04. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk
Breytir byggingarreglugerð og setur inn nýtt ákvæði um 25 metra hámarksfjarlægð frá bílastæði hreyfihamlaðra
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur breytt byggingarreglugerð nr. 112/2012 og sett inn nýtt ákvæði um 25 metra fjarlægðarreglu vegna bílastæða hreyfihamlaðra. Slík bílastæði skulu nú vera sem næst aðalinngangi bygginga og ekki fjær þeim en 25 metrar. „Áður leyfði reglugerðin framkvæmdaaðilum að staðsetja bílastæði fyrir hreyfihamlaða yst á bílastæðum og sem lengst frá inngangi. En ekki lengur,“ segir ráðherra.