Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1051–1100 af 2979
    Raða eftir:
    19. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Krafa um sýnatöku í tengslum við smitgát afnumin og útivera í einangrun heimiluð

    Einstaklingum sem sæta smitgát í kjölfar smitrakningar verður ekki lengur skylt að fara í hraðpróf við upphaf og lok smitgátar frá og með morgundeginum en þurfa að fara gætilega í 7 daga og í PCR próf ef einkenni koma fram. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð þessa efnis. Með reglugerðinni er einstaklingum í einangrun jafnframt veitt takmörkuð heimild til útiveru.

    19. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur um þjónustu talmeinafræðinga – ákvæði um tveggja ára starfsreynslu fellt brott

    Sjúkratryggingar Íslands hafa framlengt samning um þjónustu sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga um sex mánuði og fellt brott kröfu um tveggja ára starfsreynslu líkt og talmeinafræðingar hafa lagt á ríka áherslu. Jafnframt er gert ráð fyrir að framlengingartíminn verði nýttur til að vinna að útfærslu gæðavísa um þjónustuna, forgangsröðun og fleiru til að tryggja sem besta þjónustu við notendur. „Þetta er mikilvægt skref. Ég bind miklar vonir við að vel takist til með nýjan samning að sex mánuðum liðnum sem færir þessa mikilvægu þjónustu í gott horf fyrir þá sem á henni þurfa að halda en það eru að langstærstum hluta börn“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

    19. jan. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 3/2022

    Málið varðaði umsókn lyfjaverslunar um undanþágu frá ákvæði 5. mgr. 37. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 um tvo lyfjafræðinga að störfum. Byggðu kærendur á því að við mat á umfangi starfsemi í skilningi ákvæðisins hefði Lyfjastofnun ekki litið til þess að opnunartími verslunarinnar væri mun lengri en almennur afgreiðslutími lyfjaverslana. Var það mat ráðuneytisins að mat Lyfjastofnunar hefði ekki tekið nægilegt tillit til aðstæðna í málinu og verið ófullnægjandi. Vísaði ráðuneytið í þessu sambandi m.a. til sjónarmiða um skyldubundið mat og rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Var ákvörðun Lyfjastofnunar því felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka málið til nýrrar meðferðar.

    19. jan. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 2/2022

    Málið varðaði umsókn lyfjaverslunar um undanþágu frá ákvæði 5. mgr. 37. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 um tvo lyfjafræðinga að störfum. Byggðu kærendur á því að Lyfjastofnun hefði ekki tekið tillit til raunverulegs álagstíma í lyfjaversluninni auk þess sem afgreiðsla á vélskömmtuðum lyfjum væri hátt, en þær afgreiðslur væru ekki sambærilegar afgreiðslum úr verslun. Í úrskurðinum féllst ráðuneytið rök Lyfjastofnunar um að ekki skyldi gera greinarmun á afgreiðslum vélskammtaðra lyfja og afgreiðslum í verslun við mat á umfangi starfsemi. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun Lyfjastofnunar að mestu leyti en taldi unnt að veita undanþágu frá ákvæði 5. mgr. 37. gr. lyfjalaga á tilteknum tímum dags, þegar umfang starfsemi væri lítið í skilningi ákvæðisins.

    18. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Til umsagnar: breyting á lögum nr. 87/2018 (nikótínvörur)

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur. Með frumvarpinu er ætlunin að setja skýrar reglur um heimildir til sölu, markaðssetningar og notkunar á nikótínvörum, þar á meðal nikótínpúðum.

    17. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Áformuð lagabreyting – stjórn yfir Landspítala

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu sem kveður á um skipan sjö manna stjórn Landspítala. Frumvarpið er liður í innleiðingu þeirra áherslumála sem fram koma í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs en í stjórnarsáttmála kemur fram að staða og hlutverk Landspítala sem mikilvægustu heilbrigðisstofnunar landsins verði styrkt og sérstök áhersla lögð á að fylgja eftir uppbyggingu gjörgæslu og bráðadeildar. Er stjórn spítalans ætlað að gegna stefnumarkandi hlutverki í þeirri þróun.

