31. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Neytendamál, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir
Ráðherra fundaði með Leiðsögn
„Leiðsögumenn gegna afar mikilvægu hlutverki í íslenskri ferðaþjónustu. Góðir og vel menntaðir leiðsögumenn gera ferðalagið ekki bara betra og skemmtilegra, heldur stuðla að öryggi ferðamanna, aukinni fagmennsku og margeykur líkurnar á því að ferðamenn mæli með landinu sem áfangastað eftir heimsóknina,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, sem fundaði með Leiðsögn – stéttarfélagi leiðsögumanna. Ráðherra hitti Friðrik Rafnsson, formann Leiðsagnar og Hörpu Björnsdóttur ritara félagsins. Félagið á 50 ára afmæli um þessar mundir og mun halda glæsilega afmælishátíð af því tilefni í nóvember.