Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2001–2050 af 2979
    Raða eftir:
    27. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisráðherra skrifar um heilsueflingu

    „Það er tímabært að breyta um kúrs og forgangsraða fjármunum til verkefna sem stuðla að bættri heilsu og auknum lífsgæðum alla ævi" segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í nýrri blaðagrein þar sem hún fjallar um mikilvægi heilsueflingar á öllum æviskeiðum.

    27. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Vel sótt vinnustofa um uppbyggingu árangursríkra geðheilsuteyma

    Heilbrigðisráðuneytið hélt fyrir helgi vinnustofu með fulltrúum geðheilsuteyma af öllu landinu og fulltrúum notenda geðheilbrigðisúrræða um uppbyggingu árangursríkra geðheilsuteyma á landsvísu. Mikill áhugi var fyrir vinnustofunni og komust færri að en vildu.

    27. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Reglugerð um tilkynningar til þátttakenda í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði

    Birt hefur verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda reglugerð heilbrigðisráðherra sem kveður á um í hvaða tilfellum og hvernig eigi að tilkynna þátttakanda í vísindarannsókn um mikilvæga þætti sem koma fram við gerð rannsóknar og varðar heilsu hans.

    24. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Bið eftir aðgerðum: margþættur vandi sem kallar á fjölbreyttar úrlausnir

    Ný úttekt Embættis landlæknis með ýtarlegri greiningu á biðlistum vegna valinna aðgerða og ástæðum þess að ekki hefur náðst ásættanlegur árangur við að stytta biðtíma varpar ljósi á margþættan vanda sem þarf að takast á við eftir ólíkum leiðum. Eftirspurn eftir liðskipaaðgerðum hefur aukist verulega á liðnum árum og umfram spár. Þróunin er sambærileg hér og hjá öðrum þjóðum. ​ ​ ​ ​ ​ ​ ​ ​ ​

    24. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    InterRAI-mælitækin og framkvæmd færni- og heilsumats

    Vinnuhópur á vegum heilbrigðisráðherra hefur skilað skýrslu með ýtarlegum tillögum um úrbætur við notkun InterRAI- mælitækjanna í öldrunarþjónustu og ýmsum breytingum á framkvæmd færni- og heilsumats. Hópurinn skilaði ráðherra skýrslu sinni í gær.

    24. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ávarp heilbrigðisráðherra á þingi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar

    Harald Aspelund, sendiherra í Genf, flutti ræðu Svandísar Svavarsdóttur á 72. þingi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem nú stendur yfir í Genf. Yfirskrift ræðunnar var Heilbrigðisþónusta fyrir alla – Skiljum engan eftir (e. Universal health coverage: leaving no-one behind) og fjallaði um megináherslur Íslands í heilbrigðismálum og þau verkefni sem nú eru í forgangi af hálfu stjórnvalda.

    24. maí 2019Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    InterRAI-mælitækin og færni og heilsumat

    maí 2019 / Heilbrigðisráðuneytið InterRAI-mælitækin og færni og heilsumat InterRAI-mælitækin og færni- og heilsumat Skýrsla vinnuhóps um áframhaldandi vinnu í kjölfar úttektar KPMG fyrir Embætti landlæknis (maí 2019)

    20. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Fastanefndir, Líf og heilsa, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Sendiskrifstofa

    72. þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-innar

    Í dag hófst í Genf 72. þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Áhugasamir geta fylgst með beinni útsendingu frá þinginu á vefnum.

    16. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þrjátíu ný dagdvalarrými fyrir fólk með heilabilun

    Opnuð hefur verið í Hrafnistu í Laugarási ný dagdvöl ætluð fólki með heilabilun, með aðstöðu fyrir 30 einstaklinga. Aðstöðunni var komið á fót með breytingum á húsnæði sem ekki var lengur unnt að nýta til reksturs hjúkrunarrýma. Heilbrigðisráðherra gerði nýsköpun og getuna til að sjá tækifæri í breyttum aðstæðum að umtalsefni í ávarpi sem hún flutti við vígslu deildarinnar.

    16. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ráðherra hitti fulltrúa notenda geðheilbrigðisþjónustu á samráðsfundi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hitti á fundi í heilbrigðisráðuneytinu í vikunni fulltrúa notenda geðheilbrigðisþjónustu. Þetta er í annað sinn sem slíkur samráðsfundur er haldinn en áformað er að halda þá tvisvar á ári. Verið er að ráða fulltrúa notenda inn í geðheilsuteymi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

    14. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Auglýst eftir veitendum geðheilbrigðisþjónustu í fangelsum

    Sjúkratryggingar Íslands hafa auglýst eftir áhugasömum aðila til að útfæra og veita geðheilbrigðisþjónustu við fanga í öllum fangelsum landsins. Auknir fjármunir til að efla geðheilbrigðisþjónustu við fanga eru tryggðir í fjárlögum þessa árs.

    14. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál

    Nýmæli í þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri

    Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, fjallaði um ýmis nýmæli í þjónustu sjúkrahússins í ávarpi á ársfundi þess í liðinni viku. Hann sagði frá bættu vinnulagi sem hefur gert kleift að fjölga gerviliðaaðgerðum til muna og gerði einnig rafrænar lausnir og fjarþjónustu að umtalsefni. Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu sótti fundinn og flutti ávarp fyrir hönd heilbrigðisráðherra.

    14. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Frumvarp um þungunarrof samþykkt á Alþingi

    Frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um þungunarrof var samþykkt sem lög frá Alþingi í gær. Markmið laganna er að tryggja að sjálfsforræði kvenna sem óska eftir þungunarrofi sé virt með því að veita þeim öruggan aðgang að heilbrigðisþjónustu í samræmi við ákvæði laganna.

    14. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Norræn ráðstefna: JÖFNUÐUR - HEILSA - VELLÍÐAN

    Boðað er til ráðstefnu um jöfnuð, heilsu og vellíðan sem haldin verður í Reykjavík 29. maí 2019 í samvinnu við Norrænu ráðherranefndina. Skráning er hafin.

    10. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Frumvarp til nýrra lyfjalaga til umsagnar í samráðsgátt

    Drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til nýrra lyfjalaga eru komin til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda í kjölfar endurskoðunar. Umsagnarferli lýkur 3. júní næstkomandi.

    10. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Miklar breytingar með nýrri reglugerð um dvöl á sjúkrahóteli

    Heilbrigðisráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um dvöl á sjúkrahóteli. Nýja sjúkrahótelið við Hringbraut er tekið til starfa og voru fyrstu gestirnir innritaðir í byrjun vikunnar. Reglugerðin felur í sér grundvallarbreytingar sem rýmka verulega rétt fólks til að dvelja á sjúkrahóteli frá því sem verið hefur.

    09. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný lög um ófrjósemisaðgerðir

    Frumvarp heilbrigðisráðherra til laga um ófrjósemisaðgerðir hefur verið samþykkt á Alþingi. Með lögun er skýrt kveðið á um rétt fólks til ófrjósemisaðgerðir, að þær skuli vera gjaldfrjálsar og framkvæmdar af þeim sem hafa tilskilda menntun og reynslu.

    08. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar: Stöndum vörð um heilbrigðisþjónustuna

    „Það er stefna mín og lögbundin skylda að stofna ekki til samninga um veitingu heilbrigðisþjónustu sem vega að stoðum hins opinbera þjónustukerfis" skrifar Svandís Svavarsdóttir meðal annars í blaðagrein þar sem hún fjallar um ríkið sem kaupanda heilbrigðisþjónustu.

    07. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Brjóstapúðar áfram til skoðunar

    Athygli er vakin á tilkynningu Embættis landlæknis og Lyfjastofnunar varðandi brjóstapúða af ákveðinni gerð, vegna tengsla þeirra við sjaldgæft eitilfrumukrabbamein (BIA-ALCL; breast implant-associated anaplastic large cell lymphoma). Púðarnir sem sjónir hafa einkum beinst að eru með hrjúfu yfirborði og framleiddir af lyfjafyrirtækinu Allergan. Hætt var að selja þessa púða í Evrópu í lok síðasta árs, líkt og fram kom í tilkynningu frá Lyfjastofnun í desember síðastliðnum.

    06. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sjúkrahúsið á Akureyri hlýtur ISO-vottun, fyrst íslenskra heilbrigðisstofnana

    Sjúkrahúsið á Akureyri hefur fengið endunýjaða gæðavottun á starfsemi sinni sem það hlaut fyrst árið 2015, auk þess að hljóta nú vottun samkvæmt alþjóðlega gæðastaðlinum ISO 9001:2015. Sjúkrahúsið er fyrsta heilbrigðisstofnunin hér á landi sem hlýtur slíkar viðurkenningar.

    24. apr. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Tímamótasamstarf norrænna þjóða á sviði lyfjamála staðfest

    Samstarf Íslands, Danmerkur og Noregs á sviði lyfjamála var staðfest með undirritun samkomulags í Reykjavík í gær. Lægra lyfjaverð, öruggara framboð lyfja og þar með aukið öryggi sjúklinga er sá ávinningur sem stefnt er að með samstarfinu. Með þessu eru orðin að veruleika áform um samvinnu sem hafa verið á dagskrá í norrænu samstarfi um langt árabil.

    12. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Stuðningur við aldraða til sjálfstæðrar búsetu verði aukinn

    Efnt verður til samstarfsverkefnis með áherslu á heilsueflingu aldraða og markvissari þjónustu við þá sem þurfa stuðning til að geta búið á eigin heimili vegna heilsubrests. Ríkisstjórnin samþykkti tillögu heilbrigðisráðherra þessa efnis á fundi sínum í dag. Undirbúningur verkefnisins verður á hendi ráðuneyta heilbrigðis- forsætis- félags- og fjármála, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Embættis landlæknis og mun starfshópur þessara aðila skila tillögum um fyrirkomulag þess til heilbrigðisráðherra í júní næstkomandi.

    12. apr. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Dómsmálaráðuneytið

    Samstarf um stofnun og rekstur Bergsins Headspace - lágþröskuldaþjónustu fyrir ungt fólk

    Á grundvelli tillagna frá stýrihópi stjórnarráðsins í málefnum barna hafa félags- og barnamálaráðherra, heilbrigðisráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra, dómsmálaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ákveðið að taka þátt í samstarfi um stofnun og rekstur þverfaglegs móttöku- og stuðningsúrræðis fyrir ungt fólk. Um er að ræða tilraunaverkefni til tveggja ára og munu ráðherrarnir verja 30 milljónum króna á ári til verkefnisins þ.m.t. í formi stöðugilda.

    11. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Sameiginlegt norrænt útboð á lyfjum: Birting útboðsgagna

    Undirbúningi að fyrsta sameiginlega norræna lyfjaútboðinu er lokið og útboðsgögn hafa nú verið birt. Vonir standa til að samvinnan geti meðal annars aukið afhendingaröryggi lyfja sem skortur hefur verið á að undanförnu.

    10. apr. 2019Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegir, Samgöngur og fjarskipti, Vinnumál, Atvinnuvegaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Viðbrögð stjórnvalda vegna gjaldþrots WOW air

    Stjórnvöld hafa brugðist við með fjölmörgum aðgerðum frá því að flugfélagið WOW air hætti starfsemi 28. mars sl. Ráðherrar hafa fundað með fulltrúum vinnumálastofnana og heilbrigðisstofnana.

    09. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Samningur um göngudeildarþjónustu SÁÁ

    Heilbrigðisráðherra staðfesti nýlega samning milli Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ; sjúkrastofnunar um áfengis- og vímuefnameðferð, sem fjallar um þjónustu á göngudeildum SÁÁ í Reykjavík og á Akureyri.

    09. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra fjallaði um norræna baráttu gegn sýklalyfjaónæmi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra gerði grein fyrir vinnu Norrænu ráðherranefndarinnar gegn auknu sýklalyfjaónæmi á þingi Norðurlandaráðs sem haldið er í Kaupmannahöfn í dag. Norðurlandaþjóðirnar hafa aukið samstarf sitt í þessum efnum, enda er sýklalyfjaónæmi alvarlegt og vaxandi heilbrigðisvandamál í heiminum.

    09. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tækjakostur heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni efldur

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið skiptingu rúmlega 420 milljóna króna af fjárlögum sem varið verður til að efla tækjakost heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni þar sem endurnýjunarþörf er orðin brýn.

    05. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Aukin heilbrigðisþjónusta við fanga

    Fjárframlög til heilbrigðisþjónustu við fanga eru aukin og aðgengi að þjónustunni bætt með meiri viðveru heilbrigðisstarfsfólks samkvæmt nýgerðum samningi Sjúkratrygginga Íslands og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um heilbrigðisþjónustu í fangelsinu á Hólmsheiði. Samningsgerð er hafin um stórbætta geðheilbrigðisþjónustu í fangelsum landsins.

    05. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Forgangsröðun til að stytta bið sjúklinga eftir tilteknum aðgerðum

    Liðskiptaaðgerðir, augasteinsaðgerðir, tilteknar kvenlíffæraaðgerðir og brennsluaðgerðir vegna gáttatifs verða í forgangi við ráðstöfun 840 milljóna króna sem ætlaðar eru til að stytta bið sjúklinga eftir mikilvægum aðgerðum.

    03. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Runólfur Birgir Leifsson skipaður skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Runólf Birgi Leifsson skrifstofustjóra yfir skrifstofu hagmála og fjárlaga í heilbrigðisráðuneytinu. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við mat ráðgefandi nefndar sem skipuð var til að meta hæfni umsækjenda, líkt og kveðið er á um í lögum um Stjórnarráð Íslands.

    02. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tilraunaverkefni um bætt aðgengi að þjónustu sérgreinalækna á landsbyggðinni

    Íbúum í umdæmi Heilbrigðisstofnunar Austurlands hefur verið tryggt aðgengi að þjónustu bæklunarlækna og þvagfæraskurðlækna með samningum stofnunarinnar við Sjúkrahúsið á Akureyri og Landspítalann. Heilbrigðisráðuneytið hefur veitt stofnuninni 15 milljónir króna til að standa straum af samningunum í eitt ár.

    02. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Vilborg Þ. Hauksdóttir sett í tímabundna stöðu ráðuneytisstjóra

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett Vilborgu Þ. Hauksdóttur til að gegna stöðu ráðuneytisstjóra tímabundið frá 1. apríl til loka maí, eða þar til Ásta Valdimarsdóttir tekur við embættinu.

    02. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisþjónusta á Suðurnesjum efld vegna aukins atvinnuleysis

    Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fær aukna fjármuni til að efla ýmsa þætti í þjónustu sinni og laga hana að breyttum þörfum og aðstæðum íbúa vegna stóraukins atvinnuleysis á svæðinu. Ríkisstjórnin samþykkti tillögu Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra þessa efnis á fundi sínum í dag.

    29. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Óskar Reykdalsson skipaður forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Óskar Reykdalsson forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til fimm ára.

    28. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Norrænt samstarf, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Norrænt samstarf til bjargar slösuðum í kjölfar stórbruna

    Norðurlandaþjóðirnar hafa skipulagt formlegt samstarf sín á milli með viðbragðsáætlun sem unnt er að virkja ef margir slasast af völdum bruna. Samstarfið getur skipt sköpum við björgun mannslífa ef margir þarfnast sérhæfðrar meðferðar vegna alvarlegra brunasára. Fjallað var um samstarfið í tengslum við fund norrænna félags- og heilbrigðisráðherra í Reykjavík í gær.

    28. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Ásta Valdimarsdóttir verður ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Ástu Valdimarsdóttur, núverandi framkvæmdastjóra hjá Alþjóðahugverkastofnuninni í Genf, ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu til fimm ára. Ásta var meðal fjögurra umsækjenda sem lögskipuð hæfnisnefnd mat hæfasta til að gegna embættinu.

    27. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármálaáætlun

    Fjármálaáætlun og megináherslurnar í heilbrigðismálum

    Stórauknum fjármunum verður varið til að lækka greiðslubyrði sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu, styrkja geðheilbrigðisþjónustuna um allt land og efla heilbrigðisþjónustu við aldraða samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Áætlunin endurspeglar áherslur heilbrigðisráðherra og markmið heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

    27. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Framtíð Norðurlandaþjóða byggist á velferð barna og ungmenna

    Norrænt samstarf á sviði velferðarmála var í brennidepli þegar norrænir ráðherrar félags- og heilbrigðismála hittust á árlegum fundi sínum í dag sem að þessu var haldinn í Reykjavík. Sem fyrr kom glöggt fram á fundinum hvað norrænu þjóðirnar eru skyldar í mörgum efnum, hafa svipaðar áherslur og leggja allar sem ein ríka áherslu á velferðarkerfin sem einn af mikilvægustu hornsteinum samfélagsins. ​

    27. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Úthlutun 77 milljóna króna til verkefna á sviði heilbrigðismála

    Heilbrigðisráðherra úthlutaði í liðinni viku 77 milljónum króna til frjálsra félagasamtaka sem vinna að margvíslegum verkefnum á sviði heilbrigðismála. Að þessu sinni var áhersla lögð á styrki til verkefna sem lúta að geðheilbrigði barna og ungs fólks og verkefna í þágu fólks með heilabilun.

    27. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf, Formennska Íslands 2019

    Fullt hús á norrænni ráðstefnu um geðheilbrigði barna

    Á fimmta hundrað manns sækja norræna ráðstefnu um geðheilbrigði barna sem haldin verður á Grand hótel á morgun. Fjöldi manns er á biðlista. Streymt verður frá ráðstefnunni og vitað er að margir munu fylgjast með streyminu, hérlendis og erlendis.

    22. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýrari heimildir til kvörtunar vegna heilbrigðisþjónustu og einfaldari málsmeðferð

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti á fundi sínum í ríkisstjórn í morgun frumvarp sitt til breytinga á lögum um landlækni og lýðheilsu og lögum um réttindi sjúklinga. Markmið breytinganna er að skýra kvörtunarheimildir vegna heilbrigðisþjónustu og einfalda málsmeðferð í slíkum málum.

    21. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Úthlutun styrkja til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra veitti í dag rúmar tvær milljónir króna í styrki til fimm gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu. Verkefnin eru á ólíkum sviðum en hafa hvert og eitt skýran tilgang í þágu notenda þeirrar þjónustu sem um ræðir. „Metnaðarfull verkefni sem geta haft mikil áhrif“ sagði heilbrigðisráðherra við styrkveitinguna í dag.

    20. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heimild fyrir rekstri neyslurýma verði leidd í lög

    Frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra sem kveður á um lagaheimild til að stofna og reka neyslurými hefur verið lagt fram á Alþingi. Markmiðið með rekstri neyslurýma er að draga úr skaðlegum afleiðingum af notkun ávana- og fíkniefna.

    19. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa

    Um 90 milljónum króna úthlutað til lýðheilsuverkefna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra úthlutaði í dag tæpum 90 milljónum króna úr lýðheilsusjóði til fjölbreyttra verkefna og rannsókna um allt land. Alls hlutu styrki 172 verkefni á sviði geðræktar næringar, hreyfingar, tannverndar og áfengis- vímu- og tóbaksvarna.

    18. mar. 2019Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 2/2019

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis dags. 21. febrúar 2017, um að synja kæranda um heimild til að kvarta á grundvelli 2. mgr. 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007. Ráðuneytið felldi ákvörðun Embættis landlæknis úr gildi.

    14. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Vestnorrænir heilbrigðisráðherrar funduðu í Færeyjum

    Lyfjamál og mönnun heilbrigðisþjónustunnar voru þau málefni sem hæst bar á árlegum tveggja daga fundi heilbrigðisráðherra Íslands, Færeyja og Grænlands sem lauk í Færeyjum í gær. Ráðherrarnir ræddu meðal annars möguleika á samstarfi við menntun heilbrigðisstarfsfólks og mönnun heilbrigðisþjónustunnar.

    11. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Staðreyndir um mislinga á heimsvísu

    Dauðsföllum af völdum mislinga á heimsvísu fækkaði um 80% milli áranna 2000 og 2017 vegna aukinnar áherslu á bólusetningu. Áætlað er að bólusetning fyrir mislingum hafi komið í veg fyrir 21,1 milljón dauðsfalla á þessu árabili. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur tekið saman staðreyndir um mislinga og bólusetningu við þeim og segir stofnunin bólusetningu við sjúkdómnum með ábatasömustu fjárfestingum til að efla lýðheilsu.

    11. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um bætt skipulag krabbameinsskimana

    „Með markvissum skimunum er hægt að ná enn betri árangri í baráttunni gegn krabbameini" segir í blaðagrein Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í dag. Ráðherra fjallar þar um áformaðar breytingar á fyrirkomulagi skimana í samræmi við tillögur skimunarráðs og Embættis landlæknis sem tengjast einnig innleiðingu íslenskrar krabbameinsáætlunar.

    08. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Yfirlýsing vegna rekstrar og endurnýjunar sjúkrabíla

    Sjúkratryggingar Íslands hafa að ósk heilbrigðisráðuneytisins fengið opnun útboðs vegna kaupa á sjúkrabílum frestað fram í ágúst. Ástæðan eru samningaviðræður milli ráðuneytisins og Rauða krossins á Íslandi sem þarf að leiða til lykta, en forsenda þess að útboð geti farið fram er að samkomulag náist í viðræðum milli aðila. Heilbrigðisráðuneytið og Rauði krossinn hafa sammælst um eftirfarandi yfirlýsingu til upplýsingar um stöðu viðræðnanna.

    • First
    • Prev
    • 39
    • 40
    • 41
    • 42
    • 43
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband