Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnahagsmál og opinber fjármál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 951–1000 af 1182
    Raða eftir:
    30. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hvatt til notkunar vistvænna samgöngumáta með lægri álögum

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta (ívilnanir vegna vistvænna ökutækja o.fl.). Verði tillögurnar samþykktar koma þær m.a. til með að auðvelda fólki kaup á rafmagnsreiðhjólum og hefðbundnum reiðhjólum.

    25. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Umsækjendur um stöðu varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika

    Forsætisráðuneytinu hafa borist 10 umsóknir um embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika sem auglýst var laust til umsóknar 3. október sl. en umsóknarfrestur rann út á miðnætti 24. sama mánaðar.

    24. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nútímavætt viðskiptaumhverfi ríkisins með rafrænum reikningum

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ákveðið að frá og með 1. janúar 2020 skuli allir reikningar vegna kaupa ríkisins á vöru og þjónustu vera með rafrænum hætti. Markmið þessara aðgerða er að draga úr viðskiptakostnaði allra aðila samhliða því að nútímavæða viðskiptaumhverfi ríkisins og framfylgja umhverfissjónarmiðum.

    23. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur birt greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta, en samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál ber honum að gera Alþingi grein fyrir framgangi áætlunar um losun takmarkana á fjármagnshreyfingum milli landa og gjaldeyrisviðskiptum á sex mánaða fresti þar til slíkum takmörkunum verður endanlega aflétt.

    22. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Mannauðsmál ríkisins

    Samið um styttri vinnuviku við fimm stéttarfélög

    Um helgina var undirritaður kjarasamningur milli fimm stéttarfélaga innan Bandalags háskólamanna og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Helstu tíðindi samningsins eru að vinnutími verður styttur og er breytingin í takt við það sem samið var um á almennum vinnumarkaði í vor. Markmið styttingarinnar er að bæta vinnustaðamenningu og starfsumhverfi starfsfólks. Í breytingunum felst líka mikið tækifæri til umbóta í starfsemi ríkisins. Þá var samið um breytingar á sumarorlofi sem nýtast ungu fólki best.

    21. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skatturinn: Bætt þjónusta með nýrri og leiðandi upplýsingastofnun

    Í frumvarpi til laga um breytingar á tollalögum og fleiri lögum sem fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fyrir Alþingi er lagt til að embætti ríkisskattstjóra og tollstjóra verði sameinuð í öflugri og leiðandi upplýsingastofnun, Skattinum. Markmið breytinganna er að bæta þjónustu og hafa samþættingu, sjálfvirknivæðingu og stafræna opinbera þjónustu að leiðarljósi.

    18. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Norrænir fjármálaráðherrar funduðu í Washington

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, stýrði fundi norrænu fjármálaráðherranna í Washington í morgun, sem fram fór samhliða ársfundum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans sem ráðherrarnir sækja einnig. Fundinn sóttu ráðherrar Danmerkur, Finnlands, Færeyja, Grænlands, og Noregs auk staðgengils fjármálaráðherra Svíþjóðar.

    27. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Álagning opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2018

    Ríkisskattstjóri hefur nú lokið álagningu opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2018. Álögð gjöld eru samtals 193,8 ma.kr. sem er hækkun um 6,9 ma.kr. á milli ára, en breytingar einstakra skatttegunda eru bæði til hækkunar og lækkunar.

    27. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Afhending fullgildingarskjala vegna tvísköttunarsamninga

    Þann 26. september sl. afhentu íslensk stjórnvöld tEfnahags- og framfarastofnuninni, OECD, tilkynningu um fullgildingu marghliða samnings um breytingar á tvísköttunarsamningum til þess að koma í veg fyrir rýrnum skattstofna og tilfærslu hagnaðar. Mun samningurinn koma til framkvæmda þann 1. janúar 2020.

    25. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Atvinnuvegir

    Mikill vöxtur í fiskeldi á næstu árum

    Útlit er fyrir að fiskeldi tvöfaldist á næstu tveimur árum. Útflutningsverðmæti fiskeldis gæti orðið um 40 ma.kr árið 2021 eða sem nemur hátt í 3% af heildarútflutningi.

    19. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Mannauðsmál ríkisins

    Fyrsta heildstæða stefna ríkisins fyrir stjórnendur kynnt

    Stjórnendastefna ríkisins, fyrsta heildstæða stefnan um starfsumhverfi forstöðumanna ríkisstofnana, var kynnt í dag. Stefnan er liður í því að efla stjórnun hjá ríkinu og bæta opinbera þjónustu í samræmi við áherslur um aukinn árangur í rekstri ríkisins.

    19. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir fluttar í starf varaseðlabankastjóra

    Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir hafa verið fluttar í starf varaseðlabankastjóra. Í nýjum lögum um Seðlabanka Íslands, sem samþykkt voru í júní sl, er kveðið á um að skipaðir verði þrír varaseðlabankastjórar til fimm ára í senn. Einn varaseðlabankastjórinn leiði málefni sem varða peningastefnu, annar málefni sem varða fjármálastöðugleika og sá þriðji málefni sem varða fjármálaeftirlit.

    18. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Opinber innkaup, Nýsköpun

    Nýsköpunarmót opinberra aðila og fyrirtækja haldið í fyrsta sinn á Íslandi

    Í október næstkomandi verður í fyrsta sinn haldið á Íslandi svokallað nýsköpunarmót opinberra aðila og fyrirtækja með það að markmiði að efla nýsköpun í innkaupum hjá hinu opinbera í samstarfi við einkageirann.

    18. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Starfshópur endurskoðar umgjörð um gjaldeyrismál

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað starfshóp til að endurskoða umgjörð um gjaldeyrismál hér á landi. Í þessu felst meðal annars að endurskoða lög um gjaldeyrismál, nr. 87/1992, lög um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum, nr. 37/2016 og reglur settar á grundvelli beggja laganna.

    16. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Menntamál, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ný skýrsla OECD: Lífskjör á Íslandi með því besta sem þekkist

    Íslenskt efnahagsumhverfi er heilbrigt, jöfnuður óvíða meiri og staða ríkissjóðs traust. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um Ísland, sem birt var í dag. Skýrslur af þessu tagi eru gefnar út á tveggja ára fresti. Angel Gurría, framkvæmdastjóri OECD, kynnti helstu niðurstöður skýrslunnar á blaðamannafundi ásamt Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra og Lilju D. Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra.

    13. sep. 2019Atvinnuvegir, Auðlindir, Efnahagsmál og opinber fjármál, Neytendamál, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfi og náttúruvernd, Byggðamál, Ferðaþjónusta, Fjármálaáætlun, Náttúruvernd, Nýsköpun, Orka, Atvinnuvegaráðuneytið

    Áherslur í fjárlagafrumvarpi: Nýsköpunarumhverfið, ferðaþjónusta til framtíðar og aukið orkuaðgengi

    Fyrirmyndaráfangastaðir, stefnumótun á sviði íslenskrar ferðaþjónustu, efling flutnings- og dreifikerfis raforku og bætt rekstrarumhverfi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja, eru á meðal helstu áherslumála nýs fjárlagafrumvarps, á málefnasviði Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ráðherra iðnaðar,- ferðamála og nýsköpunar, sem kynnt var á dögunum.

    09. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Rangfærslur um skattalækkun leiðréttar

    Vegna rangfærslna í umfjöllun um breytingar á tekjuskattskerfinu á næsta ári og skattalækkun sem kynnt var í tengslum við fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2020 vill fjármála- og efnahagsráðuneytið taka eftirfarandi fram:

    06. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2020: Öflug fjárfesting og skattalækkanir

    Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2020 er kynnt í dag, en það verður lagt fram á Alþingi þriðjudaginn 10. september nk.

    30. júl. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fitch

    Skýrsla matsfyrirtækisins Fitch Ratings um Ísland

    Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur gefið út skýrslu um Ísland í kjölfar hækkunar á skammtímaeinkunnum og staðfestingar fyrirtækisins á langtímaeinkunnum ríkissjóðs Íslands 24. maí sl.

    29. júl. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Moody‘s

    Moody´s birtir árlega skýrslu um lánshæfi Íslands – A3 lánshæfiseinkunn er óbreytt með jákvæðum horfum

    Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody´s Investors Service birti í dag árlega skýrslu í tengslum við lánshæfi ríkissjóðs. Álitið felur ekki í sér endurskoðun á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs, sem er áfram A3 með jákvæðum horfum.

    14. júl. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármálaráðherra kjörinn varaformaður bankaráðs AIIB

    Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra var kjörinn varaformaður bankaráðs (e. board of governors) asíska innviðafjárfestingarbankans (AIIB) á ársfundi bankans sem haldinn var í Lúxemborg á föstudag og laugardag.

    12. júl. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Áform um lagabreytingar vegna stuðnings stjórnvalda við lífskjarasamninga í samráðsgátt

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt áform um þrenns konar lagabreytingar sem eru hluti af stuðningi stjórnvalda við lífskjarasamningana.

    09. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Ársskýrslur ráðherra birtar

    Ársskýrslur ráðherra eru nú gefnar út í annað sinn. Aukið gagnsæi um ráðstöfun og nýtingu fjármuna er markmiðið með skýrslunum sem er einnig ætlað að vera grundvöllur fyrir umræðu um stefnumörkun og forgangsröðun hins opinbera.

    04. júl. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Áform um lögfestingu varnarlínu á hlutfall fjárfestingabankastarfsemi innlánsstofnana birt í samráðsgátt

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir í dag áform um lögfestingu varnarlínu um hlutfall fjárfestingarbankastarfsemi innlánsstofnana í samráðsgátt stjórnvalda. Áformin eru sett fram í kjölfar birtingar hvítbókar um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið þar sem lagt er til að Fjármálaeftirlitinu verði í lögum falið að setja reglur til að takmarka fjárfestingarbankastarfsemi viðskiptabanka

    02. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Aðferðafræði við útreikning vísitölu neysluverðs tekin til skoðunar

    Í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnar um markviss skref til afnáms verðtryggingar frá 3. apríl 2019, hefur forsætisráðherra skipað nefnd um aðferðafræði við útreikning vísitölu neysluverðs.

    01. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Vinnumál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Þjóðhagsráð tekur til starfa í breyttri mynd

    Ráðið fjallar um samhæfingu hagstjórnar með hliðsjón af efnahagslegum og félagslegum stöðugleika og áhrifum á loftlagsmál

    28. jún. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Ríkisreikningar

    Ríkisreikningur 2018 – Sterk staða ríkissjóðs

    Uppgjör ríkisreiknings fyrir árið 2018 hefur nú verið birt og ríkisreikningur sendur Alþingi. Samkvæmt ríkisreikningi var rekstrarafkoman jákvæð um 84 ma.kr til samanburðar við 39 ma.kr. afgang árið 2017. Þessi niðurstaða sýnir glögglega sterka stöðu ríkisfjármálanna. Tekjur námu samtals 828 ma.kr. og rekstrargjöld 780 ma.kr. Hrein fjármagnsgjöld voru neikvæð um 56 ma.kr. en hlutdeild í afkomu félaga í eigu ríkisins jákvæð um 91 ma.kr

    19. jún. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Breytingar á tillögu að fjármálaáætlun: Áfram vöxtur í helstu málaflokkum

    Nýverið mælti fjármála- og efnahagsráðherra fyrir breytingum á fjármálastefnu fyrir árin 2018-2022. Breytingarnar eru lagðar til vegna breyttra efnahagshorfa sem stafa einkum af samdrætti í ferðaþjónustu og aflabresti í loðnu.

    14. jún. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Atvinnuvegir

    Norrænir sérfræðingar funduðu um ríkisaðstoð

    Í dag komu sérfræðingar af Norðurlöndunum á sviði ríkisaðstoðar saman til fundar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Norrænir fundir um ríkisaðstoð hafa verið haldnir óslitið í tvo áratugi og var fundurinn í Reykjavík sá 21. í röðinni. Á fundinum deila löndin reynslu sinni af ríkisaðstoðarmálum og þeim takmörkunum sem EES-samningurinn og sáttmálinn um starfshætti ESB kveða á um.

    14. jún. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrsta ársfjórðung 2019

    Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2019 liggur fyrir. Uppgjörið í heild sinni er aðgengilegt á vefsíðu Fjársýslu ríkisins.

    13. jún. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkissjóður gefur út nýtt skuldabréf í evrum á hagstæðustu vöxtum í sögu lýðveldisins

    Ríkissjóður Íslands hefur í dag gefið út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra, eða að jafnvirði um 71 milljarði króna.

    07. jún. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Alþjóðleg ráðstefna um áskoranir fjármálamarkaða til framtíðar

    Lærdómur sem draga má af fjármálakreppunni fyrir áratug og sá árangur sem Ísland náði í endurreisn efnahags- og ríkisfjármála, uppbyggingu fjármálakerfisins og umgjörð þess í kjölfar kreppunnar, var meðal umræðuefna á ráðstefnu skuldastýrenda þjóðríkja og sérfræðinga í opinberum fjármálum, sem haldin var í Reykjavík dagana 3.-5. júní.

    05. jún. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkissjóður tilkynnir um tilboð í uppkaup á eigin bréfum og áform um nýja útgáfu

    Í tengslum við fyrirhugaða skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs í evrum, tilkynnti ríkissjóður í dag að hann býðst til að kaupa eigin bréf útgefin í evrum sem eru á gjalddaga í júlí 2020 €750.000.000, 2,5%, (ISIN: XS1086879167) sbr. meðfylgjandi tilkynningu.

    04. jún. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Neytendamál, Rekstur og eignir ríkisins, Nýsköpun, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nýsköpunardagur hins opinbera haldinn í fyrsta sinn: Opinberir vinnustaðir virkir í nýsköpun

    Nýsköpunardagur hins opinbera var haldinn í fyrsta sinn í dag fyrir fullu húsi í Veröld, húsi Vigdísar Finnbogadóttur, í samstarfi ráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarni Benediktsson, opnaði nýja vefsíðu um opinbera nýsköpun í tilefni dagsins.

    29. maí 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Endurskoðuð fjármálastefna: Jákvæð heildarafkoma hins opinbera verði tryggð

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um endurskoðaða fjármálastefnu fyrir árin 2018–2022. Hún felur í sér að dregið verði úr áformuðum afgangi á heildarafkomu hins opinbera í samræmi við breyttar efnahagshorfur sem fram koma í nýjum hagspám og fela í sér verulega röskun á forsendum fyrir gildandi stefnu.

    27. maí 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Páfi ávarpaði fund fjármálaráðherra í Vatíkaninu

    „Við ætlum að leggja okkar af mörkum til að mæta loftslagsvandanum,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra á fundi fjármálaráðherra í Vatíkaninu í dag.

    24. maí 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fitch

    Fitch ratings hækkar skammtímaeinkunnir ríkissjóðs í F1+ og staðfestir langtímaeinkunnir sem A með stöðugum horfum

    Fitch ratings birti í dag mat á lánshæfi ríkissjóðs. Skammtímaeinkunnir hækka úr F1 í F1+ vegna breyttrar aðferðafræði, í framhaldi af tilkynningu fyrirtækisins frá 3. maí. Langtímaeinkunnir standa óbreyttar í A með stöðugum horfum. Fitch hækkaði einnig landsþak (e. country ceiling) úr A í A+ í ljósi þess að fjármagnshöftum hefur verið aflétt nánast að fullu.

    21. maí 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Moody‘s

    Moody´s birtir álit á lánshæfi Íslands – A3 lánshæfiseinkunn er óbreytt með jákvæðum horfum

    Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody´s Investors Service birti í dag uppfært álit í tengslum við lánshæfi ríkissjóðs. Álitið felur ekki í sér endurskoðun á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs, sem er áfram A3 með jákvæðum horfum.

    16. maí 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Loftslagsmál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Loftslagsaðgerðir á Norðurlöndum gætu verið enn áhrifaríkari

    Í nýju riti Norrænu ráðherranefndarinnar Climate Policies in the Nordics kemur fram fjöldi ábendinga um hvernig Norðurlöndin geti með hagkvæmustum hætti stuðlað að sem mestum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. Ritinu, sem skrifað er af 12 norrænum fræðimönum á sviði loftslagsmála, er stýrt af fulltrúum fjármálaráðuneyta á Norðurlöndum.

    15. maí 2019Forsætisráðuneytið, Vinnumál, Efnahagsmál og opinber fjármál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Samkomulag undirritað um Kjaratölfræðinefnd

    Áreiðanlegar upplýsingar um laun og efnahag sem nýtast við undirbúning kjarasamninga

    09. maí 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Fjármála- og efnahagsráðherra á ársfundi Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók þátt í ársfundi Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD) sem haldinn er í Sarajevo 7.-9. maí. Bjarni hefur verið varaformaður eigendanefndar bankans síðastliðið ár.

    03. maí 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fitch

    Fitch tekur skammtímaeinkunnir Íslands til endurskoðunar vegna breyttrar aðferðafræði

    Fitch ratings birti í dag fréttatilkynningu um að fyrirtækið hafi sett skammtímaeinkunnir ríkissjóðs fyrir skuldbindingar í innlendum og erlendum gjaldmiðli, á athugunarlista (Under Criteria Observation) með möguleika til hækkunar.

    03. maí 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Vegna umræðu um samning ríkisins við Microsoft

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar vegna umræðu um samning ríkisins við Microsoft sem undirrtaður var í júní 2018.

    03. maí 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Greinargerð fjármála- og efnahagsráðherra um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur birt greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta, en samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál ber honum að gera Alþingi grein fyrir framgangi áætlunar um losun takmarkana á fjármagnshreyfingum milli landa og gjaldeyrisviðskiptum á sex mánaða fresti þar til slíkum takmörkunum verður endanlega aflétt.

    16. apr. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Lög og réttur, Atvinnuvegir, Menningarmál

    Lægri grunnútgjöld og bætt forgangsröðun með nýju verklagi um endurmat útgjalda

    Lægri grunnútgjöld, bætt forgangsröðun og gleggri yfirsýn yfir verkefni hins opinbera eru markmiðin með nýju verklagi um reglulegt endurmat útgjalda sem nú er verið að innleiða.

    15. apr. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfi og náttúruvernd

    Fjármála- og efnahagsráðherra aðili að alþjóðlegum loftslagsvettvangi

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra hefur undirritað yfirlýsingu um alþjóðlegan samstarfsvettvang fjármálaráðherra um aðgerðir í loftslagsmálum. Fyrsti fundur vettvangsins var haldinn um helgina í tengslum við vorfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans.

    09. apr. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkissjóður eignast Farice að fullu og kaupir hlut í Neyðarlínunni

    Íslenska ríkið og Landsvirkjun hafa skrifað undir samkomulag um að Landsvirkjun framselji 33,2% eignarhlut í Farice ehf. og 7,9% eignarhlut í Neyðarlínunni ohf. til ríkissjóðs. Matsverð eignarhlutar í Farice er um 9,2 milljónir evra og í Neyðarlínunni um 12,5 milljónir króna.

    09. apr. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Laun þjóðkjörinna fulltrúa hækki ekki 1. júlí

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur sent efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis minnisblað, með samþykki ríkisstjórnarinnar, þar sem lagðar eru til tvær breytingar á frumvarpi til breytinga á lögum vegna brottfalls laga um kjararáð, sem nú er til meðferðar Alþingis. Sú fyrri lýtur að því að gerð verði breyting á 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða þannig að launahækkun 1. júlí 2019 komi ekki til framkvæmda gagnvart þjóðkjörnum fulltrúum.

    09. apr. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skattalegt umhverfi þriðja geirans styrkt

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað starfshóp til að fara yfir skattalegt umhverfi þeirrar starfsemi sem fellur undir þriðja geirann, þ.e. starfsemi sem fellur hvorki undir einkageirann né opinbera geirann, s.s. starfsemi íþróttafélaga, björgunarsveita, góðgerðarfélaga og mannúðarsamtaka, með það að markmiði að styrkja skattalegt umhverfi hans.

    05. apr. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Bankastjóri Þróunarbanka Evrópuráðsins í heimsókn á Íslandi

    Bankastjóri Þróunarbanka Evrópuráðsins (CEB) Rolf Wenzel, var í heimsókn á Íslandi í vikunni og hitti hann fulltrúa hinna ýmsu opinberra aðila á meðal dvöl hans stóð. Rolf hitti fjármálaráðherra í gær og ræddu þeir um stöðu og horfur á Íslandi og mögulega samstarfsfleti hvað varðar fjármögnun verkefna í framtíðinni.

    • First
    • Prev
    • 18
    • 19
    • 20
    • 21
    • 22
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband