Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1251–1300 af 3846
    Raða eftir:
    06. maí 2022Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Þjóðarhöll rís í Laugardal

    Ríki og Reykjavíkurborg eru sammála um að ráðast í byggingu þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal. Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki 2025.

    06. maí 2022Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin samþykkir mótvægisaðgerðir vegna verðbólgu

    Ráðist verður í mótvægisaðgerðir til að draga úr áhrifum verðbólgu á lífskjör viðkvæmustu hópa samfélagsins. Tillaga þess efnis frá forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, innviðaráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra og menningar- og viðskiptaráðherra var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

    05. maí 2022Úkraína, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Einn milljarður króna í aðstoð til Úkraínu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í framlagaráðstefnu til stuðnings Úkraínu sem fram fór í Varsjá í Póllandi.

    04. maí 2022Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á leiðtogafundi Norðurlandanna og Indlands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók í dag þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna og Indlands sem fram fór í Kaupmannahöfn. Þetta er í annað sinn sem forsætisráðherrar ríkjanna hittast en fyrri fundur var í Stokkhólmi árið 2018. Fundinn sátu allir forsætisráðherrar Norðurlandanna auk Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands.

    26. apr. 2022Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundaði með lögmanni Færeyja

    ​Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði í dag með Bárði á Steig Nielsen, lögmanni Færeyja, í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.

    26. apr. 2022Forsætisráðuneytið

    Dagný Jónsdóttir og Henný Hinz aðstoða ríkisstjórnina

    Dagný Jónsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar um samhæfingu mála. Þá mun Henný Hinz áfram gegna stöðu aðstoðarmanns ríkisstjórnarinnar á sviði vinnumarkaðs-, efnahags- og loftslagsmála.

    26. apr. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Vistheimili á Hjalteyri og vöggustofur í Reykjavík falli undir lög um sanngirnisbætur

    Lög um sangirnisbætur verða endurskoðuð með það að markmiði að mál sem tengjast vistheimilinu á Hjalteyri og vöggustofum á vegum Reykjavíkurborgar falli undir lögin.

    22. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1076/2022. Úrskurður frá 31. mars 2022

    Hagstofa Íslands synjaði kæranda um aðgang að upplýsingum um árlegar tölur með skiptingu í allar flokkunarbreytur fyrir fjölda foreldra sem andast eftir kyni, aldursflokkum og dánarorsökum. Synjun Hagstofunnar byggist á 1. mgr. 10. gr. laga um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007, þar sem kveðið er á um þagnarskyldu um allar upplýsingar sem Hagstofan safnar til hagskýrslugerðar og snerta tilgreinda einstaklinga eða lögaðila. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að líta bæri á tilvitnað ákvæði sem sérstakt ákvæði um þagnarskyldu í framangreindum skilningi, sem gengi framar ákvæðum upplýsingalaga. Var því óhjákvæmilegt að vísa kærunni frá úrskurðarnefndinni.

    22. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1075/2022. Úrskurður frá 31. mars 2022

    Deilt var um afgreiðslu Borgarbyggðar á beiðni um gögn sem varða lokun starfsemi og sölu húsnæðis við Brákarbraut sem var í eigu sveitarfélagsins. Beiðni kæranda um yfirlit úr málaskrá yfir öll gögn sveitarfélagsins vegna málsins á tilteknu tímabili var hafnað. Þá taldi sveitarfélagið sér óheimilt að veita kæranda aðgang gögnum varðandi tilboð sem sveitarfélaginu hefði borist í eignir við Brákarbraut með vísan til 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að Borgarbyggð væri skylt að veita kæranda aðgang að yfirliti yfir gögn í málaskrá sem varða lokun á starfsemi við Brákarbraut.…

    22. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1074/2022. Úrskurður frá 31. mars 2022

    Sjúkratryggingar Íslands synjuðu beiðni kæranda um aðgang að samningi stofnunarinnar við Íslandshótel hf. um afnot af fasteign við Þórunnartún í Reykjavík um sérstaka hótelþjónustu fyrir einstaklinga í sóttkví vegna Covid-19-faraldursins. Ákvörðun Sjúkratrygginga byggðist á því að óheimilt væri að veita aðgang að samningnum á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að um aðgang kæranda að samningnum færi skv. 14. gr. upplýsingalaga þar sem kærandi væri eigandi fasteignarinnar. Hagsmunir kæranda af því að fá aðgang að samningnum voru taldir vega þyngra en hagsmunir Íslandshótela af því að hann færi leynt, m.a. þar sem samningurinn hefði verið gerður án samþykkis kæranda.…

    22. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1073/2022. Úrskurður frá 31. mars 2022

    Kærandi óskaði eftir gögnum um hlutabótaleið stjórnvalda hjá Vinnumálastofnun. Stofnunin afhenti kæranda hluta af gögnunum en taldi sér ekki skylt að útbúa ný gögn eða samantektir til að verða við beiðni um fjölda starfsmanna einstakra fyrirtækja sem hefðu sótt um hlutabætur og heildarfjárhæð sem greidd hefði verið til starfsmanna einstakra fyrirtækja. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að af svörum Vinnumálastofnunar yrði ekki annað ráðið en að í kerfum stofnunarinnar lægju upplýsingarnar fyrir og að þær væri unnt að kalla fram með tiltölulega einföldum hætti. Ekki yrði séð að vinna við samantekt gagnanna væri frábrugðin eða eðlisólík þeirri vinnu sem upplýsingalög krefðust almennt af stjórnvöldum við afgreiðslu beiðna um upplýsingar.…

    22. apr. 2022Úkraína, Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Ísland tekur sérstaklega á móti allt að 140 einstaklingum í viðkvæmri stöðu frá Úkraínu

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra, dómsmálaráðherra, utanríkisráðherra, heilbrigðisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra um að fallast á útfærslu flóttamannanefndar um móttöku viðkvæmra hópa flóttafólks frá Úkraínu vegna þess ástands sem hefur skapast í landinu í kjölfar innrásar Rússlands.

    19. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og fjölskyldumál

    Allt að 750 milljónir í aðgerðir til að bregðast við félags- og heilsufarslegum afleiðingum COVID-19

    Allt að 750 m.kr. verður varið á þessu ári til sértækra aðgerða til að mæta félags- og heilsufarslegum afleiðingum COVID-19. Þetta var ákveðið á síðasta fundi ríkisstjórnarinnar fyrir páska. Stjórnvöld hafa frá upphafi heimsfaraldursins lagt ​áherslu á að vinna gegn félagslegum og heilsufarslegaum áhrifum hans, einkum á viðkvæma hópa og eru þessar aðgerðir liður í því.

    19. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Íslandsbanki

    Yfirlýsing vegna sölu á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka

    Yfirlýsing frá formönnum stjórnarflokkanna vegna sölu á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.

    12. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Drög að forgangslista vegna hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB

    Í Samráðsgátt stjórnvalda hafa nú verið birt drög að forgangslista fyrir hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB vegna aðildar Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Frestur til að veita umsagnir er til 29. apríl nk.

    08. apr. 2022Forsætisráðuneytið

    Fulltrúar lettneskrar stofnunar sem vinnur gegn spillingu heimsóttu forsætisráðuneytið

    Fulltrúar frá KNAB, stofnun á vegum lettneskra stjórnvalda sem vinnur gegn spillingu, heimsóttu forsætisráðuneytið í vikunni. Markmið heimsóknarinnar var að skiptast á upplýsingum og styrkja samstarf Íslands og Lettlands á sviði opinberra heilinda og varna gegn spillingu.

    06. apr. 2022Forsætisráðuneytið

    Margrét Hallgrímsdóttir skipuð skrifstofustjóri á skrifstofu innri þjónustu

    Forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa Margréti Hallgrímsdóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu innri þjónustu í forsætisráðuneytinu. Skipað er í embættið til fimm ára en umsækjendur voru alls 23. Tveir umsækjendur drógu umsókn sína til baka á meðan á ráðningarferlinu stóð.

    05. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Afmælishátíð „einvígis aldarinnar“ á Íslandi

    Forsætisráðherra, mennta- og barnamálaráðherra og forseti Skáksambands Íslands undirrituðu í dag samning um styrk til 50 ára afmælishátíðar „einvígis aldarinnar“ í skák á Íslandi. Meðal fyrirhugaðra viðburða er heimsmeistaramótið í Fischer-slembiskák. Margfaldur heimsmeistari í skák Magnus Carlsen og núverandi heimsmeistari í Fischer-slembiskák Wesley So hafa þegar tilkynnt þátttöku.

    01. apr. 2022Forsætisráðuneytið

    Íslenska ríkið hyggst una dómi héraðsdóms í máli barna Sævars Ciesielski

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið fyrir hönd ríkisins að una dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli tveggja barna Sævars Ciesielski gegn íslenska ríkinu. Sá fyrirvari er þó að ef þau áfrýja áskilur ríkið sér rétt til gagnáfrýjunar. Málið var rætt á fundi ríkisstjórnar í morgun.

    24. mar. 2022Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogafundi NATO

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sat í dag leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Brussel, ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra. Tilefni fundarins var að ræða innrás Rússlands í Úkraínu og viðbrögð NATO í bráð og lengd. Eining var rætt um áframhaldandi stuðning við Úkraínu en Volodomír Zelenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði fundinn í gegnum fjarfundabúnað.

    18. mar. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Samstöðutónleikar Sinfó fyrir Úkraínu

    Ágóði miðasölunnar mun renna til hjálparstarfs í Úkraínu, en fjöldi Úkraínumanna er nú á flótta frá heimalandi sínu og mikil þörf á aðstoð frá alþjóðasamfélaginu.

    16. mar. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Heimsþing kvenleiðtoga á Íslandi til 2025

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, og Silvana Koch-Mehrin, forseti og stofnandi Women Political Leaders (WPL), undirrituðu samstarfsyfirlýsingu í Stjórnarráðshúsinu í dag.

    15. mar. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra flytur ávarp á fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti ávarp í aðalumræðum á 66. fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York í kvöld að íslenskum tíma. Þema fundarins er jafnrétti og valdefling kvenna og stúlkna í tengslum við afleiðingar loftslagsbreytinga.

    15. mar. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra flytur ávarp á fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti ávarp í aðalumræðum á 66. fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York í kvöld að íslenskum tíma. Þema fundarins er jafnrétti og valdefling kvenna og stúlkna í tengslum við afleiðingar loftslagsbreytinga.

    15. mar. 2022Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók þátt í fundi leiðtoga JEF-ríkjanna

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í fundi leiðtoga þátttökuríkja í Sameiginlegu viðbragðssveitinni (e. Joint Expeditonary Force, JEF) í London. Umræðuefni fundarins var ástandið í Úkraínu og staða öryggis- og varnarmála í Evrópu í kjölfar innrásar Rússlands.

    14. mar. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Málþing forsætisráðuneytisins í samstarfi við UN Women á Íslandi vegna 66. Kvennanefndarfundar SÞ

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók þátt í dag í rafrænum hliðarviðburði forsætisráðuneytisins í samstarfi við UN Women á Íslandi í tengslum við 66. Kvennanefndarfund Sameinuðu þjóðanna (CSW66).

    11. mar. 2022Innviðaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Römpum upp Ísland: Þúsund rampar um land allt á fjórum árum

    Átakinu Römpum upp Ísland var formlega hleypt af stokkunum í dag. Markmiðið með verkefninu er að byggja 1.000 rampa um land allt á næstu fjórum árum.

    09. mar. 2022Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Baráttan sem breytir heiminum - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu 8. mars 2022

    09 mars 2022 / Forsætisráðuneytið Baráttan sem breytir heiminum - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu 8. mars 2022 Í dag fögnum við alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Við erum á leið út úr heimsfaraldri þar sem við sáum kvennastéttir lyfta grettistaki innan heilbrigðiskerfisins, víða jókst heimilisofbeldi vegna innilokunar og takmarkana og vinnumarkaðurinn breyttist með aukinni fjarvinnu og ólíkum áhrifum á karla og konur

    08. mar. 2022Forsætisráðuneytið

    Umsækjendur um embætti skrifstofustjóra skrifstofu innri þjónustu

    Alls bárust 23 umsóknir um embætti skrifstofustjóra skrifstofu innri þjónustu í forsætisráðuneytinu. Umsóknarfrestur rann út 3. mars síðastliðinn.

    08. mar. 2022Forsætisráðuneytið

    Vinna hafin við rúm 80% verkefna í stjórnarsáttmála

    Forsætisráðuneytið hefur tekið saman yfirlit yfir stöðu þeirra verkefna sem sett eru fram í stjórnarsáttmála Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Samantektin leiðir í ljós að vinna við rúmlega 80% verkefna er hafin eða komin vel á veg en vinna við tæplega 20% verkefna ekki hafin.

    07. mar. 2022Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Úkraína

    Upplýsingar vegna neyðar- og mannúðarhjálpar vegna Úkraínu

    Mikill velvilji er í samfélaginu vegna ástandsins í Úkraínu og nágrannalöndum þess sem hafa tekið á móti fólki á flótta. Á sérstöku vefsvæði þar sem tekin eru saman viðbrögð íslenskra stjórnvalda við innrás Rússlands í Úkraínu er að finna upplýsingar um hvernig einstaklingar geta veitt stuðning til Úkraínu þannig hann nýtist sem best.

    04. mar. 2022Forsætisráðuneytið

    Herdís Steingrímsdóttir skipuð í peningastefnunefnd

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað Herdísi Steingrímsdóttur, dósent í hagfræði við Copenhagen Business School, í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands til næstu fimm ára. Herdís tekur sæti Katrínar Ólafsdóttur sem setið hefur í peningastefnunefnd í 10 ár sem er hámarksskipunartími í nefndinni.

    03. mar. 2022Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði viðburð jafnréttisnefndar Evrópuþingsins

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti lykilerindi á viðburði jafnréttisnefndar Evrópuþingsins í Brussel í morgun í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna.

    02. mar. 2022Forsætisráðuneytið, Úkraína

    Forsætisráðherra fundaði með framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði með Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í Brussel í kvöld.

    01. mar. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1072/2022. Úrskurður frá 1. mars 2022

    Kærðar voru tafir á afgreiðslu sveitarfélagsins Rangárþings eystra á beiðni um gögn varðandi ráðningu í starf. Kærandi var meðal umsækjanda um starfið og átti því rétt til aðgangs að gögnum í málinu á grundvelli 15. gr. stjórnsýslulaga. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga gilda lögin ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum og var kæru af þeim sökum vísað frá nefndinni.

    01. mar. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1071/2022. Úrskurður frá 1. mars 2022

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum hjá Reykjavíkurborg sem vörðuðu málefni látinnar sambýliskonu hans. Synjun Reykjavíkurborgar byggði á því að gögnin væru undanþegin upplýsingarétti á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga enda væri um að ræða gögn um einkamálefni látins einstaklings sem sanngjarnt og eðlilegt væri að leynt færu. Þá taldi borgin að hluti gagnanna væri vinnugögn í skilningi 8. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin leysti úr málinu á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga, hún taldi hvorki að forsendur væru til þess að takmarka aðgang kæranda að gögnunum vegna einkahagsmuna konunnar né að gögnin gætu talist vinnugögn í raun og lagði fyrir Reykjavíkurborg að veita kæranda aðgang að þeim.

    01. mar. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1070/2022. Úrskurður frá 1. mars 2022

    Nefnd um eftirlit með lögreglu synjaði beiðni blaðamanns um aðgang að ákvörðun nefndarinnar í máli sem varðaði starfshætti starfsmanna lögreglu í Ásmund­arsalarmálinu, og kvörtun til nefndarinnar vegna vinnubragða starfsfólks héraðssaksóknara í Samherja­mál­inu. Úrskurðarnefndin taldi kvörtunina tengjast sakamálarannsókn sem enn væri í gangi og væri hún þannig undanþegin gildissviði upplýsingalaga, sbr. 1. mgr. 4. gr. laganna. Úrskurðarnefndin féllst ekki á að ákvörðun nefndar um eftirlit með lögreglu væri gagn sem tengdist málefnum starfsmanna í skilningi 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Þá taldi nefndin að þær upplýsingar sem fram kæmu í ákvörðuninni yrðu ekki heimfærðar undir þagnarskylduákvæði 7. mgr. 35. gr. a lögreglulaga.…

    01. mar. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1069/2022. Úrskurður frá 1. mars 2022

    Deilt var um afgreiðslu Reykjavíkurborgar á beiðni kæranda um afrit af gögnum sem varða úthlutun lóða á Sjómannaskólareit. Kærandi hafði fengið afhent nokkuð af gögnum og Reykjavíkurborg fullyrti að engin frekari gögn væru fyrirliggjandi. Eins og atvikum málsins var háttað taldi úrskurðarnefndin ekki um að ræða synjun um aðgang að gögnum og var kærunni því vísað frá.

    01. mar. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1068/2022. Úrskurður frá 1. mars 2022

    Deilt var um ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að synja beiðni kæranda um aðgang svarbréfi Lindarhvols ehf. til setts ríkisendurskoðanda. Synjunin byggði á því að bréfið væri vinnugagn og þar með undanþegið upplýsingarétti á grundvelli 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Einnig að ráðuneytinu væri óheimilt að veita aðgang að því með vísan til 9. gr. upplýsingalaga. Þá vísaði ráðuneytið til þess að bréfið innihéldi að stórum hluta umfjöllun um sömu atriði og fram kæmu í bréfi setts ríkisendurskoðanda, sem úrskurðarnefndin hafi talið með úrskurði nr. 1004/2021 að væri undirorpið sérstakri þagnarskyldu á grundvelli 3. mgr. 15. gr. laga nr. 46/2016.…

    01. mar. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1067/2022. Úrskurður frá 1. mars 2022

    Kærð var afgreiðsla Garðabæjar á beiðni um tiltekin gögn sem kærandi taldi sig hafa staðreynt að lægju fyrir hjá sveitarfélaginu. Hins vegar lá ekki fyrir í málinu ákvörðun Garðabæjar að synja kæranda um aðgang að þessum gögnum. Kæruheimild til úrskurðarnefndarinnar er skv. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga bundin við synjun á beiðni um aðgang að gögnum. Því vísaði nefndin málinu frá.

    28. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Úkraína

    Forsætisráðherra átti fund með sendiherra Úkraínu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Olga Dibrova, sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi, hittust á fundi í Stjórnarráðshúsinu síðdegis í dag. Sendiherra Úkraínu mun afhenda Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, trúnaðarbréf sitt á morgun en hún er með aðsetur í Helsinki.

    25. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Úkraína

    Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins funduðu um Úkraínu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í fjarfundi leiðtoga Atlantshafsbandalagsins um þá stöðu sem upp er komin vegna innrásar Rússlands í Úkraínu.

    24. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Yfirlýsing Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á Alþingi 24. febrúar 2022 vegna innrásar Rússlands í Úkraínu

    24 febrúar 2022 / Forsætisráðuneytið Yfirlýsing Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á Alþingi 24. febrúar 2022 vegna innrásar Rússlands í Úkraínu Herra forseti. Fyrir hönd íslenskra stjórnvalda fordæmi ég harðlega innrás Rússa í Úkraínu

    24. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1066/2022. Úrskurður frá 24. febrúar 2022

    Deilt var um afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni kæranda um aðgang að siðareglum fyrir kjörna fulltrúa hjá bænum, með undirritun fulltrúanna. Við málsmeðferðina kom í ljós að til voru siðareglur fyrir kjörna fulltrúa hjá bænum sem staðfestar höfðu verið af innanríkisráðuneytinu og voru þær afhentar kæranda. Af hálfu Vestmannaeyjabæjar kom fram að ekki lægju fyrir frekari gögn sem heyrðu undir gagnabeiðni kæranda. Að mati úrskurðarnefndarinnar var ekki um að ræða synjun beiðna um aðgang að fyrirliggjandi gögnum og var kærunum því vísað frá nefndinni.

    24. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1065/2022. Úrskurður frá 24. febrúar 2022

    Í málinu var deilt um rétt blaðamanns til aðgangs að upplýsingum um hvort sjúklingar sem lágu inni á gjörgæsludeild Landspítala vegna Covid-19 hefðu verið bólusettir. Beiðninni var synjað á þeim grundvelli að hópurinn væri fámennur og upplýsingarnar vörðuðu þannig trúnaðarskyldu og persónuvernd. Úrskurðarnefndin féllst á að í þessu tilviki kynnu upplýsingarnar í raun að varða einkahagsmuni, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Var ákvörðun spítalans því staðfest.

    24. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1064/2022. Úrskurður frá 24. febrúar 2022

    Deilt var um afgreiðslu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á beiðni um afrit af samningum sem stofnunin hafði gert við lögmannsstofur. Stofnunin afhenti kæranda einn verksamning en við meðferð málsins hjá nefndinni var að auki afhent afrit af gjaldskrá og viðskiptaskilmálum. Úrskurðarnefndin taldi mega ætla að ýmis samskipti lægju fyrir sem gætu falið í sér samkomulag um að veita tiltekna þjónustu, þ.e. samninga, og að ekki væri hægt að útiloka að slík gögn féllu undir upplýsingarétt almennings. Nefndin taldi stofnunina ekki hafa tekið rökstudda afstöðu til þessa og vísaði því málinu heim til nýrrar og lögmætrar meðferðar og afgreiðslu.

    24. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1063/2022. Úrskurður frá 24. febrúar 2022

    Orkuveita Reykjavíkur synjaði beiðni um aðgang að gögnum sem vörðuðu reikningsskil félagsins. Félagið vísaði til 9. gr. upplýsingalaga synjuninni til stuðnings og taldi að ef gögnin yrðu gerð opinber gætu þau villt um fyrir fjárfestum og haft áhrif á verðmæti skuldabréfa. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál leysti úr málinu á grundvelli 4. tölul. 10. gr. en taldi upplýsingarnar ekki þess eðlis að félaginu væri heimilt að undanþiggja þær upplýsingarétti. Var félaginu gert að afhenda kæranda umbeðin gögn.

    24. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1062/2022. Úrskurður frá 24. febrúar 2022

    Kærð var afgreiðsla Lindarhvols ehf. á beiðni um upplýsingar úr fundargerðum. Félagið hafði veitt kæranda aðgang að hluta fundargerðanna en strikað yfir hluta þess sem þar kom fram, á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga og 2. mgr. 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki. Úrskurðarnefndin taldi kæranda eiga rétt til aðgangs að tilteknum upplýsingum sem honum hafði verið synjað um og lagði fyrir Lindarhvol að veita kæranda aðgang að þeim.

    24. feb. 2022Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Úkraína

    Ísland fordæmir innrás Rússa í Úkraínu

    Íslensk stjórnvöld fordæma harðlega víðtækar árásir rússneskra stjórnvalda á Úkraínu og lýsa harmi yfir þeirri eyðileggingu og þjáningu sem slík innrás óhjákvæmilega veldur.

    23. feb. 2022Forsætisráðuneytið

    Fanney Rós skipuð ríkislögmaður

    Forsætisráðherra hefur skipað Fanneyju Rós Þorsteinsdóttur ríkislögmann frá og með 28. febrúar næstkomandi. Er Fanney Rós fyrsta konan sem er skipuð í embætti ríkislögmanns.

    • First
    • Prev
    • 24
    • 25
    • 26
    • 27
    • 28
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband