Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1301–1350 af 2979
    Raða eftir:
    23. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    COVID-19: Bóluefnaskammtar frá Noregi komnir til landsins

    Síðdegis í dag bárust til landsins 16.000 skammtar af bóluefni AstraZeneca sem Norðmenn hafa veitt Íslendingum að láni. Byrjað verður að bólusetja með efninu strax í næstu viku í samræmi við fyrirmæli sóttvarnalæknis um notkun þess.

    23. apr. 2021Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Greining á rekstrarkostnaði hjúkrunarheimila

    apríl 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Greining á rekstrarkostnaði hjúkrunarheimila Greining á rekstrarkostnaði hjúkrunarheimila - skýrsla verkefnastjórnar

    21. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Norðmenn lána Íslendingum bóluefnaskammta

    Samkvæmt samkomulagi Íslands og Noregs munu Íslendingar fá að láni 16.000 skammta af AstraZeneca bóluefni frá Noregi. Gert er ráð fyrir að bóluefnið mun berast til landsins um helgina og fari í dreifingu í næstu viku.

    21. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Vottorð á landamærum hafa reynst áreiðanleg

    Vottorð sem komufarþegar hafa framvísað á landamærum Íslands um bólusetningu, fyrra smit eða mótefni, virðast áreiðanleg. Frá 1. apríl hefur komufarþegum með slík vottorð verið gert að fara í eina sýnatöku til að kanna hvort þeir kunni að bera COVID-19 smit. Á tímabilinu 1. – 15. apríl voru 1.106 farþegar sem framvísuðu vottorðum. Af þeim greindust 5 jákvæðir við sýnatöku en við nánari skoðun hjá COVID-göngudeild Landspítala kom í ljós að enginn þeirra var með virkt smit.

    20. apr. 2021Covid-19, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    COVID-19: Aðgerðir á landamærum hertar tímabundið

    Stjórnvöld kynna í dag tímabundnar hertar aðgerðir á landamærunum til að sporna við útbreiðslu COVID-19 innanlands. Markmiðið er að skapa aðstæður sem gera kleift að aflétta sem mest takmörkunum innanlands þrátt fyrir mikla útbreiðslu faraldursins erlendis. Bólusetningu hér á landi miðar vel og eftir því sem hlutfall bólusettra hækkar skapast forsendur til að slaka á takmörkunum, jafnt innanlands og á landamærunum.

    19. apr. 2021Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ráðgert að starfsfólk á leikskólum njóti forgangs

    Þegar bólusetningar í hópi starfsfólks leik-, grunn- og framhaldsskóla hefjast, er gert ráð fyrir því að byrjað verði að bólusetja starfsfólk leikskóla.

    19. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilsuvernd hjúkrunarheimili ehf. tekur við rekstri Öldrunarheimila Akureyrar

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samning Sjúkratrygginga Íslands og Heilsuverndar Hjúkrunarheimila ehf. um að félagið taki við rekstri Öldrunarheimila Akureyrar frá 1. mars næstkomandi. Samningurinn tekur til þjónustu í 173 hjúkrunarrýmum, 8 dvalarrýmum og 36 dagdvalarrýmum, þar af 16 sérhæfðum dagdvalarrýmum fyrir einstaklinga með heilabilun.

    16. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Staðfest: 244.000 bóluefnaskammtar frá Pfizer í maí, júní og júlí

    Afhending bóluefna gegn COVID-19 frá bóluefnaframleiðandanum Pfizer eykst jafnt og þétt. Von er á samtals 244.000 bóluefnaskömmtum Pfizer til Íslands í maí, júní og júlí. Í dag fékkst staðfest að tvöfalt fleiri bóluefnaskammtar verða afhentir í júlí en áður var vænst.

    15. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Öll þingmál heilbrigðisráðherra komin til nefndar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur nú mælt fyrir þeim sex þingmálum sem liggja fyrir Alþingi af hennar hálfu á vorþinginu og eru þau komin til umfjöllunar í velferðarnefnd. Einnig er komin til velferðarnefndar tillaga heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um lýðheilsustefnu til ársins 2030. Tvö frumvörp ráðherra eru þegar orðin að lögum frá Alþingi á vorþinginu, þ.e. breyting á sóttvarnalögum í febrúar síðastliðnum og breyting á lögum um sjúklingatryggingu sem Alþingi samþykkti í mars.

    15. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Ísland grænt á ný, eitt Evrópuríkja

    Ísland er aftur orðið grænt á korti sóttvarnastofnunar Evrópu, eitt Evrópuríkja. Stofnunin uppfærir á hverjum fimmtudegi kort sem sýnir nýgengi COVID-19 smita í Evrópu. Græni liturinn er til marks um að 14 daga nýgengi smita sé minna en 25 smit á hverja 100.000 íbúa. „Þetta er ánægjulegur vitnisburður um að sóttvarnaaðgerðir hér á landi duga vel, við erum á réttri leið og síðast en ekki síst fjölgar nú jafnt og þétt í hópi bólusettra hér á landi“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

    15. apr. 2021Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Lækningaleyfi verður veitt ári fyrr – starfsnám verður hluti af sérnámi lækna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerðarbreytingu um að almennt og ótakmarkað lækningaleyfi verði veitt að loknu 6 ára læknanámi við Háskóla Íslands. Starfsnám sem hingað til hefur farið fram á kandídatsári og verið hluti af grunnnámi lækna verður nú hluti af sérnámi þeirra. Þetta er gert til samræmis við sambærilegar breytingar á námi lækna víða erlendis með það að markmiði að greiða aðgengi lækna að sérnámi. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

    14. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Pfizer flýtir afhendingu bóluefna – um 39.000 fleiri skammtar á öðrum ársfjórðungi

    Framkvæmdastjóri Evrópusambandins tilkynnti í morgun að bóluefnaframleiðandinn Pfizer muni afhenda um 50 milljónum fleiri bóluefnaskammta til Evrópuþjóða en áður hafði verið reiknað með á öðrum ársfjórðungi. Þetta þýðir að Ísland mun fá samtals rúmlega 192 þúsund bóluefnaskammta frá Pfizer fyrir lok júní sem dugir til að bólusetja um 96 þúsund einstaklinga.

    13. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    Guðlaug Einarsdóttir skipuð skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Guðlaugu Einarsdóttur skrifstofustjóra á skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu í heilbrigðisráðuneytinu. Guðlaug var valin úr hópi 12 umsækjenda um embættið að undangengnu mati ráðgefandi nefndar sem skipuð var til að meta hæfni umsækjenda í samræmi við lög um Stjórnarráð Íslands. Nefndin mat Guðlaugu mjög vel hæfa til að gegna embættinu.

    13. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Kynjahlutföll í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum heilbrigðisráðuneytis

    Heilbrigðisráðuneytið birtir hér með upplýsingar um hlutföll kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum sem undir það heyra, í samræmi við jafnréttislög. Samkvæmt lögunum á kynjahlutfall að vera sem jafnast og hlutur hvors kyns ekki undir 40%. Kynjahlutföll í nefndum ráðuneytisins eru í samræmi við ákvæði laganna.

    13. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Tilslakanir á samkomutakmörkunum og í skólastarfi frá 15. apríl

    Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 10 í 20 manns, hægt verður að hefja íþróttastarf, sund og heilsurækt með takmörkunum, sviðslistir einnig og skíðasvæðin geta opnað á ný. Í skólum breytast nálægðarmörk á öllum skólastigum úr 2 metrum í 1 og leik- og grunnskólabörnum verður heimilt að stunda skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf á ný. Þetta er megininntak tilslakana á sóttvarnareglum sem heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í dag og eru í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Reglugerðir um breytingarnar eru í vinnslu og verða birtar síðar í dag. Gert er ráð fyrir að þær gildi í 3 vikur.

    12. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýr samningur við HL-stöðina um endurhæfingu hjarta- og lungnasjúklinga

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samning milli Sjúkratrygginga Íslands og HL-stöðvarinnar í Reykjavík um endurhæfingu hjarta- og lungnasjúklinga. Samningurinn er gerður í framhaldi af eldri samningi frá árinu 2017 og gildir til 31. mars 2022. Áætlaður árlegur kostnaður við samninginn er um 60 milljónir króna. Samningurinn kveður á um sérhæfða endurhæfingu og felst í þjálfun sjúklinga undir eftirliti, auk fræðslu og ráðgjöf sjúkraþjálfara og lækna.

    09. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Um 2,4% fullorðinna bólusett á einum degi

    Í gær 8. apríl voru rúmlega 6.630 einstaklingar bólusettir við COVID-19, þar af 2.330 með bóluefni Pfizer/BioNTech og 4301 með bóluefni Oxford/AstraZeneca. Þetta er stærsti bólusetningardagur á Íslandi vegna COVID-19 frá upphafi. Þessi fjöldi nemur tæplega 2,4% þeirra 280 þúsund einstaklinga sem til stendur að bólusetja við COVID-19.

    09. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Ísland þátttakandi í innleiðingu samræmdra vottorða á Evrópska efnahagssvæðinu

    Hafin er vinna sem miðar að því að taka inn í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið tillögu að reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um samræmt vottorðakerfi vegna COVID-19, svokölluð græn vottorð. Markmiðið er að greiða fyrir frjálsri för og tryggja um leið örugg ferðalög milli landa. Stefnt er að því að reglugerð um græn vottorð geti tekið gildi seinni hlutann í júní næstkomandi. Fjallað var um málið á fundi ríkisstjórnar í dag.

    09. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt drög að breytingu á reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Samningur Læknafélags Reykjavíkur, fyrir hönd sjálfstætt starfandi sérgreinalækna, sem gerður var í lok árs 2013 rann út í lok árs 2018. Síðan þá hafa samningar ekki náðst milli aðila. Í lögum um sjúkratryggingar er skýrt kveðið á um þá meginreglu að til þess að ríkið greiði hlutdeild í kostnaði við heilbrigðisþjónustu þurfi að liggja fyrir samningur milli aðila um veitingu þjónustunnar. Lögin heimila þó ráðherra að setja reglugerð um tímabundna endurgreiðslu til sjúkratryggðra á kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu á grundvelli gjaldskrár sem sjúkratryggingastofnunin gefur út.…

    08. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Aðgerðir á landamærum - breytt skilyrði um dvöl í sóttkví

    Skýrari kröfur verða gerðar um skilyrði fyrir heimasóttkví varðandi húsnæði og umgengnisreglur. Þeir sem ekki geta verið í heimasóttkví sem uppfyllir sett skilyrði þurfa að fara í sóttvarnahús en ekkert gjald verður tekið fyrir dvölina. Þetta er meðal efnis reglugerðar heilbrigðisráðherra sem tekur gildi 9. apríl og byggist á tillögum sóttvarnalæknis. Meginmarkmiðið er að lágmarka eins og kostur er líkur á því að smit berist inn í landið, með þeim aðgerðum sem sóttvarnalög heimila. Með reglugerðinni er felld úr gildi reglugerð nr. 355/2021 sem tók gildi 1. apríl og þar með ákvæði um skyldu einstaklinga af hááhættusvæðum til að dvelja í sóttkví í sóttvarnahúsi sem héraðsdómur úrskurðaði að ekki væri fullnægjandi lagastoð fyrir.

    07. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Sóttvarnalæknir ítrekar ráðleggingar gegn nauðsynjalausum ferðalögum

    Heilbrigðisráðuneytið vekur athygli á tilkynningu sóttvarnalæknis þar sem hann ítrekar ráðleggingar gegn nauðsynjalausum ferðalögum íbúa Íslands til áhættusvæða vegna COVID-19. Tilkynningin er eftirfarandi:

    07. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stefna um heilbrigðisþjónustu við aldraða í mótun – verður umfjöllunarefni heilbrigðisþings 2021

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið Halldóri S. Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrar, að vinna drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030. Stefnumótun á þessu sviði verður umfjöllunarefni heilbrigðisþings ársins 2021 sem heilbrigðisráðherra efnir til þann 20. ágúst næstkomandi.

    06. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Staðfestar áætlanir um afhendingu bóluefna í apríl

    Heilbrigðisráðuneytið hefur tekið saman yfirlit þar sem birtar eru staðfestar áætlanir framleiðenda um vikulega afhendingu bóluefna gegn COVID-19 í apríl, auk upplýsinga um fjölda bóluefnaskammta sem þegar hafa verið afhentir. Í apríl er von á tæplega 65.300 bóluefnaskömmtum frá þeim fjórum framleiðendum sem eru með markaðsleyfi hér á landi. Pfizer er eini framleiðandinn sem hefur staðfest afhendingaráætlun til lengri tíma og samkvæmt henni er von á 117.000 bóluefnaskömmtum samtals í maí – júní.

    06. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19 Staða bólusetninga við lok fyrsta ársfjórðungs

    Fyrsta sending af bóluefni við Covid 19 barst til landsins 28. desember á síðasta ári og hófst bólusetning daginn eftir. Nú þegar fyrsta ársfjórðungi 2021 er lokið hafa þegar 49.300 einstaklingar verið bólusettir. Bólusetningu miðar því vel og nú hafa rúmlega 12% þeirra sem áætlað er að bólusetja fengið bólusetningu eða myndað mótefni gegn veirunni.

    05. apr. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Í ljósi úrskurða Héraðsdóms Reykjavíkur um kröfu sóttvarnalæknis um skyldu til að dvelja í sóttkví í sóttvarnarhúsi vilja sóttvarnalæknir og heilbrigðisráðuneyti koma eftirfarandi á framfæri:

    Héraðsdómur Reykjavíkur hefur kveðið upp úrskurði þar sem fram kemur að ákvæði 5. gr. reglugerðar 355/2021 um að skylda farþega sem koma frá hááættusvæðum í sóttkví á sóttkvíarhótel skorti lagastoð. Heilbrigðisráðuneyti og sóttvarnalæknir fara nú yfir úrskurðinn. Að svo komnu máli verður brugðist við úrskurðinum með þeim hætti að þeim sem eru á sóttkvíarhótelum verður gerð grein fyrir því að þeim sé frjálst að ljúka sóttkví annars staðar, hafi þeir viðunandi aðstöðu til þess. Eigi að síður biðla sóttvarnayfirvöld til gesta um að ljúka sóttkví á sóttkvíarhótelinu, enda er það besta leiðin til að draga úr útbreiðslu Covid 19-sjúkdómsins.

    31. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samkomulag um yfirfærslu Hulduhlíðar og Uppsala til Heilbrigðisstofnunar Austurlands

    Öllu starfsfólki dvalar- og hjúkrunarheimilanna Hulduhlíðar á Eskifirði og Uppsala á Fáskrúðsfirði verða boðin áframhaldandi störf og á sömu kjörum þegar Heilbrigðisstofnun Austurlands tekur við rekstri heimilisins 1. maí næstkomandi. Starfsfólkið mun jafnframt halda áunnum réttindum sínum. Þetta er megininntak samkomulags sem heilbrigðisráðuneytið og Fjarðabyggð hafa gert með sér vegna yfirfærslunnar. Samkomulagið í heild sinni verður kynnt fyrir starfsfólki og hlutaðeigandi stéttarfélögum strax eftir páska.

    31. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Spánn tekinn af lista yfir lönd sem skilgreind eru sem áhættusvæði

    Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að fjarlægja meginland Spánar af landalista sóttvarnalæknis þar sem tilgreint er hvaða lönd eru skilgreind áhættusvæði vegna mikils nýgengis COVID-19 smita. Þetta er gert í ljósi þess mats ráðuneytisins að skilgreiningin samræmist ekki gildandi reglugerð heilbrigðisráðherra um sóttkví, einangrun og sýnatöku á landamærum Íslands vegna COVID-19 þótt gögn skorti um smitstöðu í einu héraði landsins. Farþegar frá meginlandi Spánar skulu sæta sóttkví í heimahúsi eftir breytinguna en ekki á sóttkvíarhóteli.

    31. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    COVID-19: Skólastarf eftir páska

    Staðnám getur hafist að nýju á öllum skólastigum eftir páskafrí með ákveðnum takmörkunum, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Meðfylgjandi reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi var unnin í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið og tekur í meginatriðum mið af appelsínugulum lit í litakóða viðvörunarkerfis fyrir skólastarf sem kynnt var að loknu umfangsmiklu samráði við skólasamfélagið fyrr í vetur. Gildistími reglugerðarinnar er frá 1. apríl til og með 15. apríl.

    30. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samkomulag um yfirfærslu Hraunbúða til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

    Öllu starfsfólki dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestmannaeyjum verða boðin áframhaldandi störf og á sömu kjörum þegar Heilbrigðisstofnun Suðurlands tekur við rekstri heimilisins 1. maí næstkomandi. Starfsfólkið mun jafnframt halda áunnum réttindum sínum. Þetta er megininntak samkomulags sem heilbrigðisráðuneytið og Vestmannaeyjabær hafa gert með sér vegna yfirfærslunnar. Samkomulagið í heild sinni verður kynnt fyrir starfsfólki og hlutaðeigandi stéttarfélögum strax eftir páska.

    30. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Breyttar reglur á landamærum um sýnatöku og sóttkví 1. apríl

    Allir farþegar frá skilgreindum áhættusvæðum þurfa frá 1. apríl að dvelja í sóttkví eða einangrun milli fyrri og síðari sýnatöku. Farþegum sem framvísa bólusetningarvottorði eða vottorði um fyrri sýnatöku fara í eina sýnatöku við komuna til landsins. Farþegar skulu forskrá fyrir komuna til landsins áætlaðan brottfarardag. Frá 11. apríl verður innheimt gjald af þeim sem dvelja í sóttvarnahúsi.

    26. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19 Bólusetningardagatalið uppfært

    Bóluefnadagatal heilbrigðisráðuneytisins og sóttvarnalæknis hefur verið uppfært í samræmi við nýjustu upplýsingar um afhendingu bóluefna gegn COVID-19. Gert er ráð fyrir að á öðrum ársfjórðungi, þ.e. í apríl, maí og júní berist bóluefni fyrir samtals fyrir rúmlega 193.000 einstaklinga. Gangi það eftir hefur Ísland þá fengið bóluefni fyrir samtals 240.000 einstaklinga frá því að bólusetningar hófust í lok desember.

    26. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19 Aukin framleiðslugeta og hraðari afhending bóluefna í Evrópu

    Framleiðendur bóluefna leitast við að auka framleiðslugetu sína í Evrópu. Þetta á við um öll þrjú bóluefnin sem notkun er hafin á hérlendis.

    25. mar. 2021Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Líknarþjónusta. Fimm ára aðgerðaáætlun 2021 til 2025

    mars 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Líknarþjónusta. Fimm ára aðgerðaáætlun 2021 til 2025 Líknarþjónusta

    25. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun um líknarþjónustu um allt land

    Heilbrigðisráðherra hefur sett fram aðgerðaáætlun til fimm ára um líknarþjónustu. Áætlunin byggist á greiningu sem gerð hefur verið á þörf fyrir líknar- og lífslokameðferð og tillögum um bætta þjónustu þar að lútandi í öllum landshlutum. Lagðar eru til aðgerðir til að efla og byggja upp líknarþjónustu á sérgreinasjúkrahúsum, á hjúkrunarheimilum og í þjónustu við fólk í heimahúsum. Aðgerðaáætlunin tekur mið af heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Einnig voru höfð til hliðsjónar fyrirmæli Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um að líknarmeðferð skuli vera hluti af heilbrigðisþjónustu aðildarríkja hennar. Einstakar aðgerðir í áætluninni eru tímasettar og sett fram mælanleg markmið með hverri þeirra.…

    25. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Heimild fyrir 100 viðskiptavinum í lyfja- og matvöruverslunum

    Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð um breytingu á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, sem veitir lyfja- og matvöruverslunum heimild til að taka á móti að hámarki 100 viðskiptavinum að uppfylltum öðrum skilyrðum reglugerðarinnar, í stað 50 áður. Óbreyttar reglur gilda í öðrum verslunum.

    25. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Undanþágur fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki halda gildi sínu

    Heilbrigðisráðherra veitti síðastliðið vor undanþágur frá samkomutakmörkunum fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki svo unnt væri að halda starfsemi þeirra órofinni. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að áður veittar undanþágur haldi gildi sínu þannig að hertar sóttvarnaráðstafanir raski ekki umræddri starfsemi. Sömu skilyrði fyrir undanþágum gilda og áður, en þær voru veittar að undangengnu samráði við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun.

    24. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Ákvörðun ESB um útflutning bóluefna raskar ekki afhendingu þeirra til Íslands

    Íslensk stjórnvöld hafa gengið úr skugga um að ákvörðun Evrópusambandsins um að banna útflutning bóluefna gegn Covid-19 frá ríkjum sambandsins til landa utan þess mun ekki raska afhendingu bóluefna til Íslands. Ísland er aðili að samstarfi Evrópuþjóða um kaup á bóluefnum og situr við sama borð og ríki Evrópusambandsins varðandi þau bóluefni sem samningar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins taka til og afhendingu þeirra. Bóluefnunum er útdeilt hlutfallslega jafnt til þeirra þjóða sem aðild eiga að samningunum miðað við íbúafjölda og Ísland er aðili að þeim samningum.

    24. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Bakvarðarsveit heilbrigðisþjónustunnar endurvakin

    Ákveðið hefur verið að endurvekja bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu. Óskað er eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks sem er reiðubúið að koma tímabundið til starfa með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa. Þeir sem voru skráðir í bakvarðasveitina og sjá sér enn fært að veita liðsinni eru beðnir um að skrá sig þar á ný.

    24. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Stórhertar sóttvarnaaðgerðir taka gildi á miðnætti - fjöldatakmörk 10 manns

    Hertar reglur um sóttvarnarráðstafanir á landsvísu taka gildi á miðnætti í kvöld. Tíu manna fjöldatakmörkun verður meginregla og aðeins börn fædd 2015 og síðar verða þar undanskilin. Grunn-, framhalds-, tónlistar- og háskólum verður lokað þar til páskafrí tekur við. Margvísleg starfsemi sem rúmast ekki innan reglu um 10 manna fjöldatakmörkun verður stöðvuð. Ákvörðun heilbrigðisráðherra um hertar sóttvarnaaðgerðir byggist á tillögum sóttvarnalæknis um að grípa tafarlaust til ráðstafana vegna hópsýkinga innanlands að undanförnu til að sporna gegn frekari útbreiðslu veirunnar. Hertar reglur munu gilda í 3 vikur.

    23. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Sóttvarnaráðstafanir á landamærum hertar

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að herða sóttvarnaráðstafanir á landamærum í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Meginreglan verður að börn fædd 2005 eða síðar fari í sýnatöku á landamærum og sæti fimm daga sóttkví. Þá skulu allir sem koma frá löndum þar sem nýgengi smita er yfir tilteknum viðmiðum dvelja í sóttvarnahúsi meðan á fimm daga sóttkví stendur, nema þeir hafi framvísað gildu bólusetningarvottorði eða vottorði um fyrra smit. Reglugerð heilbrigðisráðherra um þessar breytingar tekur gildi 1. apríl og gildir til loka mánaðarins.

    19. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Polskojęzyczny doradca do spraw komunikacji w Ministerstwie Zdrowia

    ​Ministerstwo Zdrowia zatrudniło Annę Karen Svövudóttir na okres 6 miesięcy, na 40% etatu, na stanowisko doradcy ds. komunikacji z polskojęzyczną społecznością. Do jej zadań należy poprawienie i usprawnienie przekazu informacji polskojęzycznej społeczności w zakresie służby zdrowia. Na Islandii mieszka ponad 20 000 obywateli polskiego pochodzenia i są oni zdecydowanie najliczniejszą grupą imigrantów w tym kraju, czyli około 37%.

    19. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samskiptaráðgjafi pólskumælandi til starfa í heilbrigðisráðuneytinu

    Heilbrigðisráðuneytið hefur ráðið Önnu Karenu Svövudóttur til 6 mánaða í 40% starf samskiptaráðgjafa pólskumælandi. Verkefni hennar snúa að því að efla og bæta upplýsingagjöf við pólskumælandi íbúa landsins á sviði heilbrigðisþjónustu. Á Íslandi búa yfir 20.000 Pólverjar og þeir eru langfjölmennastir í hópi innflytjenda hér á landi eða um 37%.

    19. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Hlutur heimilanna í kostnaði við heilbrigðisþjónustu fer lækkandi

    Greiðsluhlutfall íslenskra heimila af heilbrigðisútgjöldum hefur lækkað úr 18,3% árið 2013 niður í 15,6% árið 2019. Á kjörtímabilinu hefur 700 milljónum nú þegar verið varið í lækkun greiðsluþátttöku sjúklinga og í gildandi fjármálaáætlun til næstu fjögurra ára er gert ráð fyrir að verja 4 milljörðum kr. til að lækka greiðsluþátttökuna enn frekar. Því má ætla að hlutfallið verði komið niður í 13–14% við lok gildistíma hennar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu heilbrigðisráðherra til Alþingis.

    19. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fréttaannáll heilbrigðisráðuneytisins árið 2020

    Heilbrigðisráðuneytið birtir hér með fréttaannál ársins 2020. Störf ráðuneytisins mörkuðust mjög af heimsfaraldri COVID-19. Engu að síður var unnið að mörgum öðrum verkefnum og ýmsir mikilvægir áfangar náðust sem snúa að bættri heilbrigðisþjónustu við landsmenn og styrkingu innviða heilbrigðiskerfisins.

    16. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breyting á lögum um sjúklingatryggingu

    Frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um sjúklingatryggingu hefur verið samþykkt á Alþingi. Með lagabreytingunni hafa skilyrði laganna um tryggingavernd verið útvíkkuð. Tryggingaverndin nær nú til þátttakenda í klínískum lyfjarannsóknum á heilbrigðisstofnunum þar sem rannsakendur eru ekki með bakhjarl.

    16. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Breytingar á sóttvarnaráðstöfunum innanlands 18. mars

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem taka gildi 18. mars og byggja í meginatriðum á tillögum sóttvarnalæknis. Þær fela fyrst og fremst í sér auknar kröfur um skráningu gesta og smitgát í tengslum við viðburði. Þá eru einnig gerðar ríkari kröfur til sóttvarnaráðstafana þar sem boðið er upp á hlaðborð. Gildistími reglugerðar um þessar breytingar er til 9. apríl næstkomandi.

    16. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Vottorð um bólusetningu eða fyrri sýkingu tekin gild á landamærum óháð uppruna

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis, að vottorð um bólusetningu gegn COVID-19 og vottorð um fyrri covid sýkingu verði tekin gild á landamærum Íslands, hvort sem þau eru upprunnin innan EES svæðisins eða utan þess, að því tilskyldu að þau uppfylli sömu kröfur og leiðbeiningar sóttvarnalæknis. Einstaklingar sem framvísa slíkum vottorðum þurfa hvorki að fara í sýnatöku eða sóttkví né framvísa vottorði um neikvætt PCR-próf á landamærunum.

    15. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    Traust til heilbrigðiskerfisins ekki mælst meira í 20 ár

    Ný könnun Gallup sýnir að 77% landsmanna bera mikið traust til heilbrigðiskerfisins og hefur það ekki mælst meira í þau 20 ár sem mælingarnar taka til. Í samanburði við aðrar stofnanir og embætti er heilbrigðiskerfið í þriðja sæti þeirra sem njóta mest trausts, á eftir Landhelgisgæslunni og embætti forseta Íslands. Traust fólks til heilbrigðiskerfisins er nánast jafnmikið, hvort sem það býr á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni. Um 92% landamanna eru ánægðir með sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda samkvæmt sömu könnun.

    12. mar. 2021Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla um árangursmat mismunandi aðgerða á landamærum

    Hópur vísindafólks við Háskóla Íslands, undir handleiðslu Thors Aspelund, hefur rannsakað áhrif mismunandi sóttvarnaaðgerða á landamærum. Verkefnið var unnið í framhaldi af styrk ríkisstjórnarinnar til rannsókna á áhrifum sóttvarnaaðgerða á þróun COVID-19.

    12. mar. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19 Tafir á afhendingu bóluefnis frá AstraZeneca – bólusetningardagatal uppfært

    Tafir verða á afhendingu bóluefnis frá AstraZeneca til allra landa í samstarfi Evrópuþjóða um kaup á bólefni.

    • First
    • Prev
    • 25
    • 26
    • 27
    • 28
    • 29
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband