06. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Umhverfi og náttúruvernd, Landbúnaður, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Aðgerðir hafnar vegna riðuveiki í Skagafirði
Riðuveiki er staðfest á fjórum sauðfjárbúum í Skagafirði, þ.e. Stóru-Ökrum 1, Syðri-Hofdölum, Grænumýri og Hofi í Hjaltadal. Á grundvelli laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, að undangengnum tillögum Matvælastofnunar, fyrirskipað niðurskurð alls fjár á búunum eða á um 2.500 gripum og hefur niðurskurður þegar verið framkvæmdur á búunum Hofi og Stóru-Ökrum.