Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 901–950 af 2979
    Raða eftir:
    19. okt. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Líf og heilsa, Menntamál, Háskólar, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Forgangsaðgerðir í þágu heilbrigðismenntunar

    Minnisblað til upplýsinga um forgangsaðgerðir í þágu heilbrigðismenntunar hefur verið lagt fyrir ríkisstjórn.

    18. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vel heppnuð alþjóðleg ráðstefna um fjármögnun heilbrigðiskerfa

    Dagana 27.-30. september síðastliðinn stóð heilbrigðisráðuneytið fyrir 35. ráðstefnu alþjóðlegu samtakanna PCSI (Patient Classification Systems International) á Hótel Hilton í Reykjavík. Rúmlega 250 gestir frá 27 löndum sóttu ráðstefnuna. Efni hennar tengist innleiðingu þjónustutengdrar fjármögnunar heilbrigðisþjónustu (DRG) hér á landi, en þema ráðstefnunnar snerist um hvernig aðferðafræði DRG getur verið grundvöllur sjálfbærrar heilbrigðisþjónustu. Ráðstefnan var haldin í samvinnu við Nordic Casemix Centre sem er miðstöð þróunar DRG aðferðafræðinnar á Norðurlöndunum.

    17. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Átak sem styttir bið eftir meðferð við kæfisvefni

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Sjúkratryggingum Íslands fjármagn til kaupa á 1.000 svefnöndunarvélum til meðhöndlunar á kæfisvefni. Ákvörðunin tengist aukinni getu Landspítala til að veita meðferð við kæfisvefni með ráðningu aðstoðarfólks við eininguna sem kemur að þessari þjónustu. Rúmlega 1.000 einstaklingar bíða nú meðferðar og er biðtíminn um 12 mánuðir. Með átakinu stefnir Landspítali að því að bið eftir meðferð styttist verulega og verði í framtíðinni aðeins nokkrar vikur.

    13. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra boðar til lýðheilsuþings

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra boðar til heilbrigðisþings 2022 sem að þessu sinni verður helgað lýðheilsu. Þingið verður haldið 10. nóvember á hótel Hilton Reykjavík Nordica. Þingið er öllum opið en fulltrúar heilbrigðisstofnana, fræðasamfélagsins, sveitarfélaga, skólanna, íþróttahreyfingarinnar og annarra félagasamtaka sem láta sig málið varða eru sérstaklega hvattir til þátttöku.

    13. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Norræn skýrsla um samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu í dreifðum byggðum

    Vakin er athygli á nýrri skýrslu Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar um samþættingu heilbrigðis- og félagsþjónustu í dreifðum byggðum. Í skýrslunni er fjallað um fimm dæmi slíkrar samþættingar í tilteknum umdæmum í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi og á Íslandi þar sem segir frá undirbúningi að slíkri samþættingu í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Skýrslan er afurð norræna samstarfsverkefnis iHAC (Integrated healthcare and care) sem Svíar leiða. Markmiðið er að sýna hvernig unnt sé að samþætta í auknum mæli heilbrigðis- og félagsþjónustu, þvert á skipulagsheildir, og nýta stafrænar lausnir og fjarheilbrigðisþjónustu til að mæta betur þörfum notenda.

    11. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Leiðbeinandi álit vísindasiðanefndar um upplýst samþykki

    Vísindasiðanefnd hefur gefið út leiðbeinandi álit um upplýst samþykki fyrir þátttöku í vísindarannsóknum. Nefndin stóð fyrir málþingi um þetta efni í apríl síðastliðnum þar sem fjallað var um lög, reglur og sjónarmið sem gilda í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði. Álitinu er ætlað að vera leiðbeinandi fyrir ábyrgðarmenn vísindarannsókna og einnig upplýsandi fyrir þátttakendur í slíkum rannsóknum.

    07. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Geðheilbrigði: Orð eru til alls fyrst

    07 október 2022 / Heilbrigðisráðuneytið Geðheilbrigði: Orð eru til alls fyrst Stjórnarráðið Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skrifar: Á örfáum áratugum hefur samfélagið borið gæfu til þess að lyfta geðheilbrigðismálum ofar og ofar í forgangsröðuninni. Þar er enginn hópur undanskilinn; allt frá börnum til eldri borgara og allt litrófið þar á milli. Ríkisstjórnin hefur skilgreint geðheilbrigði í víðum skilningi sem eitt af sínum forgangsmálum og þingsályktun um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi þann 15

    06. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstofnun Austurlands tryggt nýtt tölvusneiðmyndatæki

    Heilbrigðisráðherra hefur veitt Heilbrigðisstofnun Austurlands 80 milljónir króna til kaupa á nýju tölvusneiðmyndatæki. Tækið mun auka öryggi við greiningu og meðferð sjúklinga í heilbrigðisumdæminu, til dæmis í kjölfar slysa eða bráðra veikinda. Með nýju tæki verður jafnframt unnt að þjónusta í heimabyggð sjúklinga sem annars þyrftu að ferðast um langan veg til myndgreiningar með tilheyrandi fyrirhöfn og kostnaði.

    04. okt. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 21/2022

    Kærandi, sem dvelur á hjúkrunarheimili, kærði ákvörðun A um að setja á heimsóknarbann á hjúkrunarheimili vegna Covid-19. Ráðuneytið taldi að ákvörðun um að setja á almennt heimsóknarbann á hjúkrunarheimili fæli ekki í sér töku stjórnvaldsákvörðunar sem beindist gegn kæranda umfram aðra heimilismenn og væri þannig kæranleg til ráðuneytisins á grundvelli stjórnsýslulaga. Þá taldi ráðuneytið að bréf sem A hafði sent vegna beiðni eiginmanns hennar um undanþágu frá heimsóknarbanni hefði ekki falið í sér töku stjórnvaldsákvörðunar sem væri kæranleg til ráðuneytisins. Í málinu lágu ekki fyrir ákvarðanir A sem vörðuðu hana eða eiginmann hennar með beinum hætti. Að því virtu og þar sem engin ákvörðun um heimsóknarbann væri í gildi taldi ráðuneytið ekki unnt að taka málið til efnislegrar meðferðar.…

    03. okt. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 20/2022

    Í málinu höfðu aðstandendur A, sem var látinn, kvartað til embættis landlæknis vegna heilbrigðisþjónustu sem honum var veitt á tilteknu hjúkrunarheimili. Komst embætti landlæknis að þeirri niðurstöðu að alvarleg vanræksla og mistök hefðu átt sér stað við veitingu heilbrigðisþjónustu til A. Hjúkrunarheimilið kærði málsmeðferð embættisins til ráðuneytisins á grundvelli 6. mgr. 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu. Byggði hjúkrunarheimilið m.a. á því að andmælaréttar hefði ekki verið gætt og að rökstuðningur í niðurstöðu embættis landlæknis væri ófullnægjandi. Í umfjöllun um andmælarétt taldi ráðuneytið að þeir aðilar sem kvörtunin varðaði hefðu haft fullnægjandi upplýsingar um málið og fengið tækifæri til að tjá sig um það áður en embætti landlæknis gaf út álit, sbr. 13. gr.…

    28. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Um 650 milljónum króna úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum 650 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra í samræmi við tillögur stjórnar sjóðsins. Áhersla var lögð á ​verkefni sem bæta aðbúnað íbúa á hjúkrunarheimilum, úrbætur sem tengjast aðgengismálum og öryggismálum og ýmsum stærri viðhaldsverkefnum. Alls bárust umsóknir um framlög til 60 verkefna og hlutu 54 þeirra styrk.

    27. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aldrei fleiri í sérnámi í heimilislækningum

    Aldrei hafa fleiri stundað sérnám í heimilislækningum. Í dag eru 95 læknar skráðir í námið en til samanburðar voru þeir 38 árið 2017. Frá þeim tíma hafa að jafnaði sjö til átta læknar útskrifast úr sérnáminu ár hvert. Nú er umtalsverð fjölgun fyrirsjáanleg. Við bestu aðstæður munu samtals 57 læknar ljúka sérnámi í heimilislækningum á næstu þremur árum.

    26. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Frumvarp til breytinga á lögum um tóbaksvarnir - innleiðing Evróputilskipunar

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til laga um breytingu á lögum nr. 6/2002 um tóbaksvarnir. Með frumvarpinu er ætlunin að innleiða tilskipun 2014/40/ESB um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi framleiðslu, kynningu og sölu á tóbaki og tengdum vörum. Umsagnarfrestur er til og með 10. október.

    23. sep. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Eldra fólk hefur virði – vinnustofa um framtíð þjónustu við eldra fólk á Íslandi

    Vinnustofa um framtíð þjónustu við eldra fólk á Íslandi fór fram á Hilton í gær. Vinnustofan var hluti af umfangsmikilli vinnu sem nú á sér stað

    23. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Brjóstamiðstöð Landspítala formlega opnuð

    Ný brjóstamiðstöð Landspítala var formlega opnuð í gær. Í brjóstamiðstöðinni er heildstæð heilbrigðisþjónusta og öflug þverfagleg teymisvinna. Þar á sér meðal annars stað brjóstaskimun, brjóstamyndgreining, greiningar á sjúkdómum og öflug göngudeildarþjónusta. Miðstöðin heldur utan um fjölbreytta þjónustu tengdum ýmsum sjúkdómum í brjóstum, sinnir þjónustu úti á landi og fólki sem er í áhættuhópi á að fá krabbamein vegna stökkbreytinga í genum.

    21. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Málþing til heiðurs Þórólfi Guðnasyni - Gildi vísinda og nýsköpunar í heimsfaraldri

    Betur vinnur vit en strit — gildi vísinda og nýsköpunar í heimsfaraldri. Þetta er yfirskrift málþings sem embætti landlæknis efnir til 23. september næstkomandi til heiðurs Þórólfi Guðnasyni fyrrverandi sóttvarnalæknis í tilefni starfsloka hans. Málþingið verður haldið í Fróða, sal Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8 í Reykjavík og hefst dagskrá klukkan 13:00 og stendur til 16:00.

    21. sep. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Stórt skref stigið með skipun Endurhæfingarráðs

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hafa skipað Endurhæfingarráð – samstarfsvettvang um endurhæfingu þvert á velferðarkerfi ráðuneytanna.

    20. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skóflustunga tekin að nýju hjúkrunarheimili á Höfn

    Heilbrigðisráðherra ásamt tíu elstu íbúum Hornafjarðar tóku í gær fyrstu skóflustungurnar að nýju hjúkrunarheimili á Höfn sem er áætlað að verði tekið í notkun árið 2024. Framkvæmdin felur í sér 1.400 fermetra viðbyggingu við eldra húsnæði Skjólgarðs sem jafnframt verður endurgert. Hjúkrunarrýmum mun fjölga um sex og aðbúnaður fyrri íbúa breytast til hins betra.

    12. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ásgeir Margeirsson skipaður formaður stýrihóps um Hringbrautarverkefnið

    Heilbrigðisráðherra hefur framlengt skipunartíma stýrihóps um verkefni Nýs Landspítala ohf. (NLSH) til 25. ágúst 2024. Ásgeir Margeirsson hefur verið skipaður formaður hópsins en skipan hans er að öðru leyti óbreytt.

    09. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ferli umsókna um styrki vegna næringarefna og sérfæðis einfaldað

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að einfalda umsóknarferli vegna styrkja sem veittir eru til niðurgreiðslu á næringarefni eða sérfæðis fyrir einstaklinga sem á því þurfa að halda. Með breytingunni verður það á hendi þess heilbrigðisstarfsmanns sem vinnur að lausn á næringarvanda einstaklings að annast umsóknina. Krafa um læknisvottorð fellur brott nema í undantekningartilvikum þar sem Sjúkratryggingar Íslands telja vottorð læknis nauðsynlegt. Breytingin er gerð í samræmi við ábendingu Landspítala. Reglugerð heilbrigðisráðherra sem kveður á um þessa breytingu hefur verið send Stjórnartíðindum og öðlast gildi við birtingu.

    09. sep. 2022Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Samgöngur og fjarskipti, Umferð, Heilbrigðisráðuneytið

    Börn og foreldrar hvött til að ganga í skólann

    Verkefnið Göngum í skólann hófst með opnunarathöfn í Melaskóla í vikunni.

    08. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælaborð með vísum um gæði og umfang heilsugæsluþjónustu á landsbyggðinni

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt mælaborð sem veitir margvíslegar upplýsingar um gæði og umfang heilsugæsluþjónustu á landsbyggðinni. Mælaborðið endurspeglar þá vísa sem lagðir eru til grundvallar í fjármögnunarlíkaninu sem stýrir fjármögnun heilsugæslustöðva. Kerfið byggist á því að fjármagn til hverrar heilsugæslustöðvar endurspegli þann hóp fólks sem stöðin þjónar, umfang og gæði veittrar þjónustu og hversu vel viðkomandi stöð nær tilteknum markmiðum um ýmsa þætti þjónustunnar. Mælaborðið gerir meðal annars kleift að bera saman hvernig einstakar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu standa gagnvart þeim breytum sem fjármögnunarlíkanið tekur til.

    08. sep. 2022Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillögur starfshóps um gæðamál tengd liðskiptaaðgerðum

    september 2022 / Heilbrigðisráðuneytið Tillögur starfshóps um gæðamál tengd liðskiptaaðgerðum Tillögur starfshóps um gæðamál tengd liðskiptaaðgerðum

    08. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Akranes: Opnun nýrrar skurðstofu fyrir liðskiptaaðgerðir

    Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) á Akranesi hefur útbúið nýja skurðstofu fyrir liðskiptaaðgerðir. Skurðstofan var opnuð formlega á dögunum að viðstöddum heilbrigðisráðherra.

    08. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Verkefnastjórn falið að meta og innleiða tillögur starfshóps um gæðamál tengd liðskiptaaðgerðum

    Heilbrigðisráðuneytið birtir hér með skýrslu starfshóps um gæðamál tengd liðskiptaaðgerðum. Þar eru lagðar fram tillögur að samræmdu og stöðluðu verklagi liðskiptaaðgerða, allt frá undirbúningi tilvísunarbeiðna til eftirfylgdar eftir aðgerð. Tilgangurinn er að auka gæði og öryggi þjónustunnar. Heilbrigðisráðherra fól embætti landlæknis að leiða verkefnið í samvinnu við fulltrúa stofnana sem framkvæma liðskiptaaðgerðir hér á landi og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.

    08. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samræmt verklag heilbrigðisþjónustu í kynferðisbrotamálum í mótun

    Heilbrigðisráðherra hefur ýtt úr vör verkefni sem miðar að því að vinna að samræmdu verklagi og úrræðum við móttöku þeirra sem leita til heilbrigðisstofnana landsins vegna kynferðisofbeldis. Liður í verkefninu verður að kortleggja og skýra afgreiðslu áverkavottorða og hvernig aðkomu réttargæslumanna skuli háttað í ofbeldismálum, þar með töldum kynferðisbrotamálum. Í samræmdu verklagi verður sérstaklega hugað að fólki sem er í viðkvæmri stöðu, s.s. vegna fötlunar, uppruna, kynhneigðar, kynvitundar og aldurs.

    07. sep. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 19/2022

    Kærandi kærði ákvörðun embættis landlæknis um að svipta hann starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur. Þar sem kæran barst utan kærufrests tók ráðuneytið til skoðunar hvort taka bæri kæruna til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Að mati ráðuneytisins hafði kærandi ekki sýnt fram á afsakanlegar ástæður þess að kæran barst of seint. Ráðuneytið tók jafnframt til skoðunar hvort veigamiklar ástæður mæltu með því að kæran yrði tekin til meðferðar með þeirri niðurstöðu að slíkar ástæður væru ekki fyrir hendi. Var kærunni því vísað frá ráðuneytinu.

    07. sep. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 18/2022

    Kærandi kærði ákvörðun embættis landlæknis um að synja honum um sérfræðileyfi í bæklunarskurðlækningum. Í úrskurði ráðuneytisins var ekki talið að kærandi hefði haft réttmætar væntingar um að eldri reglugerðir um veitingu læknaleyfa myndu gilda um umsóknina. Yrði þannig að leggja mat á umsóknina á grundvelli núgildandi reglugerðar nr. 467/2015. Af gögnum málsins var ljóst að kærandi hafði ekki lokið formlega viðurkenndu sérnámi í greininni, líkt og reglugerð nr. 467/2015 gerir kröfu um fyrir veitingu sérfræðileyfis. Uppfyllti kærandi þannig ekki skilyrði reglugerðarinnar. Var ákvörðun embættis landlæknis því staðfest.

    07. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar, Líf og heilsa

    Eitt mikilvægasta verkfærið í verkfærakistunni

    Grein eftir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra um endurhæfingu.

    05. sep. 2022Tímabundnar nefndir, Heilbrigðisráðuneytið

    Endurhæfingarráð - samstarfsvettvangur um endurhæfingu þvert á velferðarkerfi ráðuneytanna Endurhæfingarráði er ætlað að vera heilbrigðisráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra til ráðgjafar við faglega stefnumörkun á sviði endurhæfingar og hvað varðar skipulag þjónustu til að tryggja samþættingu í endurhæfingu þvert á velferðarkerfi ráðuneytanna. Þetta á jafnt við um heilbrigðistengda endurhæfingu, atvinnutengda starfsendurhæfingu og önnur tengd úrræði. Þá munu ráðherrar fela ráðinu verkefni er varða greiningu eða útfærslu aðgerða sem ætlað er að tryggja þverfaglega sýn og samþættingu þjónustu ætlaða einstaklingum í endurhæfingarþörf og/eða hættu á ótímabæru brotthvarfi af vinnumarkaði

    01. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Reglugerð um endurgreiðslu vegna þjónustu sérgreinalækna framlengd

    ​Gildistími reglugerðar heilbrigðisráðherra um endurgreiðslu vegna þjónustu sérgreinalækna hefur verið framlengdur frá 1. september til 31. október nk. Reglugerð um framlenginguna hefur verið send Stjórnartíðindum og birtist í dag. Réttur sjúklinga til endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sérgreinalækna helst því óbreyttur. Samningaviðræður milli Sjúkratrygginga Íslands og sérgreinalækna standa yfir. Heilbrigðisráðuneytið leggur áherslu á að staða sjúklinga gagnvart endurgreiðslu kostnaðar meðan samningar liggja ekki fyrir sé tryggð.

    25. ágú. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðherra heimsótti Heilbrigðisstofnun Austurlands

    Heilbrigðisráðherra heimsótti í vikunni Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) þar sem hann hitti framkvæmdastjórn stofnunarinnar og kynnti sér starfsemi hennar á Egilsstöðum, Reyðarfirði og í Neskaupsstað. Stofnunin veitir alhliða heilsugæslu- sjúkra- og hjúkrunarþjónustu á Austurlandi á 13 starfsstöðvum og rekur öll hjúkrunarheimilin í umdæminu sem eru fimm talsins.

    24. ágú. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur um nýbyggingu endurhæfingar við Grensás

    Heilbrigðisráðherra undirritaði í gær samning Nýs Landspítala ohf. við Nordic Office of Architecture og EFLU verkfræðistofu um fullnaðarhönnun 3.800 fermetra viðbyggingar við endurhæfingardeild Grensáss. Ráðherra segir þetta enn einn ánægjulegan áfanga í uppbyggingu betra húsnæðis fyrir Landspítala, sjúklinga og starfsfólk Grensáss og þá mikilvægu starfsemi sem þar fer fram. Gert er ráð fyrir að hönnunarferlið taki um það bil eitt ár og að því loknu verði unnt að hefja verklegar framkvæmdir.

    24. ágú. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Ráðist í endurskoðun á mats- og greiðslukerfi hjúkrunarheimila

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað vinnuhóp til að endurskoða greiðslukerfi til rekstrar hjúkrunarheimila. Skipun hópsins er í samræmi við viljayfirlýsingu ráðherra í tengslum við samninga Sjúkratrygginga Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu um rekstur hjúkrunarheimila sem gerðir voru síðastliðið vor.

    22. ágú. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Úthlutun gæða- og nýsköpunarstyrkja til verkefna í heilbrigðisþjónustu

    Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað tæpum 35 milljónum króna í gæða- og nýsköpunarstyrki til 12 verkefna. Að þessu sinni var sérstök áhersla lögð á heilsueflingu og nýtingu nýrra lausna til að auka gæði, þjónustu og hagkvæmni. Verkefnin þurftu að hafa skýran ávinning fyrir heilbrigðisþjónustuna og þann hóp sem þjónustan beinist að.

    19. ágú. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisráðherra heimsækir heilbrigðisstofnanir

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra heimsótti í vikunni Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU), fundaði með framkvæmdastjórninni, kynnti sér starfsemi stofnunarinnar og skoðaði nýja hjúkrunarheimilið Móberg sem verður tekið í notkun innan skamms. Heimsóknin markar upphafið að hringferð ráðherra um landið sem mun á næstunni heimsækja heilbrigðisstofnanir í öllum heilbrigðisumdæmum landsins.

    22. júl. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Tilboð í byggingu hjúkrunarheimilis á Höfn samþykkt

    Tilboði Húsheildar ehf í byggingu 30 rýma hjúkrunarheimilis á Höfn í Hornafirði hefur verið samþykkt af heilbrigðisráðuneytinu fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Sveitarfélaginu Hornafirði.

    13. júl. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skipar stjórn Landspítala

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað stjórn Landspítala til tveggja ára. Með lögum nr. 44/2022 var fært nýtt ákvæði inn í lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Samkvæmt 8. gr laganna skipar ráðherra fimm menn í stjórn Landspítala og tvo til vara, til tveggja ára í senn.

    12. júl. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjölgun endurhæfingarrýma á Eir

    Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og Eir hjúkrunarheimili hafa gert með sér samkomulag um breytingu á núgildandi samningi um rekstur og þjónustu hjúkrunarheimilisins að Hlíðarhúsum 7 í Reykjavík. Breytingin felur í sér fjölgun endurhæfingarrýma fyrir aldraða einstaklinga. Nú þegar eru 24 endurhæfingarrými á Eir og er stefnt að því að fjölga þeim um samtals 20 rými. Áætlað er að opna 10 ný rými frá og með 10. ágúst næstkomandi og önnur 10 ný rými mánuði síðar.

    07. júl. 2022Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ársskýrslur ráðherra fyrir árið 2021 birtar

    Ársskýrslur ráðherra fyrir árið 2021 hafa verið birtar. Skýrslurnar koma nú út í fimmta sinn en markmiðið með útgáfu þeirra er að auka gagnsæi um ráðstöfun og nýtingu fjármuna. Þá er þeim ætlað að vera grundvöllur fyrir umræðu um stefnumörkun og forgangsröðun hins opinbera.

    05. júl. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Starfshópur um útgáfu vottorða

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að semja drög að reglugerð um útgáfu vottorða, faglegra yfirlýsinga og skýrslna.

    04. júl. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Auglýst eftir rekstraraðila fyrir nýja heilsugæslustöð í Reykjanesbæ

    Sjúkratryggingar Íslands, fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins, hefur auglýst eftir rekstraraðila til að reka nýja heilsugæslustöð í Reykjanesbæ.

    01. júl. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 17/2022

    Kærandi kærði ákvörðun embættis landlæknis um að synja honum um sérfræðileyfi í heimilislækningum. Byggði kærandi aðallega á því að beita skyldi ákvæðum eldri reglugerða um veitingu sérfræðileyfa um umsókn hans, m.a. vegna réttmætra væntinga. Ráðuneytið féllst ekki á málsástæður kæranda í því sambandi og taldi að beita skyldi ákvæðum núgildandi reglugerðar nr. 467/2015 við meðferð umsóknarinnar, líkt og embætti landlæknis hafði gert í ákvörðun sinni. Samkvæmt gögnum málsins væri ljóst að kærandi hefði ekki lokið viðurkenndu formlegu sérnámi í heimilislækningum, líkt og gerð er krafa um í reglugerð nr. 467/2015 fyrir veitingu sérfræðileyfis í greininni. Uppfyllti kærandi þannig ekki skilyrði reglugerðarinnar fyrir veitingu sérfræðileyfis. Var ákvörðun embættis landlæknis því staðfest.

    30. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Samtakamáttur hjá viðbragðsteymi bráðaþjónustu

    Viðbragðsteymi bráðaþjónustu í landinu fer vel af stað. Megináherslan hefur verið á að bæta stöðuna á bráðamóttöku Landspítala en samhliða því hefur ýmsum mikilvægum verkefnum til skamms og lengri tíma verið ýtt úr vör.

    30. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Bóluefni gegn apabólu væntanlegt í lok júlí

    Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa með þátttöku í Evrópusamstarfinu HERA tryggt sér byrgðir af bóluefninu Jynneos gegn apabólu. Ísland fær samtals 1.400 skammta og er efnið væntanlegt til landsins í lok júlí. Samningur um þetta var undirritaður fyrir skömmu.

    30. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Naloxone nefúði verði aðgengilegur um allt land og notendum að kostnaðarlausu

    Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við Landspítala vinnur að því að gera lyfið Naloxone í nefúðaformi aðgengilegt um allt land, þannig að tilteknir aðilar hafi það til reiðu þegar á þarf að halda. Lyfið er notað þegar þörf er á tafarlausri neyðarmeðferð vegna ofneyslu ópíóða sem valdið getur öndunarstoppi og dauða. Landspítali bauð lyfið út fyrr í vor sem var forsenda þess að unnt væri að dreifa því gjaldfrjálst til notenda. Frá og með 1. júlí næstkomandi mun heilbrigðisráðuneytið greiða allan kostnað vegna lyfsins sem þar með verður notendum að kostnaðarlausu.

    30. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breytt þjónusta á Vífilsstöðum – skammtímainnlagnir og endurhæfingarþjónusta

    Ákveðið hefur verið að byggja upp á Vífilsstöðum þjónustu fyrir aldraða með áherslu á skammtímainnlagnir og endurhæfingu. Nýrri þjónustu er ætlað að veita markvissari stuðning fyrir aldraða sem búa sjálfstæðri búsetu og eru ekki í bið eftir dvöl á hjúkrunarheimili. Sjúkratryggingar Íslands hafa auglýst eftir rekstraraðila til að annast þjónustuna.

    28. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Eining um stjórn Landspítala - grein eftir heilbrigðisráðherra

    Heilbrigðisráðherra mun á næstunni skipa Landspítala stjórn í samræmi við nýsamþykkt lög frá Alþingi. Í lögum hefur verið tryggð aðkoma fagráðs og starfsfólks að stjórninni. Einnig hefur 7 manna notendaráð verið skilgreint til að tryggja rödd notenda þjónustunnar. Ráðherra fjallar um mikilvægi þessarar lagasetningar í blaðagrein sem birtist í dag. Greinin er eftirfarandi:

    28. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ferðamenn fá sjálfvirk skilaboð um hvert skuli leita þarfnist þeir heilbrigðisþjónustu

    Frá og með deginum í dag fá allir komufarþegar á Keflavíkurflugvelli sjálfvirk SMS skilaboð á ensku með upplýsingum um hvert þeir skuli leita þurfi þeir á heilbrigðisþjónustu að halda. Markmiðið er að tryggja þeim greiðan aðgang að upplýsingum hvað þetta varðar og beina þeim á rétta staði í samræmi við þörf og aðstæður hverju sinni. Gert er ráð fyrir að þetta muni dreifa álagi og að einhverju leyti létta á bráðamóttökum sjúkrahúsanna.

    28. jún. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Eining um stjórn Landspítala

    28 júní 2022 / Heilbrigðisráðuneytið Eining um stjórn Landspítala Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skrifar: Við stöndum frammi fyrir því að á næstu 20 árum mun Íslendingum yfir 65 ára aldri fjölga um 40 þúsund. Það er ekki valkostur að gera alltaf meira af því sama. Margt sem gekk í fortíð gengur ekki endilega upp í nútíð

    • First
    • Prev
    • 17
    • 18
    • 19
    • 20
    • 21
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband