árlegs heilbrigðisþings heilbrigðisráðherra sem fram fer fimmtudaginn 20. nóvember á Hótel Hilton Nordica. Á sjötta hundrað manns hafa skráð sig á þingið og ekki húsrúm fyrir fleiri, en hægt verður að fylgjast með í beinu streymi. Dagskráin er fjölbreytt og margir áhugaverðir fyrirlestrar um endurhæfingu ásamt pallborðsumræðum um skipulag endurhæfingar, áskoranir og framtíðarsýn. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ýtt úr vör vinnu við stefnumótun í endurhæfingu innan heilbrigðiskerfisins og er þingið liður í því starfi.

    19. nóv. 2025Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Stöðuskýrsla - Umbreytingar í geðheilbrigðisþjónustu barna

    nóvember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Stöðuskýrsla - Umbreytingar í geðheilbrigðisþjónustu barna Stöðuskýrsla – Umbreytingar í geðheilbrigðisþjónustu barna

    19. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Stöðuskýrsla um umbreytingar í geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn

    Heilbrigðisráðuneytið birtir nú stöðuskýrslu um fyrsta fasa umbreytinga í geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni. Markmið verkefnisins er í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um að geðheilbrigðisþjónusta sé aðgengileg um allt land, með skýrum, einföldum þjónustuleiðum, samfelldri þjónustu og samþættingu milli kerfa, sérstaklega þegar kemur að börnum og öðrum viðkvæmum hópum. Fjölmennur þverfaglegur vinnuhópur skipaður fulltrúum frá átta stofnunum vinnur að verkefninu. Frá upphafi verkefnisins hefur verið lögð rík áhersla á notendasamráð til að öðlast dýpri skilning á þjónustunni frá sjónarhóli notenda og úrbætur

    18. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vill auka öryggi sérhæfðra sjúkraflutninga

    Alma D. Möller hefur falið Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) að undirbúa kaup á sjúkrabíl til sérhæfðra sjúkraflutninga, á grundvelli samnings SÍ við Rauða krossinn á Íslandi (RKÍ). Slíkur bíll myndi auðvelda og auka öryggi við flutning mjög veikra sjúklinga milli gjörgæsludeilda Landspítala eða fyrir sjúkraflug, við sérhæfðan sjúkraflutning nýbura og fyrirbura og aðra sjúkraflutninga milli stofnana þar sem öryggi er best tryggt með sérhæfðum búnaði.

    18. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vitundarvakning um sýklalyf og sýklalyfjaónæmi

    Sóttvarnastofnun Evrópu helgar 18. nóvember vitundarvakningu um sýklalyf og í dag hefst jafnframt vitundarvika Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um sýklalyfjaónæmi. Tilgangurinn er að minna almenning, stjórnvöld, heilbrigðisstarfsfólk og aðra aðila á þá ógn sem stafar af útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería í heiminum. Hér á landi er notkun sýklalyfja og byrði af völdum ónæmra sýkla mest hjá elstu aldurshópunum. Sóttvarnalæknir helgar því árlegt málþing sitt um sýklalyfjanotkun því hjúkrunarheimilum.

    17. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Norrænt samstarf gegn áhrifum tóbaks- og nikótíniðnaðarins á lýðheilsu

    Heilbrigðisráðherrar Íslands, Noregs og Danmerkur hafa staðfest sameiginlegan vegvísi, með hliðsjón af grein 5.3 í rammasamningi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um tóbaksvarnir. Vegvísirinn veitir leiðsögn um hvernig megi draga úr áhrifum tóbaks- og nikótíniðnaðarins á lýðheilsustefnu stjórnvalda.

    17. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Þjónustutengd fjármögnun við HVE í undirbúningi

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að semja við Heilbrigðisstofnun Vesturlands um þjónustutengda fjármögnun sjúkrahússþjónustu stofnunarinnar á Akranesi. Góð reynsla er komin af þessari tegund fjármögnunar við Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk). „Áhrifin eru margþætt og stuðla að aukinni skilvirkni, hagkvæmni og gæðum þjónustunnar. Síðast en ekki síst eykur þetta gagnsæi við ákvarðanir um fjármögnun þjónustu af hálfu hins opinbera og eykur fyrirsjáanleika gagnvart þjónustuveitendum svo þetta er allra hagur“ segir heilbrigðisráðherra.

    17. nóv. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 10.- 14. nóvember 2025

    17 nóvember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 10. - 14. nóvember 2025 10

    14. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Geðheilsuteymi fangelsa fært til Landspítala

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að geðheilsuteymi fangelsa verði fært frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) til Landspítala (LSH). Ákvörðunin byggir á sameiginlegri greiningu stjórnenda og fagfólks HH og LSH sem telja rík fagleg rök mæla með tilfærslunni. Þar vegi þungt samlegðaráhrif við þjónustu Réttar- og öryggisgeðdeildar spítalans og einfaldari þjónustuferlar fyrir fanga. Þessi breyting fellur að markmiðum um að efla aðgengi og gæði heilbrigðisþjónustu við viðkvæma hópa og tryggja samfellda, samþætta og faglega þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Undirbúningur að yfirfærslunni hefst strax og er gert ráð fyrir að geðheilsuteymi fangelsa verði að fullu tekið til starfa á Landspítala 1. maí á næsta ári.

    14. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sjónum beint að lyfjafölsunum á afmælisþingi Lyfjastofnunar

    Rík ástæða er til að vekja athygli á hættunni sem stafar af fölsuðum lyfjum en vitað er að lyfjafalsanir færast sífellt í aukana. Lyfjastofnun hélt nýverið afmælisþing í tilefni 25 ára afmælis stofnunarinnar og helgaði þingið umfjöllun um fölsuð lyf og ýmsar hliðar þessarar alvarlegu heilbrigðisógnar.

    13. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vitundarvakning um viðeigandi notkun myndgreiningar

    Samtök evrópskra geislavarnastofnana (HERCA) hafa sett af stað samskiptaherferð til að vekja athygli á og ýta undir notkun viðeigandi myndgreiningar. Geislavarnir ríkisins aðilar að samtökunum og stýra verkefninu hér á landi. Yfirskrift herferðarinnar er „Rétt myndgreining fyrir sjúklinginn minn“ og er markmiðið að vekja lækna sem senda sjúklinga í myndgreiningarrannsóknir til umhugsunar um hvað best sé fyrir sjúklinginn í hvert sinn og auka vitund um viðeigandi læknisfræðilega notkun jónandi geislunar til myndgreiningar.

    10. nóv. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 3.- 8. nóvember 2025

    10 nóvember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 3. - 8. nóvember 2025 3

    10. nóv. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 1.- 6. september 2025

    10 nóvember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 1. - 6. september 2025 1

    10. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir starf Píeta-samtakanna um 35 milljónir króna

    Heilbrigðisráðuneytið og Píeta-samtökin hafa gert með sér samkomulag sem miðar að því að styrkja starf samtakanna til að vinna gegn sjálfsvígum og efla forvarnir og fræðslu vegna sjálfsvígshættu og sjálfsskaða. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, og Hjálmar Karlsson og Gunnhildur Ólafsdóttir fyrir hönd Píeta-samtakanna, undirrituðu samkomulagið í liðinni viku sem kveður á um 35 milljóna króna styrk ráðuneytisins til Píeta.

    10. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir undirbúning náms í áfengis- og vímuefnaráðgjöf við Háskólann á Akureyri

    Heilbrigðisráðuneytið hefur gert samning við Háskólann á Akureyri um tíu milljóna króna styrk vegna undirbúnings námsbrautar í áfengis- og vímuefnaráðgjöf við skólann. Námið verður þriggja ára nám til BS-prófs (180 ECTS eininga nám á grunnstigi) og er stefnt að því að kennsla hefjist haustið 2026.

    09. nóv. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Fatlað fólk, Heilbrigðisráðuneytið

    Allir með: Áframhaldandi stuðningur við verkefni sem eykur þátttöku fatlaðra barna og ungmenna í íþróttastarfi

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Alma Möller heilbrigðisráðherra og Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, ætla að veita 60 milljónum króna til að auka þátttöku og virkni fatlaðs fólks í íþróttastarfi, einkum fatlaðra barna og ungmenna. Verkefnið er liður í að ná markmiðum 30. greinar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem fjallar meðal annars um þátttöku fatlaðs fólks í íþróttum.

    07. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Heilsugæsla Uppsveita tekin til starfa á Flúðum

    Fjölmenni var við opnunarhátíð nýrrar heilsugæslustöðvar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Flúðum í Hrunamannahreppi í vikunni. Nýja stöðin sem leysir af hólmi gömlu heilsugæslustöðina í Laugarási, er við Hrunamannaveg 3, í vel búnu, sérhönnuðu húsnæði sem hentar fyrir starfsemina. Heilsugæslustöðin þjónustar íbúa Bláskógarbyggðar, Grímsness- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Íbúar á svæðinu eru um 3.500.

    06. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra sótti fund Evrópudeildar WHO

    Heilsa og vellíðan barna, aðgerðir til að sporna við ofbeldi gegn konum og börnum og nýsköpun á sviði lýðheilsu voru meðal áhersluverkefna sem fjallað var um á fundi Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem haldinn var í Kaupmannahöfn í lok október. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra sótti fundinn þar sem samþykkt var aðgerðaáætlun Evrópuskrifstofunnar til ársins 2030 (Second European Programme of Work 2026-2030). Áætlunin birtir forgangsröðun í heilbrigðismálum og sameiginlegar aðgerðir til að tryggja, efla og vernda heilsu fyrir alla og undirbúa heilbrigðiskerfi fyrir áskorunum framtíðarinnar.

    06. nóv. 2025Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 14/2025

    Kærð var ákvörðun Lyfjastofnunar um að frávísun beiðni tiltekins markaðsleyfishafa frumlyfs um afturköllun eða ógildingu tiltekinna markaðslyfja samheitalyfja við frumlyf kæranda. Kærandi byggði á því að samheitalyfin uppfylltu ekki skilgreiningu laga á að teljast samheitalyf við frumlyf kæranda og ættu því ekki að geta fengið útgefið markaðsleyfi á grundvelli einfaldrar málsmeðferðar fyrir samheitalyf. Lyfjastofnun vísaði til þess að ekki væri að lögum gert ráð fyrir aðild markaðsleyfishafa frumlyfs.…

    03. nóv. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 27.- 31. október 2025

    03 nóvember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 27. - 31. október 2025 27

    31. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti forstöðumanns Stafrænnar heilsu

    Heilbrigðisráðuneytið birtir hér með nöfn umsækjenda um embætti forstöðumanns Stafrænnar heilsu- þróunar- og þjónustumiðstöðvar, sem auglýst var laust til umsóknar 10. október síðastliðinn. Tuttugu og fjórir sóttu um embættið.

    31. okt. 2025Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 13/2025

    Kærð var ákvörðun Landspítala um að synja einstaklingi um niðurfellingu sjúklingagjalda vegna heilbrigðisþjónustu sem einstaklingurinn naut á Landspítala í tilgreint skipti. Kærandi í málinu hélt því fram að þar sem hún hefði ekki haft kost á því að fara í blóðprufu fyrir viðtalstíma hefði hún ekki geta nýtt hann sem skildi. Í umsögn Landspítala kom fram að kærandi hefði vissulega farið í viðtalið og að sjúkraskrárgögn bentu til þess að heilsa hennar hefði verið yfirfarin þrátt fyrir að hún hefði ekki farið í blóðprufu. Kærandi hafi síðan farið í blóðprufu eftir tímann og fengið niðurstöður úr henni í skilaboðum. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að samkvæmt gögnum málsins þá hefði kærandi mætt í tímann og að heilsufarssaga hennar hefði verið skoðuð af sérfræðingi.…

    30. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breyting á lögum til að styrkja heilbrigðisviðbúnað í vá

    Frumvarp Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra um breytingu á lyfjalögum og lögum um lækningatæki hefur verið samþykkt á Alþingi. Lagabreytingin felur í sér lögfestingu á Evrópureglugerð (ESB) 2022/123 um að styrkja hlutverk Lyfjastofnunar Evrópu að því er varðar viðbúnað við krísu og krísustjórnun varðandi lyf og lækningatæki. Lögfest eru ​ákvæði um upplýsingaskyldu til Lyfjastofnunar Evrópu er varðar lyf og lækningatæki sem talin eru mikilvæg þegar bráð ógn við lýðheilsu eða meiriháttar atburður sem ógnar lýðheilsu stendur yfir, og til Lyfjastofnunar sem miðlar þeim áfram, hafi þær upplýsingar ekki þegar verið veittar, til Lyfjastofnun Evrópu.

    28. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Krabbameinsráð sett á fót

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur sett á fót krabbameinsráð sem gegna mun hlutverki samráðsvettvangs um framkvæmd krabbameinsáætlunar. Skipun ráðsins er liður í aðgerðaáætlun í ​krabbameinsmálum sem samþykkt var á Alþingi í júní síðastliðnum.

    27. okt. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 20.- 25. október 2025

    27 október 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 20. - 25. október 2025 20

    27. okt. 2025Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 12/2025

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja einstaklingi um sérfræðileyfi í innkirtlalækninugm barna. Kærandi byggði á að ekki væri hægt að fá útgefið sérfræðileyfi í undirsérgreininni í námslandi hennar þar sem hún væri ekki lögvernduð. Jafna ætti námslokavottorði hennar við útgefið sérfræðileyfi. Embætti landlæknis synjaði kæranda á þeim grundvelli að hún væri ekki með útgefið sérfræðileyfi og að ekki væri til staðar marklýsing sem hefði verið staðfest á Íslandi. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að embætti landlæknis hefði ekki kannað hver staða undirsérgreinarinnar og náms vegan hennar væri í námslandi né hvort rétt væri að líta á námslokavottorð kæranda sem ígildi útgefins sérfræðileyfis. Af þeim sökum teldist málið ekki rannsakað með fullnægjandi hætti.…

    24. okt. 2025Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 11/2025

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að svipta einstakling starfsleyfi sínu sem læknir. Kærandi byggði á að ekki væru skilyrði til að svipta hann starfsleyfi og að embætti landlæknis hefði ekki heimild til að svipta hann starfsleyfi. Embætti landlæknis byggði sviptinguna á að kærandi hefði um langan tíma og í mörg skipti gerst sekur um alvarleg brot gegn starfsskyldum sínum sem hefðu lagt sjúklinga sem hann sinnti eða bar ábyrgð á í hættu.…

    23. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir til verkefna á sviði heilbrigðismála lausir til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum frá íslenskum félagasamtökum um styrki til verkefna á sviði heilbrigðismála. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 30. nóvember næstkomandi.

    23. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir til verkefna á sviði heilbrigðismála lausir til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum frá íslenskum félagasamtökum um styrki til verkefna á sviði heilbrigðismála. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 30. nóvember næstkomandi.

    20. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Boðar til heilbrigðisþings 20. nóvember helgað endurhæfingu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra boðar til heilbrigðisþings ársins 2025 sem helgað verður heilbrigðistengdri endurhæfingu. Þingið verður haldið fimmtudaginn 20. nóvember kl. 9.00-16.00 á Hótel Hilton Nordica. Skráning er hafin.

    20. okt. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 13.- 17. október 2025

    20 október 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 13. - 17. október 2025 13

    20. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Krafa um tilvísun til sjúkraþjálfara afnumin og verklagi breytt

    Núgildandi fyrirkomulag tilvísana og fyrirkomulag beiðna til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) um aukinn meðferðafjölda í sjúkraþjálfun hefur reynst tímafrekt, ómarkvisst og kostnaðarsamt. Krafa um tilvísun sérfræðings, þurfi sjúkratryggður fleiri meðferðarskipti en sex, verður því afnumin 1. apríl 2026. Fleiri breytingar verða gerðar á fyrirkomulagi þessara mála samhliða afnámi tilvísanaskyldunnar. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir markmiðið að bæta stjórnsýslu, auka skilvirkni og draga úr sóun.

    20. okt. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Ný stöðutaka undirstrikar þörf á bættri þjónustu og vernd fyrir börn sem eru þolendur ofbeldis

    Ný stöðutaka aðgerðahóps stjórnvalda gegn ofbeldi meðal og gegn börnum sýnir að á undanförnum árum hefur orðið veruleg vitundarvakning í íslensku samfélagi um ofbeldi gegn börnum. Í þessari stöðutöku er sjónum beint að börnum sem eru þolendur ofbeldis, en síðasta stöðutaka aðgerðahópsins fjallaði um börn sem sýna áhættuhegðun eða beita ofbeldi.

    15. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilsugæslan þríefld í Hlíðunum

    „Heilsugæslan er hjartað í heilbrigðiskerfinu og starfsfólk hennar er púlsinn,“ sagði Alma D. Möller heilbrigðisráðherra þegar hún ávarpaði starfsfólk og gesti við formlega opnun á starfsemi þriggja starfseininga Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) í Skógarhlíð í gær. Auk heilsugæslu er þar til húsa Heilaörvunarmiðstöð HH og í þessum mánuði fluttist Geðheilsuteymi taugaraskana í þriðja rýmið í húsinu í Skógarhlíð sem HH hefur nú að fullu til umráða fyrir starfsemi sína.

    14. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Frá orðum til aðgerða – saman tryggjum við öryggi barna

    Starfsfólk víðs vegar að úr forvörnum og þjónustu við börn kom saman á vinnufundi um samræmd viðbrögð við ofbeldi meðal barna í gær á Reykjavík Natura. Fundurinn var fjölsóttur með um 320 þátttakendum og markaði hann mikilvægt skref í átt að samstilltu átaki gegn ofbeldi meðal barna og gegn börnum.

    13. okt. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 6.- 10. október 2025

    13 október 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 6. - 10. október 2025 6

    10. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn helgaður geðheilbrigði og mannúðarkrísum

    ​Alma D. Möller heilbrigðisráðherra tók þátt í dagskrá tileinkaðri Alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum sem er í dag. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin helgar 10. október ár hvert tilteknu þema sem snýr að geðheilsu og geðheilbrigðismálum. Fjölmennt var í Bíó Paradís þar sem geðheilbrigðismál voru í brennidepli og var Alma meðal ræðumanna.

    10. okt. 2025Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Ávarp Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra á Alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum 2025

    10 október 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Ávarp Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra á Alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum 2025 Alma D. Möller heilbrigðisráðherra Kæru gestir, Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn 10

    10. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Opnað fyrir umsóknir um styrki úr lýðheilsjóði

    Embætti landlæknis hefur opnað fyrir umsóknir um styrki úr lýðheilsusjóði. Lögbundið hlutverk sjóðsins er að styrkja lýðheilsustarf og stuðla að heilsueflingu og forvörnum. Að þessu sinni er sjónum beint að lýðheilsuáskorunum sem tengjast andlegri líðan barna og ungmenna. Umsóknarfrestur er til 30. október næstkomandi.

    10. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Stafræn heilsa

    Embætti forstöðumanns Stafrænnar heilsu laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstöðumanns nýrrar einingar sem bera mun nafnið Stafræn heilsa - þróunar- og þjónustumiðstöð. Einingin verður hluti af heilbrigðisráðuneytinu og heyra undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra. Hlutverk hennar verður að samhæfa öll stafræn verkefni í heilbrigðisþjónustu og tryggja yfirsýn. Einnig að styðja við nýsköpun og þar með aðkomu einkaaðila. Til að byrja með munu verkefni Stafrænnar heilsu lúta að innviðum sjúkraskráa, upplýsingaöryggi, stöðlum og nýsköpun. Auglýsing um embættið hefur verið birt á Starfatorgi. Umsóknarfrestur er til 27. október næstkomandi.

    10. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mat á heilbrigðisviðbúnaði við bráðri lýðheilsuvá á Íslandi

    Fulltrúar Sóttvarnastofnunar Evrópu (ECDC), Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og Evrópusambandsins (EU) luku nýlega mati á stöðu heilbrigðisviðbúnaðar Íslands við bráðum lýðheilsuógnum. Matið var unnið í samræmi við ákvæði reglugerðar ESB um alvarlegar heilbrigðisógnir þvert á landamæri. Aðildarríki EES samningsins undirgangast slíkt mat á þriggja ára fresti. Niðurstaðan liggur nú fyrir í meðfylgjandi skýrslu. Skýrslan sem er á ensku verður þýdd á íslensku og birtist þýðingin innan tíðar.

    09. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Upptökur, myndir, fyrirspurnir og svör frá vel heppnaðri nýsköpunarráðstefnu

    Húsfyllir var á nýsköpunarráðstefnu heilbrigðisráðuneytisins og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins í Grósku í liðinni viku þar sem fjallað var um stafrænar lausnir og nýsköpun í heilbrigðisþjónustu. Megináhersla ráðstefnunnar var á leiðir til að skýra umgjörð og farveg fyrir nýsköpunarsamfélagið til að þróa lausnir sem mæta þörfum heilbrigðiskerfisins. Einnig að skýra leikreglur, styrkja innviði og efla samstarf á þessu sviði með áherslu á að innleiða nýjungar á öruggan og skilvirkan hátt.

    06. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi – eftirlit með innleiðingu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku- og loftslagsmálaráðherra hafa staðfest áætlun um eftirlit með innleiðingu og framvindu verkefna aðgerðaáætlunar gegn sýklalyfjaónæmi.

    06. okt. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 29. september - 3. október 2025

    06 október 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 29. september - 3. október 2025 29

    02. okt. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Annað, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast á Akranesi: Móma-teymi stofnað

    Akraneskaupstaður hefur nú stigið mikilvægt skref í tengslum við Gott að eldast með stofnun svokallaðs Móma-teymis (móttöku- og matsteymis). Teymið mun fara yfir allar umsóknir sem berast um félagslega heimaþjónustu og heimahjúkrun. Í teyminu eiga sæti fulltrúar frá Akraneskaupstað, Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi (HVE) og hjúkrunarheimilinu Höfða. Með því er stigið skref í átt að samþættri og samfelldri þjónustu við eldra fólk.

    02. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Stafræn heilsa: Ný miðlæg eining til að efla nýsköpun í heilbrigðisþjónustu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra kynnti í gær, á fyrstu nýsköpunarráðstefnu heilbrigðisráðuneytisins og ráðuneytis nýsköpunarmála, ákvörðun um að sett verði á fót ný miðlæg þróunar- og þjónustumiðstöð fyrir allt heilbrigðiskerfið undir heitinu Stafræn heilsa. Hlutverk hennar verður að samhæfa öll stafræn verkefni, styðja við nýsköpun, þar með aðkomu einkaaðila og tryggja yfirsýn. Samhliða verður ráðist í styrkingu stjórnkerfis og stýringar stafrænnar heilbrigðisþjónustu.

    02. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Takmörkun á beitingu nauðungar – frumvarp til umsagnar

    Birt hafa verið til umsagnar drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga. Með frumvarpinu er ætlunin að lögfesta meginregluna um bann við beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu og móta lagaramma um verklag þegar nauðsynlegt þykir að víkja frá meginreglunni. Einnig eru lögð til ný ákvæði sem skilgreina nauðung og fjarvöktun auk málsmeðferðarreglna sem fylgja þarf við og í kjölfar beitingar slíkra inngripa. Markmið frumvarpsins er að tryggja betur réttindi sjúklinga og er liður í viðbrögðum við athugasemdum umboðsmanns Alþingis og ítrekaðra tilmæla alþjóðlegra eftirlitsaðila um nauðsyn þess að settur verði skýr lagarammi um beitingu nauðungar.

    02. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Til umsagnar: Breytingar á lögum um sjúkratryggingar

    Birt hafa verið til umsagnar drög að frumvarpi Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra sem fela í sér ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar. Meðal annars er lögð til skýrari skylda Sjúkratrygginga Íslands til að byggja ákvarðanatöku á gagnreyndri meðferð og faglegu hagrænu mati. Þá er lagt til að biðtími einstaklings eftir sjúkratryggingu við flutning til landsins verður styttur úr sex mánuðum í þrjá. Enn fremur að greiðsluþátttaka vegna veikinda eða slysa utan EES-svæðisins verði bundin við afmarkaða hópa, svo sem námsmenn, í stað þess að gilda almennt. Er þetta til samræmis við þær reglur sem almennt gilda á Norðurlöndunum.

    01. okt. 2025Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Beint streymi: Nýsköpun í heilbrigðiskerfinu

    Nú fer fram nýsköpunarráðstefna í Grósku. Uppbókað er á ráðstefnuna en hægt er að senda inn spurningar með því að smella ..

    • First
    • Prev
    • 4
    • 5
    • 6
    • 7
    • 8
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband