Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2051–2100 af 2979
    Raða eftir:
    07. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Framlagningu frumvarps til lyfjalaga frestað til hausts

    Þörf er á lengra samráðsferli og frekari gögnum svo unnt sé að ljúka vinnu við frumvarp til nýrra lyfjalaga sem heilbrigðisráðherra áformaði að leggja fram á Alþingi í vor. Ráðherra hefur því ákveðið að fresta framlagningu þess til haustsins.

    05. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillögur að breyttu skipulagi skimana fyrir krabbameinum til framtíðar

    Embætti landlæknis og skimunarráð hafa skilað heilbrigðisráðherra tillögum að breyttu skipulagi á stjórnun, staðsetningu og framkvæmd skimana fyrir krabbameinum. Landlæknir telur framtíðarlausn á fyrirkomulagi þessara mála nauðsynlega svo skipuleggja megi skimanir til langs tíma.

    04. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Formennska Íslands 2019, Norrænt samstarf, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Norrænt samstarf: Mikilvæg ráðstefna um geðheilbrigði barna 28. mars

    Geðrækt, forvarnir og snemmtæk íhlutun er viðfangsefni stórrar norrænnar ráðstefnu um geðheilbrigði barna í Reykjavík 28. mars. Ráðstefnan er haldin að frumkvæði Íslands sem leiðir samstarf á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar á þessu ári.

    01. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skoðunarhandbók um markaðseftirlit með lækningatækjum gefin út í fyrsta sinn

    Lyfjastofnun hefur gefið út skoðunarhandbók um markaðseftirlit með lækningatækjum og er þetta fyrsta handbókin sem gefin er út um þetta efni hér á landi.

    01. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Áherslur í heilbrigðismálum og tiltekin forgangsverkefni

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur á grunni heilbrigðisstefnu til ársins 2030 ákveðið að setja nú þegar tiltekin verkefni í forgang þar sem þörf fyrir skýrar ákvarðanir og markvissar aðgerðir er mjög brýn. Ráðherra fjallar um þetta í blaðagrein í dag.

    28. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Gildistaka laga um rafrettur 1. mars 2019

    Ný lög um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur öðlast gildi á morgun, 1. mars. Í lögunum er kveðið á um innflutning, markaðssetningu, notkun og öryggi þessa varnings og ráðstafanir til að sporna við notkun barna á rafrettum.

    28. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Stuðningsteymi á Landspítala fyrir langveik börn í burðarliðnum

    Landspítalinn auglýsir á næstunni eftir fagfólki til starfa í nýju ráðgjafar- og stuðningsteymi fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra. Heilbrigðisráðherra ákvað á síðasta ári að veita spítalanum 40 milljónir króna til að koma teyminu á fót.

    28. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Vegna ákvörðunar SÁÁ um tímabundna lokun göngudeildarþjónustu á Akureyri

    Samningviðræður standa yfir milli Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ um rekstur göngudeildarþjónustu á Akureyri. Fjárframlag af hálfu ríkisins til starfseminnar er tryggt í fjárlögum þessa árs. Það kemur því á óvart að SÁÁ ætli að loka göngudeildarþjónustunni tímabundið frá og með morgundeginum vegna kostnaðar, líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum.

    26. feb. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Um 790 hjúkrunarrými á framkvæmdaáætlun til ársins 2023

    Alls eru 790 hjúkrunarrými á framkvæmdaáætlun til ársins 2023, þar af er fjölgun um rúmlega 580 rými og endurbætur á yfir 200 rýmum. Ítarlega er fjallað um uppbyggingu á þessu sviði og hvernig þessi mál hafa þróast frá árinu 2009 í skriflegu svari Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra við fyrirspurn á Alþingi sem birt var í dag.

    26. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisþjónusta: Málsmeðferð í kvörtunarmálum verði einfölduð

    Drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra sem hefur að markmiði að einfalda og skýra málsmeðferð innan Embættis landlæknis í kvörtunarmálum hefur verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 11. mars næstkomandi.

    26. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Umsækjendur um embætti skrifstofustjóra í heilbrigðisráðuneytinu

    Fimmtán umsækjendur eru um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu hagmála og fjárlaga í heilbrigðisráðuneytinu sem auglýst var laust til umsóknar 8. febrúar síðastliðinn.

    25. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Markús Ingólfur Eiríksson verður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Markús Ingólf Eiríksson forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja að undangengnu mati ​lögskipaðrar nefndar sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana. Skipað er í embættið til fimm ára, frá 1. mars næstkomandi.

    25. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Starfsáætlun Embættis landlæknis til ársins 2020

    Embætti landlæknis hefur birt starfsáætlun sína til ársins 2020. Þar kemur fram hverjar verða helstu áherslur í störfum embættisins og hvaða aðgerðir verða í forgangi. Verkefnin varða almenning, fagfólk og stjórnvöld, auk þess að snúa að innra starfi embættisins.

    22. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Drög að frumvarpi varðandi neyslurými til umsagnar

    Drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni hefur verið birt til umsagnar. Markmiðið með frumvarpinu er að veita heimild til að stofna og reka neyslurými að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Umsagnarfrestur er til 4. mars næstkomandi.

    22. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Drög að frumvarpi til nýrra lyfjalaga birt til umsagnar

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til nýrra lyfjalaga. Umsagnarfrestur er til 3. mars næstkomandi. Gildandi lyfjalög eru að stofni til frá árinu 1994. Frá þeim tíma hafa verið gerðar á þeim margvíslegar breytingar og heildarendurskoðun þeirra því tímabær.

    22. feb. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Samkomulag um byggingu hjúkrunarheimilis á Húsavík

    Heilbrigðisráðuneytið og sveitarfélögin Norðurþing, Skútustaðahreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit munu standa saman að byggingu 60 rýma hjúkrunarheimilis á Húsavík sem áætlað að verði tekið í notkun á vormánuðum ársins 2021. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri Norðurþings undirrituðu samning þessa efnis í dag.

    21. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Úthlutun 630 milljóna króna til að efla geðheilbrigðisþjónustu á landvísu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tilkynnti í dag hvernig 630 milljónum króna af fjárlögum ársins verður ráðstafað til að efla geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu. Fénu verður varið til að fjölga stöðugildum sálfræðinga í heilsugæslu annars vegar og til að efla og byggja upp geðheilsuteymi um allt land.

    21. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Faglegt álit um blóðgjafir samkynhneigðra karlmanna

    Ráðgjafanefnd um fagleg málefni blóðbankaþjónustu hefur skilað heilbrigðisráðherra faglegu áliti sínu um það hvort slaka beri á reglum sem gilda hér á landi um blóðgjafir samkynhneigðra karlmanna.

    20. feb. 2019Ræður og greinar, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Landspítali þjónustar börn og ungmenni í fíknivanda

    Landspítalinn undirbýr nú að taka að sér þjónustu við börn og ungmenni í fíknivanda í samræmi við ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Þessi hópur hefur hingað til fengið þjónustu af hálfu SÁÁ en nú hefur verið ákveðið að færa þetta verkefni til Landspítalans. Ráðherra fjallar um málið í blaðagrein sem birtist í dag.

    15. feb. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Samkeppni um hönnun nýs hjúkrunarheimilis í Hornafirði

    Hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili í Hornafirði fyrir 30 íbúa verður auglýst um helgina. Heimilið mun leysa af hólmi hjúkrunarheimilið Skjólgarð þar sem búa 24 einstaklingar, flestir í tvíbýli. Áætlað er að niðurstöður hönnunarsamkeppni liggi fyrir í lok maí og að heimilið verði fullbyggt og tilbúið til notkunar vorið 2021.

    15. feb. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisráðherra heimsótti Sjúkratryggingar Íslands

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra heimsótti í vikunni Sjúkratryggingar Íslands, kynnti sér stofnunina og starfsemi hennar, heilsaði upp á starfsfólk og átti fund með forstjóra og sviðsstjórum.

    13. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Jóhanna Fjóla skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til eins árs

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til eins árs. Jóhanna hefur gegnt starfinu sem settur forstjóri frá 1. febrúar 2017 í fjarveru Guðjóns S. Brjánssonar sem situr á Alþingi.

    11. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Upphaf stefnumótunar í málefnum fólks með heilabilun

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið Jóni Snædal öldrunarlækni að móta drög að stefnu í málefnum fólks með heilabilun. Í þeirri vinnu verði lögð áhersla á þverfaglegt samstarf þjónustuveitenda og á samráð við sjúklingahópinn og aðstandendur fólks með heilabilun.

    11. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Nýjar reglur munu auka öryggi lyfjanotenda

    Nýjar reglur um merkingu lyfjaumbúða tóku gildi laugardaginn 9. febrúar. Reglunum er ætlað að draga úr líkum á því að fölsuð lyf rati inn í keðju löglegrar lyfjaframleiðslu og auka þar með öryggi notenda.

    11. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Embætti skrifstofustjóra á skrifstofu hagmála og fjárlaga laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra á skrifstofu hagmála- og fjárlaga. Skipað verður í embættið til fimm ára. Umsóknarfrestur er 25. febrúar næstkomandi.

    08. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Útboði vegna kaupa á sjúkrabílum frestað

    Opnun útboðs vegna fyrirhugaðra kaupa á sjúkrabílum sem átti að fara fram 7. febrúar hefur verið frestað til 13. mars næstkomandi. Unnið er að samkomulagi milli heilbrigðisráðuneytisins og Rauða krossins á Íslandi um lyktir samnings um útvegun og rekstur sjúkrabíla sem Rauði krossinn hefur sinnt til fjölda ára.

    08. feb. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Líf og heilsa, Atvinnuvegir, Heilbrigðisráðuneytið

    Sameiginlegt átak til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra undirrituðu í dag yfirlýsingu um sameiginlegt átak til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, Alþjóðadýraheilbrigðismálastofnuninni, Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins og Matvælaöryggisstofnun Evrópusambandsins er útbreiðsla sýklalyfjaónæmis ein helsta heilbrigðisógn sem steðjar að mönnum. Sýklalyfjaónæmi á Íslandi hefur verið umtalsvert minna vandamál en í nálægum löndum en mikilvægt þykir að stemma stigu við frekari útbreiðslu.

    06. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Eftirlit með þjónustu og rekstri heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita 30 milljónir króna til að sinna eftirliti með því að þjónusta og rekstur heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu sé samræmi við Kröfulýsingu vegna rekstrar heilsugæsluþjónustu. Kröfulýsingin tók gildi í tengslum við ​breytt fjármögnunarkerfi heilsugæslunnar sem innleitt var í ársbyrjun 2017.

    05. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Stefna um rafrænar lyfjaupplýsingar til umsagnar hjá Lyfjastofnun Evrópu

    Áformað er að samræma upplýsingar um lyf á Evrópska efnahagssvæðisins og hefja notkun rafrænna fylgiseðla. Um þetta er m.a. fjallað í drögum að stefnu um rafrænar lyfjaupplýsingar sem birt hefur verið til umsagnar á vef Lyfjastofnunar Evrópu. Umsagnarfrestur er til 31. júlí næstkomandi.

    04. feb. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Hjúkrunarheimilið Seltjörn afhent til rekstrar

    Stefnt er að því að fyrstu íbúar nýja hjúkrunarheimilisins á Seltjarnarnesi, sem hlotið hefur nafnið Seltjörn, geti flutt þar inn um 20. mars næstkomandi. Framkvæmdum við húsnæðið er nú lokið og afhenti Seltjarnarnesbær ríkinu heimilið fullbúið til rekstrar við hátíðlega vígsluathöfn um helgina.

    01. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lögfræðileg úttekt um kaup sjúkratrygginga á heilbrigðisþjónustu

    Gerð hefur verið úttekt á framkvæmd og málsmeðferð velferðarráðuneytisins vegna samninga Sjúkratrygginga Íslands um kaup á heilbrigðisþjónustu sem veitt er af sjálfstætt starfandi sérgreinalæknum. Úttektin var gerð að beiðni heilbrigðisráðherra í ljósi þeirra álitamála sem fjallað var um í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 18. september 2018.

    01. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um innleiðingu krabbameinsáætlunar

    Forvörnum, greiningu og meðferð krabbameina hefur fleygt fram á liðnum árum og batahorfur þeirra sem greinast hafa batnað verulega. Aftur á móti má reikna með mikilli fjölgun einstaklinga sem greinast með krabbamein á næstu árum vegna fólksfjölgunar og hækkandi meðalaldurs. Því er íslensk innleiðing íslenskrar krabbameinsáætlunar mikilvæg. Heilbrigðisráðherra skrifar um innleiðingu krabbameinsáætlunar til ársins 2030 blaðagrein í dag.

    31. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Sjúkrahótelið við Hringbraut afhent í dag

    Framkvæmdum við sjúkrahótelið við Hringbraut er lokið og fór afhending þess fram í dag. Hótelið er hluti af fyrsta áfanga þess verkefnis sem felst í heildaruppbyggingu Landspítalans. Sjúkrahótelið er á fjórum hæðum, með 75 herbergjum af mismunandi gerð miðað við ólíkar þarfir dvalargesta.

    31. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstefna til umfjöllunar í velferðarnefnd

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mælti fyrir tillögu sinni til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 á Alþingi í gær. Þingsályktunartillagan er nú komin til umfjöllunar hjá velferðarnefnd þingsins.

    31. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

    Þrír umsækjendur eru um embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Umsóknarfrestur rann út 28. janúar. Heilbrigðisráðherra mun skipa í stöðuna til fimm ára að undangengnu mati lögskipaðrar hæfnisnefndar á umsækjendum.

    31. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Reglugerð um rafrettur til umsagnar: varðar merkingar umbúða, upplýsingaefni o.fl.

    Reglugerð um merkingar á umbúðum rafrettna og áfyllinga og efni upplýsingabæklings sem fylgja skal rafrettum og áfyllingum hefur verið birt til umsagnar.

    30. jan. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Um hálfum milljarði króna úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 495 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra til uppbyggingar í öldrunarþjónustu. Hæstu framlögin renna til endurgerðar hjúkrunarrýma á gamla Sólvangi í Hafnarfirði og til uppbyggingar þjónustumiðstöðvar við Sléttuveg í Reykjavík.

    29. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Unnið að verkefnum krabbameinsáætlunar með gildistíma til ársins 2030

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að vinna að framkvæmd verkefna í samræmi við tillögu ráðgjafarhóps sem vann að mótun íslenskrar krabbameinsáætlunar á árunum 2013 – 2016. Ráðherra hefur ákveðið að gildistími áætlunarinnar verði til ársins 2030, til samræmis við tillögu til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu sem nú liggur fyrir Alþingi.

    29. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðir til að styrkja mönnun á sviði hjúkrunar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sent bréf til opinberra heilbrigðisstofnana þar sem þeim er falið að fjalla um og útfæra tilteknar aðgerðir sem hafa það markmið að laða fleiri hjúkrunarfræðinga til starfa og styrkja mönnun á sviði hjúkrunar.

    29. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Reglugerð til umsagnar: varðar nýtingu erfðaupplýsinga í forvarnarskyni

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð heilbrigðisráðherra um tilkynningar til þátttakanda í vísindarannsókn á heilbrigðissviði um mikilvæga þætti sem koma fram við framkvæmd vísindarannsókna og varða heilsu hans. Umsagnarfrestur er til 18. febrúar næstkomandi.

    28. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Norrænt samstarf

    Tilkynning vegna sameiginlegs norræns útboðs á lyfjum

    Útboðsgögn vegna sameiginlegs lyfjaútboðs norskra, danskra og íslenskra stjórnvalda hafa verið birt í drögum á vef danska lyfjainnkaupasambandsins Amgros. Mögulegum bjóðendum er gefinn kostur á að gera athugasemdir við útboðsgögnin. Frestur til athugasemda rennur út 6. mars næstkomandi.

    21. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lifrarbólga C: Einstakur árangur meðferðarátaks sem verður að viðhalda

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að viðhalda þeim einstaka árangri sem þriggja ára meðferðarátak heilbrigðisyfirvalda gegn lifrarbólgu C hefur skilað.

    18. jan. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og fjölskyldumál, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðstæður barnshafandi kvenna á landsbyggðinni skoðaðar

    Félags- og barnamálaráðherra og heilbrigðisráðherra kynntu á ríkisstjórnarfundi í morgun áform um skoða í sameiningu breytingar til að styðja betur við barnshafandi konur á landsbyggðinni og fjölskyldur þeirra.

    18. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heimsókn heilbrigðisráðherra til Embættis landlæknis

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra heimsótti í gær Embætti landlæknis þar sem starfsfólk ​kynnti starfsemi embættisins og helstu verkefni. Ráðherra átti jafnframt fund með framkvæmdastjórn embættisins.

    18. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Útlendingar, Líf og heilsa

    Skýrsla um heilsu flóttafólks og innflytjenda

    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) kynnir næstkomandi mánudag nýja skýrslu um heilsu flóttafólks og innflytjenda í Evrópu. Þetta er fyrsta skýrsla stofnunarinnar um þetta málefni. Bein útsending verður frá kynningunni í gegnum streymi á Facebook.

    16. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillaga til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu kynnt í ríkisstjórn

    Tillaga Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 var til umfjöllunar í ríkisstjórn í gær sem samþykkti að senda hana til þingflokka. Að lokinni umfjöllun í þingflokkum verður hún lögð fyrir Alþingi þar sem ráðherra mælir fyrir henni.

    16. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Málþing um líffæragjöf og líffæraígræðslu 26. janúar

    Með breytingu á lögum um brottnám líffæra sem samþykkt var á Alþingi í sumar er nú miðað við ætlað samþykki látins einstaklings fyrir líffæragjöf nema annað liggi fyrir. Lagabreyting sem felur þetta í sér tók gildi 1. janúar síðastliðinn. Embætti landlæknis stendur fyrir opnu málþingi um líffæragjöf og líffæraígræðslu 26. janúar næstkomandi.

    15. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Sameiginlegt norrænt útboð á lyfjum

    Undirbúningur að sameiginlegu útboði Danmerkur, Noregs og Íslands vegna kaupa á völdum lyfjum til notkunar á sjúkrahúsum er á lokastigi. Litið er á útboðið sem reynsluverkefni til að afla þekkingar á ýmsum hagnýtum þáttum slíkra útboða.

    15. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Níu sækja um embætti ráðuneytisstjóra

    Níu umsækjendur eru um embætti ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu. Umsóknarfrestur rann út í gær. Heilbrigðisráðherra mun skipa í stöðuna til fimm ára að undangengnu mati lögskipaðrar hæfnisnefndar á umsækjendum.

    14. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Samráð um reglugerðarbreytingu varðandi skýrslugerð vegna sóttvarna

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð heilbrigðisráðherra til breytinga á reglugerð nr. 221/2012 um skýrslugerð vegna sóttvarna. Breytingin felst í uppfærslu á lista yfir skráningar- og tilkynningarskylda sjúkdóma. Umsagnarfrestur er til 28. janúar næstkomandi.

    • First
    • Prev
    • 40
    • 41
    • 42
    • 43
    • 44
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband