Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1551–1600 af 3846
    Raða eftir:
    19. mar. 2021Forsætisráðuneytið

    Sif Gunnarsdóttir skipuð í embætti forsetaritara

    Embætti forsetaritara var auglýst laust til umsóknar 27. nóvember 2020 og bárust 60 umsóknir um embættið. Er það niðurstaða forseta Íslands og forsætisráðherra á grundvelli heildarmats á umsóknum, greinargerð hæfnisnefndar og öðrum gögnum málsins að Sif Gunnarsdóttir sé hæfust umsækjenda til að hljóta skipun í embætti forsetaritara.

    18. mar. 2021Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á 65. fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp á árlegum fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (CSW65), sem stendur yfir dagana 15. til 26. mars. Fundurinn og viðburðir honum tengdir fara fram með rafrænum hætti.

    18. mar. 2021Almannaöryggi, Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Ný stefna í almannavarna- og öryggismálum

    Fjórði fundur almannavarna- og öryggismálaráðs var haldinn 15. mars sl. Á fundinum var samþykkt ný stefna í almannavarna- og öryggismálum. Í stefnunni endurspeglast áherslur ríkisstjórnarinnar að standa vörð um traustar almannavarnir og að tryggja órofa virkni mikilvægra innviða.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    981/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    Kærð var afgreiðsla Kennarasambands Íslands og skólastjórafélag Íslands á beiðni um gögn. Þar sem upplýsingalög gilda ekki um beiðnina var kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    980/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    Deilt var um ákvörðun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á beiðni kæranda um aðgang að greiningarvinnu sem ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra byggði áform sín um endurskipulagningu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á. Synjun ráðuneytisins var byggð á því að hluti gagnanna væru vinnugögn sem heimilt væri að undanþiggja með vísan til 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Þá væri hluti þeirra gögn sem felld yrðu undir 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir þau gögn sem kæranda var synjað um aðgang að og staðfesti synjun ráðuneytisins að undanskildu einu gagni sem sent hafði verið þar sem fyrir lá að það var unnið af öðru stjórnvaldi og teldist ekki vinnugagn.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    979/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    A kærði afgreiðslu Herjólfs ohf. á beiðni um upplýsingar um gjaldskrá Herjólfs ohf. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi Herjólf ohf. hafa svarað kæranda með fullnægjandi hætti og vísað kæranda á hvar umbeðnar upplýsingar væri að finna. Kærunni var því vísað frá nefndinni.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    978/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    Deilt var um afgreiðslu Lindarhvols ehf. á beiðni um aðgang að fjórum fundargerðum félagsins þar sem málefni Klakka ehf. höfðu verið til umfjöllunar. Við meðferð málsins hjá úrskurðarnefndinni veitti Lindarhvoll ehf. kæranda aðgang að útdrætti úr sex fundargerðum. Úrskurðarnefndin fékk ekki séð að Lindarhvoll ehf. hefði tekið afstöðu til þess hvort veita ætti kæranda aðgang að fundargerðunum í heild sinni. Var þeim þætti kærunnar því vísað frá úrskurðarnefndinni. Kæran laut einnig að synjun Lindarhvols ehf. á að afhenda kæranda greinargerð setts ríkisendurskoðanda um starfsemi Lindarhvols ehf. Úrskurðarnefnin áréttaði fyrri niðurstöðu sína þess efnis að greinargerðin væri undirorðin sérstakri þagnarskyldu. Var synjun Lindarhvols ehf. á að afhenda greinargerðina því staðfest.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    977/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    Beiðni kæranda um endurupptöku úrskurðar nr. 935/2020 var hafnað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga um endurupptöku ekki uppfyllt og að ekki væru rökstuddar vísbendingar um að á úrskurðinum væru verulegir annmarkar að lögum.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    976/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    Deilt var um afgreiðslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni kæranda, blaðamanns, um aðgang að 40 fundargerðum Lindarhvols ehf. án útstrikana. Úrskurðarnefndin taldi ótvírætt að þær upplýsingar sem afmáðar voru hafi ýmist að geyma upplýsingar um svo mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni þeirra einstaklinga og lögaðila sem um var fjallað að heimilt væri að afmá þær á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga. Þá taldi nefndin hluta upplýsinganna bera með sér að þær félli undir þagnarskylduákvæði 2. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002. Ákvörðun ráðuneytisins var því staðfest.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    975/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    Kærandi kærði afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á nokkrum fjölda beiðna um aðgang að upplýsingum. Kærurnar lutu að því að beiðnunum hefði ekki verið svarað að liðnum 7-22 dögum frá dagsetningu þeirra og leit úrskurðarnefndin svo á að um væri að ræða kærur vegna óhóflegra tafa á meðferð þeirra, sbr. 17. gr. upplýsingalaga og 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga. Með hliðsjón af mati á efni beiðnanna og fjölda beiðna sem kærandi hefur beint til sveitarfélagsins komst úrskurðarnefndin að þeirri niðurstöðu að ekki væri um óhóflega töf á meðferð beiðnanna að ræða. Var kærunum því vísað frá úrskurðarnefndinni í einu lagi.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    974/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    Kærandi kærði afgreiðslu Herjólfs ohf. á nokkrum fjölda beiðna um aðgang að upplýsingum. Kærurnar lutu að því að beiðnunum hefði ekki verið svarað að liðnum 7-22 dögum frá dagsetningu þeirra og leit úrskurðarnefndin svo á að um væri að ræða kærur vegna óhóflegra tafa á meðferð þeirra, sbr. 17. gr. upplýsingalaga og 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga. Með hliðsjón af mati á efni beiðnanna og fjölda beiðna sem kærandi hefur beint til félagsins komst úrskurðarnefndin að þeirri niðurstöðu að ekki væri um óhóflega töf á meðferð beiðnanna að ræða. Var kærunum því vísað frá úrskurðarnefndinni í einu lagi.

    17. mar. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

    Alþjóðaráðstefna um lýðræði og stafræna tækni

    Forsætisráðuneytið, í samvinnu við Rannsóknarsetrið EDDU við Háskóla Íslands, Alþingi og fjölmiðlanefnd, stendur fyrir alþjóðlegu ráðstefnunni Democracy in a Digital Future dagana 25. og 26. mars nk.

    15. mar. 2021Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Kortlagning kynjasjónarmiða - Stöðuskýrsla 2021

    mars 2021 / Forsætisráðuneytið Kortlagning kynjasjónarmiða - Stöðuskýrsla 2021 Í stöðuskýrslunni, sem nú kemur út í annað sinn, má finna greiningu á stöðu kynjanna á flestum þeim málefnasviðum sem fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar tekur til. Öll ráðuneyti hafa unnið jafnréttismat á málefnasviðum og málaflokkum sem þau bera ábyrgð á en efni skýrslunnar er tekið saman af forsætisráðuneytinu og fjármála- og efnahagsráðuneytinu

    15. mar. 2021Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Vinnumál, Forsætisráðuneytið

    Hefjum störf – umfangsmiklar vinnumarkaðsaðgerðir fyrir atvinnuleitendur og atvinnulífið

    Markmiðið er að með átakinu verði til allt að 7.000 tímabundin störf í samvinnu við atvinnulífið, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök.

    12. mar. 2021Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Efnahagsmál og opinber fjármál, Forsætisráðuneytið

    Tekið tillit til kynjasjónarmiða við ákvarðanatöku

    Kynjasjónarmið á flestum þeim málefnasviðum sem fjármálaáætlun tekur til hafa verið kortlögð í stöðuskýrslu sem kynnt var á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Á fundinum var samþykkt að nýta niðurstöður skýrslunnar við stefnumótun og að tekið yrði tillit til kynja- og jafnréttissjónarmiða við ákvarðanatöku. Einnig var samþykkt að taka saman heildstætt yfirlit yfir áhrif COVID-19 á kynin.

    12. mar. 2021Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla um árangursmat mismunandi aðgerða á landamærum

    Hópur vísindafólks við Háskóla Íslands, undir handleiðslu Thors Aspelund, hefur rannsakað áhrif mismunandi sóttvarnaaðgerða á landamærum. Verkefnið var unnið í framhaldi af styrk ríkisstjórnarinnar til rannsókna á áhrifum sóttvarnaaðgerða á þróun COVID-19.

    12. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Velsæld

    Mælikvarðar um hagsæld og lífsgæði birtir á nýjum vef

    Hagstofa Íslands hefur opnað nýjan vef: Velsældarvísar: Miðlun mælikvarða um hagsæld og lífsgæði á Íslandi sem er ætlað að gefa heildarmynd af hagsæld og lífsgæðum landsmanna yfir tíma. Á vefsíðunni má finna upplýsingar um 39 velsældarmælikvarða auk velsældarkvarða embættis landslæknis sem mælir andlega líðan fólks.

    12. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Almannaöryggi, Atvinnuvegaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Undirbúa vernd mikilvægra innviða vegna mögulegra eldsumbrota

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að fela hópi ráðuneytisstjóra að leiða nauðsynlega vinnu við undirbúning verndar mikilvægra innviða vegna mögulegra eldsumbrota á Reykjanesi. Huga þarf að hröðum og öruggum viðbrögðum við mögulegum eldsumbrotum, styðja við vinnu heimaaðila og tryggja um leið fyllsta öryggi íbúa.

    11. mar. 2021Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir verkefnið „Römpum upp Reykjavík“

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt að veita 3 milljóna króna styrk af ráðstöfunarfé sínu til að styðja við stofnun Aðgengissjóðs Reykjavíkur. Sjóðnum er ætlað að auka aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslunum og veitingahúsum í Reykjavík en félagsmálaráðuneytið mun einnig styrkja verkefnið um 2 milljónir króna.

    08. mar. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók þátt í viðburði UN Women í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók þátt í viðburði á vegum UN Women í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Viðburðurinn var rafrænn og bar yfirskriftina: „Kvenleiðtogar: Jafnréttisbaráttan á tímum heimsfaraldurs COVID-19 á leið til kynslóðar jafnréttis“ (e; „Women in leadership: Achieving an equal future in a COVID-19 world on the way to the Generation Equality Forum“).

    08. mar. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra hringdi bjöllu fyrir jafnrétti

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hringdi í morgun bjöllu Kauphallarinnar fyrir jafnrétti á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Kauphallir í yfir 90 löndum í samstarfi við UN Women taka þátt í þessum viðburði en UN Women beinir sjónum sínum í dag sérstaklega að kvenleiðtogum, kvennasamtökum og kvennastéttum um allan heim. Viðburðurinn hér á landi var í samstarfi við SA og FKA.

    05. mar. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra heimsækir Reykjanesbæ og Grindavík

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsótti Reykjanesbæ og Grindavik í dag.

    05. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ánægja með þjónustu opinberra stofnana en tækifæri til umbóta

    Á heildina litið er almenningur nokkuð ánægður með þjónustu opinberra stofnana. Þetta sýna niðurstöður þriðja og síðasta áfanga þjónustukönnunar Gallup sem lauk í febrúar sl. Ríkisstjórnin vinnur markvisst að því að bæta almannaþjónustu og er könnunin liður í þeirri vinnu.

    05. mar. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ræðir jafnréttismál við forsætisráðherra Kanada, Noregs og borgarstjóra London á SHE 2021

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók þátt í opnunarviðburði alþjóðlegu jafnréttisráðstefnunnar SHE 2021, sem haldin er í Noregi. Þema ráðstefnunnar í ár er „Jafnrétti skiptir máli“ (e; „Equality Matters“).

    04. mar. 2021Forsætisráðuneytið

    Beðist afsökunar á villu í skýrslu þjóðaröryggisráðs

    Í skýrslu þjóðaröryggisráðs um mat á ástandi og horfum í þjóðaröryggismálum er fjallað um hryðjuverkaógn. Beðist er afsökunar á villu í skýrslunni.

    01. mar. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

    Spurningar um gervigreindarstefnu fyrir Ísland í samráðsgátt

    Nefnd um ritun gervigreindarstefnu fyrir Ísland, sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skipaði í október 2020, vinnur nú drög að stefnu Íslands um gervigreind. Lögð er áhersla á að lýðræðislegar reglur ráði því hvernig gervigreind er notuð og öllum sé tryggður jafn réttur til að móta þjóðfélag framtíðarinnar.

    26. feb. 2021Forsætisráðuneytið

    Upplýsingar úr málaskrám ráðuneyta birtar opinberlega

    Ráðuneyti í Stjórnarráði Íslands birta í dag í fyrsta sinn opinberlega upplýsingar úr málaskrám sínum. Skyldu til þessarar birtingar var komið á með breytingu á upplýsingalögum árið 2019 en umrætt ákvæði tók gildi um síðustu áramót.

    26. feb. 2021Rit og skýrslur, Almannaöryggi, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla þjóðaröryggisráðs um mat á ástandi og horfum í þjóðaröryggismálum

    Í samræmi við það hlutverk þjóðaröryggisráðs að meta ástand og horfur í þjóðaröryggismálum samþykkti ráðið í maí árið 2018 að skipa stýrihóp til að gera tillögu að slíku mati sem lægi stefnumótun og áætlanagerð til grundvallar.

    26. feb. 2021Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir kaup á minnisvarða um Hans Jónatan og gerð afsteypu af styttu Nínu Sæmundsson

    Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var ákveðið að veita styrki annars vegar til kaupa á minnisvarða um Hans Jónatan og hins vegar til gerðar afsteypu af styttunni „Afrekshugur“ eftir Nínu Sæmundsson.

    26. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir gerð heimildaþátta um COVID-19 og Eurovision-safn á Húsavík

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að styrkja gerð heimildaþátta um COVID-19 faraldurinn á Íslandi og uppbyggingu Eurovision-safns á Húsavík.

    24. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    973/2021. Úrskurður frá 5. febrúar 2021.

    Í málinu var deilt um þá ákvörðun prófnefndar um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður um að synja beiðni kæranda um aðgang að fyrirliggjandi eldri prófum sem lögð voru fyrir árin 2014 – 2020. Þrátt fyrir að ekki væri víst að öll prófin yrðu notuð í öllum prófum framvegis taldi úrskurðarnefndin ljóst að þau væru lögð fyrir með svo reglubundnum hætti að hætta væri á að þau yrðu þýðingarlaus ef þau yrðu afhent, sbr. 5. tölul. 10. gr. upplýsingalaga.

    24. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    972/2021. Úrskurður frá 5. febrúar 2021.

    Deilt var um afgreiðslu ÁTVR á beiðni kæranda um aðgang að upplýsingum um lítrasölu vöru á nánar tilgreindu tímabili. Úrskurðarnefndin leit til þess að kæranda hefði verið leiðbeint um hvernig unnt væri að kalla fram umræddar upplýsingar á vefsvæði stofnunarinnar. Eins og málið var vaxið taldi úrskurðarnefndin ekki ástæðu til að gera athugasemd við afgreiðslu ÁTVR á beiðni kæranda. Var það því niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál að vísa kærunni frá nefndinni.

    24. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    971/2021. Úrskurður frá 5. febrúar 2021.

    A kærði synjun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á beiðni um aðgang annars vegar að upplýsingum varðandi stærstu framleiðendur svínakjöts á Íslandi og hins vegar stærstu innflytjendur svínakjöts á Íslandi. Úrskurðarnefndin féllst ekki á það með ráðuneytinu að upplýsingar um þrjá stærstu framleiðendur svínakjöts á Íslandi hefðu að geyma upplýsingar um mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækis í skilningi 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi hins vegar ekki forsendur til að draga þá staðhæfingu ráðuneytisins i efa að gögn varðandi stærstu innflytjendur svínakjöts væru ekki fyrirliggjandi í ráðuneytinu og var kærunni því vísað frá hvað þennan þátt hennar varðaði.

    24. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    970/2021. Úrskurður frá 5. febrúar 2021.

    Í málinu var deilt um rétt kæranda til aðgangs að gögnum og upplýsingum hjá Garðabæ. Úrskurðarnefndin taldi ekki forsendur til að draga í efa fullyrðingu sveitarfélagsins þess efnis að kæranda hefði þegar verið afhent umbeðin sendibréf. Þá taldi úrskurðarnefndin sig ekki heldur hafa forsendur til að draga í efa þá staðhæfingu sveitarfélagsins að önnur gögn sem kæran laut að væru ekki fyrirliggjandi hjá sveitarfélaginu. Kærunni var því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    24. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    969/2021. Úrskurður frá 5. febrúar 2021.

    A, blaðamaður, kærði synjun Borgarskjalasafns á beiðni hans um aðgang að upplýsingum um málefni vistheimilisins Arnarholts sem byggði á því að um viðkvæmt starfsmannamál væri að ræða sem ekki væri heimilt að veita aðgang að, sbr. 1. mgr. 26. gr. laga nr. 77/2014. Úrskurðarnefndin taldi Borgarskjalasafn ekki hafa lagt sjálfstætt mat á umbeðin gögn með hliðsjón af sjónarmiðum 1. mgr. 26. gr. laga nr. 77/2014, sbr. 9. gr. upplýsingalaga, sem rakin eru hér að framan. Þá tók nefndin fram að ekki yrði séð að Borgarskjalasafn hefði leitað samþykkis þess aðila sem um væri fjallað í gögnunum.…

    23. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Uppfærð loftslagsmarkmið send SÞ

    Uppfærð markmið Íslands í loftslagsmálum um aukinn samdrátt í losun, sem kynnt voru á leiðtogafundi um loftslagsmetnað í desember sl., hafa verið tilkynnt formlega til skrifstofu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna.

    19. feb. 2021Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Dómstólar og stjórnsýslunefndir

    febrúar 2021 / Forsætisráðuneytið Dómstólar og stjórnsýslunefndir Kostir og gallar við þá stjórnkerfisbreytingu að leggja niður kærunefndir og fela dómstólum verkefni þeirra. Dómstólar og stjórnsýslunefndir

    19. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Almannaöryggi

    Vel gengur að fylgja eftir úrbótum á innviðum eftir fárviðrið í desember 2019

    Ríkisstjórnin samþykkti þann 28. febrúar 2020 aðgerðaáætlun um uppbyggingu innviða í kjölfar fárviðrisins sem geisaði í desember 2019. Í aðgerðaáætluninni voru lagðar til 287 nýjar aðgerðir eða flýtiaðgerðir.

    18. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    968/2021. Úrskurður frá 22. janúar 2021.

    A kærði afgreiðslu barnaverndar Kópavogs á beiðni hans um aðgang að forsjárhæfnismati sem barnsmóðir hans gekkst undir. Úrskurðarnefndin taldi umrædd gögn hluta af barnaverndarmáli í skilningi 45. gr. barnaverndarlaga og tók fram að sérstökum aðila, úrskurðarnefnd velferðarmála væri falið að fjalla um ágreining í tengslum við slík mál, þ. á m. vegna aðgangs að gögnum. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    18. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    967/2021. Úrskurður frá 22. janúar 2021.

    Deilt var um þá ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins að synja beiðni kæranda um aðgang að greinargerð setts ríkisendurskoðanda um starfsemi Lindarhvols ehf. Ákvörðun ráðuneytisins var byggð á ákvæði 3. mgr. 15. gr., sbr. 14. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Úrskurðarnefnd taldi ákvæðið fela í sér sérstaka þagnarskyldureglu sem takmarkaði upplýsingarétt almennings, sbr. 3. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Nefndin féllst á það með ráðuneytinu að greinargerðin hefði verið send ráðuneytinu á grundvelli lagaskyldu og að hún væri í drögum og athugun málsins væri ekki lokið. Væri greinargerðin því undirorpin sérstakri þagnarskyldu, sbr. 3. mgr. 15. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Var synjun ráðuneytisins því staðfest.

    18. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    966/2021. Úrskurður frá 22. janúar 2021.

    A kærði synjun Seðlabanka Íslands á beiðni um aðgang að gögnum í tengslum við sátt Fjármálaeftirlitsins og Arion banka hf. sem tengdust fjárfestingarferli Frjálsa Lífeyrissjóðsins í United Silicon hf. Úrskurðarnefndin taldi hafið yfir vafa að umbeðnar upplýsingar hefðu ýmist að geyma upplýsingar um hagi viðskiptamanna Seðlabanka Íslands í skilningi 1. mgr. 41. gr. laga um Seðlabanka Íslands nr. 92/2019 Íslands, eða viðskipta- eða einkamálefni viðskiptamanna fjármálafyrirtækis, sbr. 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Var því ekki hjá því komist að staðfesta ákvörðun bankans.

    18. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    965/2021. Úrskurður frá 22. janúar 2021.

    Stúdentaráð Háskóla Íslands kærði afgreiðslu mennta- og menningarmálaráðuneytisins á beiðni kæranda um aðgang að niðurstöðum könnunar um atvinnumál stúdenta. Úrskurðarnefndin taldi ekki unnt að leggja annað til grundvallar en að ráðuneytið hefði afhent kæranda umbeðin gögn. Þá tók nefndin fram að það félli utan við úrskurðarvald nefndarinnar að fjalla um ákvörðun ráðuneytisins að birta ekki niðurstöður könnunarinnar opinberlega að eigin frumkvæði. Að mati úrskurðarnefndarinnar lá því ekki fyrir kæranleg ákvörðun til úrskurðarnefndarinnar. Var kærunni því vísað frá nefndinni.

    17. feb. 2021Efnahagsmál og opinber fjármál, Forsætisráðuneytið

    Tekjusagan uppfærð: Háskólamenntaðar konur með svipaðar tekjur og karlar með grunnmenntun

    Vefurinn tekjusagan.is hefur verið uppfærður með gögnum frá 2019. Tekjusagan sýnir þróun ráðstöfunartekna, eigna og skulda landsmanna á aðgengilegan hátt.

    17. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Líkan um áhrif bólusetningar á áhættustig vegna COVID-19

    Hröð bólusetning elstu aldurshópanna dregur mjög úr fjölda þeirra sem veikjast lífshættulega af COVID-19. Hermilíkan sem þróað hefur verið á vegum forsætisráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis gerir það mögulegt að skoða líklegar sviðsmyndir um hvernig áhættustig vegna faraldursins breytist eftir því sem bólusetningum miðar áfram.

    16. feb. 2021Forsætisráðuneytið

    Skýrsla um kosti og galla þess að fela dómstólum verkefni kærunefnda á stjórnsýslustigi

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar sl. föstudag skýrslu um kosti og galla þess að leggja niður kærunefndir á stjórnsýslustigi og fela ráðuneytum eða dómstólum verkefni þeirra. Skýrslan var unnin af þeim Páli Hreinssyni, forseta EFTA-dómstólsins, og Kristínu Benediktsdóttur, dósent við lagadeild Háskóla Íslands.

    13. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ísland staðfestir samning Evrópuráðsins um aðgang að opinberum skjölum

    Ragnhildur Arnljótsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu, tilkynnti framkvæmdastjórn Evrópuráðsins þann 10. febrúar síðastliðinn að Ísland hafi nú staðfest samning um aðgang að opinberum skjölum (e. Council of Europe Convention on Access to Official Documents, Tromsø-Convention).

    12. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Uppbygging atvinnulífs á Seyðisfirði

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að gera samkomulag til þriggja ára við Múlaþing og Austurbrú, samstarfsvettvang stjórnsýslu á Austurlandi um uppbyggingu atvinnulífs á Seyðisfirði. Verkefninu fylgir 215 milljóna framlag á næstu þremur árum.

    08. feb. 2021Forsætisráðuneytið

    Áframhaldandi samstarf við Kvenréttindafélag Íslands og Samtökin ´78

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Tatjana Latinovic, formaður Kvenréttindafélags Íslands, undirrituðu samstarfssamning í dag um ráðgjöf, fræðslu, námskeiðahald og upplýsingagjöf um jafnrétti kynja á innlendum og erlendum vettvangi.

    05. feb. 2021Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Sjálfstæð innlend mannréttindastofnun í bígerð

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að skipa starfshóp til að útfæra hugmyndir um sjálfstæða innlenda mannréttindastofnun, sem uppfyllir Parísarviðmið Sameinuðu þjóðanna um slíkar stofnanir á Íslandi.

    05. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Undirbúningur hafinn að stofnun Norðurslóðaseturs á Íslandi

    Ríkisstjórnin hefur ákveðið að skipa nefnd um undirbúning að stofnun og byggingu Norðurslóðaseturs í Reykjavík sem yrði kennt við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrum forseta Íslands.

    • First
    • Prev
    • 30
    • 31
    • 32
    • 33
    • 34
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband