Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 951–1000 af 2979
    Raða eftir:
    24. jún. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skipa stýrihóp til að vinna að endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu

    Steingrímur J. Sigfússon hefur verið skipaður formaður stýrihópsins.

    24. jún. 2022Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillögur starfshóps um framtíðarskipulag myndgreiningarþjónustu

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði í febrúar sl. til að gera tillögur um framtíðarskipulag læknisfræðilegrar myndgreiningarþjónustu hefur skilað honum skýrslu þar sem núverandi staða er greind og gerðar tillögur til úrbóta. Ráðherra segir mikinn feng að greiningu hópsins á núverandi stöðu og tillögum hans: „Við þurfum að ná betur utan um þessa þjónustu og skipulag hennar til að nýta betur fjármuni, mannauð og tækjakost. Markmiðið er að veita sjúklingum bestu mögulegu þjónustu sem völ er á og tryggja sem jafnast aðgengi að henni, óháð búsetu.“

    24. jún. 2022Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Myndgreining: Stöðuskýrsla og tillögur starfshóps ráðherra

    júní 2022 / Heilbrigðisráðuneytið Myndgreining: Stöðuskýrsla og tillögur starfshóps ráðherra Myndgreining: Stöðuskýrsla og tillögur starfshóps ráðherra

    24. jún. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Skipa verkefnastjórn vegna heildarendurskoðunar á þjónustu við eldra fólk

    Ólafur Þór Gunnarsson er formaður verkefnastjórnarinnar.

    22. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Þingsályktun um framtíðarsýn fyrir heilbrigðisþjónustu við aldraða

    Tillaga heilbrigðisráðherra til þingsályktunar sem felur í sér framtíðarsýn fyrir heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 15. júní síðastliðinn. Þingsályktunin verður grunnur að vinnu verkefnastjórnar sem skipuð hefur verið til að leiða vinnu við heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk og vinna aðgerðaáætlun á þessu sviði til fjögurra ára sem lögð verður fyrir Alþingi vorið 2023.

    21. jún. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Undirrituðu viljayfirlýsingu um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk

    Skipuð hefur verið verkefnastjórn sem hefur það hlutverk að leiða vinnu við heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk.

    20. jún. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Sóltún Heilsusetur opnar 1. september – Nýmæli í öldrunarþjónustu

    Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og Sóltún öldrunarþjónusta ehf. hafa gert með sér samning sem kveður á um nýja tegund sérhæfðrar þjónustu við aldraða. Þjónustan verður veitt í endurgerðu húsnæði gamla Sólvangs í Hafnarfirði.

    20. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stefna í geðheilbrigðismálum til ársins 2030

    Þingsályktun heilbrigðisráðherra um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi þann 15. júní með öllum greiddum atkvæðum. Stefnan tekur mið af ályktunum Alþingis um heilbrigðisstefnu og lýðheilsustefnu og er í henni lögð áhersla á grunngildi sem hvetja til einstaklingsmiðaðrar heilbrigðisþjónustu og stuðning við heilsueflingu á öllum æviskeiðum. Til að hrinda stefnunni í framkvæmd verða gerðar áætlanir um aðgerðir til fimm ára í senn í samráði við helstu hagsmunaaðila.

    16. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarp um nikótínvörur orðið að lögum

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum nr. 87/2018 sem felur í sér að nikótínvörur eru felldar undir lög um rafrettur þannig að í meginatriðum gilda þar með sömu reglur um þennan varning. Meginmarkmiðið er að tryggja gæði og öryggi nikótínvara og tryggja með tiltækum ráðstöfunum að börn kaupi hvorki né noti nikótínvörur og rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

    15. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Jón Magnús leiðir viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu

    Jón Magnús Kristjánsson hefur verið ráðinn í tímabundið verkefni til að leiða viðbragðstreymi heilbrigðisráðuneytisins um bráðaþjónustu í landinu vegna alvarlegrar stöðu innan hennar. Jón Magnús er sérfræðingur í bráðalækningum og fyrrum yfirlæknir bráðamóttöku Landspítalans. Hann er auk þess með MBA gráðu frá háskólanum í Reykjavík og hefur viðtæka starfsreynslu í heilbrigðiskerfinu.

    14. jún. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 13/2022

    Í málinu hafði sjúklingur kvartað til embættis landlæknis vegna aðgerðar sem framkvæmd hafði verið af kæranda. Var það niðurstaða embættis landlæknis að fullnægjandi ábending hefði ekki verið til staðar fyrir aðgerðinni og að kærandi hefði sýnt af sér vanrækslu. Í kæru byggði kærandi aðallega á því að sá óháði sérfræðingur, sem veitt hafði umsögn um málið hjá embætti landlæknis, hefði ekki næga faglega þekkingu til að leggja mat á málið auk þess sem hann hefði komist að rangri niðurstöðu. Í úrskurðinum vísaði ráðuneytið til þess að það hefði ekki heimild að lögum til að endurskoða læknisfræðilegt mat, heldur aðeins hvort málsmeðferð embættis landlæknis hefði verið í samræmi við lög. Gæti ráðuneytið þannig ekki lagt nýtt mat á læknisfræðilega niðurstöðu í áliti landlæknis.…

    13. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Covid-19, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um félags- og heilsufarslegar aðgerðir vegna áhrifa heimsfaraldurs á viðkvæma hópa

    Starfshópur sem ríkisstjórnin fól að vinna tillögur um félags- og heilsufarslegar aðgerðir vegna áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru á viðkvæma hópa hefur skilað skýrslu til forsætisráðherra.

    13. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarp um skipan stjórnar yfir Landspítala orðið að lögum

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu sem kveður á um skipan stjórnar yfir Landspítala og skipan notendaráðs. Markmið lagasetningarinnar er að styrkja stöðu og hlutverk spítalans sem mikilvægustu heilbrigðisstofnun landsins í samræmi við stjórnarsáttmála Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.

    13. jún. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 16/2022

    A krafðist endurupptöku eða afturköllun á úrskurði ráðuneytisins nr. 14/2021 þar sem umsókn A um löggildingu heilbrigðisstéttarinnar B var synjað. Byggði A á því að ýmsir annmarkar hefðu verið á úrskurði ráðuneytisins í málinu. Að mati ráðuneytisins hafði úrskurðurinn ekki verið byggður á ófullnægjandi upplýsingum í skilningi 24. gr. stjórnsýslulaga. Þá væru ekki forsendur fyrir afturköllun á grundvelli 25. gr. sömu laga, enda yrði ekki talið að úrskurðurinn væri haldinn annmörkum sem gætu leitt til ógildingar hans. Var beiðni A því synjað.

    13. jún. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 15/2022

    Kærandi kærði synjun embættis landlæknis um að aðhafast ekki vegna bréfs sem embættið hafði sent til velferðarráðuneytisins í mars 2016, þar sem fjallað var með gagnrýnum hætti um kæranda. Í úrskurði ráðuneytisins sagði að það teldi ljóst að tilgangur bréfsins hefði aðeins verið að upplýsa ráðuneytið um tiltekin atriði. Bréfið hefði ekki haft neinar lögfylgjur í för með sér og ekki falið í sér töku stjórnvaldsákvörðunar í skilningi stjórnsýslulaga, sem væri kæranleg til ráðuneytisins. Embætti landlæknis hafði jafnframt tekið málið til nýrrar skoðunar og upplýst kæranda um að það myndi ekki aðhafast með bréfi í janúar 2022. Taldi ráðuneytið jafnframt að það bréf hefði ekki falið í sér ákvörðun sem væri kæranleg til ráðuneytisins. Var kærunni því vísað frá ráðuneytinu.

    10. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Viðbrögð vegna álags á bráðamóttöku Landspítala

    Heilbrigðisráðuneytið, embætti landlæknis, Sjúkratryggingar Íslands, Landspítali, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Læknavaktin, Samtök heilbrigðisfyrirtækja, Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu hafa að frumkvæði heilbrigðisráðuneytisins og í samræmi við ráðleggingar landlæknis, myndað viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu vegna alvarlegrar stöðu innan hennar. Kemur þessi alvarlega staða skýrast fram á bráðamóttöku Landspítalans þar sem öryggi sjúklinga er ógnað að mati landlæknis. Samstarf aðila þvert á heilbrigðiskerfið er nauðsynlegt til að tryggja fullnægjandi og örugga bráðaþjónustu næstu mánuði.

    10. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Guðrún Ása Björnsdóttir læknir nýr aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Guðrúnu Ásu Björnsdóttur lækni sem aðstoðarmann sinn. Guðrún Ása er með BS-gráðu í lífefnafræði frá Háskóla Íslands, MB ChB-gráðu í læknisfræði frá Warwick-háskóla í Bretlandi og leggur stund á doktorsnám í læknisfræði við Háskóla Íslands.

    10. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarp sem kveður á um skimunarskrá landlæknis orðið að lögum

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu þar sem kveðið er á um rekstur embættis landlæknis á skimunarskrá sem nú er á ábyrgð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Með lagabreytingunni verður skimunarskráin ein af þeim heilbrigðisskrám sem embætti landlæknis ber að halda og sett skýr ákvæði varðandi reksturinn. Skimunarskrá er miðlæg meðferðartengd heilbrigðisskrá á landsvísu í tengslum við krabbameinsskimanir. Tilgangur skrárinnar er að stuðla að samræmdri og markvissri framkvæmd og eftirfylgni krabbameinsskimana og auka gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu.

    10. jún. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 14/2022

    Í málinu krafðist kærandi endurupptöku á úrskurði nr. 15/2021 sem hún taldi m.a. hafa verið reistan á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum, sbr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Byggði kærandi m.a. á því að embætti landlæknis hefði veitt sérfræðileyfi til annars aðila þar sem aðstæður væru sambærilegar máli hennar og að úrskurðurinn fæli í sér brot gegn jafnræðisreglu. Ráðuneytið aflaði upplýsinga um mál aðilans og komst að þeirri niðurstöðu að það mál og mál kæranda væru ekki sambærileg í lagalegu tilliti. Vísaði ráðuneytið jafnframt til þess viðurkennda sjónarmiðs að túlkun lægra settra stjórnvalds á tilteknum lagaákvæðum bindi ekki æðra stjórnvald á grundvelli jafnræðisreglu 10. gr. stjórnsýslulaga.…

    10. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Apabóla skilgreind sem tilkynningarskyldur sjúkdómur

    Heilbrigðisráðherra hefur með reglugerð skilgreint apabólu sem tilkynningarskyldan sjúkdóm. Grunur er um tvö tilfelli apabólu hér á landi en beðið er staðfestingar á þeirri greiningu. Sóttvarnalæknir hefur lagt til ákveðin viðbrögð af hálfu embættis síns og heilbrigðiskerfisins til að lágmarka útbreiðslu apabólu hér á landi. Áhersla er lögð á fræðslu og upplýsingagjöf og leiðbeiningar til heilbrigðisstarfsfólks og almennings um smitleiðir, áhættuþætti, einkenni, greiningu og aðgerðir ef einstaklingar veikjast. Sóttvarnalæknir telur ekki þörf á að grípa til opinberra sóttvarnaráðstafana á borð við samfélagslegar takmarkanir eða skimun fyrir sjúkdómnum.

    10. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tilraunaverkefni sem miðar að öruggari lyfjameðferð sjúklinga

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Reykjanesapóteki þriggja milljóna króna styrk til að ráðast í tilraunaverkefni sem miðar að því að auka öryggi lyfjameðferðar og bæta meðferðarheldni sjúklinga. Verkefnið verður afmarkað við þá sem taka lyf við hjarta- og æðasjúkdómum á borð við blóðþynningarlyf, blóðþrýstings- og blóðfitulækkandi lyf og felst í skilgreindri umsjón lyfjafræðings sem veitir viðkomandi sjúklingi ráðgjöf og eftirfylgni á fyrstu vikum meðferðar.

    09. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Líf og heilsa, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Nýsköpun, Heilbrigðisráðuneytið

    Tækifæri í auknu norrænu samstarfi um þróun, nýsköpun og framleiðslu bóluefna

    Niðurstöður norrænnar greiningarvinnu benda til þess að ýmis tækifæri geti falist í auknu samstarfi Norðurlanda á sviði nýsköpunar, þróunar og framleiðslu á bóluefnum.

    31. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Alþjóðlegur baráttudagur gegn tóbaksnotkun 31. maí

    Árlegur alþjóðlegur baráttudagur gegn tóbaksnotkun, 31. maí, er í ár helgaður tóbaki sem ógn við umhverfi okkar. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin beinir athyglinni að neikvæðum umhverfisáhrifum tóbaks og varpar ljósi á hnattræn skaðleg áhrif tóbaksnotkunar á umhverfi, efnahag, samfélög og heilsu manna.

    31. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir til kaupa á heyrnartækjum hækka 1. júní

    Styrkir vegna kaupa á heyrnartækjum hækka um 10.000 kr. frá og með 1. júní samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra. Styrkupphæðin verður þar með 60.000 kr. fyrir kaup á einu heyrnartæki en 120.000 kr. fyrir einstaklinga sem þurfa á tveimur tækjum að halda. Með breytingunni er styrkurinn hækkaður upp til verðlags en styrkupphæðin hefur verið óbreytt frá árinu 2015. Áætlaður kostnaður vegna breytinganna nemur tæpum 60 milljónum króna á ársgrundvelli. Rétt á styrk eiga þeir sem eru sjúkratryggðir eldri en 18 ára og hafa tónmeðalgildi á betra eyra að lágmarki 30dB. Hægt er að sækja um styrk til heyrnartækjakaupa á fjögurra ára fresti.

    27. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Útskriftarnemum HÍ í tilteknum heilbrigðisgreinum gert kleift að fá starfsleyfi fyrr en ella

    Háskóli Íslands hefur fallist á ósk heilbrigðisráðuneytisins um að flýta útgáfu brautskráningarskírteina þeirra nemenda í læknis- hjúkrunar- og lyfjafræði sem útskrifast í vor. Þetta er gert svo unnt sé að afgreiða starfsleyfi þessara stétta sem fyrst. Þetta flýtir því um tæpan mánuð að hlutaðeigandi geti ráðið sig til starfa með fullgild réttindi á heilbrigðisstofnunum og er til þess fallið að bæta mönnun á heilbrigðisstofnunum þegar sumarleyfi fara í hönd. Með þessari ráðstöfun er brugðist við ákalli Landspítala og lyfjaverslana sem þurfa að þjálfa nýútskrifaða heilbrigðisstarfsmenn til nýrra starfa áður en aðrir starfsmenn fari í sumarleyfi.

    24. maí 2022Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Fyrsti fundur starfshóps um endurskoðun refsiábyrgðar heilbrigðisstarfsfólks

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra hefur skipað til að meta möguleika þess að afnema refsiábyrgð heilbrigðisstarfsfólks vegna atvika í heilbrigðisþjónustu sem rakin eru til einfalds gáleysis hélt sinn fyrsta fund í dag. Hópnum er falið að leggja til útfærslu á lagabreytingu þessa efnis og enn fremur að meta hvort setja eigi í sérlög ákvæði um cumulativa hlutlæga refsiábyrgð heilbrigðisstofnana (ábyrgð án sakar). Starfshópurinn skal við vinnu sína hafa víðtækt samráð við hagsmunaaðila, s.s. félög heilbrigðisstarfsfólks, auk félaga, samtaka og annarra sem geta talað máli notenda heilbrigðisþjónustu.

    24. maí 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 11/2022

    Í málinu höfðu tvö apótek kært ákvörðun Lyfjastofnunar um að synja þeim um undanþágu frá kröfu lyfjalaga um tvo lyfjafræðinga að störfum á almennum afgreiðslutíma. Í úrskurði ráðuneytisins var fallist á með Lyfjastofnun að umfang starfsemi apótekanna væru í heild mikil. Ráðuneytið tók einnig til skoðunar hvort veita mætti undanþágu frá kröfunni á tilteknum tímum dags. Að virtum gögnum málsins komst ráðuneytið þeirri niðurstöðu að umfang innan dags gæti aldrei talist „lítið“ í skilningi 5. mgr. 37. gr. lyfjalaga, sem væri forsenda fyrir því að veita mætti undanþágu frá kröfu laganna um tvo lyfjafræðinga að störfum. Taldi ráðuneytið þannig ekki unnt að veita apótekunum undanþágu frá kröfunni um tvo lyfjafræðinga að störfum frá klukkan 09-10 á virkum dögum.…

    19. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrsta skóflustungan tekin að bílastæða- og tæknihúsi Nýs Landspítala

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra tók í dag fyrstu skóflustunguna að nýju 19.000 fermetra bílastæða- og tæknihúsi Nýs Landspítala við Hingbraut. Í húsinu verða 500 bílastæði og 200 hjólastæði. Nýlokið er jarðvinnu vegna uppbyggingar rannsóknahúss og vinna við að steypa upp meðferðarkjarna nýja spítalans er í fullum gangi.

    19. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælt fyrir nýjum sóttvarnalögum á Alþingi

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mælti í vikunni fyrir frumvarpi til nýrra sóttvarnalaga á Alþingi. Meginbreytingar frá gildandi löggjöf sem lagðar eru til í frumvarpinu varða stjórnsýslu sóttvarnaráðstafana og opinberar sóttvarnaráðstafanir. Verði frumvarpið að lögum mun það breyta umtalsvert þeirri aðferðafræði sem kveðið er á um í gildandi sóttvarnalögum að því er varðar ákvarðanir um opinberar sóttvarnaráðstafanir. Vegur þar þyngst tilkoma nýrrar farsóttanefndar sem tekur við hlutverki sóttvarnalæknis að hluta við að koma fram með tillögur að opinberum sóttvarnaráðstöfunum til ráðherra. Þannig mun frumvarpið hafa töluverð áhrif á stjórnsýslu sóttvarna.

    19. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælt fyrir þingsályktun um stefnu í geðheilbrigðismálum

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur mælt fyrir tillögu til ályktunar Alþingis um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030. Tillagan tekur mið af ályktunum Alþingis um heilbrigðisstefnu og lýðheilsustefnu og er í henni lögð áhersla á grunngildi sem hvetja til einstaklingsmiðaðrar heilbrigðisþjónustu og stuðning við heilsueflingu á öllum æviskeiðum.

    16. maí 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 10/2022

    Í málinu hafði kærandi kært synjun embættis landlæknis á því að verða við banni um að barn hennar fengi bólusetningu gegn Covid-19. Í úrskurði ráðuneytisins var talið að embætti landlæknis hefði afgreitt erindi kæranda með hliðsjón af ákvæðum barnalaga. Var það mat ráðuneytisins að afgreiðsla erindisins hefði ekki falið í sér töku ákvörðunar um réttindi eða skyldur í skilningi stjórnsýslulaga, sem væri kæranleg til ráðuneytisins á grundvelli þeirra laga. Þá hefði embættinu ekki borið að leggja málið í farveg stjórnsýslumáls sem lokið hefði með töku stjórnvaldsákvörðunar. Að þessu virtu var kærunni vísað frá ráðuneytinu.

    12. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga er í dag 12. maí

    Hjúkrunarfræðingar um allan heim halda í dag upp á alþjóðadag hjúkrunarfræðinga til að varpa ljósi á framlag hjúkrunarfræðinga til samfélagsins og mikilvægi starfa þeirra. Dagurinn er fæðingardagur bresku hjúkrunarkonunnar Florence Nightingale, oft kölluð „konan með lampann“ sem var brautryðjandi á sviði nútímahjúkrunar. Alþjóðaráð hjúkrunarfræðinga beinir því til stjórnvalda víðsvegar að fjárfesta í hjúkrun. Það sé grundvallaratriði til að mæta sívaxandi þörf fyrir heilbrigðisþjónustu og takast á við þær áskoranir sem framundan eru.…

    12. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrsta skóflustungan að nýju hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ

    Heilbrigðisráðherra, formaður félags eldri borgara á Suðurnesjum og formaður ungmennaráðs Reykjanesbæjar tóku fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili á Nesvöllum í Reykjanesbæ sl. föstudag. Á nýja heimilinu verður aðstaða fyrir 60 íbúa. Húsið verður 3.900 fermetrar að stærð og samtengt nýlegu 60 rýma hjúkrunarheimili sem fyrir er á Nesvöllum. Áætlað er að heimilið verði tilbúið til notkunar í lok árs 2024.

    10. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Brjóstamiðstöð Landspítala – þróun og nýsköpun í göngudeildarþjónustu

    Einstaklingsmiðuð þjónusta, teymisvinna og nýsköpun eru lykilatriði í þjónustu brjóstamiðstöðvar Landspítala sem tók til starfa fyrir rúmu ári í nýuppgerðu húsnæði á Eiríksstöðum við Eiríksgötu 5 í Reykjavík. Með opnun brjóstamiðstöðvar - göngudeildar var sameinuð á einum stað sérfræðiþjónusta Landspítala vegna brjóstaskimunar og greiningar og meðferðar brjóstameina. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, segir brjóstamiðstöðina byggja á nútímalegri nálgun við skipulag og veitingu göngudeildarþjónustu. Hún feli í sér fordæmi og fyrirmynd sem byggt verði á við áframhaldandi þróun göngudeildarþjónustu í starfsemi Landspítala.

    10. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Barnasáttmálinn, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Utanríkisráðuneytið

    Fyrirtaka Íslands hjá barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, áréttaði mikilvægi réttinda barna og aðgerðir íslenskra stjórnvalda til að festa þau enn betur í sessi í ávarpi fyrir barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna í Genf 4.–5. maí. Nefndin tók þá fyrir fimmtu og sjöttu skýrslu Íslands um framkvæmd Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

    09. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samið um nýbyggingu fyrir 44 íbúa við hjúkrunarheimilið Hamra í Mosfellsbæ

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar undirrituðu í dag samning um stækkun hjúkrunarheimilisins Hamra í Mosfellsbæ. Reist verður nýbygging áföst heimilinu fyrir 44 íbúa. Þar með ríflega tvöfaldast stærð heimilisins með aðstöðu fyrir samtals 77 íbúa. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist seinni hluta næsta árs og að hægt verði að taka heimilið í notkun í ársbyrjun 2026.

    03. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samráðsfundur með forstjórum heilbrigðisstofnana

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hélt í liðinni viku reglubundinn samráðsfund með forstjórum heilbrigðisstofnana ásamt starfsfólki ráðuneytisins. Slíkir fundir eru haldnir ársfjórðungslega og er markmið þeirra að ræða helstu áskoranir í heilbrigðisþjónustu á hverjum tíma, efla samstarf stofnananna og deila þekkingu og reynslu. Á fundinum var sérstaklega rætt um heilbrigðisþjónustu við flóttafólk, bætta og skilvirkari þjónustu með aukinni hagnýtingu heilbrigðis- og velferðartækni og um áherslur í mannauðsmálum í kjölfar langvarandi vinnuálags í heimsfaraldri.

    29. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Fagráð um forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu verður sett á fót

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að setja á fót fagráð um forgangsröðun í samræmi við ályktun Alþingis um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu. Fagráðinu er ætlað að leiða faglega umræðu um forgangsröðun og siðferðileg gildi að baki henni og veita leiðsögn á þessu sviði. Ákvörðun ráðherra byggist á niðurstöðu starfshóps sem skipaður var á grundvelli þingsályktunarinnar.

    29. apr. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 9/2022

    Kærandi kærði ákvörðun embættis landlæknis, um að veita honum áminningu vegna ólögmætra uppflettinga í sjúkraskrá, til ráðuneytisins. Í úrskurðinum vísaði ráðuneytið til þess að brot sem vörðuðu persónuvernd sjúklinga væru litin alvarlegum augum í lögum um sjúkraskrár og að brot kæranda hefðu lotið að þeim meginhagsmunum sem lögunum væri ætlað að vernda, þ.e. friðhelgi einkalífs sjúklinga. Var það einnig mat ráðuneytisins að aldur brotanna leiddi ekki til þess að embætti landlæknis hefði, á grundvelli meðalhófsreglna, borið að grípa til vægara úrræðis en áminningar. Var ákvörðun embættis landlæknis um að áminna kæranda því staðfest.

    22. apr. 2022Úkraína, Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Ísland tekur sérstaklega á móti allt að 140 einstaklingum í viðkvæmri stöðu frá Úkraínu

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra, dómsmálaráðherra, utanríkisráðherra, heilbrigðisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra um að fallast á útfærslu flóttamannanefndar um móttöku viðkvæmra hópa flóttafólks frá Úkraínu vegna þess ástands sem hefur skapast í landinu í kjölfar innrásar Rússlands.

    19. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og fjölskyldumál

    Allt að 750 milljónir í aðgerðir til að bregðast við félags- og heilsufarslegum afleiðingum COVID-19

    Allt að 750 m.kr. verður varið á þessu ári til sértækra aðgerða til að mæta félags- og heilsufarslegum afleiðingum COVID-19. Þetta var ákveðið á síðasta fundi ríkisstjórnarinnar fyrir páska. Stjórnvöld hafa frá upphafi heimsfaraldursins lagt ​áherslu á að vinna gegn félagslegum og heilsufarslegaum áhrifum hans, einkum á viðkvæma hópa og eru þessar aðgerðir liður í því.

    13. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýr samningur um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu

    Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) hafa gert með sér nýjan samning um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu til næstu fimm ára.

    12. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðherra úthlutar 81,5 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði

    Hinn 11. apríl fór fram athöfn í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík þar sem heilbrigðisráðherra úthlutaði styrkjum úr Lýðheilsusjóði, að fengnum tillögum stjórnar Lýðheilsusjóðs. Í ár var styrkjum úr Lýðheilsusjóði úthlutað til fjölbreyttra verkefna á sviði geðræktar, næringar, kynheilbrigðis, hreyfingar og íþróttaiðkunar, áfengis-, vímu- og tóbaksvarna auk almennrar heilsueflingar. Alls veitti heilbrigðisráðherra styrki til 151 verkefnis og nema þeir rúmlega 81,5 milljónum króna.

    12. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2022. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

    08. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningar um aukið fjármagn til hjúkrunarheimila og úrbætur til framtíðar

    Fjármagn til hjúkrunarheimila verður aukið og þjónusta við íbúa bætt samkvæmt nýgerðum samningum Sjúkratrygginga Íslands um rekstur og þjónustu hjúkrunarheimila á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Samningarnir eru til þriggja ára og nemur heildarfjármagn til þeirra tæpum 130 milljörðum króna. Á samningstímanum verður unnið að verkefnum sem miða að bættu rekstrarumhverfi heimilanna til framtíðar og auknum gæðum þjónustu þeirra.

    08. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra heimsækir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

    Heilbrigðisráðherra var í gær viðstaddur opnun nýrrar röntgendeildar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Röntgendeildin er fyrsti áfangi tengdur endurbótum á nýrri aðstöðu bráðamóttöku stofnunarinnar.

    07. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Alþjóðaheilbrigðisdagurinn tileinkaður loftslagsbreytingum og lýðheilsu

    Hinn 7. apríl ár hvert heldur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) stofndag sinn hátíðlegan með því að vekja athygli á tilteknu málefni sem er þýðingarmikið á alþjóðavísu fyrir heilsu einstaklinga og almennt heilbrigði. Að þessu sinni eru loftslagsmál í brennidepli og alvarleg áhrif mengunar á lýðheilsu. Stofnunnin áætlar að árlega megi rekja um 13 milljónir dauðsfalla til alvarlegra umhverfisáhrifa af mannavöldum. Sjónum er sérstaklega beint að mengun sem stuðlar að sjúkdómum á borð við krabbamein, astma og hjartasjúkdóma. Áhersla er lögð á hvernig samfélög þjóða geti tekið höndum saman um aðgerðir til að sporna við mengun og stuðla þannig að bættu heilbrigði og auknum lífsgæðum fólks um heim allan.

    06. apr. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 8/2022

    Í málinu höfðu almenn samtök kvartað til embættis landlæknis vegna aðgerða sóttvarnalæknis í tengslum við bólusetningar barna. Embætti landlæknis tók kvörtunina ekki til meðferðar og kærðu samtökin þá málsmeðferð til ráðuneytisins. Í úrskurði ráðuneytisins var rakið hverjir gætu fengið kvörtun á grundvelli 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu til meðferðar hjá landlækni, en það væri að meginstefnu til bundið við sjúklinga og aðstandendur þeirra. Væri kvartandi annar en sjúklingur eða aðstandandi sjúklings þyrfti hann að hafa hagsmuna að gæta í máli til að kvörtun yrði tekin til meðferðar. Taldi ráðuneytið að ekki yrði séð að kærandi í málinu hefði lögvarinna eða sérstakra hagsmuna að gæta af því að fá álit landlæknis um þau atriði sem kvartað var undan.…

    04. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Sigurjón Jónsson verður aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Sigurjón Jónsson tímabundið sem aðstoðarmann sinn í fjarveru Millu Óskar Magnúsdóttur sem er í fæðingarorlofi. Sigurjón er með BSc próf í markaðsfræðum frá Auburn háskólanum í Alabama. Hann hefur á annað ár verið starfsmaður þingflokks Framsóknar og unnið að kynningarmálum og ýmsum öðrum verkefnum.

    04. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Vel heppnuð vinnustofa um þjónustutengda fjármögnun

    Stjórnendur og sérfræðingar stofnana og ráðuneyta sem koma að innleiðingu þjónustutengdrar fjármögnunar heilbrigðisþjónustu (DRG), sátu í liðinni viku tveggja daga vinnustofu sem heilbrigðisráðuneytið efndi til um þetta viðamikla verkefni. Erlendir sérfræðingar á þessu sviði frá alþjóðlegu samtökunum PCSI (Patient Classifications Systems International) voru í lykilhlutverki á námskeiðinu sem haldið var á Hótel Örk í Hveragerði. Samtökin eru vettvangur sérfræðinga sem starfa innan heilbrigðisstofnana, á sviði stjórnsýslu og í fræðasamfélaginu um allan heim. Markmið þeirra er að styðja við notkun þjónustutengdrar fjármögnunar heilbrigðisþjónustu og styrkja vísindalegan þekkingargrunn þessarar aðferðafræði.

    • First
    • Prev
    • 18
    • 19
    • 20
    • 21
    • 22
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband