Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnahagsmál og opinber fjármál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1051–1100 af 1182
    Raða eftir:
    30. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Frumvarp um breytingar á lögum vegna brottfalls laga um kjararáð

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna brottfalls laga um kjararáð. Breytingarnar sem lagðar eru til í frumvarpinu eru að mestu með hliðsjón af tillögum starfshóps forsætisráðherra um málefni kjararáðs sem skilaði skýrslu í febrúar.

    28. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármálaráðherrar Íslands og Danmerkur ræddu efnahagsmál ríkjanna

    Fjármálaráðherrar Íslands og Danmerkur hittust síðdegis í gær í Kaupmannahöfn á fundi Dansk-íslenska viðskiptaráðsins, sem haldinn var í tilefni 100 ára fullveldisafmælis Íslands. Efnahagsmál ríkjanna tveggja voru í deiglunni, sameiginlegar og ólíkar áskoranir.

    23. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkissjóður kaupir eigin bréf fyrir 24 milljarða króna

    Ríkissjóður keypti í vikunni eigin skuldabréf af Seðlabanka Íslands samtals að fjárhæð 24 ma.kr. Um er að ræða óverðtryggð ríkisbréf í flokkunum RIKB 20, RIKB 22, RIKB 25 og RIKB 31 fyrir samtals um 22,5 ma.kr. að nafnvirði og í flokknum RIKS 21 fyrir um 0,3 ma.kr. að nafnvirði. Uppgjör viðskipta fer fram í dag.

    09. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegir

    Aukinn stuðningur við rannsóknir, þróun og nýsköpun

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur á Alþingi mælt fyrir frumvarpi um að auka stuðning við rannsóknir og þróun fyrirtækja og stuðla þannig að enn frekari nýsköpun. Lagt er til að núgildandi viðmiðunarfjárhæðir endurgreiðslna vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar tvöfaldist, hækki úr 300 m.kr. í 600 m.kr.

    06. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ræddu breytingar í umhverfi fjármálastofnana á fundi ráðherra fjármála- og efnahagsmála í Brussel

    Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sótti í dag árlegan fund ráðherra fjármála- og efnahagsmála í ríkjum Evrópusambandsins, Ecofin, og EFTA. Fundurinn fór fram í Brussel.

    05. nóv. 2018Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Nýsköpun hjá hinu opinbera kortlögð í fyrsta sinn

    Á dögunum fengu um 800 stofnanir ríkis og sveitarfélaga senda könnun sem ætlað er að kortleggja nýsköpun hjá hinu opinbera og um leið efla hana. Könnunin, sem nefnist Nýsköpunarvogin, er samnorræn en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í slíkri könnun.

    05. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Framgangur áætlunar um losun fjármagnshafta

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur brit greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta, en samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál ber honum að gera Alþingi grein fyrir framgangi áætlunar um losun takmarkana á fjármagnshreyfingum milli landa og gjaldeyrisviðskiptum á sex mánaða fresti þar til slíkum takmörkunum verður endanlega aflétt.

    31. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Staða og horfur á vinnumarkaði: Spyrja þarf um þróun ráðstöfunartekna og kaupmáttar

    Þegar lífskjör landsmanna eru skoðuð þarf spyrja um þróun ráðstöfunartekna og kaupmáttar þeirra, fremur en að horfa aðeins á mælikvarða skatthlutfalla. Þetta kom fram í máli Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, í pallborði á morgunfundi Landsbankans þar sem rætt var um stöðu og horfur á íslenskum vinnumarkaði.

    30. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð 2019-2023 samþykkt í ríkisstjórn

    Fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð var samþykkt í ríkisstjórn sl. föstudag. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur haft forystu um gerð áætlunarinnar í samráði við ráðherra jafnréttismála.

    15. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármálaráðherra á fundi AGS og Alþjóðabankans

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra sótti ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans á Bali í Indónesíu, sem haldinn var 8.-14. október. Þar voru meðal annars til umræðu þær áskoranir sem fjölþjóðasamstarf stendur frammi fyrir og mikilvægi þess að viðhalda slíku samstarfi og efla með nýrri tækni og nýjum leiðum.

    11. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkisreikningur 2017

    Uppgjör ríkisreiknings fyrir árið 2017 hefur nú verið birt og ríkisreikningur sendur Alþingi. Samkvæmt ríkisreikningi var rekstrarafkoman jákvæð um 39 ma.kr. sem lýsir sterkri stöðu ríkisfjármálanna. Tekjur námu samtals 783 ma.kr. og rekstrargjöld 711 ma.kr. Hrein fjármagnsgjöld voru neikvæð um 74 ma.kr. en hlutdeild í afkomu félaga í eigu ríkisins jákvæð um 40 ma.kr.

    11. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Vinna hafin við að sameina Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið - Verðbólgumarkmiði viðhaldið sem meginmarkmiði peningastefnunnar

    Ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins hefur ákveðið að hefja endurskoðun lagaumgjarðar um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit.

    02. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Japan tekur gildi 31. október 2018

    Þann 1. október 2018 fóru fram í Reykjavík skipti á fullgildingarskjölum vegna nýs tvísköttunarsamnings við Japan sem undirritaður var þann 15. janúar 2018.

    01. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármálaráðherra fundaði með staðgengli forsætisráðherra Bretlands

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og David Lidington, ráðherra í ríkisstjórn Theresa May og staðgengill forsætisráðherra Bretlands, funduðu í Birmingham á Englandi í morgun.

    28. sep. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Álagning opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2017

    Ríkisskattstjóri hefur nú lokið álagningu opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2017, sem er mánuði fyrr en á síðasta ári. Álögð gjöld eru samtals 186,8 ma.kr. sem er hækkun um 752 milljónir króna á milli ára, en breytingar einstakra skatttegunda eru bæði til hækkunar og lækkunar.

    25. sep. 2018Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skýrsla Félagsvísindastofnunar á ensku fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið - The 2008 Icelandic Bank Collapse: Foreign Factors

    The 2008 Icelandic Bank Collapse: Foreign Factors. A report for the Ministry of Finance and Economic Affairs.

    25. sep. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Álit Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eftir heimsókn til Íslands

    Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur sent frá sér meðfylgjandi álit eftir tveggja vikna heimsókn til Íslands. Sendinefndin átti fundi með fulltrúum stjórnvalda, Seðlabanka Íslands, aðilum á vinnumarkaði og fulltrúum atvinnulífsins og fjármálastofnana.

    14. sep. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Samgöngur og fjarskipti, Sveitarstjórnir og byggðamál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkissjóður lánar Íslandspósti 500 milljónir króna til að styrkja lausafjárstöðu

    Ríkissjóður hefur veitt Íslandspósti 500 milljóna króna lán til allt að 12 mánaða til að styrkja lausafjárstöðu félagsins, með fyrirvara um heimild í fjáraukalögum.

    12. sep. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ársskýrslur ráðherra birtar í fyrsta skipti

    Ársskýrslur ráðherra eru nú birtar í fyrsta skipti samkvæmt 62. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál. Í lögunum er kveðið á um að hver ráðherra skuli birta slíka skýrslu þar sem gera skal grein fyrir útgjöldum málefnasviða og málaflokka og bera saman við fjárheimildir fjárlaga.

    12. sep. 2018Rit og skýrslur, Almannatryggingar og lífeyrir, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ársskýrsla 2017 - Fjármála- og efnahagsráðherra

    Ársskýrsla ráðherra í samræmi við 62.grein laga nr. 123/2015 um opinber fjármál.

    11. sep. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjárlagafrumvarp 2019

    Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2019 er lagt fram á Alþingi í dag. Gert er ráð fyrir að afgangur á heildarafkomu ríkissjóðs verði 1% af vergri landsframleiðslu árið 2019 eða um 29 milljarðar króna.

    10. sep. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fundaði með fjármálaráðherra Noregs

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Siv Jensen, fjármálaráðherra Noregs, funduðu í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í dag, en Siv er stödd í óformlegri heimsókn hér á landi.

    29. ágú. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Sigurður Skúli Bergsson settur tollstjóri

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur sett Sigurð Skúla Bergsson, aðstoðartollstjóra, tímabundið í embætti tollstjóra frá 1. október næstkomandi, þar til skipað hefur verið í stöðuna.

    20. ágú. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skýrsla starfshóps um endurskoðun skattlagningar ökutækja og eldsneytis

    Starfshópur sem unnið hefur að endurskoðun skattlagningar ökutækja og eldsneytis hefur skilað skýrslu til fjármála- og efnahagsráðherra.

    09. ágú. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fulltrúar kínverska kommúnistaflokksins funduðu með fjármála- og efnahagsráðherra

    Fulltrúar kínverska kommúnistaflokksins, CPC, heimsóttu Ísland á dögunum og óskuðu eftir fundi með Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra. Á fundinum kynntu fulltrúar CPC hugmyndir flokksins að auknu samstarfi við önnur ríki.

    06. ágú. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Standard og Poor's

    S&P staðfestir óbreyttar A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Matsfyrirtækið S&P Global staðfesti í dag A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs fyrir langtíma- og skammtímaskuldir í innlendum og erlendum gjaldmiðlum með stöðugum horfum.

    20. júl. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Moody‘s

    Moody’s breytir horfum fyrir lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands í jákvæðar úr stöðugum

    Matsfyrirtækið Moody’s Investors Service breytti í kvöld horfum fyrir lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands í jákvæðar úr stöðugum og staðfesti lánshæfiseinkunnina A3 fyrir langtímaskuldbindingar.

    05. júl. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skýrsla starfshóps um gildisdagsetningar í virðisaukaskatti

    Starfshópur sem skipaður var til að fara yfir gildisdagsetningar í virðisaukaskatti hefur lokið störfum og skilað skýrslu til ráðherra.

    21. jún. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nefnd um aukna skilvirkni í skattframkvæmd, álagningu og innheimtu opinberra gjalda

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað nefnd um aukna skilvirkni í skattframkvæmd, álagningu og innheimtu opinberra gjalda.

    21. jún. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Óskað eftir umsögnum um drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna brottfalls laga um kjararáð

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið óskar eftir umsögnum á samráðsgátt stjórnvalda um drög að lagafrumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna brottfalls laga um kjararáð.

    14. jún. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Endurskoða tekjuskatts- og bótakerfi einstaklinga og fjölskyldna

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað tvo hópa til að vinna að endurskoðun tekjuskatts- og bótakerfa hjá einstaklingum og fjölskyldum.

    13. jún. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skýrsla um lagaumgjörð Fjármálaeftirlitsins

    Hinn 24. ágúst 2017 skipaði þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra starfshóp sem fékk það verkefni að endurskoða lög um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, lög um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi auk ákvæða annarra laga um fjármálamarkaði eða fjármálafyrirtæki, sem tengjast eftirliti með markaðnum.

    08. jún. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fitch

    Fitch staðfestir óbreytta A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Matsfyrirtækið Fitch staðfesti í dag lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir langtímaskuldir í erlendri mynt sem A með stöðugum horfum. Samkvæmt matsfyrirtækinu endurspeglar þessi einkunn á annan bóginn háar þjóðartekjur, sterkar stofnanir, góð lífskjör og gott viðskiptaumhverfi og á hinn bóginn að hagkerfið reiðir sig að stórum hluta á hrávörur í útflutningi og er næmt fyrir ytri áföllum auk fyrri reynslu af sveiflum í efnahags- og fjármálum.

    01. jún. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármálaráðherra sótti ráðherrafund OECD

    Tveggja daga ráðherrafundi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) lauk í París í gær. Umfjöllunarefni fundarins í ár var hvernig mætti styrkja stoðir alþjóðakerfisins.

    01. jún. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Álagning opinberra gjalda á einstaklinga árið 2018

    Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga og er hún mánuði fyrr á ferðinni en í fyrra. Álagningin 2018 tekur mið af tekjum einstaklinga árið 2017 og eignastöðu þeirra 31. desember 2017.

    29. maí 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Aðgengileg og notendavæn framsetning álagningar opinberra gjalda

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti á blaðamannafundi í morgun breytta framsetningu álagningar opinberra gjalda sem birt verður í vikunni, þar sem markmiðið er að upplýsingar séu aðgengilegar og notendavænar.

    17. maí 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Forkaupsréttur ríkisins í tengslum við frumskráningu Arion banka

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Kaupþing hafa náð niðurstöðu um framkvæmd ákvæðis 3.6 í afkomuskiptasamningi íslenska ríkisins, Kaupþings hf. og dótturfélags þess Kaupskila ehf. frá 13. janúar 2016. Í ákvæðinu felst að forkaupsréttur ríkisins við sölu hlutabréfa í Arion banka skuli aðlagaður við skráningu bankans á markað.

    11. maí 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Evrópusamvinna, Þróunarsamvinna, Alþjóðamál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármála- og efnahagsráðherra kjörinn varaformaður eigendanefndar EBRD

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, var kjörinn varaformaður eigendanefndar Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD) á ársfundi bankans sem haldinn var við Dauðahafið í Jórdaníu dagana 9-10.maí.

    27. apr. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Framgangur áætlunar um losun fjármagnshafta

    Fjármála- og efnahagsráðherra birti í dag greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta, en samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál ber honum að gera Alþingi grein fyrir framgangi áætlunar um losun takmarkana á fjármagnshreyfingum milli landa og gjaldeyrisviðskiptum á sex mánaða fresti þar til slíkum takmörkunum verður endanlega aflétt.

    20. apr. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármálaráðherrar Íslands og Noregs funda í Washington

    ​Fjármálaráðherra Noregs, Siv Jensen, segist sýna því fullan skilning að Ísland þurfi í sumum tilvikum að óska eftir aðlögun vegna regluverks Evrópusambandsins áður en það er tekið upp í EES-samninginn, en þau Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra Íslands, funduðu í Washington í dag.

    18. apr. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Alþjóðlegur samningur gegn skattaflótta tekur gildi á árinu

    Alþjóðasamningurinn MLI, sem ætla er að stemma stigu við skattaflótta, og sem Ísland undirritaði í fyrra, tekur gildi 1. júlí á þessu ári gagnvart þeim ríkjum sem fullgilt hafa samninginn. Undirritunaraðilar samningsins eru nú 78 og hafa yfir 100 ríki lýst vilja til að undirrita samninginn. Samningurinn er sá eini sinnar tegundar og með gerð hans eru unnt að breyta þúsundum tvísköttunarsamninga án þess að stjórnvöld í hverju ríki þurfi að fara í tímafrekar tvíhliða viðræður við hvern og einn samningsaðila.

    13. apr. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkissjóður kaupir eigin bréf fyrir 27 milljarða króna

    Ríkissjóður keypti í vikunni eigin skuldabréf af Seðlabanka Íslands samtals að fjárhæð 27 ma.kr. Um er að ræða bréf í flokknum RIKH 18 fyrir um 4,7 ma.kr. að nafnvirði og í flokknum RIKB 19 fyrir um 21,6 ma.kr. að nafnvirði. Uppgjör viðskipta fór fram í dag.

    13. apr. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ýmsir þættir skattkerfisins til endurskoðunar á næstu árum

    Næstu árin verða ýmsir þættir íslenska skattkerfisins til endurskoðunar, til hagsbóta fyrir einstaklinga og fyrirtæki, eins og sjá má í nýframkominni fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir tímabilið 2019-2023. Þar verður m.a. horft til þess að gera Ísland samkeppnishæfara í alþjóðlegum samanburði, auk þess að gera skattheimtu einfaldari, skilvirkari og sanngjarnari.

    06. apr. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármálaáætlun

    Fjármálaáætlun 2019-2023: Blásið til sóknar í umhverfismálum

    Samkvæmt tillögu að fjármálaáætlun 2019-2023 er gert ráð fyrir að aukning heildarframlaga til umhverfismála yfir tímabilið 2019 til 2023 nemi 35% raunvexti frá árinu 2017. Uppsafnað aukið útgjaldasvigrúm til ýmissa áherslumála nemur alls 14,7 ma. króna yfir tímabilið.

    06. apr. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Sveitarstjórnir og byggðamál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nýtt samkomulag ríkis og sveitarfélaga um afkomumarkmið

    Nýtt samkomulag ríkis og sveitarfélaga um afkomumarkmið og efnahag sveitarfélaga árin 2019-2023 var undirritað í dag. Samkomulagið var undirritað af fjármála- og efnahagsráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Það byggir á lögum um opinber fjármál sem hafa að markmiði að ríki og sveitarfélög stuðli að góðri hagstjórn og styrkri og ábyrgri stjórn opinberra fjármála.

    04. apr. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármálaáætlun

    Fjármálaáætlun 2019-2023: Styrkari samfélagsinnviðir, lægri skattar og betri þjónusta

    Í fyrstu fjármálaáætlun ríkisstjórnar Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks endurspeglast áherslur ríkisstjórnarinnar um að samfélagið allt njóti góðs af yfirstandandi hagvaxtarskeiði og að samfélagslegur stöðugleiki og lífsgæði verði treyst til framtíðar.

    03. apr. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Vinnur tímabundið fyrir stjórnvöld að málefnum sem tengjast fjármálakerfinu

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur samið við Michael Ridley um að hann vinni tímabundið fyrir stjórnvöld að málefnum sem tengjast fjármálakerfinu á Íslandi.

    08. mar. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Tilraunaverkefni um innleiðingu jafnlaunastaðals lokið og viðurkenningar veittar

    Í dag lauk á jafnréttisþingi tilraunaverkefni um innleiðingu jafnlaunastaðals sem staðið hefur frá árinu 2013. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra veitti þátttakendum viðurkenningar en markmið verkefnisins var að prófa jafnlaunastaðalinn ÍST 85:2012 og átta sig á umfangi innleiðingar hans, ávinningi og áskorunum.

    08. mar. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Kynntu samstarfs- og fjárfestingartækifæri hjá Endureisnar- og þróunarbanka Evrópu

    Fjárfestingartækifæri og tækifæri til samstarfs milli fyrir íslenskra fyrirtækja og Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD)voru kynnt á fundi í Hörpu í dag. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Íslandsstofa og Íslenski jarðvarmaklasinn stóðu að fundinum þar sem einnig var farið almennt yfir starfsemi bankans.

    01. mar. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjárfestingarbanki Evrópu eykur lánsframboð sitt til EFTA ríkjanna

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Andrew McDowell, aðstoðarframkvæmdastjóri Evrópska fjárfestingarbankans undirrituðu í dag yfirlýsingu í tengslum við framlengingu og aukningu á framboði lána til fjögurra ára í viðbót, en aukningin nemur 200 milljónum evra frá því sem verið hefur og heildarframboðið því 1 milljarður evra til loka ársins 2021. Lánsféð stendur fyrirtækjum í öllum fjórum EFTA-ríkjunum til boða.

    • First
    • Prev
    • 20
    • 21
    • 22
    • 23
    • 24
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband