Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1601–1650 af 2299
    Raða eftir:
    19. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Líf og heilsa

    Efnainnihald svifryks mælt, aðvaranir til almennings og starfshópur skipaður vegna flugeldamengunar

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Umhverfisstofnun hafa gert með sér samning um mælingar á efnasamsetningu svifryks nú um áramótin. Um sérstakt átaksverkefni er að ræða til að bregðast við mengun vegna flugelda. Þá hefur umhverfis- og auðlindaráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra ákveðið að skipa starfshóp ráðuneytanna til að móta tillögur um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum á lýðheilsu og loftgæði vegna flugeldamengunar.

    18. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Landgræðsla og skógrækt, Umhverfi og náttúruvernd

    Ný heildarlög um landgræðslu samþykkt á Alþingi

    Alþingi samþykkti á síðasta starfsdegi fyrir jólafrí ný lög um landgræðslu. Um heildarendurskoðun er að ræða á eldri lögum frá 1965.

    13. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkisráðuneytið

    Ísland, Noregur og ESB samstíga um markmið í loftslagsmálum

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fundaði í dag með Miguel Arias Cañete, framkvæmdastjóra loftslagsmála hjá ESB og Ola Elvestuen, umhverfisráðherra Noregs, á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Katowice í Póllandi. Þar var farið yfir stöðu mála varðandi samvinnu í loftslagsmálum og drög að samkomulagi sem nú liggja fyrir milli Íslands, Noregs og Evrópusambandsins um sameiginlega framkvæmd 30 ríkja á markmiðum Parísarsamningsins til 2030.

    12. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    „Verðum að fylgja leiðsögn vísindanna“ – umhverfis- og auðlindaráðherra ávarpaði Loftslagsráðstefnu Sþ

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, ávarpaði í dag Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna fyrir Íslands hönd. Hann þakkaði IPCC fyrir skýrslu sína um loftslagsmál og lagði áherslu á að Ísland áliti hana mikilvægt leiðarljós í verkefninu sem fram undan væri.

    10. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfis- og auðlindaráðherra ræðir um plast og orku á Loftslagsráðstefnu SÞ

    Ráðstefna aðildarríkja Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna stendur sem hæst í Katowice í Póllandi og fundir ráðherra hófust í dag.

    06. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Samstarfsyfirlýsing um landbúnað og náttúruvernd undirrituð

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, undirrituðu á Hvanneyri í dag yfirlýsingu um að vinna saman að málefnum landbúnaðar og náttúruverndar. Yfirlýsinguna má meðal annars rekja til átaks í náttúruvernd sem byggir á sáttmála ríkisstjórnarinnar.

    03. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hafin

    Íslensk sendinefnd er nú komin til Katowice í Póllandi þar sem 24. ráðstefna aðildarríkja Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (Cop24) var sett í gær.

    30. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Utanríkisráðuneytið

    Stefnt að sameiginlegri framkvæmd á Parísarmarkmiðum

    Drög að samkomulagi liggja fyrir milli Íslands og Noregs annars vegar og Evrópusambandsins hins vegar um sameiginlega framkvæmd á markmiðum Parísarsamningsins í loftslagsmálum til 2030.

    30. nóv. 2018Úrskurðarnefnd raforkumála, Úrskurðir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Úrskurður úrskurðarnefndar raforkumála í máli nr. 4/2018 Advania vs Orkustofnun

    nóvember 2018 / Úrskurðarnefnd raforkumála Úrskurður úrskurðarnefndar raforkumála í máli nr. 4/2018 Advania vs Orkustofnun Nr

    28. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Landbúnaður, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Mikill munur á losun frá býlum í íslenskum landbúnaði

    Talsverður breytileiki er milli búa í losun gróðurhúsalofttegunda og möguleikar til bindingar kolefnis eru einnig misjafnir. Þetta eru niðurstöður Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins eftir úttekt þeirra á losun gróðurhúsalofttegunda á fimm íslenskum búum.

    27. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Boðað til kynningarfundar vegna fyrstu verkefna nefndar um miðhálendisþjóðgarð

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og þverpólitísk nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu boða til opins fundar vegna vinnu nefndarinnar. Á fundinum verða kynnt fyrstu tvö verkefni nefndarinnar sem nýverið voru sett á samráðsgátt stjórnvalda, auk þess sem sagt verður frá stöðu vinnunnar og þeim verkefnum sem framundan eru.

    21. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Verkefni nefndar um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu í kynningu

    Nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu hefur sett drög að fyrstu tveimur verkefnum sínum í almenna kynningu í Samráðsgátt Stjórnarráðsins. Um er að ræða annars vegar greiningu nefndarinnar á tækifærum með stofnun þjóðgarðs á byggðaþróun og atvinnulíf og hins vegar tillögur nefndarinnar að helstu áherslum í atvinnustefnu þjóðgarðs á miðhálendinu.

    21. nóv. 2018Orka, Auðlindir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Spurningar og svör um þriðja orkupakka ESB á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins

    Til að útskýra hvað felst í þriðja orkupakka ESB hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið tekið saman svör við mörgum af þeim helstu spurningum sem uppi hafa verið. Jafnframt er vísað í greinar og kynningar sem þykja upplýsandi um þriðja orkupakkann.

    20. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fiskeldi, Umhverfi og náttúruvernd

    Undanþágur frá starfsleyfi fyrir starfsemi Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax hf. veittar með skilyrðum

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur veitt fyrirtækjunum Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalaxi hf. tímabundna undanþágu með skilyrðum, frá kröfu um starfsleyfi. Arctic Sea Farm hf. er þar með veitt heimild til að framleiða 600 tonn árlega og Fjarðalaxi hf. 3.400 tonn árlega af laxi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði. Framangreindar undanþágur munu falla úr gildi í síðasta lagi 5. september 2019.

    20. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ísland til sérstakrar umfjöllunar á Global Positive Forum í París

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sóttu ráðstefnuna Global Positive Forum í París í dag.

    16. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkismál

    Ráðherra fylgir forseta Íslands til Lettlands

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fylgir forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, í opinberri heimsókn til Lettlands sem hófst í dag. Heimsóknin stendur til 18. nóvember næstkomandi.

    15. nóv. 2018Rit og skýrslur, Orka, Auðlindir, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Skýrsla ráðherra um nýjar aðferðir við orkuöflun

    nóvember 2018 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Skýrsla ráðherra um nýjar aðferðir við orkuöflun Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir hefur að beiðni Alþingis lagt fram skýrslu um nýjar aðferðir við orkuöflun

    13. nóv. 2018Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Skýrsla ráðherra um nýjar aðferðir við orkuöflun

    Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir hefur að beiðni Alþingis lagt fram skýrslu um nýjar aðferðir við orkuöflun. Einkum er fjallað um nýtingu vindorku, sjávarorku og varmaorku með varmadælum en einnig er stutt umfjöllun um aðra möguleika sem skipt geta auknu máli við orkuöflun á komandi árum.

    13. nóv. 2018Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Leiðrétting á fréttaflutningi um sæstreng

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið vill af gefnu tilefni koma því á framfæri, að það er ekki rétt sem sagt er í fréttum í Morgunblaðinu og á vefnum Mbl.is í dag, að fyrirtækið Atlantic SuperConnection hafi verið að skoða möguleika á lagningu sæstrengsins Ice-Link á milli Bretlands og Íslands, sem sé á verkefnalista Evrópusambandsins.

    09. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Unnið að stofnun miðhálendisþjóðgarðs

    63% almennings á Íslandi er fylgjandi stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, ferðamenn nefna sem aðdráttarafl hálendisins að þar sé einstök náttúra og þverpólitísk nefnd vinnur nú að því að undirbúa stofnun miðhálendisþjóðgarðs. Þetta er meðal þess sem fram hefur komið á Umhverfisþingi sem umhverfis- og auðlindaráðherra boðaði til og stendur nú yfir á Grand hóteli.

    09. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Mikill efnahagslegur ávinningur af friðlýstum svæðum

    Efnahagsleg áhrif friðlýstra svæða á Íslandi eru ótvírætt jákvæð. Á árinu 2017 var beinn efnahagslegur ávinningur 12 svæða og nærsamfélaga þeirra um 10 milljarðar króna. Ávinningurinn fyrir þjóðarbúið í heild var 33,5 milljarðar króna. Þetta eru niðurstöður fyrstu rannsóknar sem gerð hefur verið á landsvísu á efnahagslegum áhrifum friðlýstra svæða á Íslandi.

    09. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    XI. Umhverfisþing hafið - bein útsending

    Þétt er setið á XI. Umhverfisþingi sem hófst á Grand Hóteli kl. 13 í dag en metaðsókn er að þinginu. Að þessu sinni fjallar Umhverfisþing um nýja nálgun í náttúruvernd og stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands.

    08. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Metaðsókn á XI. Umhverfisþing sem fer fram á morgun

    Um 400 manns eru skráðir á Umhverfisþing sem haldið er á morgun á Grand Hóteli og hafa aldrei jafn margir skráð sig á þingið. Þetta er í XI. sinn sem umhverfis- og auðlindaráðherra boðar til Umhverfisþings. Að þessu sinni fjallar þingið annars vegar um nýja sýn og nýja nálgun í náttúruvernd og hins vegar um þjóðgarð á miðhálendinu og tækifærin fram undan.

    07. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Framlengdur frestur til að skila inn umsögnum um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur ákveðið að framlengja frest til að skila inn umsögnum um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum 2018 – 2030 til 15. nóvember næstkomandi.

    06. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Áform um friðlýsingu Akureyjar í Kollafirði í kynningu

    Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu Akureyjar í Kollafirði sem friðland. Áformin eru kynnt í samstarfi við Reykjavíkurborg.

    01. nóv. 2018Orka, Landbúnaður, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Vegna ummæla formanns Sambands garðyrkjubænda: Misskilningur um áhrif þriðja orkupakkans

    Vegna þessa vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið árétta að þriðji orkupakkinn leggur engar skyldur á herðar Íslandi að samþykkja hugsanlegan sæstreng. Enginn vafi leikur á því að leyfisveitingarvaldið yrði eftir sem áður hjá íslenskum stjórnvöldum.

    31. okt. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkismál, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Norrænt samstarf, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfis- og auðlindaráðherra á norrænum fundum í Osló: Loftslagsmál í brennidepli

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sat í dag fund norrænna umhverfis- og loftslagsráðherra í Osló. Meðal annars var rætt um loftslagsmál, sjálfbærar borgir og norrænt samstarf á loftslagsráðstefnunni COP24 sem fram fer í Katowice í Póllandi í desember.

    31. okt. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Samgöngur og fjarskipti

    Umhverfis- og auðlindaráðherra sótti fund evrópskra ráðherra um sjálfbærar samgöngur

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sótti óformlegan fund umhverfis- og samgönguráðherra Evrópuríkja í Graz í Austurríki, 29.-30. október.

    25. okt. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd

    Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2018

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið að veiðidagar rjúpu verði fimmtán talsins í ár 2018, sem skiptast á fimm helgar frá 26. október. Með þessu er ráðherra að fjölga veiðidögum frá í fyrra.

    24. okt. 2018Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Orka, Rit og skýrslur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um regluverk í tengslum við starfsemi og framkvæmdir vegna vindorkuvera

    október 2018 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Skýrsla starfshóps um regluverk í tengslum við starfsemi og framkvæmdir vegna vindorkuvera Skýrslan felur í sér greiningu á því hvort í lögum og reglugerðum á sviði umhverfis- og auðlindaráðuneytisins sé fjallað með nægjanlegum hætti um starfsemi vindorkuvera og framkvæmdir vegna þeirra. Greiningin náði einnig til löggjafar á málefnasviði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins hvað varðar leyfisútgáfu og eftirlit

    24. okt. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Orka, Auðlindir

    Skýrsla um regluverk vegna vindorkuvera afhent ráðherra

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur móttekið skýrslu starfshóps um regluverk vegna vindorkuvera. Skýrslan felur í sér greiningu á því hvort í lögum og reglugerðum á sviði umhverfis- og auðlindaráðuneytisins sé fjallað með nægjanlegum hætti um starfsemi vindorkuvera og framkvæmdir vegna þeirra. Greiningin náði einnig til löggjafar á málefnasviði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins hvað varðar leyfisútgáfu og eftirlit.

    23. okt. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Tillögur að friðlýsingum vatnasviða Jökulsár á Fjöllum og Markarfljóts

    Umhverfisstofnun hefur lagt fram til kynningar tillögur að friðlýsingu tveggja svæða á grundvelli flokkunar þeirra í verndarflokk rammaáætlunar. Friðlýsingin tekur til verndar gegn orkunýtingu. Um er að ræða vatnasvið Jökulsár á Fjöllum og Markarfljóts.

    19. okt. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál

    Umhverfis- og auðlindaráðherra ræðir loftslagsbreytingar við Sir David King á Hringborði norðurslóða

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, ræðir loftslagsbreytingar við Sir David King í málstofu á Hringborði norðurslóða á laugardag. Hringborð norðurslóða, Arctic Circle, hófst í Hörpu í morgun. Í málstofunni með King verður sjónum beint að loftslagsbreytingum og norðurslóðum.

    15. okt. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Unnið að samantekt um örplast fyrir umhverfis- og auðlindaráðuneytið

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur beðið sjávarlíftæknisetrið BioPol á Skagaströnd að taka saman upplýsingar um losun örplasts hér á landi og leiðir þess til sjávar. Markmiðið með samantektinni er að fá greinargóðar upplýsingar um losun örplasts hér á landi.

    12. okt. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfisráðherrar ræddu plastmengun, loftslagsbreytingar og líffræðilegan fjölbreytileika á Norðurslóðum

    Fundi umhverfisráðherra Norðurskautsríkjanna lauk í dag með umræðum um samvinnu ríkjanna í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, vörnum gegn mengun og vernd líffræðilegs fjölbreytileika. Fundurinn fór fram í Rovaniemi, höfuðstað Finnlands í Lapplandi.

    11. okt. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkismál, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfis- og auðlindaráðherra fundaði með umhverfisráðherra Finnlands

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fundaði í gær með umhverfisráðherra Finnlands, Kimmo Tiilikainen, í Rovaniemi, höfuðstað Lapplands í Finnlandi.

    09. okt. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Skráning hafin á Umhverfisþing

    Skráning er hafin á XI. Umhverfisþing sem haldið verður föstudaginn 9. nóvember 2018 á Grand Hóteli í Reykjavík. Að þessu sinni verður grunnstef þingsins ný hugsun í náttúruvernd og þau tækifæri sem geta falist í friðlýsingum svæða.

    05. okt. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Heilbrigðismál, Umhverfi og náttúruvernd

    Drög að reglugerð um sérstakan úrgang frá heilbrigðisþjónustu í umsagnarferli

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að breytingu á reglugerð um meðhöndlun úrgangs og viðauka hennar um sérstakan úrgang frá heilbrigðisþjónustu. Reglugerðin á einnig við um stofur sem sjá um húðrof, húðgatanir og húðflúr.

    04. okt. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Drög að reglugerðum á sviði úrgangsmála í samráðsferli

    Í samráðsgátt Stjórnarráðsins eru nú til umsagnar drög að þremur reglugerðum á sviði úrgangsmála.

    04. okt. 2018Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Mótun nýrrar Orkustefnu - opið fyrir tillögur og ábendingar á samráðsgátt stjórnvalda

    Mikil áhersla er lögð á víðtækt samráð við mótun stefnunnar og nú á fyrstu stigum verkefnisins er kallað eftir á samráðsgátt stjórnvalda hvers kyns tillögum, ábendingum og hugmyndum frá einstaklingum, hagsmunasamtökum og fyrirtækjum varðandi áherslur, efnistök og innihald nýrrar orkustefnu.

    28. sep. 2018Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Auðlindir, Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Greinargerð um þriðja orkupakkann

    september 2018 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Greinargerð um þriðja orkupakkann Greinargerð um þriðja orkupakkann

    26. sep. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Drög að reglugerð um landverði til umsagnar

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að nýrri reglugerð um landverði.

    21. sep. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Verkefni með Umhverfisstofnun til að draga úr plastnotkun

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Umhverfisstofnun gerðu nýlega með sér samning um verkefni sem ætlað er að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum plastnotkunar.

    17. sep. 2018Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Greinargerð um þriðja orkupakkann

    Birgir Tjörvi Pétursson lögmaður hefur að beiðni ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra unnið greinargerð um þriðja orkupakka Evrópusambandsins.

    17. sep. 2018Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Breytingar á Stjórnarráði Íslands

    Velferðarráðuneytinu verður skipt upp í heilbrigðisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti, jafnréttismál færast á ábyrgð forsætisráðuneytis og málefni mannvirkja færast úr umhverfisráðuneyti í félagsmálaráðuneyti.

    17. sep. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dagur íslenskrar náttúru, Landgræðsla og skógrækt, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Viðurkenningar veittar í tengslum við Dag íslenskrar náttúru

    Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson hlutu í dag fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Sveinn Runólfsson fékk Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Verðlaunin voru veitt í tengslum við Dag íslenskrar náttúru, sem var í gær.

    16. sep. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dagur íslenskrar náttúru, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Dagur íslenskrar náttúru er í dag

    Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur 16. september ár hvert enda hefur fátt mótað íslenska þjóð eins og náttúran.

    15. sep. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Samgöngur og fjarskipti

    Evrópsk samgönguvika hefst á morgun

    „Veljum fjölbreytta ferðamáta“ er yfirskrift Samgönguviku í ár, en hún verður sett á morgun 16. september, á Degi íslenskrar náttúru. Um er að ræða samevrópska viku sem árlega stendur yfir dagana 16. – 22. september.

    14. sep. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Fyrstu friðlýsingar rammaáætlunar

    Umhverfisstofnun hefur lagt fram til kynningar tillögur að friðlýsingu þriggja svæða á hálendinu á grunni flokkunar þeirra í verndarflokk rammaáætlunar. Þau taka til Hólmsár, Tungnaár, Jökulfalls og Hvítár. Þetta er í fyrsta skipti sem sendar eru út til umsagnar tillögur að friðlýsingum einvörðungu á grunni rammaáætlunar.

    12. sep. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ársskýrsla umhverfis- og auðlindaráðherra

    Ársskýrslur ráðherra eru nú birtar í fyrsta skipti í samræmi við lög um opinber fjármál. Í lögunum er kveðið á um að hver ráðherra skuli birta slíka skýrslu þar sem gera skal grein fyrir útgjöldum málefnasviða og málaflokka og bera saman við fjárheimildir fjárlaga.

    • First
    • Prev
    • 31
    • 32
    • 33
    • 34
    • 35
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband