Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2301–2350 af 3846
    Raða eftir:
    14. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra tók þátt í ráðstefnu Süddeutsche Zeitung

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um efnahagsmál á vegum Süddeutsche Zeitung, mest lesna dagblaði Þýskalands, ásamt Jüri Ratas, forsætisráðherra Eistlands, og Önu Brnabić, forsætisráðherra Serbíu, í Berlín í gær.

    12. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Menningarmál

    Dagskrá fullveldishátíðar 1. desember 2018

    Ríkisstjórn Íslands efnir til fullveldishátíðar í tilefni þess að 100 ár eru liðin síðan Ísland öðlaðist fullveldi.

    12. nóv. 2018Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tekur þátt í ráðstefnu Süddeutsche Zeitung og fundar með kanslara Þýskalands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um efnahagsmál á vegum Süddeutsche Zeitung í Berlín á morgun, 13. nóvember. Forsætisráðherra mun einnig eiga tvíhliða fund með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands í Berlín á morgun.

    12. nóv. 2018Forsætisráðuneytið

    Bréf forsætisráðherra til bankaráðs Seðlabanka Íslands

    Forsætisráðherra hefur sent formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands bréf vegna umfjöllunar um dóm Hæstaréttar í máli Seðlabanka Íslands gegn Samherja hf. þar sem óskað er eftir greinargerð bankaráðs um málið, sbr. meðfylgjandi bréf.

    09. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Náttúruvernd, Auðlindir

    Forsætisráðherra kynnti drög að stefnu um samþykki fyrir nýtingu lands og landsréttinda í þjóðlendum

    Forsætisráðherra kynnti drög að stefnu um samþykki fyrir nýtingu lands og landsréttinda í þjóðlendum á ríkisstjórnarfundi í morgun. Drögin að stefnu hafa nú verið birt í samráðsgátt Stjórnarráðsins. Frestur til að skila umsögnum er til 30. nóvember nk.

    09. nóv. 2018Forsætisráðuneytið

    Leiði Jóns Magnússonar fyrrverandi forsætisráðherra lagfært

    Ríkisstjórnin og skrifstofa Alþingis hafa ákveðið að leggja fé af mörkum til að heiðra minningu Jóns Magnússonar sem var forsætisráðherra þegar Ísland öðlaðist fullveldi 1. desember 1918.

    06. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherrabifreiðar verða rafvæddar

    Samkvæmt tillögu forsætisráðherra, sem samþykkt var í ríkisstjórn í morgun 6. nóvember, verða ráðherrabifreiðar rafvæddar. Er það í samræmi við loftslagsstefnu Stjórnarráðsins og aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.

    02. nóv. 2018Forsætisráðuneytið

    Úttekt á starfsemi sjálfstæðra úrskurðarnefnda

    Páli Hreinssyni, forseta EFTA-dómstólsins, hefur verið falið að gera úttekt á starfsemi sjálfstæðra úrskurðarnefnda í stjórnsýslunni ásamt lögfræðingum í forsætisráðuneytinu.

    01. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Skýrsla þjóðaröryggisráðs um framkvæmd þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland birt

    Skýrsla þjóðaröryggisráðs um framkvæmd þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland birtist nú í fyrsta skipti.

    31. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Forsætisráðherra fundaði með norrænum forsætisráðherrum

    Forsætisráðherrar Norðurlandanna funduðu í dag um erlendar fjárfestingar í mikilvægum innviðum og mismunandi aðstæður milli landanna á þessu sviði.

    30. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra Íslands og Bretlands funda í Ósló

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, áttu tvíhliðafund í Ósló í dag.

    30. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra á Northern Future Forum (NFF) og Norðurlandaráðsþingi í Ósló

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók þátt í Northern Future Forum (NFF) í Ósló í dag og kynnti formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni fyrir árið 2019 á Norðurlandaráðsþingi.

    30. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Umbætur á Norðurlandasamstarfinu halda áfram

    Á fundi samstarfsráðherra Norðurlandanna í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Osló var ákveðið að halda áfram með að breyta og bæta norrænu samstarfi þannig að það nýtist íbúum sem best.

    29. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra sækir Northern Future Forum og Norðurlandaráðsþing í Osló

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tekur þátt í Northern Future Forum (NFF) sem haldið verður í Osló 29. til 31. október.

    25. okt. 2018Forsætisráðuneytið

    Matvælaframleiðsla eitt af stóru viðfangsefnum stjórnmálanna á þessari öld

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti setningarávarp á Matvæladegi Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands (MNÍ) 2018 sem haldinn er í dag.

    24. okt. 2018Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ráðherranefnd um jafnréttismál fundar á kvennafrídeginum 24. október 2018

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hélt fund í ráðherranefnd um jafnréttismál ásamt Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og jafnréttismálaráðherra, Sigríði Á. Andersen, dómsmálaráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra og embættismönnum, á kvennafrídeginum 24. október 2018.

    22. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Heimsmarkmiðin

    Skátar afhentu forsætisráðherra verkefnapakka um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

    Þau Þuríður, Heiðbrá og Andri, skátar úr Garðabæ og Vesturbæ, og Marta Magnúsdóttir, skátahöfðingi Íslands, heimsóttu Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í gær.

    19. okt. 2018Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra mælti fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um umboðsmann barna

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mælti fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um umboðsmann barna í vikunni. Breytingar þær sem lagðar eru til er m.a. ætlað að styrkja rödd og auka áhrif barna í samfélaginu.

    19. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir

    Forsætisráðherra ávarpar Hringborð norðurslóða

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti ávarp við opnun Hringborðs norðurslóða (Arctic Circle Assembly) í morgun. Forsætisráðherra lagði þunga áherslu á loftslagsmál og talaði um nýútkomna skýrslu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar.

    17. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ísland er friðsælasta ríki heims

    Ísland er friðsælasta ríki heims samkvæmt úttekt Global Peace Index (GPI) fyrir árið 2018.

    17. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegir

    Forsætisráðherra ávarpar 45. þing BSRB

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði 45. þing BSRB á Hilton hótel Nordica í morgun.

    16. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál

    Unnur Brá Konráðsdóttir verður fulltrúi ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum

    Unni Brá Konráðsdóttur, aðstoðarmanni ríkisstjórnarinnar, verður falið að tryggja samhæfingu loftslagsmála fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

    15. okt. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundaði með framkvæmdastjóra Alþjóðaráðs Rauða krossins

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Yves Daccord, framkvæmdastjóra ICRC (Alþjóðaráðs Rauða krossins) í dag.

    15. okt. 2018Forsætisráðuneytið

    Umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis kynntar

    Nefnd forsætisráðherra um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis kynnti afrakstur vinnu sinnar í fyrri áfanga nefndarstarfsins á blaðamannafundi í dag í Þjóðminjasafninu. Eiríkur Jónsson, prófessor og formaður nefndarinnar, sá um kynninguna og svaraði spurningum fjölmiðla að kynningu lokinni.

    13. okt. 2018Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpar afmælishátíð Pólska skólans í Reykjavík

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði afmælishátíð Pólska skólans í Reykjavík í dag en skólinn fagnar 10 ára afmæli í ár.

    11. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Vinna hafin við að sameina Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið - Verðbólgumarkmiði viðhaldið sem meginmarkmiði peningastefnunnar

    Ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins hefur ákveðið að hefja endurskoðun lagaumgjarðar um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit.

    05. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Samstarfsvettvangur um framlag til loftslagsmála á alþjóðlegum vettvangi skipaður

    Ákveðið var að setja á laggirnar samstarfsvettvang atvinnulífs og stjórnvalda um framlag Íslands til loftslagsmála á alþjóðlegum vettvangi með útflutningi orkuþekkingar og grænna lausna á ríkisstjórnarfundi í morgun.

    05. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Landbúnaður

    Forsætisráðherra skipar starfshóp um endurskoðun laga og reglna er varða eignarhald á landi og fasteignum

    Starfshópur um endurskoðun eignarhalds á bújörðum, sem skipaður var af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í júní 2017, hefur nýlega skilað skýrslu þar sem lagðar eru til breytingar á lögum í því skyni að viðhalda ræktanlegu landbúnaðarlandi og búsetu í sveitum landsins.

    05. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samstarf um sókn íslenskunnar

    Viljayfirlýsing um vitundarvakningu um mikilvægi íslensks máls var undirrituð af Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og fulltrúum Kennarasambands Íslands, Háskóla Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og samtakanna Heimilis og skóla í gær.

    04. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    763/2018. Úrskurður frá 28. september 2018

    Kærandi kærði ákvörðun Háskóla Íslands um synjun beiðni um aðgang að upplýsingum í tengslum við umsókn um starf lektors í heimspeki. Þar sem kærandi var meðal umsækjenda um starfið tók úrskurðarnefndin fram að um upplýsingarétt hans færi skv. stjórnsýslulögum. Var kæru því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    04. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    762/2018. Úrskurður frá 28. september 2018

    Starfsmaður fjölmiðils kærði ákvörðun Endurmenntunar Háskóla Íslands um synjun beiðni um upplýsingar um rekstrarkostnað og tap frá árinu 2011. Hin kærða ákvörðun byggðist á 4. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin tók fram að ákvæðið felur í sér undantekningu frá meginreglu 5. gr. upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings og því ber að skýra það þröngri lögskýringu. Því næst fór nefndin í gegnum skilyrði beitingar ákvæðisins og komst að þeirri niðurstöðu að hagsmunir Endurmenntunar af því að umbeðnar upplýsingar færu leynt vægju ekki þyngra en hagsmunir almennings af því að fá aðgang að þeim. Var því lagt fyrir Endurmenntun að veita kæranda aðgang að upplýsingunum.

    04. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    761/2018. Úrskurður frá 28. september 2018

    Blaðamaður kærði meðferð embættis ríkissaksóknara á beiðni um upplýsingar um símhlustun. Af hálfu embættisins hafði komið fram að upplýsingarnar væru ekki fyrirliggjandi, heldur þyrfti að safna þeim saman úr fyrirliggjandi gögnum, og jafnframt féllu þær utan gildissviðs upplýsingalaga skv. 1. mgr. 4. gr. laganna. Úrskurðarnefndin féllst á að beiðni kæranda tæki að öllu leyti til upplýsinga úr málum sem varði rannsóknarúrræði skv. lögum um meðferð sakamála. Því yrði upplýsingaréttur kæranda ekki byggður á upplýsingalögum skv. 1. mgr. 4. gr. þeirra og kæru vísað frá.

    04. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    760/2018. Úrskurður frá 28. september 2018

    Deilt var um ákvörðun velferðarráðuneytisins um synjun beiðni fréttamanns um aðgang að minnisblaði vegna umkvartana þriggja barnaverndarnefnda varðandi samskipti við Barnaverndarstofu. Ákvörðunin byggðist á því að um vinnugagn væri að ræða og að þar væri að finna upplýsingar um starfssamband fyrrverandi forstjóra Barnaverndarstofu við ráðuneytið. Úrskurðarnefndin féllst á með ráðuneytinu að minnisblaðið uppfyllti skilyrði vinnugagnahugtaks 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga en taldi að þar kæmu fram upplýsingar um atvik máls sem ekki væri að finna annars staðar, sbr. 3. tölul. 3. mgr. 8. gr. laganna. Lagt var fyrir ráðuneytið að veita kæranda aðgang að minnisblaðinu að frátöldum hluta þess.

    04. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    759/2018. Úrskurður frá 28. september 2018

    Kærendur óskuðu eftir því að utanríkisráðuneytið veitti þeim aðgang að öllum gögnum borgaraþjónustumáls. Ráðuneytið synjaði beiðninni að hluta á þeim grundvelli að annars vegar væri um að ræða upplýsingar um viðkvæma einkahagsmuni einstaklinga, sbr. 9. gr. upplýsingalaga, en hins vegar að heimilt væri að takmarka aðgang kærenda að upplýsingum um samskipti við önnur ríki og fjölþjóðastofnanir, sbr. 2. tölul. 10. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að um upplýsingarétt kærenda færi eftir 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Fallist var á röksemdir ráðuneytisins varðandi hluta umbeðinna gagna en um önnur vísaði nefndin til þess að ekki væri um viðkvæma einkahagsmuni að ræða eða mikilvægir almannahagsmunir stæðu ekki til beitingar 2. tölul. 10. gr., sbr. 3. mgr. 14.…

    04. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    758/2018. Úrskurður frá 28. september 2018

    Deilt var um ákvörðun velferðarráðuneytisins um synjun beiðni blaðamanns um aðgang að tveimur minnisblöðum vegna umkvartana þriggja barnaverndarnefnda varðandi samskipti við Barnaverndarstofu. Ákvörðunin byggðist á því að um vinnugögn væri að ræða og að þar væri að finna upplýsingar um starfssamband fyrrverandi forstjóra Barnaverndarstofu við ráðuneytið. Úrskurðarnefndin féllst á með ráðuneytinu að minnisblöðin uppfylltu skilyrði vinnugagnahugtaks 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga en taldi að í öðru þeirra kæmu fram upplýsingar um atvik máls sem ekki væri að finna annars staðar, sbr. 3. tölul. 3. mgr. 8. gr. laganna. Lagt var fyrir ráðuneytið að veita kæranda aðgang að þeim hluta annars minnisblaðsins en hin kærða ákvörðun var að öðru leyti staðfest.

    04. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    757/2018. Úrskurður frá 28. september 2018

    Kærð var ákvörðun Vegagerðarinnar um að synja beiðni um upplýsingar um kostnað stofnunarinnar vegna þátttöku starfsmanns á ráðstefnum erlendis á tilteknu tímabili. Ákvörðunin byggðist á því að upplýsingarnar vörðuðu starfssamband starfsmannsins og Vegagerðarinnar, sbr. 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, og að um persónuupplýsingar væri að ræða sem 9. gr. laganna kæmi í veg fyrir að yrðu afhentar óviðkomandi. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á þetta og lagði fyrir Vegagerðina að veita kæranda aðgang að umbeðnum gögnum.

    02. okt. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Skipun sáttanefndar vegna eftirmála sýknudóms Hæstaréttar Íslands í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu

    Forsætisráðherra hefur í samræmi við samþykkt ríkisstjórnar Íslands frá 28. september sl. skipað nefnd til að leiða fyrir hönd stjórnvalda sáttaviðræður við fyrrum sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu sem sýknaðir voru með dómi Hæstaréttar Íslands 27. september 2018 í endurupptökumáli nr. 521/2017 og aðstandendur þeirra.

    01. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Fyrsti fundur framtíðarnefndar

    Framtíðarnefnd um áskoranir og tækifæri vegna tæknibreytinga sem forsætisráðherra skipaði í sumar kom saman í fyrsta skiptið 28. september síðastliðinn.

    28. sep. 2018Forsætisráðuneytið

    Yfirlýsing forsætisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar vegna nýfallins sýknudóms Hæstaréttar Íslands í málum allra dómfelldu í endurupptökumáli í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu

    Ríkisstjórnin fjallaði um niðurstöðu Hæstaréttar Íslands í málum allra dómfelldu í endurupptökumáli í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu á ríkisstjórnarfundi í morgun.

    27. sep. 2018Forsætisráðuneytið, Auðlindir, Atvinnuvegir

    Eðlilegt að þjóðin fái beinan og sýnilegan arð af auðlindinni

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti opnunarávarp á Sjávarútvegsdeginum í Hörpu í gær.

    25. sep. 2018Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Forsætisráðherra heimsótti Slysavarnafélagið Landsbjörgu

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsótti í dag Slysavarnafélagið Landsbjörgu í Skógarhlíð og fundaði með fulltrúum stjórnar félagsins.

    24. sep. 2018Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samfélagslegar áskoranir Íslands: taktu þátt!

    Vísinda- og tækniráð Íslands efnir til opins samráðs við almenning og hagsmunaaðila um skilgreiningu þeirra framtíðaráskorana sem vísindi og rannsóknir ættu markvisst að takast á við.

    17. sep. 2018Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Breytingar á Stjórnarráði Íslands

    Velferðarráðuneytinu verður skipt upp í heilbrigðisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti, jafnréttismál færast á ábyrgð forsætisráðuneytis og málefni mannvirkja færast úr umhverfisráðuneyti í félagsmálaráðuneyti.

    14. sep. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Verkáætlun og staða stýrihóps um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi kynnt í ríkisstjórn

    Verkáætlun og yfirlit yfir stöðu verkefna stýrihóps um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi var kynnt í ríkisstjórn í morgun.

    12. sep. 2018Forsætisráðuneytið

    Ársskýrsla forsætisráðherra

    Ársskýrsla forsætisráðherra birtist nú í fyrsta skipti samkvæmt 62. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál. Lögin kveða á um að hverjum ráðherra beri að birta ársskýrslu þar sem gerð er grein fyrir útgjöldum málefnasviða og málaflokka og þau borin saman við fjárheimildir fjárlaga.

    10. sep. 2018Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál

    Blásið til sóknar í loftslagsmálum

    Sjö ráðherrar ríkisstjórnarinnar kynntu viðamikla aðgerðaáætlun í loftslagsmálum í dag.

    07. sep. 2018Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Forsætisráðherra tilkynnir tilnefningar til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2018

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tilkynnti um tilnefningar til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2018 á Lýsu, rokkhátíð samtalsins á Akureyri í dag, föstudaginn 7. september 2018.

    07. sep. 2018Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum

    Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til reglulegs fundar á Bessastöðum í dag, föstudaginn 7. september kl. 16.00.

    05. sep. 2018Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Efling trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu - skýrsla starfshóps forsætisráðherra

    september 2018 / Forsætisráðuneytið Efling trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu - skýrsla starfshóps forsætisráðherra Efling trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu - skýrsla starfshóps forsætisráðherra

    05. sep. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Starfshópur um eflingu trausts skilar skýrslu

    Aðgerðir er varða aukið gagnsæi stjórnsýslunnar, hagsmunaskráning, samskipti við hagsmunaaðila, starfsval eftir opinber störf og vernd uppljóstrara eru á meðal tillagna starfshóps um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu.

    • First
    • Prev
    • 45
    • 46
    • 47
    • 48
    • 49
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband