25. sep. 2007Dómsmálaráðuneytið, Ræður og greinar
Dóms- og kirkjumálaráðherra á ráðstefnu um öryggi og auðlindir norðurslóða
Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra flutti í dag, 25. september, erindi á ráðstefnu um öryggi og auðlindir á norðurslóðum í Tromsö í Noregi. Norska rannsóknastofnunin um varnarmál efnir til ráðstefnunnar með þátttöku ræðumanna frá Noregi, Íslandi, Kanada, Bandaríkjunum, Danmörku og Rússlandi.