    17. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Viljayfirlýsing um að reisa hjúkrunarheimili í Kópavogi fyrir 120 íbúa

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs hafa undirritað viljayfirlýsingu um byggingu hjúkrunarheimilis í Kópavogi fyrir 120 íbúa. Stefnt er að því að framkvæmdir geti hafist á næsta ári og að heimilið verið tilbúið til notkunar árið 2026.

    14. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Almennar samkomutakmarkanir hertar á miðnætti

    Almennar samkomutakmarkanir verða 10 manns, heimild til aukins fjölda fólks á viðburðum með hraðprófum fellur brott, hámarksfjöldi í verslunum verður 200 manns og skemmtistöðum, krám og spilakössum verður lokað. Þetta er megininntak hertra sóttvarnaráðstafana sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið og byggjast á tillögum sóttvarnalæknis. Gildandi takmarkanir á skólastarfi verða óbreyttar. Reglugerð um hertar sóttvarnaaðgerðir innanlands gilda frá og með laugardeginum 15. janúar til og með 2. febrúar næstkomandi.

    14. jan. 2022Covid-19, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Ríkisstjórnin ræddi stöðu og horfur í faraldrinum

    Ríkisstjórnin ræddi á fundi sínum í dag um stöðu og horfur í COVID-19 faraldrinum. Markmið stjórnvalda er sem fyrr að standa vörð um líf og heilsu landsmanna en lágmarka efnahagsleg og samfélagsleg áhrif faraldursins.

    14. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Aðgerðir til að efla stöðu Landspítalans

    Ríkisstjórnin hefur ákveðið að tryggja Landspítala svigrúm sem gerir kleift að greiða starfsfólki sérstaklega fyrir viðbótarvinnuframlag næstu fjórar vikurnar. Talið er að þannig megi betur tryggja mönnun við erfiðar aðstæður meðan mesti þunginn í faraldrinum gengur yfir. „Við þurfum að gera ráð fyrir að næstu vikur verði krefjandi og ástandið er mjög þungt á Landspítala. Stjórnvöld standa þétt að baki spítalanum og þessi ákvörðun er liður í því. Það er ótrúlegt hve miklu er hægt að áorka með góðri samstöðu, samvinnu og útsjónarsemi. Stjórnendur og starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar hefur sýnt það og sannað á afgerandi hátt síðustu misserin og ég met það mikils.“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

    13. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraða

    Drög að tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 7. febrúar næstkomandi.

    13. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Nýtt hjúkrunarheimili í Árborg opnar í mars

    Nýtt hjúkrunarheimili á Selfossi fyrir 60 íbúa verður afhent tilbúið til notkunar í byrjun mars. Heimilið er samstarfsverkefni ríkis og Sveitarfélagsins Árborgar og kemur m.a. í stað tveggja hjúkrunarheimila sem lögð voru af á Suðurlandi árið 2016. Heilbrigðisstofnun Suðurlands mun reka heimilið, ásamt 40 öðrum hjúkrunarrýmum sem eru við stofnunina á Selfossi.

    11. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Gildandi takmarkanir innanlands framlengdar til 2. febrúar

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreyttar gildandi takmarkanir á samkomum innanlands til og með 2. febrúar næstkomandi. Ákvörðun ráðherra byggist á tillögum sóttvarnalæknis sem telur nauðsynlegt að takmarka áfram sem mest útbreiðslu Covid-19 til að verja heilbrigðiskerfið. Samhliða nýrri reglugerð um samkomutakmarkanir hefur ráðherra til hagræðis sett sérstaka reglugerð um skólastarf, líkt og gert hefur verið á fyrri stigum faraldursins.

    10. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Bólusetning 5 til 11 ára skólabarna

    Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að foreldrum barna 5-11 ára verði boðið að láta bólusetja börn sín gegn Covid-19. Bólusetning barna í þessum aldurshópi hefst á höfuðborgarsvæðinu í dag. Bólusett verður í Laugardalshöll dagana 10. til 13. janúar. Upplýsingar um bólusetningar barna eru á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og á vefsíðum heilbrigðisstofnana um allt land.

    08. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Tilkynning varðandi útskrift að lokinni einangrun

    Athygli er vakin á því að þeir sem lokið hafa sjö daga einangrun eftir staðfest smit af völdum Covid-19 geta nú og mega útskrifa sig sjálfir, að því tilskildu að þeir finni ekki fyrir sjúkdómseinkennum. Covid-göngudeild Landspítala hefur alla jafna samband við fólk fyrir útskrift, en vegna mikils álags er ekki skylt að bíða eftir skilaboðum frá Covid-göngudeildinni, að því gefnu að öll skilyrði fyrir útskrift séu uppfyllt. Einangrun hefst frá þeim tíma að telja sem fyrir liggur jákvætt PCR-próf um sýkingu viðkomandi. Hvorki jákvætt heimapróf né hraðpróf telst viðmið fyrir upphaf einangrunar.

    07. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Breyttar reglur um sóttkví

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að breyta reglum um sóttkví í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Breytingarnar byggja á faglegu mati og góðri bólusetningarstöðu þjóðarinnar. „Við þurfum að halda samfélaginu gangandi eins og framast er kostur, hvort sem við horfum til skólanna, velferðarþjónustu eða margvíslegrar atvinnustarfsemi og eins og staðan er núna eru þetta bráðnauðsynleg viðbrögð.“ segir Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra. Breytingarnar taka gildi á miðnætti.

    07. jan. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 1/2022

    Kæru A, sem laut að markaðsleyfis sem Lyfjastofnun hafði veitt tilteknu bóluefni, var vísað frá ráðuneytinu. Að mati ráðuneytisins var að hvorki til að dreifa stjórnvaldsákvörðun í máli sem væri kæranleg til ráðuneytisins né að A hefði hagsmuna að gæta í tengslum við ákvörðun um afturköllun markaðsleyfis á grundvelli 16. gr. lyfjalaga sem gæti leitt til þess að A gæti talist eiga kæruaðild.

    06. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Gjaldskrárbreytingar um áramót – óbreytt komugjöld í heilsugæslu

    Engar hækkanir verða á komugjöldum í heilsugæslu um áramótin. Almenn komugjöld lækkuðu 1. janúar 2021 úr 700 krónum í 500 krónur. Þessi gjöld eru óbreytt og sem fyrr greiða börn, öryrkjar og aldraðir ekkert komugjald. Gjöld sjúkratryggðra fyrir heilbrigðisþjónustu að öðru leyti hækka um 2,5% frá 1. janúar sl. í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Frá sama tíma hækka fjárhæðir bóta slysatrygginga almannatrygginga og sjúkradagpeningar um 4,6% og sömuleiðis viðmiðunarfjárhæðir vegna greiðsluþátttöku aldraðra fyrir stofnanaþjónustu.

    06. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tæplega 400 milljónum varið til að lækka greiðsluþátttöku vegna tannlæknaþjónustu

    Greiðsluþátttaka lífeyrisþega vegna tannlæknaþjónustu lækkaði 1. janúar síðastliðinn og sömuleiðis greiðsluþátttaka almennings vegna nauðsynlegra tannlækninga af völdum meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Þetta er hluti af gjaldskrárbreytingum vegna heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi um áramótin.​ Áætlað er að fjármunir sem varið verður til þessara lækkana á greiðsluþátttöku nemi um 380 milljónum króna á ársgrundvelli.

    06. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir veittir vegna hjálpartækja fyrir fötluð börn með tvö heimili

    Sjúkratryggingum Íslands hafa verið veittar auknar heimildir til styrkja vegna kaupa á hjálpartækjum fyrir fötluð börn með tvö heimili. Markmiðið er að gera heimilin jafnsett þannig að börnin eigi hjálpartækin vís á báðum stöðum. Þetta er hluti af gjaldskrárbreytingum vegna heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi um áramótin. Áður tóku styrkirnir til kaupa á sjúkrarúmum, dýnum, stuðningsbúnaði og hjálpartækjum tengdum salernisferðum. Nú er einnig heimilt að veita styrki til kaupa á sérstökum vinnustólum og sessum. Þann 1. júlí sl. hækkuðu fjárhæðir styrkja vegna kaupa á hjálpartækjum umtalsvert þegar styrkirnir voru færðir upp til verðlags en það hafði ekki verið gert frá árinu 2008.

    04. jan. 2022Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Sóttvarnaaðgerðir á landamærum óbreyttar til 28. febrúar

    Á fundi ríkisstjórnar í morgun var ákveðið að framlengja óbreytta reglugerð um sóttvarnaráðstafanir á landamærum vegna COVID-19 til 28. febrúar nk. Þá var ákveðið að tillaga um fyrirkomulag á landamærum fyrir vorið verði kynnt fyrir 20. febrúar.

    30. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Einangrun stytt í 7 daga - reglur um styttri tíma

    Í samráði við sóttvarnalækni hefur heilbrigðisráðherra gert breytingu á reglugerð um sóttkví og einangrun og sóttvarnaráðstafanir á landamærum Íslands vegna COVID-19, nr. 1240/2021. Með reglugerðarbreytingunni er einangrun einstaklinga sem hafa greinst með COVID-19 þannig stytt í 7 daga. Telji læknar COVID-19 göngudeildar Landspítala hins vegar nauðsynlegt að framlengja einangrun einstaklings er þeim það heimilt.

    29. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjárlög 2022: Framlög til hjúkrunarheimila aukin um 2,2 milljarða króna

    Rekstrargrunnur hjúkrunarheimila verður styrktur varanlega um 1,0 milljarð króna með fjárlögum næsta árs sem samþykkt voru á Alþingi í gær. Að auki er í fjárlögunum gert ráð fyrir 1,2 milljarða króna framlagi sem jafnframt er varanlegt, til að mæta auknum launakostnaði sem stafar af styttri vinnutíma vaktavinnufólks.

    29. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Ákvörðun sóttvarnalæknis um einangrun staðfest fyrir dómi

    Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest ákvörðun sóttvarnalæknis um einangrun fimm einstaklinga vegna smita af völdum Covid. Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis er þetta í þriðja sinn sem látið er reyna á lögmæti ákvörðunar sóttvarnalæknis um einangrun fyrir dómi. Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti einnig ákvörðun sóttvarnalæknis um einangrun einstaklings með úrskurði 22. október 2020 og sömuleiðis í sambærilegu máli með úrskurði 13. apríl síðastliðinn. Dómstólar hafa einnig fjallað um mál einstaklinga sem mótmælt hafa ákvörðun sóttvarnalæknis um sóttkví þeirra. Tíu slík mál hafa farið fyrir héraðsdóm, síðast var úrskurðað í gær, og í öllum tilvikum hafa ákvarðanir sóttvarnalæknis verið staðfestar.…

    28. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Heilbrigðisstofnanir taka á móti 30 sjúklingum til að létta álagi af LSH

    Stefnt er að því að flytja hátt í 30 sjúklinga frá Landspítala á aðrar heilbrigðisstofnanir víðsvegar um landið til að bregðast við erfiðum aðstæðum á spítalanum vegna Covid. Skortur er á legurýmum auk þess sem hátt í 200 starfsmenn sjúkrahússins eru frá vinnu, ýmist smitaðir af Covid eða í sóttkví.

    28. des. 2021Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 19/2021

    Í málinu var kærð ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um þátttöku kæranda í dvalarkostnaði á hjúkrunarheimili. Krafðist kærandi þess að stofnunin leiðrétti útreikning á hlutdeild hans í kostnaðinum, enda ættu lífeyrisgreiðslur hans frá Noregi ekki að teljast með sem tekjur í útreikningnum. Að mati ráðuneytisins hafði Tryggingastofnun reiknað þátttöku kæranda í dvalarkostnaði í samræmi við lög um almannatryggingar og lög um málefni aldraðra út frá þeirri tekjuáætlun sem lá fyrir, sem byggði á þeim staðfestu upplýsingum sem fyrir lægju hjá stofnuninni. Var ákvörðun Tryggingastofnunar því staðfest.

    22. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Undanþágur til veitingamanna 23. desember

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita veitingastöðum undanþágu frá fjöldatakmörkun nýrrar reglugerðar um takmarkanir á samkomum þann 23. desember. Veitingastöðum verður því heimilt að taka á móti 50 gestum í rými þann 23. desember í stað 20 líkt og kveðið er á um í reglugerð. Að fjöldatakmörkunum slepptum verður skylt að viðhafa allar þær sóttvarnaráðstafanir sem kveðið er á um í reglugerðinni. Veitingastöðum ber því að loka á þeim tíma sem kveðið er á um í reglugerðinni, þ.e. kl. 21.00.

    21. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Bráðvantar fleira heilbrigðisstarfsfólk í bakvarðasveitina

    Heilbrigðisráðuneytið sendir hér með út ákall til heilbrigðismenntaðs fólks sem er reiðubúið að skrá sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Í ljósi mikillar fjölgunar Covid-smita í samfélaginu má gera ráð fyrir vaxandi álagi hjá heilbrigðisstofnunum og hætt er við auknum forföllum starfsfólks vegna smita og sóttkvíar. Alls hafa 152 heilbrigðisstarfsmenn skráð sig í bakvarðasveitina frá því að hún var endurvakin í október síðastliðinn. Sem fyrr er jafnan mest þörf fyrir sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga og lækna en einnig er óskað eftir fólki á skrá úr öðrum heilbrigðisstéttum. Athygli er vakin á því að nemar í hjúkrunarfræði, læknisfræði og sjúkraliðanámi geta skráð sig í bakvarðasveitina.

    21. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Samið við GL Iceland um Covid-flutninga á höfuðborgarsvæðinu

    Fyrirtækið Gray Line mun annast flutninga Covid-smitaðra á höfuðborgarsvæðinu sem ekki þurfa á flutningi að halda í sjúkrabíl. Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samning um þessa þjónustu við fyrirtækið sem staðfestur hefur verið af heilbrigðisráðuneytinu. Markmiðið er að létta álagi af Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sem annast sjúkraflutninga. Covid-flutningar hafa verið umfangsmiklir í starfseminni undanfarið og fyrirsjáanlegt að þörf fyrir þessa flutninga mun halda áfram að aukast á næstunni vegna fjölgunar smita. Flutningar samkvæmt samningnum hefjast eins fljótt og auðið er og í síðasta lagi 1. janúar næstkomandi.

    21. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Undanþágur frá sóttvarnaráðstöfunum fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki halda gildi

    Heilbrigðisráðherra veitti síðastliðið vor undanþágur frá reglum um sóttvarnaaðgerðir fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki svo unnt væri að halda starfsemi þeirra órofinni. Ráðherra hefur ákveðið að áður veittar undanþágur haldi gildi sínu þannig að hertar sóttvarnaráðstafanir raski ekki umræddri starfsemi. Sömu skilyrði fyrir undanþágum gilda og áður, en þær voru veittar að undangengnu samráði við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun.

    21. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Innanlandstakmarkanir hertar til að sporna við hraðri útbreiðslu smita

    Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns og nándarregla 2 metrar í stað 1 með ákveðnum undantekningum. Veitinga- og skemmtistöðum, krám og öðrum stöðum með vínveitingaleyfi ber að loka kl. 21 á kvöldin. Sund- og baðstöðum, líkamsræktarstöðvum og skíðasvæðum verður heimilt að taka á móti 50% af hámarksfjölda. Hraðprófsviðburðir verða takmarkaðir við 200 manns. Hvatt verður til fjarvinnu á vinnustöðum eins og kostur er. Þetta er megininntak hertra innanlandstakmarkana sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis til að sporna við hraðri útbreiðslu Covid-smita. Reglugerð þessa efnis tekur gildi fimmtudaginn 23. desember og gildir í þrjár vikur.

    16. des. 2021Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 18/2021

    Kærandi kærði málshraða embætti landlæknis í kvörtunarmáli til ráðuneytisins. Að mati ráðuneytisins hafði meðferð málsins tafist í nær 17 mánuði af ástæðum sem vörðuðu einungis embætti landlæknis. Þá hefðu orðið tafir á öflun umsagnar í málinu. Taldi ráðuneytið að meðferð málsins hefði ekki verið í samræmi við 1. og 2. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

    16. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Undirritun samnings um þjónustutengda fjármögnun Sjúkrahússins á Akureyri

    Klínísk starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri verður frá 1. janúar næstkomandi fjármögnuð í samræmi við umfang veittrar þjónustu þar sem byggt er á DRG; alþjóðlegu flokkunarkerfi sjúkdóma. Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri sjúkrahússins á Akureyri og María Heimisdóttir forstjóri Sjúkratrygginga Íslands undirrituðu samninginn á Akureyri í gær. ​„Þetta er sambærilegur samningur og gerður var um fjármögnun Landspítala í haust og er byltingarkennd breyting á þeirri aðferðafræði sem beitt verður við fjármögnun þessarar mikilvægu heilbrigðisþjónustu.…

    14. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælt fyrir frumvarpi að heildstæðri löggjöf um dýralyf

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi um heildarlöggjöf um dýralyf. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerðum Evrópusambandsins í íslenskan rétt í kjölfar heildarendurskoðunar sambandsins á löggjöf um dýralyf. Markmið frumvarpsins er að tryggja gæði og öryggi dýralyfja með öryggi og velferð dýra að leiðarljósi. Þar er ekki síst horft til þess að tryggja yfirsýn yfir skráningu, sölu og notkun sýkingalyfja sem notuð eru fyrir dýr í því skyni að halda aftur af útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.

    14. des. 2021Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Skilyrði um tveggja ára starfsreynslu talmeinafræðinga afnumið

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fela Sjúkratryggingum Íslands að fella brott ákvæði úr rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga um tveggja ára starfsreynslu sem skilyrði fyrir greiðsluþátttöku sjúkratrygginga. Starfshópur vinnur nú að greiningu á þjónustu talmeinafræðinga og hvernig henni verði best hagað til framtíðar með hliðsjón af lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Ný heildstæð samningsmarkmið um þessa þjónustu verða byggð á vinnu starfshópsins og er stefnt að því að SÍ og talmeinafræðingar geti hafið viðræður um nýjan samning á grundvelli þeirra eftir áramót.

    13. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra fær Björn Zoëga til ráðgjafar

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra hefur ráðið Björn Zoëga, forstjóra Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð, sem ráðgjafa í tímabundið hlutastarf meðfram störfum sínum sem forstjóri. Björn hefur þegar hafið störf.

    12. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    Myndbönd án orða um aðgengi að heilsugæslu og mæðravernd

    Heilbrigðisráðuneytið hefur framleitt myndbönd án orða um aðgengi að heilsugæslu og mæðravernd. Myndböndin eru ætluð sem leiðarvísir sem hentar öllum, óháð tungumáli.

    08. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    Milla Ósk Magnúsdóttir ráðin aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra

    Milla Ósk Magnúsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra og er þegar tekin til starfa í heilbrigðisráðuneytinu. Milla Ósk var áður aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráðherra. Síðastliðinn áratug starfað hún hjá Ríkisútvarpinu sem fréttamaður og aðstoðarframleiðandi frétta, auk þess að sinna dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. Þá var hún um skeið varaformaður Félags fréttamanna á Ríkisútvarpinu. Milla Ósk er með ML-próf í lögfræði frá Háskóla Reykjavíkur þar sem hún sérhæfði sig í fjölmiðlarétti, auk þess að leggja áherslu á persónuupplýsinga- og vinnurétt.

    07. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Óbreyttar sóttvarnaráðstafanir næstu tvær vikur

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreytta gildandi reglugerð um samkomutakmarkanir. Almennar fjöldatakmarkanir verða því áfram 50 manns en með möguleika á hraðprófsviðburðum, áfram gilda 1 metra nálægðarmörk, reglur um grímunotkun o.s.frv. Þessi ákvörðun er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis sem telur nauðsynlegt að viðhalda óbreyttum takmörkunum í ljósi óvissu um þróun faraldursins, ekki síst vegna tilkomu Ómíkron-afbrigðis kórónaveirunnar.

    07. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Hjúkrunardeild fyrir covid-sjúklinga opnuð tímabundið á Eir

    Í dag verður opnuð á hjúkrunarheimilinu Eir sérstök hjúkrunareining fyrir covid-sjúklinga. Deildin er einkum hugsuð sem sérstakt úrræði fyrir íbúa á hjúkrunarheimilum sem veikjast af völdum Covid-19 og þurfa á sólarhringsumönnun að halda og einnig aldraða sem geta ekki haldið einangrun heima og þurfa umönnun. Hjúkrunardeildin er í húsnæði þar sem Eir hefur rekið dagdvöl fyrir 24 aldraða. Til að gera þetta mögulegt var dagdvölinni fundið annað húsnæði við Höfðabakka 9. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti sér aðstæður í nýju húsnæði dagdvalarinnar fyrir helgi og ræddi við starfsfólk og stjórnendur.

    03. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Landspítali fær fjármagn til að útvista tilteknum aðgerðum og stytta þannig biðlista

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Landspítala 60 milljónir króna sem gerir spítalanum kleift að útvista vel á annað hundrað valdra aðgerða og stytta með því biðlista. Um er að ræða tiltölulega einfaldar aðgerðir sem ekki er líklegt að kalli á innlögn á sjúkrahús eða gjörgæsluþjónustu.

    03. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Kaup á nýju lyfi gegn alvarlegum veikindum af völdum Covid-19

    Heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið kaup á nýju lyfi sem heitir Sotrovimab frá GlaxoSmithKline og þykir gefa góða raun til að draga úr hættu á alvarlegum veikindum fólks vegna Covid-19 við vissar aðstæður. Lyfið er svokallað einstofna mótefni. Meðferð með einstofna mótefnum gagnast best þeim sem eru óbólusettir og/eða þeim sem mynda illa mótefni vegna lyfja eða sjúkdóma og er notkunin bundin við upphaf veikinda hjá þeim sem eru í aukinni hættu á að þróa með sér alvarlegan sjúkdóm. Til að byrja með hefur verið ákveðið að kaupa 72 skammta af lyfinu sem svokallað undanþágulyf og er það væntanlegt er til landsins síðar í þessum mánuði.

    03. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Áform til kynningar um frumvarp til nýrra sóttvarnalaga

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt áform um setningu nýrra sóttvarnalaga og frummat á áhrifum lagasetningar. Áætlað er að heilbrigðisráðherra mæli fyrir frumvarpinu á vorþingi. Tilgangur frumvarpsins er m.a. að endurskoða stjórnsýslu sóttvarna. Frestur til að skila umsögnum er til 30. desember.

    02. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Ný tölfræði um gagnsemi bólusetningar

    Birtar hafa verið á vefnum Covid.is nýjar tölfræðiupplýsingar sem sýna annars vegar samanburð á fjórtán daga nýgengi smita eftir aldurshópum og bóluefnastöðu og hins vegar nýgengi innlagna á sjúkrahús eftir stöðu bólusetningar. Samkvæmt tölfræðinni er nýgengi sjúkrahússinnlagna nú 0,5 hjá fullorðnum sem hafa fengið örvunarbólusetningu, það er um tólf sinnum hærra (5,9) hjá þeim sem eru fullbólusettir og 68 sinnum hærra (34,0) hjá þeim sem ekki eru fullbólusettir en hjá þeim sem fengið hafa örvunarbólusetningu.

    01. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Hraðpróf fyrir viðburði og aðgengi að þeim

    Til að koma betur til móts við fólk sem vill sækja viðburði hefur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins lengt opnunartíma fyrir hraðpróf til kl. 17.00 á laugardögum. Miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga er opið frá kl. 8.00-20.00 en skemur aðra daga. Heilbrigðisstofnanir um allt land bjóða upp á hraðpróf vegna Covid-19. Auk þess veita einkaaðilar þessa þjónustu í Reykjanesbæ, á Akureyri og á fjórum stöðum í Reykjavík. Hér fylgja nánari upplýsingar um hraðprófsstaði og skráningu í hraðpróf.

    30. nóv. 2021Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 17/2021

    Kæru á málsmeðferð embættis landlæknis í kvörtunarmáli vísað frá ráðuneytinu þar sem hún barst utan kærufrests. Að mati ráðuneytisins var hvorki talið að afsakanlegt hafi verið að kæran hefði ekki borist innan frests né að veigamiklir hagsmunir mæltu með því að kæran yrði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

    29. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Willum Þór Þórsson tekinn við heilbrigðisráðuneytinu af Svandísi Svavarsdóttur

    Ráðherraskipti urðu í heilbrigðisráðuneytinu í morgun þegar Willum Þór Þórsson tók við embætti heilbrigðisráðherra af Svandísi Svavarsdóttur. Willum segir það mikla áskorun að taka við þeim stóru og mikilvægu verkefnum sem heyra undir ráðuneytið. Hann muni leggja sig allan fram í þeirri vinnu sem framundan er og taki stoltur við keflinu af Svandísi.

    27. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Utanríkisráðuneytið

    COVID-19: Hertar sóttvarnaaðgerðir á landamærum vegna nýja kórónaveiruafbrigðisins Ómíkron

    Öllum sem koma til landsins og hafa dvalið meira en sólarhring síðastliðna 14 daga á skilgreindum hááhættusvæðum verður skylt að fara í PCR-próf við komuna til landsins og síðan í sóttkví sem lýkur með öðru PCR prófi fimm dögum síðar. Þetta gildir um alla sem dvalið hafa á hááhættusvæði, hvort sem þau eru bólusett eða ekki eða með sögu um fyrri sýkingu af Covid-19. Þessir einstaklingar þurfa jafnframt að framvísa neikvæðu Covid-prófi við byrðingu erlendis fyrir komuna til Íslands (þó að undanskildum þeim sem eru með tengsl við Ísland). Enn fremur ber þeim að fylla út rafrænt forskráningareyðublað þar sem m.a. kemur fram hvar þau hyggjast dvelja í sóttkví á Íslandi. Börn fædd 2016 og síðar eru undanskilin þessum reglum.…

    26. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Landsráð

    Tillögur frá landsráði um endurskoðun verkaskiptingar heilbrigðisstétta o.fl.

    Landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu hefur skilað Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra tillögum sem lúta að endurskoðun verkaskiptingar heilbrigðisstétta. Tillögurnar fela í sér aðgerðir sem miða að því að gera ólíkum heilbrigðisstéttum kleift að nýta sérhæfni sína sem best við dagleg störf, færa minna sérhæfðu starfsfólki aukin verkefni og gera þannig heilbrigðisstarfsfólki kleift að verja sem mestum hluta vinnutíma síns við hámark sinnar hæfni. Ráðherra hefur samþykkt tillögur landsráðs. Landsráð skiptir verkefnunum sem hafa þetta að markmiði í úrlausnarefni sem ráðist verði í innan sex mánaða annars vegar og innan tveggja ára hins vegar.…

    25. nóv. 2021Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Bætt matstæki fyrir börn og ungmenni stuðla að markvissari greiningum

    Unnið er að því í samvinnu heilbrigðisráðuneytis og mennta- og menningarmálaráðuneytis að uppfæra sérhæfð matstæki sem sálfræðingar og geðlæknar nýta þegar grunur leikur á að einstaklingar glími við þroskatengdan vanda eða geðheilsuvanda.

    • First
    • Prev
    • 20
    • 21
    • 22
    • 23
    • 24
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband