Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1101–1150 af 3846
    Raða eftir:
    11. nóv. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1105/2022. Úrskurður frá 2. nóvember 2022

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að áfangaskýrslu starfshóps um starfsemi og starfshætti Samgöngustofu frá október 2017 í heild sinni. Innviðaráðuneytið afhenti stærstan hluta skýrslunnar á grundvelli 1. mgr. 11. gr. upplýsingalaga, en afmáði aðra hluta með vísan til þess að um vinnugögn væri að ræða samkvæmt 5. tölul. 6. gr., sbr. 8. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi skýrsluna ekki uppfylla skilyrði upplýsingalaga fyrir því að teljast vinnugagn, þar sem hún var afhent Samgöngustofu. Þá taldi nefndin ekki að önnur undanþáguákvæði upplýsingalaga ættu við. Var innviðaráðuneytinu því gert að afhenda skýrsluna án útstrikana.

    11. nóv. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1104/2022. Úrskurður frá 2. nóvember 2022

    Deilt var um rétt kæranda, fréttamanns, til aðgangs að gögnum í tengslum við fyrirætlanir um toll- og landamæraskoðun á vegum bandarískra stjórnvalda á Keflavíkurflugvelli. Synjun Isavia ohf. byggðist m.a. á 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga en samkvæmt greininni er heimilt að takmarka aðgang almennings að gögnum þegar mikilvægir almannahagsmunir krefjast enda hafi þau að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gögnin sem kæranda var synjað um aðgang að og taldi að Isavia hefði verið heimilt að synja kæranda um aðgang að gögnunum. Var synjun félagsins því staðfest.

    09. nóv. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra stýrði ársfundi Heimsráðs kvenleiðtoga

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra stýrði í dag ársfundi Heimsráðs kvenleiðtoga í Hörpu. Fundurinn var haldinn í tengslum við Heimsþing kvenleiðtoga sem er nú haldið í fimmta sinn á Íslandi.

    09. nóv. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forvarnaraðgerðir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreiti komnar vel af stað

    Um 65% aðgerða sem tilteknar eru í þingsályktun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni er annað hvort lokið eða þær komnar vel á veg. Þingsályktunin var samþykkt í júní 2020 og nær aðgerðaáætlun til áranna 2021-2025 en forsætisráðuneytið ber ábyrgð á eftirfylgni aðgerða.

    08. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Atvinnuvegir, Menningarmál, Menntamál, Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Kynntu sér Oodi bókasafnið í Helsinki

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra heimsóttu Oodi, eða Óður nýlegt almenningsbókasafn í Helsinki. Heimsóknin var hluti af ferð ráðherra á 74. þing Norðurlandaráðs sem fram fór í borginni.

    07. nóv. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Evrópuráðið, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Heimsókn forsætisráðherra til Strassborgar

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag aðalræðuna á World Forum on Democracy sem fram fer í Strassborg. Forsætisráðherra er í vinnuheimsókn í borginni og sat m.a. ráðherrafund í morgun þar sem samþykkt var tillaga um að leiðtogafundur Evrópuráðsins verði haldinn í Reykjavík í maí á næsta ári.

    07. nóv. 2022Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið

    Leiðtogafundur Evrópuráðsins haldinn á Íslandi

    Fjórði leiðtogafundur í sögu Evrópuráðsins verður haldinn á Íslandi 16.-17.maí 2023. Forsætisráðherra Íslands og utanríkisráðherra Írlands tilkynntu í morgun formlega ákvörðun Evrópuráðsins um að efna til leiðtogafundar undir formennsku Íslands í ráðinu. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Íslands verða gestgjafar fundarins.

    01. nóv. 2022Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Norrænt samstarf, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Forsætisráðherra kynnti formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2023

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti í dag formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2023. Forsætisráðherra gerði þingi Norðurlandaráðs grein fyrir formennskunni á þingi ráðsins sem fer nú fram í Helsinki. Ísland mun taka við formennsku af Noregi 1. janúar nk. og gegna henni út næsta ár.

    01. nóv. 2022Utanríkismál, Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogaumræðum á þingi Norðurlandaráðs

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var viðstödd setningu Norðurlandaráðsþings í Helsinki í dag. Þar tók hún þátt í leiðtogaumræðum þar sem umræðuefnið var framtíð norræns samstarfs og hlutverk Norðurlanda í umheiminum. Þingið sem er hið 74. í röðinni stendur fram á fimmtudag.

    31. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1102/2022. Úrskurður frá 19. október 2022

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að fundargerðum ráðherranefndar um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins, frá þeim fundum þar sem rætt hafi verið um fyrirkomulag við seinna útboð á hlutabréfum ríkisins í Íslandsbanka. Ákvörðun forsætisráðuneytis að synja beiðni kæranda studdist við 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga þar sem fram kemur að réttur almennings til aðgangs að gögnum nái ekki til fundargerða ríkisráðs og ríkisstjórnar, minnisgreina á ráðherrafundum eða gagna sem tekin hafa verið saman fyrir slíka fundi. Úrskurðarnefndin féllst á að gögnin teldust til minnisgreina af ráðherrafundum í skilningi ákvæðisins og staðfesti ákvörðun ráðuneytisins.

    31. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1103/2022. Úrskurður frá 19. október 2022

    Í málinu var kærð töf ríkisendurskoðanda á afgreiðslu beiðni kæranda um upplýsingar. Í 4. mgr. 15. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016, kæmi fram að ákvarðanir ríkisendurskoðanda um aðgang að gögnum sættu ekki kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Af framangreindu leiddi að töf ríkisendurskoðanda á afgreiðslu beiðni um aðgang að gögnum yrði ekki kærð til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Varð því að vísa kærunni frá úrskurðarnefndinni.

    31. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1101/2022. Úrskurður frá 19. október 2022

    Landspítali synjaði kæranda um aðgang að rótargreiningu sem spítalinn lét framkvæma vegna fráfalls eiginmanns kæranda, á þeim grundvelli að um vinnugagn væri að ræða. Úrskurðarnefndin rakti skilyrði upplýsingalaga fyrir því að gagn gæti talist vinnugagn og féllst á að skilyrðin væru uppfyllt. Á hinn bóginn taldi nefndin að rótargreiningin kynni að innihalda upplýsingar um atvik máls auk þess sem þar væri lýsing á vinnureglum eða stjórnsýsluframkvæmd á viðkomandi sviði. Nefndin taldi sig hins vegar ekki hafa forsendur til að taka afstöðu til þess fyrst á kærustigi hvaða upplýsingar í skjalinu skyldu afhentar kæranda. Var hin kærða ákvörðun því felld úr gildi og lagt fyrir Landspítala að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    31. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1100/2022. Úrskurður frá 19. október 2022

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum um starfsheiti, föst launakjör og fastar greiðslur til starfsmanna Landspítala sem eru félagsmenn Eflingar stéttarfélags. Synjun Landspítala var á því byggð að stéttarfélagsaðild geti ekki talist lögmæt afmörkun fyrirspurnar um störf og launakjör starfsmanna, enda teldist stéttarfélagsaðild til viðkvæmra persónuupplýsinga. Úrskurðarnefndin rakti að upplýsingar um stéttarfélagsaðild teldust vera upplýsingar sem sanngjarnt og eðlilegt væri að færu leynt í skilningi 9. gr. upplýsingalaga. Þótt gögnin innihéldu ekki nöfn starfsmanna taldi nefndin að kæranda yrði engu að síður fært að persónugreina starfsmennina með notkun viðbótarupplýsinga, og þannig öðlast upplýsingar um stéttarfélagsaðild þeirra. Var ákvörðun Landspítala því staðfest.

    31. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1099/2022. Úrskurður frá 19. október 2022

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að samningi milli dótturfélags Ríkisútvarpsins og Storytel um heimild til að dreifa hljóðbókum Ríkisútvarpsins á streymisveitu Storytel. Synjun Ríkisútvarpsins byggðist á því að samningurinn varðaði mikilvæga viðskiptahagsmuni Storytel auk þess sem almannahagsmunir krefðust þess að hann færi leynt þar sem Ríkisútvarpið væri að þessu leyti í samkeppni við aðra. Úrskurðarnefndin taldi að um rétt kæranda færi samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga, sem varðar upplýsingar um aðila sjálfan. Þá taldi nefndin að viðskiptahagsmunir Storytel og samkeppnislegir hagsmunir Ríkisútvarpsins vægju ekki eins þungt og hagsmunir kæranda af því að fá aðgang að samningnum. Var því lagt fyrir Ríkisútvarpið að afhenda kæranda samninginn.

    31. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Baráttan sem flytur fjöll - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Morgunblaðinu 24. október 2022

    31 október 2022 / Forsætisráðuneytið Baráttan sem flytur fjöll - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Morgunblaðinu 24. október 2022 Kvennafrídagurinn árið 1975 markaði tímamót í jafnréttisbaráttunni hér á landi. Konur voru orðnar langþreyttar á misrétti á öllum sviðum samfélagsins og því hversu hægt málin þokuðust í átt að jafnrétti

    31. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Baráttan sem flytur fjöll - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Morgunblaðinu 24. október 2022

    31 október 2022 / Forsætisráðuneytið Baráttan sem flytur fjöll - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Morgunblaðinu 24. október 2022 Kvennafrídagurinn árið 1975 markaði tímamót í jafnréttisbaráttunni hér á landi. Konur voru orðnar langþreyttar á misrétti á öllum sviðum samfélagsins og því hversu hægt málin þokuðust í átt að jafnrétti

    28. okt. 2022Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Almannatryggingar og lífeyrir, Forsætisráðuneytið

    Ísland fær viðurkenningu fyrir að stuðla að jafnrétti í almannatryggingum

    Alþjóðlegu almannatryggingasamtökin (ISSA) hafa veitt ríkisstjórn Íslands viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í almannatryggingum fyrir að móta almannatryggingakerfi sem stuðlar að og hvetur til aukins jafnréttis. Huld Magnúsdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, tók við verðlaununum fyrir Íslands hönd á þingi samtakanna í Marrakesh í Marokkó, í dag.

    28. okt. 2022Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Almannatryggingar og lífeyrir, Forsætisráðuneytið

    Ísland fær viðurkenningu fyrir að stuðla að jafnrétti í almannatryggingum

    Alþjóðlegu almannatryggingasamtökin (ISSA) hafa veitt ríkisstjórn Íslands viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í almannatryggingum fyrir að móta almannatryggingakerfi sem stuðlar að og hvetur til aukins jafnréttis. Huld Magnúsdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, tók við verðlaununum fyrir Íslands hönd á þingi samtakanna í Marrakesh í Marokkó, í dag.

    28. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir gerð minnisvarða um síldarstúlkur á Siglufirði

    Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita 15 milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til að styrkja gerð minnisvarða um þátt síldarstúlkna í íslensku atvinnu- og efnahagslífi á síðustu öld. Ráðgert er að minnisvarðinn verði staðsettur á sérbyggðu plani við Síldarminjasafnið á Siglufirði.

    27. okt. 2022Forsætisráðuneytið

    Hrafnhildur Arnkelsdóttir skipuð í embætti hagstofustjóra

    Forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa Hrafnhildi Arnkelsdóttur í embætti hagstofustjóra frá og með 1. nóvember nk. Embættið var auglýst laust til umsóknar 13. ágúst sl. og bárust alls 14 umsóknir en þrír drógu umsókn sína til baka.

    26. okt. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Líflegar umræður um aðgerðir gegn hatursorðræðu

    Líflegar umræður voru á opnum samráðsfundi forsætisráðherra um aðgerðir gegn hatursorðræðu sem fram fór í Hörpu í gær en þátttakendur voru um 100 talsins. Fundurinn er liður í vinnu starfshóps um aðgerðir gegn hatursorðræðu.

    26. okt. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Fullt út úr dyrum á jafnréttisþingi 2022 um stöðu kvenna af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra setti jafnréttisþing 2022 og afhenti félagasamtökunum Hennar rödd, jafnréttisviðurkenningu í Hörpu í dag en tilgangur félagsins er að stuðla að vitundarvakningu og fræðslu um málefni kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Umfjöllunarefni þingsins var staða kvenna af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði, aðgengi, möguleikar og hindranir og voru þátttakendur þingsins á fjórða hundrað manns.

    25. okt. 2022Covid-19, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla nefndar um áfallastjórnun stjórnvalda í Covid-19

    Nefnd sem skipuð var til að greina áfallastjórnun íslenskra stjórnvalda í Covid-19 faraldrinum hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni og var hún rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Nefndin mun kynna skýrsluna í málstofu í Norræna húsinu kl. 14.30 í dag.

    21. okt. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Yfir 93% Íslendinga telja mannréttindi mikilvæg

    Í tengslum við vinnu við kortlagningu á stöðu mannréttinda á Íslandi lét forsætisráðuneytið Maskínu gera skoðanakönnun um þekkingu og viðhorf almennings til mannréttinda.

    21. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir Landsbjörg til að efla slysavarnir ferðamanna

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu fimm milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu vegna endurgerðar á vefnum safetravel.is. Landsbjörg hefur rekið vefinn um árabil en hann er helsti upplýsingavefur almannavarna til að koma mikilvægum skilaboðum til ferðamanna, t.d. vegna óveðurs, ófærðar eða náttúruhamfara.

    21. okt. 2022Covid-19, Forsætisráðuneytið

    Málstofa um áfallastjórnun stjórnvalda vegna Covid-19

    Skýrsla nefndar sem skipuð var til að greina áfallastjórnun íslenskra stjórnvalda í Covid-19 ​faraldrinum verður kynnt í málstofu þriðjudaginn 25. október nk. en skýrslan verður birt opinberlega sama dag. Málstofan sem verður haldin í Norræna húsinu hefst kl. 14.30 en viðburðinum verður einnig streymt.

    19. okt. 2022Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók á móti forseta Finnlands í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók á móti forseta Finnlands, Sauli Niinistö, og Jenni Haukio forsetafrú í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í hádeginu í dag. Forsætisráðherra og forseti Finnlands ræddu meðal annars gott samband Íslands og Finnlands, norrænt samstarf almennt og stöðuna í Evrópu vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Finnsku forsetahjónin eru hér á landi í opinberri heimsókn sem hófst í morgun og halda þau af landi brott á föstudaginn 21. október.

    19. okt. 2022Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Skýrsla starfshóps um neyðarbirgðir

    október 2022 / Forsætisráðuneytið Skýrsla starfshóps um neyðarbirgðir Skýrsla starfshóps um neyðarbirgðir

    18. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra við opnun Arctic Circle 13. október 2022

    18 október 2022 / Forsætisráðuneytið Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra við opnun Arctic Circle 13. október 2022 Chairman of Artic Circle Assembly, Mr. Ólafur Ragnar Grímsson, former President of Iceland

    18. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra við opnun Arctic Circle 13. október 2022

    18 október 2022 / Forsætisráðuneytið Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra við opnun Arctic Circle 13. október 2022 Chairman of Artic Circle Assembly, Mr. Ólafur Ragnar Grímsson, former President of Iceland

    13. okt. 2022Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra flutti ávarp við opnun þings Hringborðs Norðurslóða

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp við opnun þings Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle í Hörpu. Í ávarpinu ræddi forsætisráðherra þær gríðarlegu áskoranir sem blasa við á norðurslóðum en fagnaði um leið aukinni þekkingu og samvinnu vísindafólks um málefni svæðisins, ekki síst á sviði grænna lausna.

    13. okt. 2022Forsætisráðuneytið

    Samstarfsyfirlýsing Íslands og Grænlands undirrituð

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Múte B. Egede, formaður landsstjórnar Grænlands, undirrituðu í dag yfirlýsingu um aukið samstarf landanna tveggja. Í yfirlýsingunni árétta ráðherrarnir vilja sinn til að efla og útvíkka tvíhliða samvinnu.

    13. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1098/2022. Úrskurður frá 5. október 2022

    Kærðar voru tafir Tryggingastofnunar á beiðni kæranda um upplýsingar. Af hálfu Tryggingastofnunar kom fram að erindi kæranda hefði ekki borist stofnuninni og hefði því litið á erindi úrskurðarnefndarinnar sem framsendingu á erindi kæranda sem stofnunin svaraði í kjölfarið. Var því ekki um að ræða synjun á aðgangi að gögnum sem kæranleg væri til nefndarinnar á grundvelli 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga og kærunni vísað frá.

    13. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1097/2022. Úrskurður frá 5. október 2022

    Kærð var afgreiðsla Borgarbyggðar á beiðni kæranda um afrit úr dagbók eða málaskrá slökkviliðsins á tilteknu tímabili. Af hálfu sveitarfélagsins kom fram að ekki væri til nein skrá yfir inn- og útsend erindi hjá slökkviliðinu og að engin gögn um það mál sem kærandi vísaði til lægju fyrir hjá slökkviliðinu. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að draga þær staðhæfingar Borgarbyggðar í efa. Að mati nefndarinnar var þannig ekki um að ræða synjun um aðgang að fyrirliggjandi gögnum, sbr. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, og kærunni því vísað frá.

    13. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1096/2022. Úrskurður frá 5. október 2022

    Reykjavíkurborg afhenti kæranda gögn um samskipti Reykjavíkurborgar við lóðarhafa á Einimel í tengslum við deiliskipulagstillögu en afmáð öll nöfn einstaklinga og eftir atvikum netföng þeirra og símanúmer úr gögnunum. Að því er varðaði útstrikanir á nöfnum starfsmanna Reykjavíkurborgar féllst úrskurðarnefndin ekki á að slíkar upplýsingar teldust til einkamálefna einstaklinga í skilningi 9. gr. upplýsingalaga. Var ákvörðunin því felld úr gildi og Reykjavíkurborg gert að afhenda kæranda gögnin án útstrikana á nöfnum einstaklinga en skylt að strika yfir upplýsingar um einkanetföng og -símanúmer, enda lægi ekki fyrir að þær hafi verið birtar með lögmætum hætti.

    13. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1095/2022. Úrskurður frá 5. október 2022

    Deilt var um afgreiðslu Matvælastofnunar á beiðni kæranda um upplýsingar. Matvælastofnun vísaði frá erindi kæranda þar sem það lyti ekki að afhendingu gagna og uppfyllti þar af leiðandi ekki skilyrði upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi hluta beiðninnar ekki hafa hlotið þá efnislegu meðferð á lægra stjórnsýslustigi sem nefndinni væri fært að endurskoða og lagði fyrir Matvælastofnun að taka málið til nýrrar meðferðar. Að öðru leyti var kærunni vísað frá þar sem beiðni kæranda lyti ekki að afhendingu gagna.

    13. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1094/2022. Úrskurður frá 5. október 2022

    Kærð var synjun Fiskistofu á beiðni kæranda um aðgang að upptökum úr dróna sem sýndu brottkast á fiski. Kæran barst rúmum mánuði eftir að kærufrestur skv. 1. mgr. 22. gr. upplýsingalaga rann út. Úrskurðarnefndin taldi skilyrði 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga ekki uppfyllt og var kærunni því vísað frá.

    13. okt. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Samráðsfundur um aðgerðir gegn hatursorðræðu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra býður til samráðsfundar um aðgerðir gegn hatursorðræðu í Björtuloftum í Hörpu þriðjudaginn 25. október nk. kl. 16:00-17:30 vegna vinnu starfshóps gegn hatursorðræðu. Um þessar mundir skoðar starfshópurinn hvort stjórnvöld skuli setja heildstæða áætlun um samhæfðar aðgerðir gegn hatursorðræðu en hópurinn leggur áherslu á víðtækt samráð í vinnu sinni.

    11. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Menntun eykur velsæld - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu 7. október 2022

    11 október 2022 / Forsætisráðuneytið Menntun eykur velsæld - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu 7. október 2022 Leiðtogafundur Sameinuðu þjóðanna um menntun fór fram í tengslum við opnun Allsherjarþingsins nú á dögunum. Menntamálin eru í brennidepli – ekki síst vegna þess að menntun getur verið lykill að árangri á svo fjöldamörgum sviðum

    11. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Menntun eykur velsæld - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu 7. október 2022

    11 október 2022 / Forsætisráðuneytið Menntun eykur velsæld - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu 7. október 2022 Leiðtogafundur Sameinuðu þjóðanna um menntun fór fram í tengslum við opnun Allsherjarþingsins nú á dögunum. Menntamálin eru í brennidepli – ekki síst vegna þess að menntun getur verið lykill að árangri á svo fjöldamörgum sviðum

    10. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Sameiginleg verkefni - Grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á Vísi 6. október 2022

    10 október 2022 / Forsætisráðuneytið Sameiginleg verkefni - Grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á Vísi 6. október 2022 Fyrir skömmu síðan sat ég opnun Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Skilaboðin þar voru skýr

    10. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Sameiginleg verkefni - Grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á Vísi 6. október 2022

    10 október 2022 / Forsætisráðuneytið Sameiginleg verkefni - Grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á Vísi 6. október 2022 Fyrir skömmu síðan sat ég opnun Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Skilaboðin þar voru skýr

    06. okt. 2022Forsætisráðuneytið

    Leiðtogar Evrópuríkja hittust í Prag

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sótti í dag fund í hinu pólitíska bandalagi Evrópuríkja (e. European Political Community, EPC) en fyrsti fundur þess fór fram í Prag í Tékklandi í dag. Um er að ræða nýjan samstarfsvettvang 44 ríkja en tilgangur hans er að leiða saman ríki Evrópu óháð því hvort þau eru innan eða utan Evrópusambandins, eða hvar þau staðsetja sig í stofnunum Evrópu.

    05. okt. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra boðar til jafnréttisþings um stöðu kvenna af erlendum uppruna

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra býður til jafnréttisþings 2022 þar sem fjallað verður um stöðu kvenna af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði. Umfjöllunarefni er aðgengi, möguleikar og hindranir sem konur af erlendum uppruna mæta á íslenskum vinnumarkaði.

    04. okt. 2022Forsætisráðuneytið

    Ísland meðal efstu þjóða samkvæmt vísitölu félagslegra framfara

    Samtökin Social Progress Imperative birtu þann 26. september sl. vísitölu félagslegra framfara (Social Progress Index) fyrir árið 2022. Ísland mælist í 5. sæti með 89,54 stig af 100 mögulegum og raðast ásamt hinum Norðurlöndunum í efstu sæti lista 169 landa. Staða Íslands á listanum helst nokkuð stöðug frá fyrra ári en vísitalan samanstendur einungis af félagslegum og umhverfislegum þáttum sem taldir eru mikilvægir fyrir framþróun og velgengni þjóða og er þannig hugsuð sem mótvægi við hagræna mælikvarða eins og verga landsframleiðslu.

    03. okt. 2022Forsætisráðuneytið

    Samráðsfundir starfshóps gegn hatursorðræðu

    Starfshópur gegn hatursorðræðu hefur á undanförnum vikum hitt fulltrúa hagsmunasamtaka og sérfræðinga á sérstökum samráðsfundum. Fundirnir voru vel sóttir en alls tóku þátt fulltrúar frá á þriðja tug samtaka.

    02. okt. 2022Forsætisráðuneytið

    Samantekt á flutningi embættismanna á tímabilinu 2009 – 2022

    Forsætisráðuneytið hefur tekið saman yfirlit yfir flutning embættismanna milli embætta á tímabilinu 2009 til 2022. Helstu niðurstöður samantektarinnar eru þær að í um 80% tilfella hafi verið skipað í embætti í kjölfar auglýsingar á umræddu tímabili. Ef flutningar embættismanna sem gerðir voru í tengslum við breytingar á skipulagi stofnana eða ráðuneyta eru ekki taldir með, fer hlutfall skipana í kjölfar auglýsingar upp í rúm 90%.

    29. sep. 2022Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Kaup ríkisins á Norðurhúsi við Austurbakka

    Undirritaður hefur verið samningur um kaup ríkisins á Norðurhúsi við Austurbakka af Landsbankanum. Um er að ræða tæplega 6 þús. fermetra byggingu sem er hluti af nýframkvæmdum Landsbankans við Austurhöfn.

    28. sep. 2022Almannaöryggi, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um neyðarbirgðir

    Starfshópur sem falið var að gera skýrslu um nauðsynlegar birgðir til þess að tryggja lífsafkomu þjóðarinnar á hættutímum hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni. Skýrslan, sem unnin er með vísan til stefnu stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum, hefur verið kynnt í ríkisstjórn og rædd í þjóðaröryggisráði.

    27. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Styrkur veittur vegna norrænnar ráðstefnu um skýra upplýsingamiðlun stjórnvalda á viðsjárverðum tímum

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að veita 1.500.000 kr. af ráðstöfunarfé sínu til að styðja við framkvæmd ráðstefnu þar sem fjallað verður um samskipti stjórnvalda, stofnana og fyrirtækja við almenning þegar vá, t.a.m. heimsfaraldur eða náttúruhamfarir, steðjar að. Ráðstefnan fer fram rafrænt 11.-12. maí 2023.

    • First
    • Prev
    • 21
    • 22
    • 23
    • 24
    • 25
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband