Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN

    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1401–1450 af 2979
    Raða eftir:
    15. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Framvísun bólusetningarvottorða á landamærum

    Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt tillögu vinnuhóps um vottorð, þess efnis að bólusetningarvottorð sem uppfylla leiðbeiningar sóttvarnalæknis og gefin eru út í EES/EFTA-ríki verði tekin gild á landamærum Íslands.

    15. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Skimunarskylda á landamærum

    Skimun á landamærum verður skylda frá og með deginum í dag en í ljósi alvarlegrar stöðu faraldursins víða um heim verður núverandi fyrirkomulag sóttvarna á landamærunum með tvöfaldri skimun og fimm daga sóttkví á milli framlengt til 1. maí.

    15. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Fyrirkomulag sóttvarna á landamærum frá 1. maí

    Þann 1. maí nk. verða tekin varfærin skref til afléttingar sóttvarnaraðgerða á landamærum sem taka munu mið af ástandi faraldursins á brottfararstað komufarþega. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

    13. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breytingum á aldursviðmiðum brjóstaskimana frestað

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fresta um ótiltekinn tíma breytingum á neðri mörkum aldursviðmiða vegna lýðgrundaðra skimana fyrir brjóstakrabbameinum. Kynna þurfi betur áformaðar breytingar og fagleg rök að baki þeim. Ákvörðun um að hækka efri mörk aldursviðmiðanna úr 69 árum í 74 ár stendur óbreytt.

    13. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Alzheimersamtökunum veittur 7 milljóna króna fræðslustyrkur

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur veitt Alzheimersamtökunum 7 milljóna króna styrk til verkefnis um jafningjafræðslu á hjúkrunarheimilum til að styrkja starfsfólk sem sinnir umönnun fólks með heilabilunarsjúkdóma. Styrkveitingin er liður í framkvæmd aðgerðaáætlunar heilbrigðisráðuneytisins vegna þjónustu við einstaklinga með heilabilun. Alzheimersamtökin fengu 15 milljóna króna styrk á liðnu ári til sama verkefnis sem hefur farið vel af stað. Styrkurinn sem nú er veittur er ætlaður til að halda áfram vinnu við verkefnið út árið 2021. Áður hafði ráðherra veitt Háskólanum á Akureyri styrk til að koma á fót sérnámi fyrir ráðgjafa á sviði heilabilunar og er það einnig liður í framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar.

    13. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Beint frá málþingi Vísindasiðanefndar í dag um rannsóknir á tímum COVID

    Málþing Vísindasiðanefndar um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði á tímum COVID hefst kl. 13.00 í dag og stendur til kl. 16. Streymt verður beint frá þinginu og þeir sem fylgjast með geta spurt spurninga í gegnum forritið Slido. Markmiðið er að leiða saman fulltrúa rannsóknasamfélagsins, heilbrigðisyfirvalda og eftirlitsaðila til að ræða þá möguleika og þær áskoranir sem felast í rannsóknum meðan á faraldri stendur. Fyrirlesarar eru Alma Möller landlæknir, Vilmundur Guðnason, Helga Þórisdóttir, Karl Andersen, Unnur Valdimarsdóttir og Kári Stefánsson.

    12. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Börn sæti sóttkví við komu til landsins frá 13. janúar

    Frá og með morgundeginum 13. janúar verður börnum fæddum 2005 eða síðar skylt að sæta sóttkví með foreldri eða forráðamanni við komu til landsins, samkvæmt reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð þessa efnis. Ákvörðunin er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Reglugerðin hefur verið send Stjórnartíðindum til birtingar, öðlast gildi 13. janúar og gildir til og með 31. janúar næstkomandi.

    12. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Fyrsta sending bóluefnis Moderna komið til landsins

    Tekið var á móti fyrstu sendingu bóluefnis Moderna í dag. Þetta er annað bóluefnið gegn COVID-19 sem hlýtur markaðsleyfi Evrópsku lyfjastofnunarinnar og tekið er í notkun hér á landi. Áður var bóluefni Pfizer komið með markaðsleyfi og hófst bólusetning með því fyrir áramót. Vonir standa til þess að þriðja bóluefnið, þ.e. frá AstraZeneca fái markaðsleyfi innan tíðar en Lyfjastofnun Evrópu tilkynnti í dag að hún áformi að halda matsfund um bóluefnið 29. janúar næstkomandi.

    09. jan. 2021Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breyttar samkomutakmarkanir

    09 janúar 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Breyttar samkomutakmarkanir Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Þann 10. desember 2020 tók gildi reglugerð um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar af völdum Covid-19. Síðan sú reglugerð tók gildi hefur staða faraldursins hérlendis verið tiltölulega góð

    08. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Takmarkanir á samkomum rýmkaðar frá 13. janúar

    Fjöldatakmarkanir verða 20 manns, heilsu- og líkamsræktarstöðvum verður gert kleift að hefja starfsemi á ný en með ströngum skilyrðum og skíðasvæðunum sömuleiðis. Íþróttastarf barna og fullorðinna verður heimilað að uppfylltum skilyrðum og sömuleiðis íþróttakeppnir án áhorfenda. Fjöldamörk í sviðslistum verða aukin þannig að 50 manns mega vera á sviði og í sal 100 fullorðnir og 100 börn. Sama gildir um aðra menningarviðburði. Þetta er meginefni breyttra reglna um samkomutakmarkanir sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og kynntar voru á fundi ríkisstjórnar í dag. Áformaðar breytingarnar taka gildi 13. janúar og gilda til 17. febrúar næstkomandi.

    08. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillögur um bætta barneignaþjónustu

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að gera tillögur að bættri barneignaþjónustu með áherslu á að auka samþættingu milli meðgönguverndar, fæðingarhjálpar og þjónustu við konur í sængurlegu hefur skilað ráðherra tillögum sínum. Tillögurnar taka mið af áherslum heilbrigðisstefnu og fela í sér framtíðarsýn til ársins 2030.

    07. jan. 2021Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Barneignaþjónusta. Stöðuskýrsla og tillögur starfshóps til ráðherra

    janúar 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Barneignaþjónusta. Stöðuskýrsla og tillögur starfshóps til ráðherra Barneignaþjónusta

    07. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    Til umsagnar: Frumvarp til breytinga á lögum um landlækni og lýðheilsu

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt drög að frumvarpi til breytinga á lögum um landlækni og lýðheilsu. Þar eru lagðar til breytingar til að skýra heimildir til kvörtunar til embættis landlæknis vegna heilbrigðisþjónustu, auk þess að skýra málsmeðferð í slíkum málum og gera einfaldari þannig að hún falli betur að störfum og hlutverki landlæknis.

    06. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um rafrettur til umsagnar

    Vakin er athygli á að drög að frumvarpi til breytinga á lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur hefur verið birt til umsagnar í samráðsgátt. Markmið áformaðra lagabreytinga er að setja skýrar reglur um heimildir til sölu, markaðssetningar og notkunar á nikótínvörum, þar á meðal nikótínpúðum. Umsagnarfrestur er til 31. janúar.

    06. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Lyfjastofnun Evrópu mælir með markaðsleyfi fyrir Moderna

    Lyfjastofnun Evrópu (EMA) mælti í dag með útgáfu markaðsleyfis fyrir bóluefni Moderna við COVID-19. Fjallað er um mat EMA á bóluefninu á vef Lyfjastofnunar Íslands. Þar segir einnig fram að íslenskt markaðsleyfi fyrir bóluefnið sé væntanlegt von bráðar.

    05. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Áætlun um fyrstu afhendingu bóluefnis Moderna

    Nú liggur fyrir áætlun um afhendingu fyrstu bóluefnaskammta lyfjafyrirtækisins Moderna. Vonir standa til að fyrirtækið fái markaðsleyfi í Evrópu í kjölfar matsfundar Lyfjastofnunar Evrópu á morgun. Gert er ráð fyrir að Ísland fái 5.000 bóluefnaskammta frá Moderna í janúar og febrúar en að eftir það verði afhendingin hraðari. Þetta er hlutfallslega sama úthlutun og til annarra þjóða í Evrópusamstarfi um kaup á bóluefnum sem miðast við íbúafjölda þjóða. Alls á Ísland von á 128.000 bóluefnaskömmtum frá Moderna sem dugir fyrir 64.000 einstaklinga.

    05. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Um markaðsleyfi lyfja/bóluefna

    Áður en bóluefni eða önnur lyf eru sett á markað þarf að ganga úr skugga um að þau uppfylli strangar kröfur með tilliti til öryggis og heilbrigðissjónarmiða. Áður en nýtt lyf kemst á markað eru framkvæmdar viðamiklar eiturefna-, gæða- og klínískar rannsóknir af framleiðandanum. Niðurstöður þessara prófana eru metnar af lyfjayfirvöldum til að staðfesta gæði og öryggi lyfsins. Að því loknu er hægt að markaðssetja og selja lyfið til neytenda. Til að tryggja öfluga heilsuvernd og frjálsan flutning lyfja á milli Evrópuríkja hefur Evrópusambandið samræmt kröfur til rannsókna og prófana hjá aðildarríkjunum. Lyfjastofnun Evrópu (EMA), með aðsetur í Amsterdam, er miðpunktur nets lyfjastofnana á EES sem hafa með sér náið samstarf um leyfisveitingar og eftirlit með lyfjum.…

    04. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Málþing um vísindarannsóknir á tímum heimsfaraldurs 13. janúar

    Heilbrigðisráðuneytið vekur athygli á opnu málþingi sem vísindasiðanefnd boðar til um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði á tímum Covid-19. Markmiðið er að leiða saman fulltrúa rannsóknasamfélagsins, heilbrigðisyfirvalda og eftirlitsaðila til að ræða þá möguleika og þær áskoranir sem felast í rannsóknum meðan á faraldri stendur. Málþingið verður haldið á Grand Hótel Reykjavík 13. janúar næstkomandi kl. 13.00 – 16.00 og verður streymt beint frá viðburðinum.

    31. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Í ljósi umræðu síðustu daga um samninga um bóluefni og afhendingu efnanna vill heilbrigðisráðuneytið árétta eftirfarandi:

    Það er styrkur Íslands að hafa átt þess kost að vera með í breiðu og öflugu samstarfi Evrópuþjóða um samninga og kaup á bóluefni. Við höfum þegar tryggt okkur með þeim samningum bóluefni sem er mun meira en við þurfum á að halda. Ísland er samferða Evrópusambandinu og hinum Norðurlöndum og reiknað er með því að stór hluti Íslendinga verði bólusettur fyrir sumarið.

    30. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur um byggingu 64 rýma hjúkrunarheimilis við Boðaþing í Kópavogi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Ármann Kristinn Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, hafa undirritað samning sem kveður á um byggingu hjúkrunarheimilis í Kópavogi fyrir 64 íbúa. Heimilið mun rísa á lóð Kópavogsbæjar við Boðaþing og verður samtengt við þjónustumiðstöð og 44 rýma hjúkrunarheimili sem þegar er á lóðinni. Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina eru rúmir 3 milljarðar króna. Ríkið greiðir 85% kostnaðarins og sveitarfélagið 15%.

    Öryrkjar og aldraðir greiða minna fyrir tannlækningar frá áramótum

    Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar öryrkja og aldraðra eykst 1. janúar næstkomandi úr 50% í 57%. Þetta er liður í áætlun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga. Áætlaður kostnaður ríkisins vegna þessa nemur 200 milljónum króna. Stefnt er að því að greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna tannlækniskostnaðar þessara hópa verði komin í 75% árið 2024. Til að ná því markmiði er í gildandi fjármálaáætlun gert ráð fyrir að framlög hins opinbera verði aukin um 200 milljónir króna á næstu fjórum árum.

    30. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Undirritun samnings Íslands um bóluefni Moderna og viðbótarsamnings um bóluefni frá Pfizer

    Samningur Íslands um bóluefni Moderna og viðbótarsamningur um bóluefni frá Pfizer voru undirritaðir í heilbrigðisráðuneytinu í dag. Samningurinn við Moderna tryggir Íslendingum 128.000 bóluefnaskammta og dugir fyrir 64.000 einstaklinga. Þetta er það sama og aðrar þjóðir í samstarfi Evrópuþjóða eiga rétt á sem hlutfall af mannfjölda.

    30. des. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Sjúklingar borga enn minna

    30 desember 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Sjúklingar borga enn minna Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Lækkun greiðsluþátttöku sjúklinga er afgerandi þáttur í því að jafna aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu og sporna við heilsufarslegum ójöfnuði af félagslegum og fjárhagslegum ástæðum. Lækkun greiðsluþátttöku sjúklinga er eitt þeirra atriða sem ég hef sett í sérstakan forgang í embætti heilbrigðisráðherra á kjörtímabilinu, þannig að sjúklingar borgi minna fyrir heilbrigðisþjónustu og lyf, en ríkið borgi stærri hlut. Lækkunin er ein stærsta jöfnunaraðgerð sem ríkisstjórnin hefur ráðist í á þessu kjörtímabili

    29. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Bólusetning hafin við COVID-19

    Fjórir starfsmenn heilbrigðisþjónustu voru bólusettir við COVID-19 kl. 9.00 í morgun og voru þar með fyrstir allra til að hljóta bólusetningu hér á landi. Klukkan 10.00 hófst bólusetning á hjúkrunarheimilum. Þorleifur Hauksson var fyrstur íbúa á hjúkrunarheimili til að fá bólusetningu en hann býr á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð í Reykjavík. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fylgdust með bólusetningu Þorleifs, ásamt starfsfólki Seljahlíðar og fjölmiðlafólki og var tímamótunum vel fagnað af Þorleifi og öðrum viðstöddum.

    28. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Ísland fær 80.000 viðbótarskammta af bóluefni frá Pfizer

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að gera viðbótarsamning um kaup á 100 milljónum skammta bóluefnis frá Pfizer til viðbótar þeim 200 milljónum sem framkvæmdastjórnin hafði áður samið um. Þetta gefur öllum ríkjum sem aðild eiga að Evrópusamstarfinu, Íslandi þar með töldu, kost á að kaupa meira bóluefni frá framleiðandanum. Samningur Íslands um kaup á 80.000 skömmtum til viðbótar frá Pfizer verður undirritaður á morgun. Viðræður framkvæmdastjórnarinnar og Pfizer um afhendingaráætlun standa yfir og verða þær niðurstöður kynntar um leið og þær eru ljósar.

    Lækkun komugjalda í heilsugæslu og fleiri breytingar um áramót

    Almenn komugjöld í heilsugæslu lækka úr 700 krónum í 500 krónur 1. janúar næstkomandi og sem fyrr greiða börn, öryrkjar og aldraðir ekkert komugjald. Fellt verður niður sérstakt komugjald hjá þeim sem sækja aðra heilsugæslustöð en þeir eru skráðir hjá. Heilsugæslan um allt land tekur um áramót við skimunum fyrir krabbameini í leghálsi. Gjald fyrir leghálsstrok lækkar þá úr 4.818 krónum í 500 krónur.

    COVID 19: Bóluefni Pfizer komið til landsins – bólusetning hefst á morgun

    „Dag­ur­inn í dag er dag­ur góðra frétta og senni­lega betri frétta en við höf­um lengi heyrt“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra við móttöku fyrstu 10.000 skammtanna af bóluefni Pfizer við COVID-19 í dag. Hún sagði engan hafa órað fyrir því að takast myndi að þróa bóluefni við þessum skæða og alvarlega heimsfaraldri á svo skömmum tíma. Það hefði gerst hraðar en nokkur þorði að vona eða taldi raunhæft. Þetta væri ótrúlegur árangur sem þakka mætti víðtækri samstöðu og samvinnu vísindamanna, fyrirtækja, heilbrigðiskerfa og þjóða. Fyrsta COVID-19 smitið greindist hér á landi í lok febrúar á þessu ári og rúmt ár er frá því að fyrsta smitið greindist í heiminum.

    22. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Hjúkrunardeild fyrir heimilislaust fólk sett á fót á næsta ári

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að setja á fót 12 rýma sérhæfða hjúkrunardeild ætlaða heimilislausu fólki sem þarfnast hjúkrunar og umönnunar og glímir við langvarandi neysluvandamál, oft samhliða geðrænum vanda. Þörf fyrir sértækt úrræði sem þetta er brýn að mati verkefnahóps sem fjallað hefur um málið. Um sé að ræða viðkvæman hóp sem við núverandi aðstæður fær ekki fullnægjandi þjónustu. Heimilið verður samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga.

    22. des. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Heilbrigðisráðuneytið

    Fyrstu 1000 dagar barnsins - ný norræn stöðugreining

    Verkefnið beinist að því að skoða hvernig unnið er að því á Norðurlöndunum að efla vellíðan og geðheilsu á fyrstu æviárum barna.

    22. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Undirritun samnings við Janssen um bóluefni fyrir 235.000 manns

    Samningur Íslands um bóluefni frá lyfjaframleiðandanum Janssen var undirritaður í dag. Þetta er þriðji samningur íslenskra heilbrigðisyfirvalda um kaup á bóluefnum við COVID 19. Samningurinn við Janssen tryggir bóluefni fyrir 235.000 einstaklinga. Áður var búið að gera samning um bóluefni frá Pfizer fyrir 85.000 einstaklinga og Astra Zenca fyrir 115.000 einstaklinga.

    21. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Skólastarf frá áramótum samkvæmt nýrri reglugerð

    Takmarkanir á skólahaldi verða rýmkaðar frá gildandi reglum samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Breytingarnar leiða meðal annars til þess að mögulegt verður að bjóða upp á staðnám í öllum framhaldsskólum, einnig skólum með áfangakerfi. Á háskólastigi verður heimilt að hafa allt að 50 manns saman í rými en blöndun milli hópa er óheimil. Reglugerðin gildir til 28. febrúar en með fyrirvara um breytingar ef þörf krefur.

    COVID 19: Fáum hlutfallslega sama magn bóluefna og önnur ríki í Evrópusamstarfi

    Þátttaka Íslands í samstarfi Evrópuþjóða um kaup á bóluefnum í gegnum samninga framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tryggir Íslandi hlutfallslega sama magn bóluefna og öllum öðrum þjóðum sem taka þátt í samstarfinu. Framkvæmdastjórnin kveður á um hve mikið ríkin fá og er þar alfarið byggt á hlutfallslegri úthlutun miðað við höfðatölu hverrar þjóðar.

    21. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur um stóraukna heimahjúkrun í Reykjavík

    Sjúkratryggingar Íslands og Reykjavíkurborg hafa gert með sér nýjan samning um heimahjúkrun í Reykjavík til fjögurra ára. Árlegur kostnaður við samninginn nemur um 2 milljörðum króna. Nýlega var gerður sérstakur samningur um rekstur öldrunarteymis sem sinnir sérhæfðri heilbrigðisþjónustu við aldraða í heimahúsum í Reykjavík. Við gerð hans tryggði heilbrigðisráðherra 150 milljónir króna á ársgrundvelli til reksturs teymisins og styrkingu innviða heimahjúkrunar. Þess er vænst að þjónusta teymisins bæti til muna þjónustu við aldraða í heimahúsum, fækki sjúkrahússinnlögnum og sé einnig til þess fallin að vinna gegn þeim vanda sem oft skapast á bráðamóttöku Landspítala þegar ekki er unnt að útskrifa fólk af sjúkrahúsinu að meðferð lokinni vegna skorts á úrræðum.

    20. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Þegar búið að tryggja bóluefni fyrir 87% þjóðarinnar

    Íslensk stjórnvöld hafa þegar tryggt bóluefni sem dugir fyrir 87% þjóðarinnar í gegnum samstarf Evrópuþjóða með samningum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Samningar sem Ísland hefur þegar lokið við lyfjaframleiðendurna Pfizer og Astra Zeneca tryggja 400.000 bóluefnaskammta sem nægja fyrir 200.000 einstaklinga. Þriðji samningurinn við bóluefnaframleiðandann Janssen verður undirritaður 23. desember næstkomandi og tryggir Íslandi 235.000 skammta sem nægja fyrir 117.500 manns. Alls tryggja þessir þrír samningar bóluefni fyrir rúmlega 376.000 einstaklinga. Þann 31. desember næstkomandi verður undirritaður samningur við Moderna en umfang samningsins varðandi fjölda skammta liggur ekki fyrir að svo stöddu.…

    18. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Vegna umræðu um dreifingu bóluefna gegn COVID-19

    Heilbrigðisráðuneytið vekur athygli á eftirfarandi tilkynningu frá sóttvarnalækni frá í gær vegna umræðu um dreifingu bóluefna gegn COVID-19: Að gefnu tilefni vill sóttvarnalæknir taka fram að á þessari stundu liggja einungis fyrir áreiðanlegar upplýsingar um afhendingu fyrstu skammta bóluefnis frá Pfizer. Á upplýsingafundi í morgun mátti skilja á orðum mínum að ekki væri að vænta bóluefna frá öðrum framleiðendum fyrr en á síðari hluta næsta árs. Þetta var ofsagt. Ísland hefur þegar tryggt sér kauprétt á bóluefni fyrir um 60–70% þjóðarinnar en ekki liggur enn fyrir hvenær og hversu mikið bóluefni kemur í hverri sendingu. Áætlanir framleiðenda munu skýrast þegar fram í sækir.

    17. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Forgangsröðun við bólusetningu þegar fyrstu skammtar bóluefnis berast

    Sóttvarnalæknir hefur í samráði við heilbrigðisráðherra ákveðið hvaða hópar munu njóta forgangs við bólusetningu við COVID-19 þegar fyrstu skammtar bóluefnis berast til landsins. Þetta er í samræmi við reglugerð þar að lútandi sem heimilar sóttvarnalækni að víkja frá forgangsröðun reglugerðarinnar telji hann það nauðsynlegt og skal hann þá tilkynna það ráðherra með rökstuðningi.

    17. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Yfirlit um stöðu samninga um bóluefni

    Heilbrigðisráðuneytið hefur tekið saman yfirlit með upplýsingum um stöðu samninga um bóluefni vegna COVID 19 sem Íslandi bjóðast á grundvelli samninga Evrópusambandsins við lyfjaframleiðendur. Á yfirlitinu má einnig sjá hver staðan er á prófunum viðkomandi bóluefnis, hvenær megi vænta útgáfu markaðsleyfis og hve marga skammta bóluefnis Ísland muni fá eftir því sem upplýsingar um það liggja fyrir. Yfirlitið er myndrænt og verður uppfært reglulega eftir því sem málum vindur fram.

    17. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun um endurhæfingu til fimm ára

    Heilbrigðisráðherra hefur sett fram aðgerðaáætlun um endurhæfingu til ársins 2025. Grundvöllur áætlunarinnar er að endurhæfingarhugtakið og stig endurhæfingar verði skilgreind í reglugerð í samræmi við skilgreiningar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, að öll endurhæfingarstarfsemi í landinu falli undir ábyrgðarsvið heilbrigðisráðuneytisins og að sett verði á fót endurhæfingarráð. Rík áhersla er lögð á aukið hlutverk heilsugæslu í endurhæfingu og stefnt er að því að stórauka fjarheilbrigðisþjónustu í endurhæfingu.

    • First
    • Prev
    • 27
    • 28
    • 29
    • 30
    • 31
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband