Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1351–1400 af 3846
    Raða eftir:
    29. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1047/2021. Úrskurður frá 29. nóvember 2021.

    Kærð var afgreiðsla Reykjavíkurborgar á beiðni um aðgang að minnisblöðum og skyldum gögnum sem lögð voru í trúnaði fyrir fundi borgarráðs. Af hálfu Reykjavíkurborgar var vísað til þess hluti gagnanna varðaði almannahagsmuni, sbr. 10. gr. upplýsingalaga, þá væri um að ræða virka fjárhags- og viðskiptahagsmuni lögaðila sem og fjármál og tekjuöflun sveitarfélagsins, sbr. 9. gr. upplýsingalaga og 122. gr. þágildandi laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Loks taldi sveitarfélagið öll umbeðin gögn vinnugögn í skilningi 5. tölul. 6. gr., sbr. 8. gr., upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin fór yfir gögnin og lagði fyrir Reykjavíkurborg að veita kæranda aðgang að tilteknum hlutum þeirra.

    29. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1046/2021. Úrskurður frá 29. nóvember 2021.

    Óskað var eftir því að úrskurðarnefndin endurupptæki mál sem lyktaði með úrskurði nr. 779/2019. Í ljósi niðurstöðu umboðsmanns Alþingis frá 3. mars 2021 í máli nr. 10055/2019 taldi úrskurðarnefndin rétt að verða við endurupptökubeiðni kæranda og taka málið til nýrrar meðferðar. Við hina endurteknu málsmeðferð kom í ljós að Vegagerðin hafði afhent kæranda þau gögn sem fjallað var um í úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 779/2019 og fjallað var um í áliti umboðsmanns Alþingis. Var því óhjákvæmilegt að vísa málinu frá úrskurðarnefndinni.

    29. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1045/2021. Úrskurður frá 29. nóvember 2021.

    A kærði afgreiðslu Alþingis á beiðni um að gögn um tiltekin fund undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa yrðu gerð aðgengileg á vefnum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að ákvörðun um aðgang að gögnum í vörslum Alþingis væri ekki kæranleg til úrskurðarnefndar um upplýsingamál á grundvelli 20. gr. upplýsingalaga. Sama gilti um ákvörðun Alþingis um synjun beiðni kæranda um að tiltekin gögn verði birt á vefnum en slíkar ákvarðanir heyra almennt ekki undir valdsvið úrskurðarnefndarinnar. Varð því að vísa kærunni frá.

    29. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1044/2021. Úrskurður frá 29. nóvember 2021.

    Deilt var um afgreiðslu Borgarholtsskóla á beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem varða launamál starfsmanna skólans. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu í málinu að Borgarholtsskóla væri skylt að veita kæranda upplýsingar um launakjör æðsta stjórnanda, skjal fjármálastjóra um heildarlaun starfsmanna skólans og gögn sem sýna sundurliðun launakostnaðar. Ákvörðun skólans um að synja beiðni kæranda um skjal vegna undirbúnings greiðslu viðbótarlauna var hins vegar staðfest enda féllst nefndin á að um væri að ræða vinnugagn í skilningi 8. gr. upplýsingalaga.

    29. nóv. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta

    Við birtingu forsetaúrskurða í Stjórnartíðindum í gær hliðruðust fyrir mistök tilteknir töluliðir 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Þetta hefur nú verið leiðrétt á vef Stjórnartíðinda í samræmi við undirritað eintak forsetaúrskurðarins.

    28. nóv. 2021Forsætisráðuneytið

    Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur skipað

    Ríkisráð kom saman til tveggja funda á Bessastöðum í dag. Á fyrri fundinum veitti Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fyrsta ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur lausn frá störfum. Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur var svo skipað á seinni fundinum.

    28. nóv. 2021Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundir á Bessastöðum sunnudaginn 28. nóvember

    Frá ríkisráðsritara: Ríkisráð Íslands mun koma saman til tveggja funda í dag, sunnudaginn 28. nóvember.

    28. nóv. 2021Ríkisstjórn, Annað, Forsætisráðuneytið

    Sáttmáli um ríkisstjórnarsamstarf 2021

    28 nóvember 2021 / Sáttmáli um ríkisstjórnarsamstarf 2021 Sáttmáli um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs Sáttmáli Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fjallar um sameiginlega hagsmuni þjóðarinnar. Í honum birtast leiðarstef okkar um efnahagslegar og félagslegar framfarir, vernd umhverfis, kraftmikla verðmætasköpun, jafnrétti kynjanna og jafnvægi byggða og kynslóða. Við tökumst á við allar áskoranir með hag almennings að markmiði

    28. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Annað, Ríkisstjórn

    Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur

    28 nóvember 2021 / Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur: 28. nóvember 2021 - 9. apríl 2024 Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra til 14

    28. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Annað, Ríkisstjórn

    Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur

    28 nóvember 2021 / Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur: 28. nóvember 2021 - 9. apríl 2024 Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra til 14

    26. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Velsæld

    Forsætisráðherra ræddi um velsæld á ráðstefnu OECD

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í gær þátt í rafrænni ráðstefnu á vegum OECD þar sem rætt var um endurreisn samfélaga eftir COVID. Ráðstefnan var haldin í tilefni árs afmælis WISE, sem er samstarf innan OECD sem snýr að velsæld, sjálfbærni og jafnrétti.

    25. nóv. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Samningur um afnám allrar mismununar gagnvart konum, Forsætisráðuneytið

    Níunda skýrsla Íslands um Kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna

    Ísland skilaði á dögunum níundu skýrslu sinni um framkvæmd Samnings Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum. Samningurinn er frá 1979 og hefur Ísland verið aðili að honum frá 1985.

    16. nóv. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ríki vilja halda hitastigi undir 1,5 gráðum

    Á loftslagsráðstefnunni COP26 sem lauk í Glasgow um helgina, staðfestu aðildarríki loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna mikilvægi þess að halda hækkun hitastigs jarðar undir 1,5°C. Staðfestingin er mikilvæg fyrir áframhaldandi baráttu gegn loftslagsbreytingum.

    10. nóv. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra stýrði ársfundi Heimsráðs kvenleiðtoga

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, stýrði ársfundi Heimsráðs kvenleiðtoga (Council of Women World Leaders) í Hörpu í dag. Fundurinn fór fram með fjarfundarbúnaði og var hann vel sóttur af núverandi og fyrrverandi forsetum og forsætisráðherrum.

    09. nóv. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók þátt í opnun Heimsþings kvenleiðtoga

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók þátt í pallborðsumræðum við opnun Heimsþings kvenleiðtoga, Reykjavík Global Forum – Women Leaders, í Hörpu í morgun. Þingið er haldið í fjórða sinn og fer fram í dag og á morgun.

    08. nóv. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogaumræðum með Hillary Clinton

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í leiðtogaumræðum á ráðstefnunni Global Challenges Summit sem haldin er á vegum Hillary Clinton og Swansea-háskóla.

    03. nóv. 2021Utanríkismál, Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp á leiðtogafundi forsætisráðherra Norðurlandanna á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn. Á leiðtogafundinum var rætt um hvaða lærdóma Norðurlöndin geti dregið af heimsfaraldri kórónaveiru og hvernig norrænt samstarf verði eflt í framtíðinni.

    03. nóv. 2021Forsætisráðuneytið

    Fundir forsætisráðherra á COP26

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti fjölda tvíhliða funda með erlendum þjóðarleiðtogum á loftslagsráðstefnunni í Glasgow.

    03. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir í ungmennaráð heimsmarkmiðanna

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir í ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Forsætisráðherra fer með skipun ráðsins en óskað er eftir börnum sem eru tilbúin að sitja í ráðinu í tvö ár, frá og með janúar 2022. Átta meðlimir ungmennaráðsins verða kosnir á barnaþingi umboðsmanns barna sem haldið verður í Hörpu dagana 18.-19. nóvember. Þar verða saman komin um 150 börn allstaðar að af landinu og munu þau hljóta kjörlista með upplýsingum um hvern frambjóðenda og persónuupplýsingum. Fjórir meðlimir ráðsins verða svo valdir í kjölfarið, af valnefnd á vegum forsætisráðuneytisins. Val á þeim einstaklingum miðast við að tryggja fjölbreytileika barnanna í ráðinu.

    02. nóv. 2021Forsætisráðuneytið

    580 milljarðar í grænar fjárfestingar

    Þrettán íslenskir lífeyrissjóðir ætla að fjárfesta fyrir um 580 milljarða króna í verkefnum sem tengjast hreinni orku og öðrum umhverfisvænum lausnum fram til ársins 2030.

    02. nóv. 2021Forsætisráðuneytið

    Markmið og aðgerðir Íslands á loftslagsráðstefnunni í Glasgow

    Skilaboð Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í ræðu sinni á loftslagsráðstefnunni í Glasgow voru skýr. Markmiðin frá París duga ekki til að hemja hlýnun jarðar. Gera þarf betur.

    01. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Utanríkisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hafin

    Tuttugasti og sjötti aðildaríkjafundur Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP26)stendur nú yfir í Glasgow.

    25. okt. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði alþjóðlega jarðhitaráðstefnu í Hörpu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í morgun ávarp við opnun alþjóðlegu jarðhitaráðstefnunnar World Geothermal Congress sem fram fer í Hörpu. Um er að ræða stærstu alþjóðlegu jarðhitaráðstefnu heims en hún er haldin á fimm ára fresti.

    20. okt. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Nýtt mælaborð um stöðu aðgerða í forvarnaráætlun gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni

    Nýtt mælaborð aðgerða í samþykktri forvarnaráætlun meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi fyrir árin 2021 – 2025 var kynnt í dag í forsætisráðuneytinu. Markmiðið með mælaborðinu er að fylgja eftir þeim aðgerðum sem settar voru fram í þingsályktun um forvarnir sem eru 26 talsins og skipt niður í sex meginþætti.

    19. okt. 2021Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir uppsetningu á La Traviata

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita þremur milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu til Menningarfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands vegna uppsetningar á óperunni La Traviata.

    19. okt. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1043/2021. Úrskurður frá 19. október 2021.

    Kærð var ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um að synja beiðni um aðgang að gögnum er varða spilakassarekstur. Ráðuneytið taldi óheimilt að afhenda innsend erindi Íslandsspila sf. og Happdrættis Háskóla Íslands enda hefðu þau að geyma upplýsingar um virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni aðilanna, sbr. 2. málsl. 9. gr. laganna. Að mati úrskurðarnefndarinnar vörðuðu gögnin ekki slíka hagsmuni. Var ákvörðunin því felld úr gildi og lagt fyrir ráðuneytið að afhenda kæranda gögnin.

    18. okt. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1042/2021. Úrskurður frá 18. október 2021.

    Deilt var um synjun Seðlabanka Íslands á beiðni blaðamanns um aðgang að gögnum um úthlutun LBI hf. á hlutabréfum í Landsbankanum hf. til starfsmanna árið 2013. Ákvörðun Seðlabankans byggði einkum á því að gögnin væru háð þagnarskyldu, sbr. 1. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2019. Úrskurðarnefndin staðfesti synjunina og tók fram að þagnarskylduákvæðið gerði ekki ráð fyrir því að hagsmunamat færi fram við ákvörðun á því hvort almenningur ætti rétt til aðgangs að gögnunum heldur nægði að gögnin vörðuðu hagi viðskiptamanna bankans til að upplýsingaréttur almennings yrði takmarkaður á grundvelli ákvæðisins.

    18. okt. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1041/2021. Úrskurður frá 18. október 2021.

    Kærð var ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að synja beiðni um aðgang að greinargerð setts ríkisendurskoðanda um starfsemi Lindarhvols ehf. Ákvörðun ráðuneytisins byggði á því að umbeðin gögn væru háð sérstakri þagnarskyldu skv. 3. mgr. 15. gr. laga nr. 46/2016, sbr. fyrri úrskurði úrskurðarnefndarinnar. Kærandi taldi þagnarskylduákvæðið ekki eiga við í þessu tilviki enda hefði greinargerðin ekki verið send ráðuneytinu sem drög, á grundvelli lagaskyldu, heldur hefði verið um lokaskil hennar að ræða. Úrskurðarnefndin taldi ljóst af greinargerðinni að ekki væri um endanlega útgáfu að ræða. Greinargerðin væri þar með undirorpin sérstakri þagnarskyldu, sbr. 3. mgr. 15. gr. laga nr. 46/2016, sem gengi framar rétti almennings til aðgangs að upplýsingum samkvæmt upplýsingalögum, sbr.…

    18. okt. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1040/2021. Úrskurður frá 18. október 2021.

    Blaðamaður kærði afgreiðslu Barnaverndarstofu á beiðni hans um gögn sem varða meðferðarheimilið Laugaland. Kærandi fékk afhentan hluta umbeðinna gagna en var synjað um tvö skjöl á þeim grundvelli að þau vörðuðu einkamálefni einstaklinga, sbr. 9. gr. upplýsingalaga, og að þau væru vinnugögn í skilningi 8. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál skoðaði gögnin og taldi engum vafa undirorpið að gögnin lytu að einkamálefnum einstaklinga sem sanngjarnt og eðlilegt væri að leynt færu. Nefndin taldi Barnaverndarstofu ekki unnt að fjarlægja allar persónugreinanlegar upplýsingar úr gögnunum og afhenda þau svo kæranda þar sem gögnin innihéldu nær eingöngu slíkar upplýsingar. Var ákvörðun Barnaverndarstofu því staðfest.

    18. okt. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1039/2021. Úrskurður frá 18. október 2021.

    Blaðamaður kærði synjun Barnaverndarstofu á beiðni hans um gögn sem varða meðferðarheimilið Laugaland. Synjunin byggði á því að afgreiðsla beiðninnar tæki svo mikinn tíma og krefðist svo mikillar vinnu að ekki væri af þeim sökum fært að verða við henni, sbr. 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga, enda þyrfti að yfirfara gögnin og afmá viðkvæmar persónugreinanlegar upplýsingar, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að í ljósi umfangs beiðninnar og viðkvæms eðlis gagnanna ætti undantekning 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga við í málinu og staðfesti ákvörðun Barnaverndarstofu.

    14. okt. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpar ráðstefnu Jafnvægisvogar FKA

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði í dag stafræna ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar FKA. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og markmið hennar er að 2027 verði hlutfall kynja 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi. ​

    14. okt. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði Hringborð norðurslóða

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp við opnun þings Hringborðs norðurslóða, Arctic Circle, sem fram fer í Hörpu.

    13. okt. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Styrkveitingar Jafnréttissjóðs Íslands frá 2016 til 2020

    Eitt hundrað milljónum króna af fjárlögum hefur verið varið ár hvert í Jafnréttissjóð Íslands á tímabilinu 2016 til 2020 og voru alls 132 verkefni styrkt á tímabilinu. Tryggt hefur verið fjármagn til sjóðsins sem felur í sér að um 60 milljónum króna verður úthlutað úr Jafnréttissjóði 2023 og 2025.

    05. okt. 2021Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Verkfærakista fyrir fyrirtæki um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

    Í dag gaf verkefnastjórn stjórnvalda um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna út verkfærakistu um innleiðingu fyrirtækja á markmiðunum. Verkfærakistunni er ætlað að vera fyrirtækjum til leiðbeiningar um hvernig þau geta lagt sitt af mörkum í þágu heimsmarkmiðanna en fyrr á þessu ári gaf verkefnastjórnin út sambærilega verkfærakistu fyrir sveitarfélög.

    24. sep. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra skipar aðgerðahóp um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað aðgerðahóp stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði.

    24. sep. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði Matvælaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti ávarp á Matvælaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fram fór bæði rafrænt og í New York í gær. Ráðstefnan er haldin í tengslum við ráðherraviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem fram fer í þessari viku.

    23. sep. 2021Forsætisráðuneytið

    Hermann Sæmundsson skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu stefnumála

    Forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa Hermann Sæmundsson í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu stefnumála í forsætisráðuneytinu til fimm ára. Embættið var auglýst laust til umsóknar 5. ágúst sl. Alls bárust 22 umsóknir um embættið en þrír umsækjendur drógu umsókn sína til baka. Af þeim 19 sem eftir stóðu voru sjö konur og 12 karlar.

    22. sep. 2021Forsætisráðuneytið

    Ríkið og Landsvirkjun semja um endurgjald vegna nýtingar á réttindum á Þjórsársvæði

    Forsætisráðuneytið og Landsvirkjun hafa náð samningum um endurgjald vegna nýtingar Landsvirkjunar á vatns- og landsréttindum á Þjórsársvæði innan þjóðlendna.

    21. sep. 2021Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Loftslagsmál, Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Samið um starfsemi og fjármögnun Grænvangs til 2026

    Samkomulag um áframhaldandi starfsemi og fjármögnun Grænvangs til ársins 2026 var undirritað síðastliðinn föstudag. Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir sem stofnaður var fyrir tveimur árum. Við þetta tilefni opnaði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fyrsta áfanga nýrrar margmiðlunarsýningar sem ber heitið Græn framtíð og staðsett er í Grósku-hugmyndahúsi í Vatnsmýrinni.

    17. sep. 2021Forsætisráðuneytið

    Viljayfirlýsing um undirbúning viðburða í tilefni 50 ára afmælis gosloka

    Í dag undirrituðu þær Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, viljayfirlýsingu um samvinnu og undirbúning viðburða í tilefni þess að árið 2023 verða 50 ár liðin frá eldgosinu á Heimaey og 60 ár liðin frá eldgosinu í Surtsey.

    16. sep. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Alþjóðlegi jafnlaunadagurinn haldinn í annað sinn

    Í tilefni af alþjóðlega jafnlaunadeginum sem nú er haldinn í annað sinn munu forsætisráðuneytið og Reykjavíkurborg sameina krafta sína á rafrænum morgunfundi milli kl. 08:30 og 09:30 í fyrramálið, föstudaginn 17. september.

    15. sep. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Nýtt miðlægt vefsvæði um jafnréttismál á vef Stjórnarráðsins

    Forsætisráðuneytið hefur sett í loftið nýtt og uppfært miðlægt vefsvæði um jafnréttismál á vef Stjórnarráðsins.

    14. sep. 2021Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin kemur til móts við ófyrirséð útgjöld vegna aurskriða á Seyðisfirði

    Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að veita Múlaþingi og stofnunum fjárstyrk til að mæta óvæntum og ófyrirséðum útgjöldum vegna brýnustu viðbragða og framkvæmda í kjölfar aurskriðanna á Seyðisfirði í desember 2020.

    14. sep. 2021Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherrar undirrita viljayfirlýsingu um þróunarverkefni til að draga úr losun koldíoxíðs

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf ráðuneytanna og fyrirtækjanna Ocean Geoloop AS og North Tech Energy ehf.

    14. sep. 2021Forsætisráðuneytið

    Nefnd undirbýr rannsókn á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks og fullorðinna með geðrænan vanda

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað þriggja manna nefnd til að undirbúa rannsókn á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks og fullorðinna með geðrænan vanda. Er nefndin skipuð samkvæmt ályktun Alþingis frá 12. júní sl.

    11. sep. 2021Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Elif Shafak handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2021

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti í dag rithöfundinum Elif Shafak alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness á Bókmenntahátíðinni í Reykjavík. Að afhendingu lokinni flutti Elif Shafak fyrirlestur Halldórs Laxness.

    09. sep. 2021Forsætisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs 2021

    Dr. Martin Ingi Sigurðsson, prófessor í svæfinga- og gjörgæslulækningum við Háskóla Íslands, og dr. Erna Sif Arnardóttir, lektor við verkfræði- og tölvunarfræðideildir Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður Svefnseturs HR, fengu í dag hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs.

    08. sep. 2021Forsætisráðuneytið

    Tímamótaverkefni í loftslagsmálum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði gesti við opnun á Orca, nýju loftsuguveri svissneska fyrirtækisins Climeworks á Hellisheiði í morgun. Um tímamótaverkefni er að ræða því loftsugurnar fanga koldíoxíð beint úr andrúmsloftinu sem kolefnisfargarar í Carbfix dæla svo niður í basaltberglög á svæðinu til varanlegrar steinrenningar.

    07. sep. 2021Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Skýrsla gefin út um störf án staðsetningar

    Skýrsla um stöðu og framtíðarhorfur verkefnisins Störf án staðsetningar hefur verið gefin út á vegum forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis.

    07. sep. 2021Heimsmarkmiðin, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Mælaborð um stöðu Íslands gagnvart heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna

    Í lok síðasta árs ákvað verkefnastjórn stjórnvalda um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna að meta stöðu Íslands gagnvart öllum 169 undirmarkmiðum heimsmarkmiðanna. Nú er þeirri stöðutöku lokið í formi mælaborðs sem á myndrænan hátt gerir grein fyrir stöðu markmiðanna á Íslandi.

    • First
    • Prev
    • 26
    • 27
    • 28
    • 29
    • 30
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband