Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 201–250 af 2976
    Raða eftir:
    28. jan. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 3/2026

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis að svipta lækni starfsleyfi á grundvelli 2. mgr. 15. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 14/2007. Ákvörðun landlæknis var á þeim grunni byggð að kærandi hefði brotið alvarlega gegn starfsskyldum sínum með því að standa að ólögmætum rekstri heilbrigðisþjónustu ásamt því að sýna af sér tómlæti og virðingarleysi við skyldur sínar sem heilbrigðisstarfsmaður. Að mati ráðuneytisins var ljóst að veiting áminningar skv. 14. gr. laga um landlækni og lýðheilsu hefði ekki náð því markmiði sem að var stefnt að með ákvörðuninni, þ.e. að tryggja öryggi sjúklinga og gæði heilbrigðisþjónustu. Ákvörðun embættis landlæknis um að svipta kæranda starfsleyfi var því staðfest.

    28. jan. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Elísabet Benedikz settur landlæknir

    Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur sett Elísabetu Benedikz tímabundið í embætti landlæknis á meðan María Heimisdóttir landlæknir er í veikindaleyfi.

    28. jan. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 4/2026

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun færni- og heilsumatsnefndar höfuðborgarsvæðisins um að synja einstaklingi um færni- og heilsumat. Kærandi byggði á að synjun á færni- og heilsumats hafi komið í veg fyrir að hann gæti fengið þá meðferð sem hann þurfi á að halda en jafnframt auki það líkurnar á því að hann fái þjónustu nær aðstandendum sínum ef hann fái slíkt mat. Færni- og heilsumatsnefnd byggði á að kærandi væri haldin sjúkdómi sem líkur væru á að hann læknaðist af að hluta til eða öllu leyti. Færni- og heilsumat gæti þ.a.l. ekki átt sér stað fyrr en ástand hans væri viðvarandi. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að kærandi hefði þá fengið tímabundna vistun í hjúkrunarrými en sú ákvörðun væri ekki til meðferðar hjá ráðuneytinu.…

    26. jan. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 19.- 23. janúar 2026

    26 janúar 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 19. - 23. janúar 2026 19

    21. jan. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Drög að stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til umsagnar

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til ársins 2035. Stefnudrögin eru unnin af starfshópi heilbrigðisráðherra sem skilaði ráðherra skýrslu sinni fyrir skömmu. Umsagnarfrestur er til 11. febrúar næstkomandi.

    21. jan. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælaborð um aðgerðir í geðheilbrigðismálum

    Heilbrigðisráðuneytið vinnur að framkvæmd aðgerðaáætlunar í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023–2027, sem byggir á samþykktri stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030. Í aðgerðaáætluninni eru skilgreindar 27 aðgerðir sem miða að því að efla geðheilbrigðisþjónustu, auka aðgengi og stuðla að heildstæðri og notendamiðaðri þjónustu. Til að auka gagnsæi og aðgengi að upplýsingum um framgang aðgerðanna hefur ráðuneytið sett upp mælaborð geðheilbrigðismála. Mælaborðið veitir yfirsýn yfir stöðu verkefna, helstu mælikvarða og framvindu og er ætlað almenningi og fagfólki sem vilja fylgjast með þróun í málaflokknum.

    19. jan. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 12.- 16. janúar 2026

    19 janúar 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 12. - 16. janúar 2026 15

    16. jan. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 2/2026

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að vísa frá tilkynningu kæranda um alvarlegt atvik. Kærandi byggði á því að atvikið hefði sannarlega verið alvarlegt, þá hefði hann að auki heimild til að tilkynna atvikið samkvæmt 10. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, sbr. einnig 4. gr. laga nr. 103/2023. Embættinu hafi því borið að taka tilkynningu hans til efnislegrar meðferðar. Embættið byggði ákvörðun sína á því að atvikið hefði gerst fyrir gildistöku laga nr. 103/2023. Fyrir þann tíma hefði sjúklingi ekki verið heimilt að tilkynna alvarlegt atvik til embættisins. Af þeim sökum aðallega vísaði embættið tilkynningu kæranda frá.…

    15. jan. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili Hrafnistu opnað í Reykjanesbæ

    Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili var opnað við Nesvelli í Reykjanesbæ í dag. Opnun heimilisins er mikilvægur áfangi í uppbyggingu hjúkrunarrýma um land allt. Hjúkrunarheimilið er samtengt Hrafnistu Nesvöllum sem er 60 rýma hjúkrunarheimili með heildstæðri þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara. Heildarfjöldi rýma á hjúkrunarheimilum á Suðurnesjum er nú orðinn 140.

    15. jan. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili Hrafnistu opnað í Reykjanesbæ

    Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili var opnað við Nesvelli í Reykjanesbæ í dag. Opnun heimilisins er mikilvægur áfangi í uppbyggingu hjúkrunarrýma um land allt. Hjúkrunarheimilið er samtengt Hrafnistu Nesvöllum sem er 60 rýma hjúkrunarheimili með heildstæðri þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara. Heildarfjöldi rýma á hjúkrunarheimilum á Suðurnesjum er nú orðinn 140.

    12. jan. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aukið fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar í Krýsuvík og Hlaðgerðarkoti

    Undirritaðir hafa verið uppfærðir þjónustusamningar heilbrigðisráðuneytisins við Krýsuvík og Hlaðgerðakot fyrir árið 2026. Á báðum stöðum er veitt þjónusta fyrir einstaklinga sem þurfa langtímameðferð vegna vímuefnavanda. Í fjárlögum 2026 er veitt auknu fjármagni til meðferðar vegna fíknivanda í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Það gerir m.a. kleift að efla meðferðina í Krýsuvík og Hlaðgerðarkoti. Samanlegt fjármagn til þeirra verður rúmar 550 m.kr. á þessu ári sem er nærri 20% aukning frá síðasta ári.

    09. jan. 2026Innviðaráðuneytið, Umferð, Samgöngur, Heilbrigðisráðuneytið

    Samráðsgátt: Aldursmörk fyrir útgáfu ökuskírteina án læknisvottorðs hækkuð í 75 ár

    Í samráðsgátt stjórnvalda eru nú kynnt drög að breytingum á reglugerð um ökuskírteini (nr. 830/2011).

    07. jan. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni styrktar til tækjakaupa

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að úthluta heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni samtals 77 milljónum króna til endurnýjunar á tækjabúnaði. Ráðstöfun fjárins byggist á forgangsröðun í samræmi við brýnustu þarfir stofnananna. Víða er uppsöfnuð innviðaskuld sem mikilvægt er að mæta til að efla viðbragðsgetu stofnananna, tryggja gæði þjónustu og öryggi sjúklinga, bæta greiningar- og meðferðargetu og stuðla að hagkvæmari rekstri.

    07. jan. 2026Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun 2026-2027 með mönnunarstefnu í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030

    júlí 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun 2026-2027 með mönnunarstefnu í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 Aðgerðaáætlun 2026-2027 með mönnunarstefnu í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030

    07. jan. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Átak um bólusetningu gegn HPV veirunni

    Sóttvarnalæknir er að hefja átak um bólusetningu drengja sem fæddir eru árin 2008-2010 og verður bólusetning þessara árganga gjaldfrjáls í vetur. Sýnt hefur verið fram á að HPV bólusetning er mikilvæg leið til að fækka krabbameinstilfellum. Bólusetning gegn HPV veirunni hófst hér á landi árið 2011, fyrst eingöngu hjá stúlkum en hefur síðan verið útvíkkuð og fyrir tveimur árum var farið að bjóða slíka bólusetningu óháð kyni fyrir tiltekna aldurshópa. Síðastliðið sumar ákvað Alma D. Möller heilbrigðisráðherra að veita fjármagn til kaupa á HPV bóluefni fyrir óbólusetta drengi upp í 18 ára aldur. Átak fyrir árgang 2010 fór af stað hjá heilsugæslu síðastliðið haust og nú fer að koma að árgöngum sem komnir eru á næsta skólastig.

    06. jan. 2026Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Ný upplýsingagátt um almyrkvann

    Ný upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst er kominn í loftið á Ísland.is. Þar eru á einum stað upplýsingar um allt sem snertir almyrkvann og svör við spurningum sem kunna að brenna á fólki; hvar er best að fylgjast með almyrkvanum, hvenær verður hann og hvernig á að bera sig að þegar fylgst er með honum en líka hvort og hvar verður gripið til takmarkana á umferð og hvaða götur verða lokaðar.

    05. jan. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Meðferð við kæfisvefni – biðtími styttist úr sjö mánuðum í einn

    Með markvissri aðgerðaáætlun og innleiðingu á nýju verklagi tókst Svefnmiðstöð Landspítala á liðnu ári að stytta bið einstaklinga eftir meðferð við kæfisvefni úr sjö mánuðum í einn. Biðtíminn er nú innan þjónustumarkmiða. Tölur benda einnig til þess að meðferðarheldni þeirra sem hefja meðferð hafi aukist umtalsvert, eða um 20% á milli ára.

    05. jan. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 29. desember 2025- 2. janúar 2026

    05 janúar 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 29. desember 2025- 2. janúar 2026 29

    05. jan. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 1/2026

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að taka kvörtun kæranda ekki til frekari efnislegrar meðferðar. Kærandi byggði á að skaðinn sem hún lenti í hafi ekki stafað af þekktum fylgikvilla. Þá hefði Embættinu borið að rannsaka mál hennar betur og kalla í því skyni eftir umsögn óháðs sérfræðings. Embætti landlæknis byggði á að samkvæmt 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, sbr. 6. gr. laga nr. 103/2023 væri markmið með kvörtunarmálum að auka gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu. Mál kæranda félli ekki undir þau viðmið eftir rannsókn embættisins á málsatvikum þess. Kærandi hefði orðið fyrir sjaldgæfum en þekktum fylgikvilla. Gögn málsins bentu til þess að ekki hefði verið um mistök eða vanrækslu að ræða.…

    31. des. 2025Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um mönnun á hjúkrunarheimilum

    desember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun um mönnun á hjúkrunarheimilum Aðgerðaáætlun um mönnun á hjúkrunarheimilum (október 2025)

    30. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðuneytið styrkir innleiðingu Solihull – Togetherness á Íslandi

    Heilbrigðisráðuneytið hefur veitt Geðverndarfélagi Íslands 8 milljóna króna styrk til að styðja við þýðingu og aðgengi að fræðslu- og námskeiðsefni úr hugmyndafræðinni Solihull - Togetherness, sem miðar að því að efla geðheilbrigði, tengslamyndun og farsæld barna og fjölskyldna með snemmtækum og forvarnamiðuðum aðgerðum.

    29. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Skjólshús sett á fót – nýtt úrræði í geðheilbrigðisþjónustu

    Í dag skrifuðu félags- og húsnæðismálaráðherra og heilbrigðisráðherra undir samstarfssamning við landssamtökin Geðhjálp um stofnun skjólshúss fyrir fólk í tilfinningalegri krísu vegna andlegra áskorana. Um er að ræða tilraunaverkefni til þriggja ára þar sem ráðuneytin tvö leggja til samtals 122 m.kr. á móti 150-180 m.kr. framlagi Geðhjálpar. Stefnt er að því að opna skjólshúsið á fyrri hluta næsta árs (2026).

    29. des. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 22.- 26. desember 2025

    29 desember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 22. - 26. desember 2025 22

    22. des. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 15.- 19. desember 2025

    22 desember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 15. - 19. desember 2025 15

    21. des. 2025Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir

    21 desember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra Grein birt á Visir. is 21

    19. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tímamótasamningur tryggir heildstæða og aðgengilegri meðferð við fíknsjúkdómi

    ​Sjúkratryggingar og SÁÁ hafa undirritað nýjan heildarsamning um meðferð við fíknsjúkdómi. Samningurinn markar tímamót í íslenskri heilbrigðisþjónustu og felur í sér mikilvæga viðurkenningu á fíknsjúkdómi sem alvarlegum og langvinnum heilbrigðisvanda sem krefst samfelldrar og faglegrar meðferðar.

    19. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur um þjónustu Frú Ragnheiðar með stórauknu fjármagni

    Sjúkratryggingar Íslands og Rauði krossinn á Íslandi hafa gert með sér samkomulag um framlengdan og breyttan samning um skaðaminnkandi þjónustu Frú Ragnheiðar fyrir einstaklinga með vímuefnavanda. Fjármagn til starfseminnar hækkar úr tæpum 23 milljónum króna í 50 milljónir króna á ársgrundvelli. „Eins og fram kemur í stjórnarsáttmála leggur ríkisstjórnin sérstaka áherslu á að efla meðferðarúrræði vegna fíknivanda og auka fjármagn til málaflokksins. Skaðaminnkun og lágþröskuldaþjónusta í nærumhverfi þeirra viðkvæmu einstaklinga sem Frú Ragnheiður sinnir er liður í því að bæta þjónustu við fólk sem glímir við fíkn og mikilvægt fyrir samfélagið allt,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

    19. des. 2025Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Mat Sóttvarnastofnunar Evrópu á viðbúnaði Íslands við bráðum lýðheilsuógnum

    desember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Mat Sóttvarnastofnunar Evrópu á viðbúnaði Íslands við bráðum lýðheilsuógnum Fulltrúar Sóttvarnastofnunar Evrópu (ECDC), Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og Evrópusambandsins (EU) luku mati á stöðu heilbrigðisviðbúnaðar Íslands við bráðum lýðheilsuógnum haustið 2025. Matið var unnið í samræmi við ákvæði reglugerðar ESB um alvarlegar heilbrigðisógnir þvert á landamæri

    18. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heimsókn geðheilbrigðisráðherra Írlands – upphaf að samstarfi frændþjóða

    Mary Butler, geðheilbrigðisráðherra Írlands kom nýverið í heimsókn til Íslands til að efla samvinnu í geðheilbrigðismálum, deila reynslu og lausnum í þeim áskorunum sem þjóðirnar standa frammi fyrir. Það var heilbrigðisráðherra Ölmu D. Möller sönn ánægja að taka á móti Mary Butler og sendinefnd hennar. Sérfræðingar heilbrigðisráðuneytisins, heilbrigðisþjónustunnar og fulltrúar hagsmunasamtaka kynntu íslenska stefnumótun á sviðinu, þjónustu, áskoranir og tækifæri. Ráðuneytið færir þeim þakkir fyrir þeirra góðu kynningar og gagnlegu umræður.

    18. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mat á heilbrigðisviðbúnaði Íslands við bráðum lýðheilsuógnum

    Heilbrigðisráðuneytið birtir íslenska þýðingu á mati á stöðu heilbrigðisviðbúnaðar Íslands við bráðum lýðheilsuógnum. Matið var unnið í samræmi við ákvæði reglugerðar ESB um alvarlegar heilbrigðisógnir þvert á landamæri.

    15. des. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 8.- 12. desember 2025

    15 desember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 8. - 12. desember 2025 8

    11. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Inflúensufaraldur á uppleið – einstaklingar í áhættuhópum hvattir til bólusetningar

    Einstaklingar í áhættuhópum eru hvattir til að þiggja bólusetningu gegn inflúensu, einnig þótt þeir hafi þegar veikst af inflúensu í haust eða vetur. Heilbrigðisstofnanir og hjúkrunarheimili eru hvött til að gera eigin ráðstafanir varðandi almennar sóttvarnir til að minnka smitdreifingu innan stofnunar á flensutímanum. Inflúensan er fyrr á ferðinni en síðastliðna vetur, faraldurinn stendur yfir og er enn á uppleið. Fyrstu vikuna í desember lágu 27 einstaklingar á Landspítala með inflúensu.

    08. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vill draga úr vottorðaskrifum vegna veikindafjarvista

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra telur brýnt að skoða með haghöfum hvernig fækka megi veikindavottorðum og breyta verklagi við útgáfu þeirra með skilvirkni og gæði þjónustunnar að leiðarljósi. Heilbrigðisráðuneytið vinnur að því að fækka útgáfum vottorða og tilvísana til að draga úr skriffinnsku og hafa þegar verið stigin skref í þá átt. Markmiðið er að auka tíma lækna og annars heilbrigðisstarfsfólks til að sinna sjúklingum, bæta þannig aðgengi að heilsugæslunni og styrkja hlutverk hennar sem fyrsta viðkomustaðar fólks í heilbrigðiskerfinu.

    08. des. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 1.- 5. desember 2025

    08 desember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 1. - 5. desember 2025 1

    05. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Drög að frumvarpi um viðbrögð við lyfjaskorti o.fl.

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að frumvarpi sem hefur að meginmarkmiði að veita Lyfjastofnun heimildir til að bregðast við lyfjaskorti. Frumvarpsdrögin eru að miklu leyti samhljóma frumvarpi sem lagt var fram á Alþingi á 156. löggjafarþingi en þó með breytingum sem raktar eru í greinargerð. Umsagnarfrestur er til 2. janúar.

    02. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sigurður Þórarinsson skipaður forstöðumaður Stafrænnar heilsu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað Sigurð Þórarinsson, tækni- og nýsköpunarstjóra Landspítala, í embætti forstöðumanns Stafrænnar heilsu – þróunar- og þjónustumiðstöðvar sem tekur til starfa 1. janúar 2026. Stafræn heilsa verður miðlæg þróunar- og þjónustumiðstöð fyrir allt heilbrigðiskerfið, starfrækt sem hluti af heilbrigðisráðuneytinu á grundvelli 17. gr. laga um Stjórnarráð Íslands. Þar verða sameinuð verkefni sem áður hafa verið dreifð, t.d. hjá Landspítala, embætti landlæknis, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilbrigðisþjónustu og ráðuneytinu. Í hinni nýju einingu verður einnig áhersla á starfræna nýsköpun þar með talið samskipti og stuðning við aðila á markaði.

    01. des. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 24.- 30. nóvember 2025

    01 desember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 24. - 30. nóvember 2025 24

    27. nóv. 2025Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 15/2025

    Útdráttur: Kærandi kærði málsmeðferð embættis landlæknis í kvörtunarmáli. Kærandi byggði á að matslæknir hafi sýnt af sér ótilhlýðilega framkomu árið 2022. Einnig byggði kærandi á að hann hefði orðið fyrir vanrækslu við veitingu heilbrigðisþjónustu árið 2014 í kjölfar vinnuslyss. Í niðurstöðu embættis landlæknis kom fram að starf matslæknis væri ekki veiting heilbrigðisþjónustu var þeim þætti kvörtunarinnar vísað frá embættinu. Þá hefði ekkert bent til þess í sjúkraskrárgögnum kæranda að vanræksla hefði átt sér stað árið 2014. Í niðurstöðu ráðuneytisins féllst ráðuneytið á þá niðurstöðu embættis landlæknis að kærandi hafi ekki notið heilbrigðisþjónustu hjá matslækninum í tilgreint skipti.…

    26. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Funduðu með forstjóra, fulltrúum lækna og fagráði SAk vegna læknamönnunar

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri, aðstoðarmaður ráðherra og sérfræðingur ráðuneytisins á sviði mannauðsmála funduðu í gær með framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), fulltrúum lækna og fagráði SAk vegna erfiðrar stöðu á SAk við mönnun ákveðinna sérgreina, þá sér í lagi lyflækninga.

    26. nóv. 2025Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Fögnum degi sjúkraliða og störfum þeirra alla daga

    26 nóvember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Fögnum degi sjúkraliða og störfum þeirra alla daga Alma D. Möller heilbrigðisráðherra Dagur sjúkraliða er í dag. Því ber að fagna og ég óska sjúkraliðum til hamingju með daginn og jafnframt öllum sem á einhverjum tíma þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda, því þá er næsta víst að sjúkraliðar komi að þjónustunni

    25. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkjum úthlutað til nýrra verkefna á sviði fjarheilbrigðisþjónustu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið úthlutun 50 milljóna króna til sex verkefna sem styðja við markmið byggðaáætlunar stjórnvalda um eflingu fjarheilbrigðisþjónustu. Hæstu styrkirnir renna til verkefnis um fjarvöktun bráðveikra nýbura á landsbyggðinni og til innleiðingar á langtímaeftirliti með langveikum sjúklingum með nýtingu gervigreindar. Heilbrigðisráðuneytið fjármagnar 30 milljónir króna af styrkfjárhæðinni en 20 milljónir króna koma af byggðaáætlun.

    24. nóv. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagksrá ráðherra 17.- 21. nóvember 2025

    24 nóvember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagksrá ráðherra 17. - 21. nóvember 2025 17

    24. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Styrkir til verkefna á sviði heilbrigðismála - umsóknarfrestur framlengdur til 30. nóvember

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsti styrki til verkefna á sviði heilbrigðismála lausa til umsóknar 23. október síðastliðinn. Vakin er athygli á því að umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 30. nóvember næstkomandi.

    21. nóv. 2025Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Ávarp heilbrigðisráðherra við setningu Heilbrigðisþings 2025 - Endurhæfing, leiðir til betra lífs

    21 nóvember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Ávarp heilbrigðisráðherra við setningu Heilbrigðisþings 2025 - Endurhæfing, leiðir til betra lífs Ágætu gestir, kæru samstarfsaðilar, fagaðilar, notendur og fulltrúar allra þeirra sem láta sér annt um framtíð endurhæfingar á Íslandi – verið hjartanlega velkomin á Heilbrigðisþing 2025! Það endurspeglar sýn mína á mikilvægi endurhæfingar að helga Heilbrigðisþing í ár þeirri mikilvægu þjónustu. Slagorð eða yfirskrift þingsins er: „Endurhæfing – leiðir til betra lífs“ – og hér geturorðið „leiðir“ ýmist verið sagnorð eða nafnorð. Yfirskriftin fangar kjarnann í því sem við erum hér til að ræða og þá framtíðarsýn sem við ætlum að móta saman

    21. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjölmennasta heilbrigðisþingið til þessa – viðfangsefnið var endurhæfing

    Um 500 manns sóttu heilbrigðisþing um endurhæfingu – leiðir til betra lífs sem fram fór í gær og mikill fjöldi fylgdist með í beinu streymi. Þessi mikla þátttaka endurspeglar áhugann á viðfangsefninu, enda má ætla að um þriðjungur fólks þurfi á endurhæfingu að halda einhvern tíma á lífsleiðinni og fjöldi fagstétta með margvíslega menntun og sérhæfingu starfar á sviði endurhæfingar. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra setti þingið og sagði þar meðal annars frá yfirstandandi vinnu við mótun stefnu og framtíðarsýnar í þessum mikilvæga málaflokki. Þingið var haldið sem liður í því viðamikla verkefni en fjölmargir aðilar hafa þegar komið að verkinu, meðal annars á fjölmennri vinnustofu nýverið.

    21. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breytingar á lögum um sjúkraskrár samþykktar á Alþingi

    Skýr ákvæði um aðgengi fólks að eigin sjúkraskrárupplýsingum og breytingar sem stuðla að þróun stafrænna lausna, betri þjónustu og bættu öryggi sjúklinga eru meginefni frumvarps Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um sjúkraskrár sem samþykkt var á Alþingi í vikunni. Markmið breytinganna er einnig að auka skilvirkni heilbrigðisþjónustu við landsmenn og draga úr skriffinnsku.

    20. nóv. 2025Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 17/2025

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja kæranda um sérfræðileyfi í ljósmóðurfræðum. Í ákvörðun embættisins kom fram að synjun þess væri byggð á því að nám kæranda, sem umsóknin sótti stoð sína í væri ekki skilgreint innan þess sérsviðs sem umsóknin tók til skv. reglugerð nr. 1089/2012. Kærandi byggði á að synjun embættisins væri í ósamræmi við langa stjórnsýsluframkvæmd og hefði verið breytt án fyrirvara án þess að vera kynnt. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að embætti landlæknis hefði ekki kynnt breytinguna með neinum hætti áður en hún öðlaðist fyrirvaralaust gildi í byrjun árs 2025. Þá hafði kærandi ekkert svigrúm til að grípa til aðgerða áður en breyting á stjórnsýsluframkvæmdinni tók gildi.…

    20. nóv. 2025Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 16/2025

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja kæranda um sérfræðileyfi í ljósmóðurfræðum. Í ákvörðun embættisins kom fram að synjun þess væri byggð á því að nám kæranda, sem umsóknin sótti stoð sína í væri ekki skilgreint innan þess sérsviðs sem umsóknin tók til skv. reglugerð nr. 1089/2012. Kærandi byggði á að synjun embættisins væri í ósamræmi við langa stjórnsýsluframkvæmd og hefði verið breytt án fyrirvara án þess að vera kynnt. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að embætti landlæknis hefði ekki kynnt breytinguna með neinum hætti áður en hún öðlaðist fyrirvaralaust gildi í byrjun árs 2025. Þá hafði kærandi ekkert svigrúm til að grípa til aðgerða áður en breyting á stjórnsýsluframkvæmdinni tók gildi.…

    19. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fullt hús á heilbrigðisþingi um endurhæfingu – bein útsending

    Endurhæfing – leiðir til betra lífs, er yfirskrift árlegs heilbrigðisþings heilbrigðisráðherra sem fram fer fimmtudaginn 20. nóvember á Hótel Hilton Nordica. Á sjötta hundrað manns hafa skráð sig á þingið og ekki húsrúm fyrir fleiri, en hægt verður að fylgjast með í beinu streymi. Dagskráin er fjölbreytt og margir áhugaverðir fyrirlestrar um endurhæfingu ásamt pallborðsumræðum um skipulag endurhæfingar, áskoranir og framtíðarsýn. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ýtt úr vör vinnu við stefnumótun í endurhæfingu innan heilbrigðiskerfisins og er þingið liður í því starfi.

    19. nóv. 2025Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Stöðuskýrsla - Umbreytingar í geðheilbrigðisþjónustu barna

    nóvember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Stöðuskýrsla - Umbreytingar í geðheilbrigðisþjónustu barna Stöðuskýrsla – Umbreytingar í geðheilbrigðisþjónustu barna

    • First
    • Prev
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • 7
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband