Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Alþjóðamál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 201–250 af 580
    Raða eftir:
    07. mar. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Hnattrænar áskoranir og málefni Úkraínu rædd á fundi með forseta Alþjóðabankans

    Hlutverk Alþjóðabankans á tímum örra breytinga, skertrar fjármögnunar til þróunarsamvinnu og erfiðrar skuldastöðu fjölmargra þróunarríkja var meðal þess sem rætt var á fundi fulltrúa kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) í Alþjóðabankanum með Ajay Banga, forseta bankans, í Stokkhólmi í dag. Vandinn sem fátækustu ríkin standa frammi fyrir er gríðarlegur og fer vaxandi á sama tíma og dregið hefur úr stuðningi við þau.

    07. mar. 2025Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Stóraukning framlaga ESB til varnarmála styrkir NATO

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra átti í dag fjarfund með Antonío Costa, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins (ESB), Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, og Kaju Kallas, utanríkismálastjóra ESB, ásamt forsætisráðherrum Noregs, Bretlands, Kanada og forseta Tyrklands.

    28. feb. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkismál

    Ísland beitir rödd sinni í þágu mannúðar og alþjóðalaga fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag

    Íslensk stjórnvöld undirstrika ófrávíkjanlegar skyldur Ísraels sem hernámsaðila að mannúðarrétti í greinargerð sem skilað var í dag til Alþjóðadómstólsins í Haag í ráðgefandi álitsmáli sem dómstóllinn hefur til umfjöllunar. Þá árétta stjórnvöld sömuleiðis ábyrgð Ísraels á að tryggja að þær stofnanir sem Sameinuðu þjóðirnar hafa falið sérstök hlutverk gagnvart íbúum á hernumdum svæðum Palestínu geti sinnt hlutverki sínu, þar á meðal Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA).

    28. feb. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkismál

    Ísland beitir rödd sinni í þágu mannúðar og alþjóðalaga fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag

    Íslensk stjórnvöld undirstrika ófrávíkjanlegar skyldur Ísraels sem hernámsaðila að mannúðarrétti í greinargerð sem skilað var í dag til Alþjóðadómstólsins í Haag í ráðgefandi álitsmáli sem dómstóllinn hefur til umfjöllunar. Þá árétta stjórnvöld sömuleiðis ábyrgð Ísraels á að tryggja að þær stofnanir sem Sameinuðu þjóðirnar hafa falið sérstök hlutverk gagnvart íbúum á hernumdum svæðum Palestínu geti sinnt hlutverki sínu, þar á meðal Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA).

    24. feb. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ

    Ráðherra boðaði varðstöðu um alþjóðakerfið, mannréttindi og frelsið í stefnuræðu Íslands í mannréttindaráðinu

    Ráðherravika 58. lotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna hófst í dag í Genf og flutti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um hádegisbilið ávarp sitt í ráðinu.

    24. feb. 2025Alþjóðamál, Úkraína, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Ísland sýnir stuðning við Úkraínu í verki

    Kristún Frostadóttir forsætisráðherra sækir í dag leiðtogafund í Kænugarði í Úkraínu í tilefni þess að þrjú ár eru liðin frá ólögmætri allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu. Forsætisráðherra tók í morgun þátt í minningarathöfn um úkraínska hermenn sem hafa fallið í varnarbaráttu þjóðarinnar á undanförnum árum.

    14. feb. 2025Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Öryggismál í Evrópu í brennidepli í München

    Vaxandi spenna í alþjóðamálum, öryggismál í Evrópu, stríðið í Úkraínu og horfur í alþjóðahagkerfinu eru á meðal þeirra mála sem rædd verða á hinni árlegu Öryggismálaráðstefnu í München sem sett var í dag og stendur fram á sunnudag. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur þátt í ráðstefnunni og átti í dag fjölda tvíhliða funda með öðrum evrópskum leiðtogum þar sem þau alþjóðamál sem hæst ber um þessar mundir voru rædd.

    14. feb. 2025Alþjóðamál, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin ítreka stuðning við Úkraínu

    Leiðtogar Norðurlandanna fimm og Eystrasaltsríkjanna þriggja hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu til stuðnings Úkraínu og segja þar að gera verði Úkraínumönnum kleift að verjast og standa af sér árásarstríð Rússa til að tryggja réttlátan og langvarandi frið.

    13. feb. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu aukinn varnarbúnað og stuðning við Úkraínu

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu aukinn varnarviðbúnað og fælingarmátt bandalagsins og stuðning bandalagsríkja við Úkraínu á ráðherrafundi sem lauk í Brussel í dag. Á fundinum var farið yfir helstu aðgerðir og áætlanir sem miða að því að styrkja fælingar- og varnargetu bandalagsins, meðal annars aukin framlög til varnarmála, eflingu herstjórnarkerfisins, ítarlegri áætlanagerð og samstarf ríkjanna á sviði hergagnaframleiðslu og tækniþróunar.

    12. feb. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Málefni Úkraínu og norðurslóða í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna

    Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu, staða mála þar og framtíðarhorfur, voru efst á baugi fjarfundar utanríkisráðherra Norðurlandanna sem fram fór í gær. Norðurlöndin eru einhuga um áframhaldandi stuðning við varnarbaráttu landsins og leggja áherslu á að Evrópuríki og Úkraínu verði tryggð sæti við samningaborðið er kemur að mögulegum friðarumleitunum, sem fyrirhugað er að bandarísk stjórnvöld hafi forgöngu um.

    04. feb. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Aðalsteinn Leifsson ráðinn aðstoðarmaður utanríkisráðherra

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur ráðið Aðalstein Leifsson sem aðstoðarmann sinn. Aðalsteinn er með mikla reynslu af alþjóðamálum og hefur meðal annars starfað áður fyrir utanríkisráðuneytið, unnið hjá utanríkisþjónustu ESB, verið sérfræðingur hjá EFTA í Brussel og auk þess að vera í yfirstjórn samtakanna í höfuðstöðvum EFTA í Genf.

    28. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundar með ráðamönnum í Póllandi

    Staða alþjóðamála, aukið Evrópusamstarf á sviði öryggis- og varnarmála, mikilvægi innri markaðarins, og góð tvíhliða samskipti voru helstu umræðuefnin á fundum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra með Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, og Ignacy Niemczycki, aðstoðarráðherra Evrópumála í forsætisráðuneyti Póllands, sem fram fóru í Varsjá í dag.

    27. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra tók þátt í minningarathöfn í Auschwitz

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var fulltrúi ríkisstjórnar Íslands á minningarathöfn sem haldin var í Auschwitz í dag. Þar var minnst þeirra sex milljóna gyðinga sem myrtar voru í helförinni og annarra fórnarlamba grimmilegra ofsókna nasista. Í dag er þess minnst að 80 ár eru liðin frá því að hersveitir bandamanna lögðu undir sig útrýmingarbúðirnar í Auschwitz í Póllandi og frelsuðu þá sjö þúsund fanga sem þar voru enn þá.

    24. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fríverslunarsamningar undirritaðir við Taíland og Kósovó

    Undirritun fríverslunarsamninga EFTA-ríkjanna við Taíland og Kósovó fór fram í Davos í Sviss, dagana 22. og 23. janúar. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, undirritaði samningana fyrir Íslands hönd.

    21. jan. 2025Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Alþjóðamál, Fiskeldi, Lagareldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Viðburðaríkt ár í matvælaráðuneyti

    Árið 2024 var viðburðaríkt í matvælaráðuneytinu og einkenndist af mikilsverðum áföngum á málefnasviðum ráðuneytisins ásamt tíðum ráðherraskiptum. Af þeim 127 fréttum sem birtar voru á árinu er hér að finna yfirlit yfir þær helstu auk myndrænnar samantektar.

    17. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Reglulegur samráðsfundur um tvíhliða samskipti Íslands og Grænlands

    Fundur háttsettra embættismanna Íslands og Grænlands fór fram í Reykjavík á miðvikudag þar sem farið var yfir tvíhliða samstarf landanna. Fundurinn er liður í reglulegu samráði landanna á grundvelli samstarfsyfirlýsingar sem forsætisráðherra Íslands og formaður landsstjórnar Grænlands undirrituðu í Reykjavík 13. október 2022 um aukið samstarf. Gagnkvæmur vilji er til að efla og útvíkka tvíhliða samvinnu landanna sem er þegar töluverð.

    16. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundar með framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins

    Stuðningur við Úkraínu og varnarviðbúnaður Atlantshafsbandalagsins voru efst á baugi á fundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra með Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í höfuðstöðvum bandalagsins í dag.

    15. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundar með ráðamönnum í Brussel

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði í dag með Maros Šefčovič, framkvæmdastjóra hjá Evrópusambandinu sem er ábyrgur fyrir utanríkisviðskiptum og samskiptum við Ísland, og Kaja Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins.

    10. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu áréttaður

    Varnarmálaráðherrar ríkja sem styðja varnarbaráttu Úkraínu (Ukraine Defence Contact Group) funduðu í gær um stöðuna á vígvellinum og stuðning ríkjanna við baráttu íbúa Úkraínu gegn innrásarstríði Rússlands. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti fundinn í beinu framhaldi af heimsókn sinni til Kænugarðs þar sem hún ræddi við ráðamenn og kynnti sér afleiðingar stríðsins.

    07. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra í vinnuheimsókn í Úkraínu

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er nú stödd í vinnuheimsókn í Úkraínu þar sem hún fundar með ráðamönnum, áréttar stuðning Íslands við varnarbaráttu Úkraínu og kynnir sér stöðu mála. Þorgerður Katrín hefur í dag meðal annars átt fundi með Andrii Sybiha utanríkisráðherra Úkraínu og Denys Shmyhal forsætisráðherra.

    06. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Úkraína, Utanríkismál

    Þorgerður Katrín ræddi við utanríkisráðherra Noregs

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag símafund með Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs. Tilgangur fundarins var að koma á samtali ráðherranna og ræða áframhaldandi gott samstarf ríkjanna á alþjóðasviðinu.

    02. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Utanríkismál, Mannréttindaráð SÞ

    Ísland tekur sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna

    Ísland tók formlega sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna nú um áramótin og mun sitja í ráðinu í samtals þrjú ár, eða til loka árs 2027.

    27. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Nýir tollfrjálsir kvótar Evrópusambandsins á íslenskum sjávar- og eldisafurðum taka gildi 1. janúar 2025

    Þann 1. janúar 2025 taka gildi átta nýir tollfrjálsir innflutningskvótar til Evrópusambandsins (ESB). Kvótarnir veita aukna útflutningsmöguleika fyrir íslenskar afurðir bæði úr sjávarútvegi og fiskeldi.

    20. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning við mannréttindasamtök í Úganda

    Framlög Íslands til samtakanna DefendDefenders hafa verið aukin en samtökin eru bakhjarl fólks sem berst fyrir mannréttindum í Austur-Afríku, þar á meðal réttindum hinsegin fólks. Þá hefur Ísland aukið stuðning við loftslags- og skólamáltíðarverkefni Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) í Úganda og fjármagnar viðgerð og endurbætur á stórri vatnsveitu í flóttamannabyggð í norðurhluta Úganda.

    19. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Dómsmálaráðuneytið

    Eftirsótt námskeið um öryggis- og varnarmál

    Um 50 manns hafa nú útskrifast af ítarlegu námskeiði um öryggis- og varnarmál, sem varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins og skrifstofa almanna- og réttaröryggis í dómsmálaráðuneytinu halda sameiginlega. Haldin hafa verið þrjú námskeið sem hafa verið vel sótt.

    18. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Ráðuneytisstjórar NB8-ríkjanna ræddu aðgerðir gegn fjölþáttaógnum Rússa

    Samstarf og aðgerðir vegna fjölþáttaógna, svonefnds „skuggaflota“ og þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi, sem og áframhaldandi stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu voru helstu umræðuefni fundar ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneyta Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna sem haldinn var í Stokkhólmi 12.-13. desember síðastliðinn.

    17. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Leiðtogafundur JEF undirstrikar stuðning við varnarbaráttu Úkraínu

    Þróun öryggismála í Evrópu, varnarstuðningur við Úkraínu og aukið samstarf JEF ríkjanna var meðal þess sem leiðtogar Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) ræddu á fundi sínum í Tallinn í Eistlandi sem lauk í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sótti fundinn fyrir hönd forsætisráðherra.

    13. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Undirritun samninga við þrjá styrkþega Heimsmarkmiðasjóðs atvinnulífsins

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra undirritaði í gær samninga við þrjá styrkþega Heimsmarkmiðasjóðs atvinnulífsins, en þetta var í tólfta sinn sem styrkjum úr sjóðnum er úthlutað. Verkefnin hafa það sammerkt að stuðla að sjálfbærni og félagslegum framförum í þróunarríkjum.

    11. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Sameiginleg vinnustofa Íslands og Írlands um öryggi sæstrengja

    Varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins og varnarmálaráðuneyti Írlands stóðu sameiginlega að tveggja daga vinnustofu sérfræðinga um öryggi sæstrengja dagana 3.-5. desember. Vinnustofan, sem fór fram á Írlandi, var haldin með stuðningi sjóðs Atlantshafsbandalagsins, Vísindi í þágu friðar og öryggis.

    10. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Úkraína og Sýrland í brennidepli á síðasta norræna utanríkisráðherrafundi ársins

    Málefni Úkraínu, þróun mála í Sýrlandi og samskipti við Bandaríkin voru efst á baugi á fjarfundi norrænu utanríkisráðherranna sem fram fór í dag.

    10. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning sinn við Alþjóðaframfarastofnunina

    Íslensk stjórnvöld hækka framlög til Alþjóðaframfarastofnunarinnar (IDA) um 24 prósent, en viðræðum vegna 21. endurfjármögnunar stofnunarinnar, sem á sér stað þriðja hvert ár, lauk á föstudaginn í Seúl. Framlög Íslands byggja á samþykktri fjármálaáætlun Alþingis en framlögin eru hluti af framlögum Íslands til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu.

    29. nóv. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fríverslunarsamningur við Taíland í höfn

    Ísland hefur náð samkomulagi um fríverslunarsamning við Taíland. Samningurinn kveður á um tollfríðindi fyrir allar helstu útflutningsafurðir Íslands til Tælands. Samningurinn tryggir meðal annars fullt tollfrelsi inn á Taílandsmarkað fyrir flök af laxi, þorsk, grálúðu og loðnuhrogn, vélbúnað til matvælaframleiðslu og stoðtæki.

    20. nóv. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Sendiráð Íslands í Washington DC, Utanríkismál

    Aukið samstarf milli Íslands og Utah

    Aukið samstarf í orkumálum með áherslu á jarðvarmanýtingu, ferðaþjónustu, heilbrigðistækni, fjármálatækni og upplýsingatækni er efni viljayfirlýsingar Íslands og Utah-ríkis sem undirrituð var í þinghúsi Utah í Salt Lake City í síðustu viku.

    20. nóv. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Jarðhitaskóli GRÓ útskrifar 26 nemendur frá þrettán löndum

    Tuttugu og sex nemendur frá þrettán löndum í Afríku, Asíu og Suður Ameríku útskrifuðust úr sex mánaða námi Jarðhitaskóla GRÓ 14. nóvember síðastliðinn. Þetta er 45. nemendahópur Jarðhitaskólans en í fyrsta skipti í sögu skólans voru konur í meirihluta útskriftarnema, eða 14 konur og 12 karlar.

    14. nóv. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í París, Sendiskrifstofa

    Tvíhliða samráð Íslands og Spánar

    Tvíhliða samráð Íslands og Spánar fór fram öðru sinni í Madríd í gær þar sem rætt var um sameiginlega hagsmuni ríkjanna á alþjóðavettvangi og vaxandi samskipti ríkjanna. Ríkin fagna 75 ára stjórnmálasambandi í ár og af því tilefni efndu Íslandsstofa, Spænsk-íslenska verslunarráðið og sendiráð Íslands í París til viðskiptadagskrár í Madríd með þátttöku fulltrúa atvinnulífsins.

    29. okt. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Umbætur alþjóðlegra fjármálastofnana og fjármögnun þróunar í brennidepli á ársfundi Alþjóðabankans

    Samstaða með Úkraínu, áhyggjur af vaxandi átökum í Mið-Austurlöndum og Súdan og mikilvægi þess að tryggja öfluga fjármögnun til fátækustu ríkjanna í gegnum Alþjóðabankann bar hæst í ávarpi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á ársfundi Alþjóðabankans í Washington D.C. í síðustu viku. Fjármálaráðherra Lettlands flutti ávarpið fyrir hönd kjördæmi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna.

    22. okt. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar ræddu og áréttuðu mikilvægi vestnorræns samstarfs

    Sameiginleg tækifæri og áskoranir í vestnorrænni samvinnu voru til umræðu á þríhliða fundi utanríkisráðherra Íslands, Færeyja og Grænlands, sem fram fór í Reykjavík síðastliðinn föstudag.

    22. okt. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu sameiginlegar varnir og Úkraínu

    Sameiginlegar varnir, áframhaldandi stuðningur við Úkraínu og aukið samstarf við Indó-Kyrrahafsríkin voru meðal helstu umræðuefna á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins, sem lauk á föstudag í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel.

    16. okt. 2024Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ísland sat fyrir svörum á fundi Mannréttindanefndar SÞ

    Sjötta skýrsla Íslands um samninginn borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi var tekin fyrir á fundi Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í Genf 15. og 16. október 2024. Í skýrslunni er fjallað um hvernig Ísland hefur uppfyllt skyldur sínar samkvæmt samningnum og þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í því skyni að uppfylla tilmæli nefndarinnar um nauðsynlegar úrbætur.

    02. okt. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Þróun öryggismála rædd í Varsjá

    Aukinn varnarviðbúnað Atlantshafsbandalagins, eindreginn stuðning við Úkraínu og mikilvægi þess að standa vörð um lýðræði og alþjóðlög voru leiðarstefið á Warsaw Security Forum, alþjóðlegri öryggisráðstefnu sem haldin var í Varsjá dagana 1.-2. október.

    28. sep. 2024Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ

    Samtakamáttur aldrei mikilvægari en nú

    Virðing fyrir mannréttindum, einstaklingsfrelsinu og alþjóðalögum voru leiðarstef í ávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra, sem hún flutti á 79. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í kvöld. Þá voru þær áskoranir sem alþjóðasamfélagið stendur frammi fyrir nú um stundir, meðan stríð geisa og víða er gerð aðför að lýðræðinu utanríkisráðherra sömuleiðis ofarlega í huga.

    27. sep. 2024Utanríkismál, Alþjóðamál, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra flytur ávarp í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á morgun

    Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fer nú fram í New York í 79. sinn, þar sem leiðtogar aðildarríkjanna 193 koma saman. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra flytur ávarp sitt í þinginu á morgun, laugardag, en hún hefur tekið þátt í fjölmörgum fundum og viðburðum í tengslum við ráðherraviku allsherjarþingsins í vikunni.

    23. sep. 2024Alþjóðamál, Heimsmarkmiðin, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra á leiðtogafundi um framtíðina

    Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna samþykktu sáttmála um framtíðina í gær á leiðtogafundi í New York. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og ákall um aukið traust í alþjóðlegri samvinnu eru meginatriði sáttmálans.

    18. sep. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkismál, Norrænt samstarf

    Enduruppbygging Úkraínu og nýsköpun í þróunarsamvinnu í brennidepli á fundi þróunarsamvinnuráðherra Norðurlandanna

    Nýsköpun í þróunarsamvinnu, stuðningur við enduruppbyggingu Úkraínu, græn orkuskipti í þróunarríkjum og lýðræðisþróun í Austur-Evrópu voru meðal viðfangsefna á fundi þróunarsamvinnuráðherra Norðurlandanna sem fram fór í Stokkhólmi í dag. Benjamin Dousa, nýskipaður þróunarsamvinnuráðherra Svíþjóðar, tók þar á móti norrænum starfssystkinum sínum en fundurinn er liður í formennsku Svíþjóðar í norrænu samstarfi.

    10. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Alþjóðamál

    Árangursríkur fundur stjórnarnefndar Bologna-samstarfsins á Íslandi

    Stjórnarnefnd Bologna-samstarfsins um háskólamál hittist í Reykjavík í liðinni viku til að undirbúa verkefnaáætlun til ársins 2027.

    21. ágú. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Vinátta og viðskipti efst á baugi í heimsókn til Færeyja

    Tvíhliða samskipti og viðskipti Íslands og Færeyja voru í brennidepli í ferð utanríkisráðherra til Færeyja í vikunni. Með ráðherra í för var viðskiptasendinefnd skipuð fulltrúum ellefu fyrirtækja auk Íslandsstofu. Ferðin var að frumkvæði og tilstuðlan færeysk-íslenska viðskiptaráðsins en tilgangur ráðsins er að styrkja viðskiptatengsl Íslands og Færeyja.

    17. ágú. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra heimsótti öryggissvæðið í Keflavík í tengslum við loftrýmisgæslu Bretlands

    Flugsveit frá breska flughernum sinnir nú reglubundinni loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins á Íslandi. Flugsveitin samanstendur af fjórum F-35 orrustuþotum og 180 liðmönnum.

    16. ágú. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Íslendingar jákvæðir í garð alþjóðastarfs

    Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna, eða 90,2 prósent, segja skipta miklu máli að Ísland hafi gott orðspor í alþjóðasamfélaginu. Alls segja 75 prósent hagsæld Íslands byggja að miklu leyti á alþjóðlegri samvinnu og 76,8 prósent segja hagsæld Íslands byggja á alþjóðlegum viðskiptum. Þá telja 74,2 prósent að þátttaka Íslands í alþjóðasamvinnu styrki fullveldi Íslands. Þetta kemur fram í niðurstöðum árlegrar skoðanakönnunar sem Maskína gerir fyrir utanríkisráðuneytið.

    14. ágú. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Afríka, Utanríkismál

    Fyrsta sameiginlega heimsókn norrænna utanríkisráðherra til Afríku

    Alþjóðaöryggismál, viðskipti, fjölþjóðlegt samstarf og grænar lausnir voru til umræðu í fyrstu sameiginlegu heimsókn utanríkisráðherra Norðurlanda til Afríku dagana 12. – 14. ágúst. Í ferðinni heimsóttu ráðherrarnir Nígeríu og Gana en ferðin er liður í áherslu Norðurlandanna á að efla samvinnu og viðskipti við ríki í Afríku.

    02. ágú. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins hefst í næstu viku

    Bresk flugsveit er væntanleg til landsins í byrjun næstu viku, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin samanstendur af fjórum F-35 orrustuþotum og 180 liðsmönnum.

    • First
    • Prev
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • 7
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband