Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1601–1650 af 3846
    Raða eftir:
    05. feb. 2021Forsætisráðuneytið

    Græn endurreisn rædd á Norðurslóðaráðstefnunni

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ræddi afleiðingar Covid-19 og enduruppbyggingu í kjölfar faraldursins á norðurslóðum við forsætisráðherra Noregs, Svíþjóðar og Finnlands á Norðurslóðaráðstefnunni Arctic Frontiers í dag.

    29. jan. 2021Forsætisráðuneytið

    Norræn samstarfsáætlun um jafnrétti, jafnræði og jöfn tækifæri LGBTI fólks á Norðurlöndum

    Fyrsta norræna samstarfsáætlun um málefni hinseginfólks var samþykkt á fundi norrænna jafnréttisráðherra 5. nóvember sl. Áætlunin hefur verið þýdd á íslensku og ber titilinn Jafnrétti, jafnræði og jöfn tækifæri LGBTI fólks á Norðurlöndum.

    26. jan. 2021Menningarmál, Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    50 ár frá heimkomu handritanna

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að styrkja Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum um 8 milljónir króna vegna heimkomuafmælis handritanna. 50 ár eru senn liðin frá því fyrstu handritunum var skilað til Íslands frá Danmörku en þann 21. apríl 1971 lagði herskipið Vædderen að bryggju í Reykjavík með Konungsbók Eddukvæða og Flateyjarbók í farteskinu. Mikill mannfjöldi beið á bryggjunni og myndast þjóðhátíðarstemning í landinu við þessi tímamót.

    21. jan. 2021Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegir, Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Nýsköpun, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Stærsta úthlutun Rannsóknasjóðs frá upphafi

    Tilkynnt hefur verið um úthlutun styrkja Rannsóknasjóðs fyrir árið 2021. Alls hljóta 82 ný verkefni styrk sem er mesti fjöldi frá upphafi og jafnframt hefur heildarupphæð sem úthlutað er aldrei verið hærri.

    19. jan. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Samkomulag og viljayfirlýsing um kaup á björgunarskipum

    Ríkið mun veita Landsbjörgu allt að 450 milljóna króna framlag til kaupa á þremur björgunarskipum á árunum 2021-2023. Skrifað var undir samkomulag þess efnis í dag en þar að auki var undirrituð viljayfirlýsing um kaup á sjö skipum til viðbótar á næstu tíu árum.

    19. jan. 2021Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Heimsfundur kvennasamtaka sem berjast gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi í Hörpu í ágúst 2021

    Alþjóðleg kvennasamtök sem berjast gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni munu halda heimsfund í Hörpu 16.-18. ágúst næstkomandi undir yfirskriftinni Reykjavík Dialogue, renewing activism to end violence against women.

    15. jan. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Upplýsingasíða vegna Seyðisfjarðar

    Sett hefur verið upp sérstök upplýsingasíða á vefsvæðinu Ísland.is vegna hamfaranna sem urðu á Seyðisfirði í desember sl. Þar er að finna upplýsingar um verkefni á vegum stjórnvalda og ýmissa stofnana sem þegar eru í framkvæmd og eru fyrirhuguð vegna hamfaranna.

    15. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Skimunarskylda á landamærum

    Skimun á landamærum verður skylda frá og með deginum í dag en í ljósi alvarlegrar stöðu faraldursins víða um heim verður núverandi fyrirkomulag sóttvarna á landamærunum með tvöfaldri skimun og fimm daga sóttkví á milli framlengt til 1. maí.

    15. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Fyrirkomulag sóttvarna á landamærum frá 1. maí

    Þann 1. maí nk. verða tekin varfærin skref til afléttingar sóttvarnaraðgerða á landamærum sem taka munu mið af ástandi faraldursins á brottfararstað komufarþega. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

    15. jan. 2021Forsætisráðuneytið

    Fréttaannáll forsætisráðuneytisins 2020

    Viðureignin við heimsfaraldur kórónuveiru var stærsta verkefni forsætisráðuneytisins á liðnu ári. Samhæfingarhlutverk ráðuneytisins í margþættu viðbragði stjórnvalda við faraldrinum varð viðameira en nokkur gat séð fyrir.

    13. jan. 2021Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Ráðstöfunarfé nýtt í björgunarbát fyrir Flateyri

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum tillögu dómsmálaráðherra um að nýta ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til að leigja bát fyrir björgunarsveitina á Flateyri út árið 2021.

    13. jan. 2021Forsætisráðuneytið

    Staða jafnlaunavottunar í árslok 2020

    Í lok árs 2020 höfðu 274 fyrirtæki og stofnanir innleitt jafnlaunastaðalinn og fengið jafnlaunavottun. Er hér um að ræða 60% af þeim starfsmannafjölda sem áætlað er að ákvæði um jafnlaunavottun nái til eða um 88 þúsund starfsmenn.

    12. jan. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Samtökin ´78 styrkt um 20 milljónir króna

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður Samtakanna ´78, undirrituðu í dag samning um 20 milljóna króna fjárframlag til Samtakanna ´78.

    07. jan. 2021Forsætisráðuneytið

    Katrín ræddi við forsætisráðherra Litháens og forseta Eistlands

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra átti í dag fjarfund með Ingridu Šimonytė, nýjum forsætisráðherra Litháens, og símafund með Kersti Kaljulaid, forseta Eistlands.

    05. jan. 2021Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Mikið starf fram undan á Seyðisfirði

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að greiða tvo þriðju af kostnaði við hreinsunarstarf á Seyðisfirði vegna hamfaranna í síðasta mánuði en hann hleypur á hundruðum milljón króna miðað við grófa áætlun.

    30. des. 2020Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum

    Frá ríkisráðsritara Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til reglulegs fundar á Bessastöðum á morgun, fimmtudaginn 31. desember, kl. 11.00.

    30. des. 2020Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum

    Frá ríkisráðsritara Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til reglulegs fundar á Bessastöðum á morgun, fimmtudaginn 31. desember, kl. 11.00.

    21. des. 2020Forsætisráðuneytið

    Réttindi trans og intersex fólks og barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni samþykkt á Alþingi

    Frumvörp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, sem tryggja eiga rétt fólks með kynhlutlausa skráningu og trans fólks auk barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni voru samþykkt fyrir helgi.

    19. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    959/2020. Úrskurður frá 30. nóvember 2020

    Kærð var synjun dómsmálaráðuneytisins á beiðni kæranda um aðgang að álitsgerðum nefnda um hæfni umsækjenda um þrjú embætti lögreglustjóra. Úrskurðarnefndin staðfesti að ráðuneytinu hafi verið heimilt að synja beiðninni á grundvelli 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga.

    19. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    958/2020. Úrskurður frá 30. nóvember 2020

    Kærð var synjun fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni kæranda um aðgang að gögnum í tengslum við uppgjör bótakröfu í kjölfar úrskurðar kærunefndar jafnréttismála. Nefndin féllst á það með ráðuneytinu að því hefði verið heimilt að synja um aðgang að umbeðnum gögnum þar sem þau fælu í sér bréfaskipti við sérfróða aðila í tengslum við réttarágreining eða til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað, sbr. 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi að þrátt fyrir að ekki hafi komið til þess að leita þyrfti atbeina dómstóla við uppgjör bótakröfunnar yrði að leggja til grundvallar að umrædd samskipti hafi staðið í nægilegum tengslum við möguleika á höfðun dómsmáls. Var synjun ráðuneytisins því staðfest.

    19. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    957/2020. Úrskurður frá 30. nóvember 2020

    Kærð var synjun Þjóðskrár Íslands á beiðni um lista yfir þá einstaklinga sem væru skráðir í tiltekið trúfélag og lista yfir einstaklinga sem látist hefðu síðastliðin tvö ár og hefðu verið skráðir í söfnuðinn á dánardegi. Í svari Þjóðskrár Íslands kom fram að upplýsingarnar væru ekki fyrirliggjandi hjá stofnuninni og þyrfti stofnunin að framkvæma sérvinnslu úr skrám til þess að verða við upplýsingabeiðninni. Úrskurðarnefndin taldi ekki forsendur til þess að rengja þær staðhæfingar Þjóðskrár. Að mati úrskurðarnefndarinnar var ekki um að ræða synjun beiðni um aðgang að fyrirliggjandi gögnum og var kærunni því vísað frá nefndinni.

    19. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    955/2020. Úrskurður frá 30. nóvember 2020

    Kærð var afgreiðsla Herjólfs ohf. á beiðni um upplýsingar um útboðsferli, ákvörðun og rök félagsins fyrir töku tilboðs vegna raforkukaupa. Í svari félagsins til kæranda var vísað til þess hvar umbeðnar upplýsingar væri að finna. Að mati úrskurðarnefndarinnar var ekki um að ræða synjun beiðni um aðgang að fyrirliggjandi gögnum og var kærunni því vísað frá nefndinni.

    18. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    956/2020. Úrskurður frá 30. nóvember 2020

    Í málinu var deilt um afgreiðslu Garðabæjar á beiðni kæranda um aðgang að upplýsingum um um starfsmannaveltu hjá grunnskólum Garðabæjar og fræðslu- og menningarsviði Garðabæjar frá árinu 2015. Sveitarfélagið sagði slíkar upplýsingar ekki vera fyrirliggjandi í skilningi 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012, auk þess sem upplýsingar um málefni einstakra starfsmanna væru undanþegnar upplýsingarétti samkvæmt 7. gr. laganna. Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar var sú að kæranda hefði ekki verið synjað um aðgang að fyrirliggjandi gögnum og var kærunni því vísað frá nefndinni.

    18. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    954/2020. Úrskurður frá 30. nóvember 2020

    Deilt var um ákvörðun Seðlabanka Íslands um að synja beiðni fjölmiðils um aðgang að upplýsingum í greinargerðum bankans í málum Samherja hf. og forstjóra fyrirtækisins gegn bankanum. Seðlabankinn hafði afhent greinargerðirnar en afmáð úr þeim upplýsingar með vísan til 1. mgr. 41. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019 og 15. gr. laga um gjaldeyrismál, nr. 87/1992 og 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með Seðlabanka Íslands að upplýsingarnar vörðuðu viðskiptamenn bankans í skilningi 1. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2019. Var því ekki hjá því komist að staðfesta ákvörðun bankans.

    18. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    953/2020. Úrskurður frá 30. nóvember 2020

    Deilt var um ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að synja beiðni kæranda um aðgang að undirskriftalista sem ber heitið „Nýju stjórnarskrána strax!“ eins og hann stendur hverju sinni. Úrskurðarnefndin taldi verða að líta svo á að umbeðin gögn hafi ekki verið fyrirliggjandi í ráðuneytinu þegar beiðni kæranda barst því þar sem opnir undirskriftarlistar séu varðveittir hjá utanaðkomandi einkaaðila.

    18. des. 2020Forsætisráðuneytið

    Frumvörp til nýrra jafnréttislaga samþykkt á Alþingi

    Frumvörp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, til nýrra jafnréttislaga voru samþykkt á Alþingi í gær.

    17. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    964/2020. Úrskurður frá 17. desember 2020.

    Kærð var afgreiðsla Garðabæjar á beiðni kæranda um að fá afhent öll gögn frá forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs sveitarfélagsins og varða kæranda, eiginkonu hans og dætur á tilteknu tímabili. Úrskurðarnefndin fékk hvorki ráðið af ákvörðun sveitarfélagsins né gögnum málsins að að lagt hafi verið mat á beiðni kæranda á grundvelli upplýsingalaga eða eftir atvikum annarra laga. Úrskurðarnefndin taldi beiðni kæranda því ekki hafa hlotið þá efnislegu meðferð á lægra stjórnsýslustigi sem nefndinni er fært að endurskoða og lagði því fyrir vseitarfélagið að taka málið til nýrrar meðferðar.

    17. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    963/2020. Úrskurður frá 17. desember 2020.

    Kærð var afgreiðsla Herjólfs ohf. á beiðni kæranda um upplýsingar um heildarlaun framkvæmdarstjóra félagsins og upplýsingar um samanburð á launum framkvæmdarstjóra og framkvæmdarstjóra annarra tilgreindra fyrirtækja. Úrskurðarnefndin vísaði til þess að samkvæmt 4. mgr. 7. gr. upplýsingalaga bæri að veita upplýsingar um launakjör æðstu stjórnenda og upplýsingar um menntun þeirra. Synjun félagsins var því felld úr gildi og lagt fyrir Herjólf að veita umbeðnar upplýsingar. Að öðru leyti var kæru kæranda vísað frá.

    17. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    962/2020. Úrskurður frá 17. desember 2020.

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísaði frá kæru kæranda sem laut að því hvort Vestmannaeyjabæ væri skylt að veita aðgang að tölvu og prentara til að nálgast skjöl og upplýsingar á vefsíðu sveitarfélagsins þar sem ágreiningsefnið félli utan við úrskurðarvald úrskurðarnefndarinnar.

    17. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    961/2020. Úrskurður frá 17. desember 2020.

    Kærð var synjun mennta- og menningarmálaráðuneytisins á beiðni A, fréttamanns, um aðgang að greinargerð starfshóps um varðveislu handrita á Íslandi. Úrskurðarnefndin taldi ljóst, m.a. af fyrirsögn greinargerðarinnar og innihald hennar, að hún hafi verið tekið saman fyrir fund ríkisstjórnar og því undanþegin upplýsingarétti almennings með vísan til 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Synjun ráðuneytisins á afhendingu greinargerðarinnar var því staðfest.

    17. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    960/2020. Úrskurður frá 17. desember 2020

    Kærð var synjun Hjúkrunarheimilisins Skjóls á beiðni kæranda, blaðamanns, á beiðni hans um aðgang að atvikaskrá heimilisins og upplýsingum um tiltekna starfsmenn. Úrskurðarnefndin taldi ljóst að atvikaskráin hefði að geyma upplýsingar sem teldust sjúkrarskrárupplýsingar. Um aðgang sjúklings og aðstandenda til sjúkraskrár færi samkvæmt lögum um sjúkraskrár. Um aðgang annarra að slíkum upplýsingum færi hins vegar samkvæmt almennum ákvæðum upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin tók fram að ekki yrði séð að lagt hefði verið mat á beiðni kæranda á grundvelli upplýsingalaga og taldi beiðni kæranda því ekki hafa hlotið þá efnislegu meðferð á lægra stjórnsýslustigi sem nefndinni er fært að endurskoða og lagði því fyrir Hjúkrunarheimilið að taka málið til nýrrar meðferðar.…

    17. des. 2020Forsætisráðuneytið

    Nýr kynningarvefur Grænvangs

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði í dag nýjan kynningarvef Green by Iceland þar sem sérþekkingu Íslands á sviði endurnýjanlegrar orku og grænna lausna er miðlað til fyrirtækja og stjórnvalda á erlendum vettvangi.

    16. des. 2020Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Lokauppgjör um sanngirnisbætur samþykkt

    Frumvarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um sanngirnisbætur til fólks sem á barnsaldri sætti misgjörðum á stofnunum fyrir fötluð börn varð að lögum í dag.

    12. des. 2020Loftslagsmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ný markmið kynnt á leiðtogafundi í dag

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, kynnir í dag ný markmið Íslands í loftslagsmálum á sérstökum leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna en streymt verður frá fundinum sem hefst klukkan tvö.

    10. des. 2020Forsætisráðuneytið, Auðlindir, Líf og heilsa, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Landbúnaður, Loftslagsmál, Matvælasjóður, Nýsköpun, Ríkisstjórn, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Fyrsta matvælastefnan fyrir Ísland kynnt: Stefnan mörkuð til 2030

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynntu í dag Matvælastefnu fyrir Ísland til ársins 2030.

    10. des. 2020Stjórnskipan og þjóðartákn, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra flytur erindi á málþingi um endurskoðun stjórnarskrár

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra verður meðal þátttakenda á rafrænu málþingi lagadeildar Háskólans á Akureyri sem fram fer í dag í tilefni útgáfu nýrrar bókar um endurskoðun stjórnarskrár. Erindi Katrínar ber yfirskriftina Hefur stjórnarskrárvinna skilað einhverju?

    10. des. 2020Forsætisráðuneytið

    Stelpur rokka og loftslagsverkfall hljóta Jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs 2020

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs á Nauthóli í gær. ​

    10. des. 2020Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál

    Ný metnaðarfull markmið í loftslagsmálum kynnt

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun kynna ný metnaðarfull markmið Íslands í loftslagsmálum á leiðtogafundi laugardaginn 12. desember. Uppfært markmið Íslands kveður á um 55% samdrátt í losun gróðarhúsalofttegunda fyrir 2030 í samfloti með Noregi og ESB.

    08. des. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Auðlindir, Landbúnaður, Forsætisráðuneytið

    Verði ykkur að góðu: Kynning á Matvælastefnu fyrir Ísland til ársins 2030

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynna nýja Matvælastefnu fyrir Ísland til ársins 2030, fimmtudaginn 10.desember kl 11:30. Kynningin verður í beinu streymi og má fylgjast með henni hér.

    04. des. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Litakóðunarkerfi tekið upp vegna COVID-19

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og Embættis landlæknis að COVID-19 viðvörunarkerfi sem byggir á litum líkt og veðurviðvörunarkerfi Veðurstofu Íslands.

    03. des. 2020Forsætisráðuneytið

    Aukaþing SÞ um COVID-19

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpar í kvöld sérstakt aukaþing Sameinuðu þjóðanna um COVID-19.

    03. des. 2020Forsætisráðuneytið, Alþjóðamál, Covid-19, Utanríkismál

    Katrín ræddi við Morrison

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti símafund með Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, í gær.

    30. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    Málþing um opið lýðræði

    Þann 4. desember næstkomandi kl. 13:00-16:00 fer fram opið málþing á vefnum á vegum Efnahags- og framafarastofnunar Evrópu (OECD), forsætisráðuneytisins og rannsóknarverkefnisins Lýðræðisleg stjórnarskrárgerð. Viðfangsefnið er að gera grein fyrir nýjungum í framkvæmd opins lýðræðis, einkum með hliðsjón af þeim hættum sem steðja að lýðræðiskerfum samtímans.

    27. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    Fjölþætt viðbrögð við skýrslum rannsóknarnefnda Alþingis

    Forsætisráðherra hefur lagt fram á Alþingi skýrslu, um ábendingar sem varða stjórnsýsluna í rannsóknarskýrslum Alþingis um orsakir falls íslensku bankanna 2008, orsakir falls sparisjóðanna og erfiðleika Íbúðalánasjóðs og viðbrögð við þeim.

    27. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Innlend hjálparsamtök styrkt

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að veita samtals 5 milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til tíu innlendra hjálparsamtaka sem starfa hér á landi en sú venja hefur skapast á undanförnum árum að ríkisstjórnin styrki slík samtök í aðdraganda jóla.

    27. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    939/2020. Úrskurður frá 27. nóvember 2020

    Kærð var ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að synja beiðni kæranda um aðgang að gögnum er vörðuðu samningu lagafrumvarps. Um var að ræða nokkuð magn gagna sem synjað var um aðgang að á þeim grundvelli að um væri að ræða vinnugögn sem heimilt væri að undanþiggja með vísan til 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, um væri að ræða gögn sem felld yrðu undir 2. tölul. 1. mgr. 10. gr. upplýsingalaga og 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga auk þess sem óheimilt væri að veita aðgang að hluta gagnanna með vísan til 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir þau gögn sem kæranda var synjað um aðgang að, staðfesti synjun ráðuneytisins að hluta, felldi ákvörðunina úr gildi varðandi önnur gögn og vísaði hluta beiðninnar aftur til ráðuneytisins til nýrrar meðferðar.

    25. nóv. 2020Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Nýtt mælaborð um aðgerðir í jafnréttismálum

    Mælaborð um aðgerðir í framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum 2020-2023 er komið út á vef Stjórnarráðsins.

    25. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpar ráðstefnu UNESCO á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hélt í dag ávarp við opnun ráðstefnu Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) sem haldin er í tilefni alþjóðlegs baráttudags gegn kynbundnu ofbeldi.

    23. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    951/2020. Úrskurður frá 23. nóvember 2020

    Kærð var ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um synjun beiðni um aðgang að gögnum sem varða ríkisaðstoðarmál sem var til meðferðar hjá eftirlitsstofnun EFTA. Synjunin byggðist á 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 en samkvæmt greininni er heimilt að takmarka aðgang almennings að gögnum þegar mikilvægir almannahagsmunir krefjast enda hafi þau að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Við mat á því hvort umrædd gögn yrðu felld undir undanþáguna horfði úrskurðarnefndin m.a. til þess að málinu var ekki lokið af hálfu ESA og þannig væri ekki útilokað að afhending gagnanna gæti valdið tjóni. Var ákvörðun ráðuneytisins því staðfest.

    23. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    950/2020. Úrskurður frá 23. nóvember 2020

    Kærð var afgreiðsla yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á beiðni kæranda um aðgang að gögnum kjörstjórnarinnar í tengslum við forsetakosningar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að óháð því hvort starfsemi yfirkjörstjórna falli undir stjórnsýslu Alþingis eða ekki væri afgreiðsla yfirkjörstjórnar á beiðni um aðgang að gögnum á grundvelli upplýsingalaga ekki kæranleg til úrskurðarnefndar um upplýsingamál, sbr. 4. mgr. 2. gr. upplýsingalaga. Varð því að vísa kærunni frá.

    • First
    • Prev
    • 31
    • 32
    • 33
    • 34
    • 35
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband