Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1301–1350 af 3846
    Raða eftir:
    23. feb. 2022Forsætisráðuneytið

    Ólafur Elíasson vinnur hugmyndavinnu fyrir minnisvarða um eldgosið í Heimaey

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt að veita 2 milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til Vestmannaeyjabæjar vegna hugmyndavinnu fyrir minnisvarða um eldgosið í Heimaey. Gerður hefur verið samningur við Stúdíó Ólafs Elíassonar um hugmyndavinnuna.

    22. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skipan húsnæðismála hjá Stjórnarráði Íslands

    Forsætisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið hafa undanfarna mánuði unnið að greiningu á framtíðarskipan húsnæðismála Stjórnarráðsins. Nú liggja fyrir tillögur um skipulag húsnæðismála til lengri og skemmri tíma.

    17. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Starfshópur um umbætur á húsnæðismarkaði skipaður

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað starfshóp um umbætur á húsnæðismarkaði. Verkefni hópsins er m.a. að fjalla um leiðir til að auka framboð á húsnæði til að mæta uppsafnaðri og fyrirsjáanlegri íbúðaþörf ólíkra hópa til lengri og skemmri tíma og um leiðir til að stuðla að auknum stöðugleika á húsnæðismarkaði.

    17. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1061/2022. Úrskurður frá 3. febrúar 2022

    Kærð var synjun Herjólfs ohf. á beiðni um afrit af ráðningarsamningi við framkvæmdastjóra félagsins og starfslýsingu hans. Úrskurðarnefndin rakti að skv. 7. gr. upplýsingalaga ætti almenningur að jafnaði ekki rétt á upplýsingum um málefni starfsmanna þeirra aðila sem heyra undir lögin. Í 7. gr. kæmu fram nokkrar undantekningar frá þeirri meginreglu en ráðningarsamningur og starfslýsing framkvæmdastjóra opinbers hlutafélags féllu ekki undir þær. Var synjun Herjólfs því staðfest.

    17. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1060/2022. Úrskurður frá 3. febrúar 2022

    Deilt var um aðgang kæranda að tilkynningu Vatnajökulsþjóðgarðs til lögreglu vegna meints utanvegaaksturs í þjóðgarðinum. Málinu var vísað til úrskurðarnefndarinnar á grundvelli 3. mgr. 17. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Í umsögn Vatnajökulsþjóðgarðs var byggt á því að tilkynningin væri undanþegin gildissviði upplýsingalaga á grundvelli 1. mgr. 4. gr. laganna. Úrskurðarnefndin taldi tilkynninguna ótvírætt vera hluta af rannsókn sakamáls. Aðgangur að henni yrði því ekki byggður á ákvæðum upplýsingalaga, sbr. 1. mgr. 4. gr. laganna. Synjun á beiðni um aðgang að henni verður þar af leiðandi ekki kærð til úrskurðarnefndarinnar, sbr. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    17. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1059/2022. Úrskurður frá 3. febrúar 2022

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið synjaði beiðni kæranda um aðgang að samskiptum ráðuneytisins við forstjóra Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins vegna breytinga á launum vegna COVID-19 faraldursins. Beiðni kæranda var hafnað með vísan til 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Fram kom að forstjóra ÁTVR hefðu ekki verið ákvörðuð viðbótarlaun, sbr. reglur um greiðslu viðbótarlauna forstöðumanna, nr. 491/2019. Úrskurðarnefndin taldi gögnin bera ótvírætt með sér að tilheyra máli þar sem tekin væri ákvörðun um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga og vörðuðu þar af leiðandi „starfssambandið að öðru leyti“ í skilningi 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Synjun ráðuneytisins var því staðfest.

    17. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1058/2022. Úrskurður frá 3. febrúar 2022

    Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu synjaði kæranda um aðgang að dagbókarfærslu sem varð til vegna tilkynningar kæranda til lögreglunnar um að barn hans væri týnt. Lögreglan vísaði til þess að þegar aðili kæmi á lögreglustöð og tilkynnti um týndan einstakling skyldi lögregla hefja rannsókn máls, þótt ekki lægi fyrir grunur um refsiverða háttsemi, sbr. 52. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008. Úrskurðarnefndin taldi dagbókarfærsluna tilheyra rannsóknargögnum sakamáls og yrði aðgangur að þeim því ekki byggður á ákvæðum upplýsingalaga, sbr. 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Synjun á beiðni um aðgang að þeim verður þar af leiðandi ekki kærð til úrskurðarnefndarinnar, sbr. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga. Kærunni var því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    17. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1057/2022. Úrskurður frá 3. febrúar 2022

    Deilt um afgreiðslu Garðabæjar á gagnabeiðnum kæranda en hann taldi sveitarfélagið ekki hafa yfirsýn og gæti því ekki sannað að öll umbeðin gögn hefðu verið afhent. Úrskurðarnefndin rakti að skv. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga væri úrskurðarvald nefndarinnar afmarkað við að fjalla um réttmæti synjunar á beiðni um aðgang að fyrirliggjandi gögnum samkvæmt lögunum. Það væri ekki hlutverk úrskurðarnefndarinnar að hafa eftirlit með því hvort stjórnvöld hafi yfirsýn yfir afgreiðslu upplýsingabeiðna og afhendingu gagna, eða með hvaða hætti þau skrá upplýsingar um meðferð mála hjá sér. Kærunni var því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    17. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1056/2022. Úrskurður frá 3. febrúar 2022

    Deilt var um það hvort yfirmönnum hjúkrunarheimilisins Dyngju væri heimilt að takmarka upplýsingar til kæranda um það hverjir veittu honum þjónustu hverju sinni og krefjast þess að kærandi bæði þrisvar sinnum á sólarhring um upplýsingarnar. Úrskurðarnefndin tók fram að kæruheimild til nefndarinnar væri bundin við synjun á beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt upplýsingalögum og synjun á beiðni um að afhenda gögn á því formi sem óskað er. Það væri ekki á valdsviði nefndarinnar að leggja mat á hvort viðvarandi upplýsingagjöf til einstaklings væri í samræmi við persónuverndarlöggjöf eða hvernig slíkri upplýsingagjöf skyldi hagað til framtíðar. Kærunni var því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    16. feb. 2022Forsætisráðuneytið

    Nýtt skipurit forsætisráðuneytisins

    Forsætisráðherra hefur staðfest nýtt skipurit forsætisráðuneytisins sem tekur gildi 1. apríl nk. Breytingum í skipuriti er ætlað að efla ráðuneytið enn frekar til að bregðast við ytri áskorunum með áherslu á stöðugar umbætur, forystu og samhæfingu.

    11. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Sendiráð Íslands í París

    Forsætisráðherra ávarpaði alþjóðlega ráðstefnu um málefni hafsins

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði í dag alþjóðlega ráðstefnu um málefni hafsins sem ber yfirskriftina One Ocean Summit. Ráðstefnan sem fram fer bæði rafrænt og í Brest í Frakklandi er haldin að frumkvæði Frakklands og í samvinnu við Sameinuðu þjóðirnar. Markmið hennar er að auka stuðning á alþjóðavettvangi við aðgerðir til að koma í veg fyrir mengun hafsins og tryggja að málefni hafsins verði hluti af sjálfbærnimarkmiðum SÞ.

    11. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Önnur eftirfylgniskýrsla um uppbyggingu innviða

    Önnur eftirfylgniskýrsla um stöðu verkefna í aðgerðaáætlun um uppbyggingu innviða (hlekkur á skýrsluna) hefur verið birt. Aðgerðaáætlunin var samþykkt af ríkisstjórninni í lok febrúar 2020 en hún var sett fram í kjölfar fárviðrisins sem geisaði í desember 2019. Þar eru settar fram 287 aðgerðir um uppbyggingu innviða.

    04. feb. 2022Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Tilnefningar Íslands við Mannréttindadómstól Evrópu

    Forsætisráðuneytið hefur sent tilnefningar Íslands um dómaraefni við Mannréttindadómstól Evrópu til ráðgjafarnefndar á vegum Evrópuráðsins.

    04. feb. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Jafnlaunavottun eykur jafnrétti innan vinnustaða

    Innleiðing jafnlaunastaðalsins hefur aukið gagnsæi launaákvarðana og þar með traust starfsfólks til málefnalegrar launasetningar. Þetta gefa þær kannanir til kynna sem gerðar hafa verið á jafnlaunastaðlinum en í viðhorfskönnun sem Maskína gerði fyrir forsætisráðuneytið í lok síðasta árs var kannaður framgangur og viðhorf til jafnlaunavottunar hjá þeim fyrirtækjum og stofnunum sem höfðu lokið eða áttu að ljúka innleiðingu fyrir áramótin.

    31. jan. 2022Forsætisráðuneytið

    Þrír forsetaúrskurðir vegna breytinga á skipan Stjórnarráðsins birtir

    Ríkisráð kom saman til fundar á Bessastöðum í dag. Auk þess að endurstaðfesta tillögur sem samþykktar voru utan ríkisráðs frá síðasta ríkisráðsfundi, undirritaði forseti Íslands þrjá forsetaúrskurði vegna breytinga á skipan ráðuneyta.

    28. jan. 2022Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum mánudaginn 31. janúar

    Frá ríkisráðsritara: Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til reglulegs fundar á Bessastöðum mánudaginn 31. janúar, kl. 11.00.

    26. jan. 2022Forsætisráðuneytið

    Samskipti forsætisráðherra og Íslenskrar erfðagreiningar vegna ákvörðunar Persónuverndar

    Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd samþykkti á fundi sínum 19. janúar sl. að óska eftir afriti af skriflegum erindum milli forsætisráðherra og Íslenskrar erfðagreiningar í tengslum við ákvörðun Persónuverndar frá 23. nóvember sl.

    25. jan. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Þriðja allsherjarúttekt á stöðu mannréttindamála á Íslandi

    ​Þriðja allsherjarúttekt á stöðu mannréttindamála (e; Universal Periodic Review eða UPR) á Íslandi fór fram á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf í Sviss í dag. Fyrsta úttektin á stöðu mála á Íslandi var 2011 og sú næsta 2016.

    20. jan. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Þrjár umsóknir bárust um stöðu íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu

    Þrjár umsóknir bárust um embætti íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu en umsóknarfrestur rann út 14. janúar sl.

    19. jan. 2022Forsætisráðuneytið

    Fréttaannáll forsætisráðuneytisins 2021

    Starfsemi forsætisráðuneytisins á nýliðnu ári einkenndist eins og árið áður af baráttunni gegn heimsfaraldri COVID-19. Loftslagsmál og jafnréttismál voru einnig í brennidepli á árinu.

    18. jan. 2022Forsætisráðuneytið

    Tvær umsóknir bárust um embætti ríkislögmanns

    Forsætisráðuneytinu bárust tvær umsóknir um embætti ríkislögmanns en umsóknarfrestur rann út 15. janúar sl. Umsækjendur um embættið eru Fanney Rós Þorsteinsdóttir, hæstaréttarlögmaður við embætti ríkislögmanns, og Þórhallur Haukur Þorvaldsson, hæstaréttarlögmaður og meðeigandi hjá Draupni lögmannsþjónustu.

    14. jan. 2022Covid-19, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Ríkisstjórnin ræddi stöðu og horfur í faraldrinum

    Ríkisstjórnin ræddi á fundi sínum í dag um stöðu og horfur í COVID-19 faraldrinum. Markmið stjórnvalda er sem fyrr að standa vörð um líf og heilsu landsmanna en lágmarka efnahagsleg og samfélagsleg áhrif faraldursins.

    14. jan. 2022Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Ísland tekur á móti fólki í viðkvæmri stöðu frá Afganistan

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun að taka á móti 35-70 manns frá Afganistan, til viðbótar við þann hóp sem tekið var á móti í haust, vegna ástandsins sem ríkir í landinu í kjölfar valdatöku talibana.

    11. jan. 2022Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fékk afhenta aldarsögu Hæstaréttar Íslands

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í gær á móti bókinni Hæstiréttur í hundrað ár, nýútkominni aldarsögu Hæstaréttar Íslands.

    04. jan. 2022Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Sóttvarnaaðgerðir á landamærum óbreyttar til 28. febrúar

    Á fundi ríkisstjórnar í morgun var ákveðið að framlengja óbreytta reglugerð um sóttvarnaráðstafanir á landamærum vegna COVID-19 til 28. febrúar nk. Þá var ákveðið að tillaga um fyrirkomulag á landamærum fyrir vorið verði kynnt fyrir 20. febrúar.

    04. jan. 2022Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Farsæld á nýju ári - áramótagrein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu 31. desember 2021

    04 janúar 2022 / Forsætisráðuneytið Farsæld á nýju ári - áramótagrein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu 31. desember 2021 Önnur áramót í faraldri eru runnin upp og landsmenn allir orðnir lúnir á veirunni skæðu. En þrátt fyrir bakslag skulum við hafa hugfast að margt hefur gengið okkur í haginn í þessari baráttu

    31. des. 2021Forsætisráðuneytið

    Áramótaávarp forsætisráðherra

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti áramótavarp sitt í kvöld. Í ávarpinu fór forsætisráðherra yfir hið viðburðaríka ár sem nú er að líða og þær fjölmörgu áskoranir sem þjóðin tókst á við; jarðskjálftar, eldgos og áframhaldandi barátta við heimsfaraldur og loftslagsbreytingar.

    30. des. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1055/2021. Úrskurður frá 30. desember 2021.

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að ráðningarsamningi yfirskipstjóra Herjólfs ohf. Úrskurðarnefndin tók fram að þegar kemur að málefnum starfsmanna lögaðila sem falla undir gildissvið upplýsingalaga skv. 2. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nær upplýsingaréttur almennings eingöngu þeirra upplýsinga sem tilgreindar eru í 4. mgr. 7. gr. sömu laga. Var synjun Herjólfs ohf. því staðfest.

    30. des. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1054/2021. Úrskurður frá 30. desember 2021.

    Kærð var synjun Barnaverndarstofu á beiðni A um gögn varðandi vistun hennar sjálfrar á meðferðarheimilinu Laugalandi. Synjunin byggðist á því að óheimilt væri að veita kæranda aðgang að upplýsingum um einkamálefni annarra einstaklinga sem einnig var fjallað um í gögnunum, sbr. 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin féllst ekki á það með Barnaverndarstofu að eðli gagnanna væri slíkt að ekki væri hægt að afmá viðkvæmar persónuupplýsingar um aðra einstaklinga. Ákvörðun stofnunarinnar var því felld úr gildi og lagt fyrir hana að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar þar sem farið yrði efnislega yfir gögnin og afmáðar upplýsingar um einkamálefni annarra.

    30. des. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1053/2021. Úrskurður frá 30. desember 2021.

    Deilt var um afgreiðslu Garðabæjar á beiðni A um gögn sem vörðuðu hann sjálfan og fjölskyldu hans. Sveitarfélagið afhenti honum gögnin að hluta en synjaði honum um aðgang að tölvupóstssamskiptum sem talin voru vinnugögn, sbr. 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, sbr. 8. gr. sömu laga, og þannig undanþegin aðgangi kæranda. Úrskurðarnefndin féllst á það með sveitarfélaginu að meirihluti gagnanna teldist til vinnugagna. Hins vegar lagði nefndin fyrir Garðabæ að afhenda kæranda tvö skjöl sem uppfylltu ekki skilyrði til að teljast vinnugögn því þau höfðu verið afhent öðrum eða stöfuðu frá öðrum en starfsmönnum sveitarfélagsins.

    30. des. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1052/2021. Úrskurður frá 30. desember 2021.

    Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins á beiðni um aðgang að gögnum sem varða refsiaðgerðir íslenskra stjórnvalda gegn Rússlandi. Fyrst og fremst taldi ráðuneytið mikilvæga almannahagsmuni krefjast þess að aðgangur að gögnunum yrði takmarkaður þar sem þau hefðu að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir, sbr. 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, eða upplýsingar um öryggi ríkisins eða varnarmál, sbr. 1. tölul. 10. gr. Þá taldi ráðuneytið hluta skjalanna undanþeginn upplýsingarétti á grundvelli 1. tölul. 6. gr. enda hefðu þau verið tekin saman fyrir ráðherrafundi. Að lokum var kæranda synjað um aðgang að hluta skjalanna með vísan til þess að um vinnugögn væri að ræða í skilningi 8. gr. upplýsingalaga.…

    22. des. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Staða íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu

    Kjörtímabil íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu rennur út hinn 31. október 2022. Evrópuráðið hefur því farið þess á leit að tilnefnd verði af Íslands hálfu þrjú dómaraefni en skv. 22. gr. mannréttindasáttmálans, sbr. lög nr. 62/1994, eru dómarar við Mannréttindadómstólinn kjörnir af þingi Evrópuráðsins af lista með þremur mönnum sem samningsaðili tilnefnir.

    21. des. 2021Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Tuttugu milljónir króna til endurbyggingar Miðgarðakirkju í Grímsey

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita 20 milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til endurbyggingar Miðgarðakirkju í Grímsey. Kirkjan sem brann til grunna 22. september sl. var elsta bygging eyjarinnar, byggð 1867, og var hún friðuð árið 1990.

    17. des. 2021Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Borgaraþjónusta, Dómsmálaráðuneytið

    Flóttafólk frá Afganistan komið í öruggt skjól

    22 einstaklingar frá Afganistan eru væntanlegir til landsins á þriðjudag.

    17. des. 2021Forsætisráðuneytið

    Auðunn Atlason verður alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins

    Auðunn Atlason sendiherra mun taka við starfi alþjóðafulltrúa forsætisráðuneytisins frá og með 1. febrúar nk. Hlutverk alþjóðafulltrúa er að vera ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum og hafa yfirsýn og halda utan um erlend samskipti forsætisráðherra og forsætisráðuneytisins.

    17. des. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðuneytið styrkir Stígamót

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, talskona Stígamóta, undirrituðu samstarfssamning í Stjórnarráðinu í dag. Samkvæmt samningnum greiðir forsætisráðuneytið Stígamótum 12 milljónir króna til að byggja upp netspjall sem styður við verkefnið Sjúkást.

    17. des. 2021Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Viðbótargreiðslur til umsækjenda um alþjóðlega vernd

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita tæpum 5,8 milljónum króna í viðbótargreiðslur til umsækjenda um alþjóðlega vernd. Undanfarin ár hafa umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið greiðslu í desember til viðbótar við fastar framfærslugreiðslur.

    15. des. 2021Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla úttektarnefndar um reynsluna af starfi nefnda Seðlabanka Íslands

    desember 2021 / Forsætisráðuneytið Skýrsla úttektarnefndar um reynsluna af starfi nefnda Seðlabanka Íslands Skýrsla úttektarnefndar um reynsluna af starfi nefnda Seðlabanka Íslands

    13. des. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Aðgerðahópur um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði tekur til starfa

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, skrifstofustjóra skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu, sem formann aðgerðahóps stjórn­valda og aðila vinnu­markaðar­ins um launa­jafn­rétti og jafn­rétti á vinnu­markaði.

    13. des. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Frumvarp til laga um breytingu á lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna lagt fram á Alþingi

    Frumvarpi til laga um breytingu á lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna var dreift á Alþingi sl. föstudag.

    10. des. 2021Efnahagsmál og opinber fjármál, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla nefndar um úttekt á fastanefndum Seðlabankans

    Nefnd sem falið var að gera úttekt á reynslunni af starfi peningastefnunefndar, fjármálastöðugleikanefndar og fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands frá gildistöku nýrra laga um bankann frá ársbyrjun 2020 hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni.

    10. des. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra opnaði málþing um mannréttindi á tímum loftslagsbreytinga

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti opnunarávarp á málþingi um mannréttindi og réttlæti á tímum loftslagsbreytinga. Alþjóðamálastofnun, Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytið stóðu fyrir málþinginu í tilefni af alþjóðadegi mannréttinda í Veröld, húsi Vigdísar í hádeginu í dag.

    09. des. 2021Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogafundi Bandaríkjaforseta um lýðræði

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í leiðtogafundi Joe Biden Bandaríkjaforseta um lýðræði. Fundinn sátu um 100 þjóðarleiðtogar alls staðar að úr heiminum.

    07. des. 2021Forsætisráðuneytið

    Styrkir til hjálparsamtaka í aðdraganda jóla

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita samtals fimm milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu til tíu hjálparsamtaka sem starfa hér á landi. Sú venja hefur skapast á undanförnum árum að ríkisstjórnin styrki slík samtök í aðdraganda jóla.

    01. des. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína og þingmálaskrá birt

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti á Alþingi í kvöld stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í samræmi við þingsköp Alþingis hefur þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir 152. löggjafarþing einnig verið birt á vef Stjórnarráðsins.

    30. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Norrænt samstarf, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson samstarfsráðherra Norðurlanda

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að skipa Guðmund Inga Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, sem samstarfsráðherra Norðurlanda. Samstarfsráðherra ber ábyrgð á norrænu ríkisstjórnarsamstarfi innan Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir hönd forsætisráðherra.

    29. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1051/2021. Úrskurður frá 29. nóvember 2021.

    Deilt var um afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðnum kæranda um upplýsingar um greiðslur sveitarfélagsins vegna fjárhagsaðstoðar í hverjum mánuði. Af hálfu Vestmannaeyjabæjar kom fram að upplýsingarnar væru ekki fyrirliggjandi hjá sveitarfélaginu og þyrfti sveitarfélagið að leggja í sérstaka vinnu í hverjum mánuði til þess að verða við upplýsingabeiðnunum. Úrskurðarnefndin taldi ekki ástæðu til að draga þær skýringar Vestmannaeyjabæjar í efa. Að mati úrskurðarnefndarinnar var ekki um að ræða synjun beiðna um aðgang að fyrirliggjandi gögnum og var kærunum því vísað frá nefndinni.

    29. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1050/2021. Úrskurður frá 29. nóvember 2021.

    Kærð var synjun Herjólfs ohf. á beiðni um aðgang að skjali með reikningsjöfnuði félagsins yfir sex mánaða tímabil. Úrskurðarnefndin staðfesti synjun félagsins með vísan til þess að skjalið væri vinnugagn sem heimilt væri að undanþiggja upplýsingarétti á grundvelli 5. tölul. 6. gr., sbr. 8. gr. upplýsingalaga.

    29. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1049/2021. Úrskurður frá 29. nóvember 2021.

    Beiðni kæranda um endurupptöku úrskurðar nr. 1019/2021 var hafnað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga um endurupptöku ekki uppfyllt og að ekki væru rökstuddar vísbendingar um að á úrskurðinum væru verulegir annmarkar að lögum.

    29. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1048/2021. Úrskurður frá 29. nóvember 2021.

    A fréttamaður, kærði synjun embættis landlæknis á beiðni hans um aðgang að afriti af samningi íslenska ríkisins við lyfjafyrirtækið Moderna um kaup á bóluefni gegn COVID-19. Synjun landlæknis byggðist annars vegar á því að samningurinn hefði að geyma upplýsingar um mikilvæga virka fjárhags- og viðskiptahagsmuni framleiðenda bóluefnanna, sbr. 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga, en hins vegar á því að mikilvægir almannahagsmunir krefðust þess að aðgangur kæranda yrði takmarkaður, sbr. 2. tölul. 10. gr. laganna. Úrskurðarnefndin féllst á það með embætti landlæknis að umbeðin gögn hefðu að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki og fjölþjóðastofnanir sem mikilvægir almannahagsmunir stæðu til að færu leynt.…

    • First
    • Prev
    • 25
    • 26
    • 27
    • 28
    • 29
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband