Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2001–2050 af 3387
    Raða eftir:
    14. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Fullt út úr dyrum á málþingi um áhættumat erfðablöndunar

    Um 130 manns sóttu málþing um áhættumat vegna mögulegrar erfðablöndunar milli eldislaxa og náttúrulegra laxastofna á Íslandi sem Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, stóð fyrir í Sjávarútvegshúsinu í morgun.

    13. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Bein útsending á fimmtudagsmorgun frá málþingi um áhættumat erfðablöndunar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til málþings um áhættumat vegna mögulegrar erfðablöndunar milli eldislaxa og náttúrulegra laxastofna á Íslandi, fimmtudaginn 14. mars kl. 9:00. Málþingið fer fram í fyrirlestrasal á 1. hæð í Sjávarútvegshúsinu að Skúlagötu 4. Bein útsending verður frá málþinginu á vef Stjórnarráðsins.

    08. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Ræða Þórdísar Kolbrúnar á Iðnþingi

    Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ræddi m.a. mikilvægi nýsköpunar í ræðu sinni á Iðnþingi. Þar sagði hún að nýsköpunarstefna fyrir Ísland væri eitt mikilvægasta verkefni ríkisstjórnarinnar, vegna þess að aukin nýsköpun sé forsenda áframhaldandi verðmætasköpunar og velsældar.

    05. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Frumvarp um fiskeldi lagt fram á Alþingi

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á ýmsum lögum sem tengjast fiskeldi. Frumvarpið byggir á sáttmála ríkisstjórnarinnar og var við undirbúning þess byggt að verulegu leyti á skýrslu starfshóps um stefnumótun í fiskeldi sem skilaði tillögum sínum með skýrslu hinn 21. ágúst 2017.

    01. mar. 2019Atvinnuvegir, Sjávarútvegur, Rit og skýrslur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um viðbrögð vegna dóma Hæstaréttar um úthlutun aflaheimilda á makríl

    Með tveimur dómum Hæstaréttar Íslands í desember 2018 var viðurkennd skaðabótaábyrgð íslenska ríkisins vegna tjóns tveggja útgerðarfélaga, en talið var að á árunum 2011 til 2014 hafi skipum þeirra verið úthlutað minni aflaheimildum til veiða á makríl en skylt var samkvæmt lögum.

    28. feb. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Kristján Þór fundaði í Reykjavík í hádeginu og heldur fund á Norðurlandi í kvöld

    Þessa dagana heldur Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra opna fundi um frumvarp varðandi innflutning á m.a. ófrystu kjöti sem er til umsagnar á samráðsgátt stjórnvalda. Salurinn í Þjóðminjasafninu var sléttfullur í hádeginu í dag og að lokinni tölu ráðherra voru góðar og málefnalegar umræður. Í kvöld kl. 20 heldur ráðherra svo opinn fund í Félagsheimilinu Hlíðarbæ í Hörgársveit.

    26. feb. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    250 manns á fundi með landbúnaðarráðherra í Þingborg

    Um 250 manns sóttu opinn fund Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í félagsheimilinu Þingborg í Hraungerðishreppi í gærkvöldi. Tilefni fundarins var frumvarp sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda varðandi innflutning á m.a. ófrystu kjöti til að bregðast við dómum Hæstaréttar Íslands og EFTA-dómstólsins. Þetta var fyrsti fundurinn af fimm sem ráðherra heldur um þetta málefni um allt land á allra næstu dögum.

    25. feb. 2019Atvinnuvegir, Verslun, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aukið við rannsóknir á sviði verslunar

    Framlag til Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV) hækkar úr fjórum milljónum í sex milljónir króna samkvæmt samningi sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Árni Sverrir Hafsteinsson forstöðumaður RSV undirrituðu í dag.

    22. feb. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Leiðrétting á forsíðufrétt Morgunblaðsins

    Í fréttaskýringu Morgunblaðsins í dag kemur fram að í tengslum við frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um innflutning á m.a. ófrystu kjöti sé fyrirhugað að heimila dreifingu á ógerilsneyddum mjólkurafurðum. Vegna þessa vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið ítreka að ekki er fyrirhugað í tengslum við boðaðar breytingar að gera neinar breytingar á núgildandi regluverki um innflutning og dreifingu á ógerilsneyddum mjólkurvörum.

    20. feb. 2019Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aðgerðaráætlun í tengslum við frumvarp um innflutning landbúnaðarafurða frá EES-svæðinu

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur birt á samráðsgátt stjórnvalda frumvarp til laga um breytingu á lögum um matvæli og lögum um dýrasjúkdóma. Í frumvarpinu er kveðið á um afnám núverandi leyfisveitingakerfis vegna innflutnings á ákveðnum landbúnaðarafurðum innan Evrópska efnahagssvæðisins. Samhliða hefur ráðuneytið kynnt sérstaka aðgerðaráætlun til að bregðast við áhrifum dóma EFTA-dómstólsins og Hæstaréttar Íslands vegna skilyrða fyrir innflutningi á tilteknum landbúnaðarafurðum sem og lagabreytinganna.

    19. feb. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ákvörðun um hvalveiðar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur í dag undirritað reglugerð sem heimilar áframhaldandi veiðar á langreyði og hrefnu árin 2019–2023. Nær ákvörðunin til veiða á fimm ára tímabili, eins og fyrri reglugerð gerði.

    19. feb. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Skýrsla um endurskoðun á starfsumhverfi smálánafyrirtækja

    Starfshópur um endurskoðun á starfsumhverfi smálánafyrirtækja hefur skilað skýrslu og tillögum að aðgerðum til Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, en hún fól honum sl. sumar að kortleggja starfsumhverfi smálánafyrirtækja og leggja fram tillögur til úrbóta. Lögð var áhersla á að í hópnum sætu fulltrúar ólíkra fagaðila.

    18. feb. 2019Rit og skýrslur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Minnisblað Hafrannsóknastofnunar um hvalveiðar

    Í kjölfar útkomu skýrslu Hagfræðistofnunar um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða sem kom út 16. janúar, óskaði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eftir áliti Hafrannsóknastofnunar á þeim vistfræðilegu forsendum sem Hagfræðistofnun grundvallar niðurstöður sínar á.

    18. feb. 2019Atvinnuvegir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Minnisblað Hafrannsóknastofnunar um hvalveiðar

    Í kjölfar útkomu skýrslu Hagfræðistofnunar um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða sem kom út 16. janúar, óskaði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eftir áliti Hafrannsóknastofnunar á þeim vistfræðilegu forsendum sem Hagfræðistofnun grundvallar niðurstöður sínar á.

    11. feb. 2019Umhverfi og náttúruvernd, Neytendamál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Breytingar á efnalögum í samráðsferli

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum við drög að breytingu á efnalögum. Breytingarnar eru m.a. til komnar vegna innleiðingar EES-löggjafar sem tengist fullgildingu Minamata-samningsins hér á landi.

    08. feb. 2019Forsætisráðuneytið, Neytendamál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ríkisstjórnin fjallar um matvælastefnu fyrir Ísland

    Ríkisstjórnin fjallaði á fundi sínum í morgun um vinnu að matvælastefnu fyrir Ísland.

    08. feb. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Líf og heilsa, Atvinnuvegir, Heilbrigðisráðuneytið

    Sameiginlegt átak til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra undirrituðu í dag yfirlýsingu um sameiginlegt átak til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, Alþjóðadýraheilbrigðismálastofnuninni, Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins og Matvælaöryggisstofnun Evrópusambandsins er útbreiðsla sýklalyfjaónæmis ein helsta heilbrigðisógn sem steðjar að mönnum. Sýklalyfjaónæmi á Íslandi hefur verið umtalsvert minna vandamál en í nálægum löndum en mikilvægt þykir að stemma stigu við frekari útbreiðslu.

    01. feb. 2019Neytendamál, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Átak um betri merkingar matvæla

    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Bændasamtök Íslands, Neytendasamtökin, Samtök verslunar og þjónustu og Samtök iðnaðarins undirrituðu í dag samkomulag ​um að gera gangskör í því að bæta merkingar á matvælum og tryggja þannig betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif þeirra.

    31. jan. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Skýrsla starfshóps um úthlutun tollkvóta

    Starfshópur um úthlutun tollkvóta landbúnaðarvara hefur skilað skýrslu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Í skýrslunni leggur meirihluti hópsins til breytingar á núverandi útboðskerfi þar sem tollkvótum er úthlutað til hæstbjóðanda og í stað þess verði farin svokölluð „hollensk útboðsleið“. Reikna má með að samkvæmt þeirri útboðsleið gæti kostnaður vegna útboða tollkvóta lækkað talsvert og ávinningur neytenda aukast frá því sem nú er. Jafnframt leggur hópurinn til að allur úthlutunarferill tollkvóta verði nútímavæddur og fari fram með rafrænum hætti.

    31. jan. 2019Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um úthlutun tollkvóta

    Starfshópur um úthlutun tollkvóta landbúnaðarvara hefur skilað skýrslu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    31. jan. 2019Úrskurðir, Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ákvörðun Fiskistofu, dags. 25. janúar 2018, um að svipta skipið [S] almennu veiðileyfi í eina viku og breyta aflaskráningu.

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru [X hdl.] f.h. [Y ehf.], dags. 21. febrúar 2018, þar sem kærð er ákvörðun Fiskistofu, dags. 25. janúar 2018, um að svipta skipið [S] almennu veiðileyfi í eina viku og breyta aflaskráningu.

    28. jan. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Landbúnaður, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Atvinnuvegaráðuneytið

    Loftslagsvænni landbúnaður ræddur í ríkisstjórn

    Umhverfis- og auðlindaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafa kynnt í ríkisstjórn ramma um samstarfsverkefni við sauðfjárbændur um loftslagsvænni landbúnað en í stjórnarsáttmála er kveðið á um samstarfsverkefni stjórnvalda og sauðfjárbænda um aðgerðir í loftslagsmálum.

    21. jan. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Styrkir til þátttöku í sumarnámskeiði Ródos-akademíunnar í hafrétti

    Hafréttarstofnun auglýsir til umsóknar styrki til þátttöku í sumarnámskeiði Ródos-akademíunnar í hafrétti 30. júní - 19. júlí 2019.

    17. jan. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Nú eru löggiltir endurskoðendur orðnir alls 320

    Tíu einstaklingar fengu í gær réttindi til að kalla sig löggilta endurskoðendur. Þar með eru löggiltir endurskoðendur á Íslandi orðnir alls 320.

    16. jan. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Hagfræðistofnun skilar skýrslu um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða

    Síðastliðið vor óskaði Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eftir því við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að hún myndi meta þjóðhagsleg áhrif hvalveiða. Hagfræðistofnun hefur nú skilað skýrslu til ráðherra og er meginniðurstaða hennar að „Þegar allt er skoðað virðast hvalveiðar vera hluti af hagkvæmri nýtingu náttúruauðlinda landsmanna. Rök hníga til þess að hagkvæmt sé fyrir þjóðarhag að haldið verði áfram að veiða hvali.“

    16. jan. 2019Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skýrsla Hagfræðistofnunar um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða og greinargerða Hafrannsóknastofnunar um mat á fæðuþörf hvala

    Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra óskaði eftir því við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vorið 2018 að hún myndi meta þjóðhagsleg áhrif hvalveiða. Við gerð skýrslunnar leit Hagfræðistofnun til fjölmargra þátta, s.s. afkomu og umsvifa af hvalveiðum og hvalaskoðun, áhrif hvalveiða á aðra nytjastofna og efnahagsleg áhrif m.a. á ferðaþjónustu og útflutningsgreinar.

    16. jan. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Íslenskum stjórnvöldum er heimilt að setja viðbótartryggingar vegna salmonellu

    Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur heimilað íslenskum stjórnvöldum að setja sérstakar viðbótartryggingar vegna salmonellu í kjúklingakjöti, hænueggjum og í kalkúnakjöti. Þetta felur í sér að við innflutning á þessum matvælum skuli fylgja vottorð sem byggi á sérstökum salmonella rannsóknum á viðkomandi vöru áður en hún er flutt til landsins frá öðrum EES löndum.

    11. jan. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Endurskoðun samnings um starfsskilyrði sauðfjárræktarinnar. Frelsi sauðfjárbænda aukið og stuðlað að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar á markaði með sauðfjárafurðir.

    Fulltrúar Bændasamtaka Íslands og stjórnvalda hafa skrifað undir samkomulag um endurskoðun á samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktarinnar. Markmið samkomulagsins er meðal annars að stuðla að auknu jafnvægi framboðs og eftirspurnar á markaði með sauðfjárafurðir, auka frelsi sauðfjárbænda og að auðveldara verði að takast á við sveiflur í ytra og innra umhverfi greinarinnar. Áhersla er lögð á að auðvelda aðlögun að breyttum búskaparháttum eða nýrri starfsemi með sérstökum aðlögunarsamningum. Þær breytingar sem gerðar eru á samningnum kalla ekki á aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.

    10. jan. 2019Úrskurðir ferðaþjónusta, Úrskurðir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Úrskurður vegna ákvörðunar Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að synja umsókn kæranda um skráningu heimagistingar.

    Synjun á skráningu heimagistingar. Skilyrði skráningar heimagistingar. Lögheimili. Eignarheimild. Þinglýstur eigandi.

    04. jan. 2019Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ný lög um Ferðamálastofu og pakkaferðir tóku gildi um áramótin

    Tvenn lög á sviði ferðamála tóku gildi um áramótin, þ.e. lög um Ferðamálastofu og lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun.

    20. des. 2018Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Þak sett á magn greiðslumarks mjólkur

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag fjórar reglugerðir um stuðning við nautgriparækt, sauðfjárrækt, garðyrkju og landbúnað. Er þetta í samræmi við ákvæði búvörusamninga frá 2016 og eru reglugerðirnar endurskoðaðar árlega

    19. des. 2018Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða, Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður

    Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið janúar – júní 2019

    Föstudaginn 14. desember 2018 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópubandalaginu samkvæmt reglugerð nr. 1045/2018 fyrir tímabilið janúar – júní 2019.

    19. des. 2018Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kvótaákvörðun fyrir kolmunna og norsk-íslenska síld 2019

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag reglugerðir um heildarkvóta Íslands í kolmunna og norsk-íslenskri síld fyrir árið 2019. Ekki er í reglugerðinni gert ráð fyrir heimild til handa íslenskum skipum til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld í færeyskri lögsögu árið 2019.

    19. des. 2018Atvinnuvegaráðuneytið, Úrskurðir um matvæli og landbúnað, Úrskurðir

    Ákvörðun Matvælastofnunar frá 22. júlí 2017 um að synja um veitingu leyfis fyrir geymslu á lambshornum

    Matvælastofnun, stjórnsýslulög, fóðurframleiðsla, aukaafurðir dýra, endurupptaka.

    17. des. 2018Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Reglugerð um Umhverfissjóð sjókvíaeldis

    ​Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um Umhverfissjóð sjókvíaeldis, en sjóðurinn starfar samkvæmt lögum nr. 71/2008 um fiskeldi. Með setningu reglugerðarinnar er stjórnsýsla sjóðsins styrkt og gagnsæi ákvarðana við úthlutanir úr honum aukið.

    16. des. 2018Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Til umsagnar: Drög að reglugerð um tryggingar vegna pakkaferða og samtengdrar ferðatilhögunar

    Ný lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun taka gildi 1. janúar nk. Í tengslum við þau óskar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið eftir umsögnum um drög að reglugerð um tryggingar vegna pakkaferða og samtengdrar ferðatilhögunar sem mun koma í stað eldri reglna um bókhald og reikningsskil ferðaskrifstofa.

    13. des. 2018Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða, Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður

    Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2019

    Föstudaginn 30. nóvember 2018 rann út umsóknarfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2019, samtals 13.000 kg., sbr. reglugerð nr. 1026/2018.

    13. des. 2018Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða, Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður

    Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2019

    Mánudaginn 10. desember 2018 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2019, sbr. reglugerð nr. 1025/2018.

    06. des. 2018Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Íslenska ríkið skaðabótaskylt vegna úthlutunar veiðiheimilda á makríl árin 2011-2014

    Með dómunum var viðurkennt að skylt hafi verið árið 2011 að úthluta aflamarki til veiðanna og að veiðireynsla hafi talist samfelld á þeim tíma. Með þessu var álitið að fyrirkomulag veiðileyfa samkvæmt árlegum reglugerðum sjávarútvegsráðherra frá 2010-2013 um stjórn veiðanna, sem fólu í sér úthlutun til fleiri aðila en þeirra einna sem verið höfðu að veiðunum 2007-2010, hafi ekki samrýmst lögum.

    29. nóv. 2018Atvinnuvegaráðuneytið, Úrskurðir, Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi

    Ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2017/2018 (útgerðarfélag IV).

    Byggðakvóti. Úthlutun aflaheimilda. Skilyrði fyrir úthlutun. Leyfi til veiða í atvinnuskyni

    27. nóv. 2018Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur

    14.305 tonnum úthlutað í sértækan og almennan byggðakvóta

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur úthlutað alls 14.305 tonnum í sértækan og almennan byggðakvóta en samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða er 5,3% af heildarafla í hverri fisktegund dregið af leyfilegum heildarafla og varið til ýmissa tímabundinna ráðstafana til þess að auka byggðafestu.

    16. nóv. 2018Atvinnuvegaráðuneytið

    Reglugerð um vöktun á sýklalyfjaþoli

    Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur gefið út reglugerð um vöktun á sýklalyfjaþoli. Reglugerðin mælir fyrir um sýnatökur og skýrslugjöf á þoli gegn sýklalyfjum sem greinast í dýrum, dýraafurðum eða matvælum, fóðurefnum til fóðurgerðar, fóðri, fiskimjöli, vatni, umhverfi eða öðrum sýnum sem tengjast eftirliti Matvælastofnunar og heilbrigðisnefnda sveitarfélaga.

    14. nóv. 2018Umhverfi og náttúruvernd, Neytendamál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Frumvarp um takmörkun á notkun burðarpoka úr plasti í samráðsferli

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um frumvarp vegna breytinga á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Með frumvarpinu er innleidd Evróputilskipun er lýtur að því að draga úr notkun á þunnum burðarpokum úr plasti.

    13. nóv. 2018Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Neytendamál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir í samráðsferli

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um frumvarp vegna breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Með breytingunni fá stjórnvöld heimild til að leggja á stjórnvaldssektir vegna brota á lögunum sem og lögum um meðhöndlun úrgangs.

    09. nóv. 2018Ferðaþjónusta, Atvinnuvegaráðuneytið

    Heimagistingarvaktin skilar árangri: 80% fjölgun á skráðum heimagistingum

    Til að tryggja rétta skráningu og bæta eftirlit heimagistingar, var Heimagistingarvakt efld með sérstakri fjárveitingu ferðamálaráðherra síðasta sumar. Hún hefur nú þegar skilað árangri.

    05. nóv. 2018Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi

    Arctic Sea Farm og Fjarðalax fá rekstrarleyfi til bráðabirgða

    Fiskeldisfyrirtækin Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax hf. hafa fengið rekstrarleyfi til bráðabirgða til 10 mánaða fyrir laxeldi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði, samkvæmt ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    01. nóv. 2018Umhverfi og náttúruvernd, Neytendamál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Tillögur í plastmálum afhentar ráðherra

    Samráðsvettvangur um aðgerðaáætlun í plastmálefnum hefur skilað umhverfis- og auðlindaráðherra tillögu að aðgerðaáætlun um hvernig draga má úr notkun plasts, bæta endurvinnslu þess og takast á við plastmengun í hafi. Alls er um 18 aðgerðir að ræða.

    19. okt. 2018Atvinnuvegaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Landbúnaður

    Ríkið tekur yfir lífeyrisskuldbindingar Bændasamtaka Íslands – enginn kostnaðarauki því samhliða

    Frá næstu áramótum mun ríkið taka yfir lífeyrisskuldbindingar Bændasamtakanna að upphæð 172 m.kr. samkvæmt samningi sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna og framkvæmdastjóri LSR undirrituðu í dag. Samkvæmt samningnum mun framlag ríkisins vegna búvörusamninga lækka árlega um samsvarandi fjárhæð frá og með árinu 2019.

    18. okt. 2018Ferðaþjónusta, Atvinnuvegaráðuneytið

    Breytingar á lögum um heimagistingu á samráðsgátt stjórnvalda

    Ferðamálaráðherra hefur birt á samráðsgátt stjórnvalda frumvarp til laga sem breytir ákvæðum varðandi heimagistingu. Breytingarnar sem lagðar eru til varða allar starfssvið Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu sem hefur umsjón með skráningu og eftirliti á heimagistingu. Frumvarpið verður í opnu samráði til 24. október nk.

    17. okt. 2018Atvinnuvegaráðuneytið

    Samningur um samstarf á milli Íslands og Kína á sviði einkaleyfa og vörumerkja

    Á fundi ráðherranna kom fram að íslensk fyrirtæki eru í auknu mæli að sækja um einkaleyfi og vernd vörumerkja í Kína og er eitt af markmiðum samstarfssamningsins að liðka fyrir því og hvetja til þess.

    • First
    • Prev
    • 39
    • 40
    • 41
    • 42
    • 43
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband