Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 851–900 af 2979
    Raða eftir:
    27. des. 2022Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Stuðningur við Okkar heim

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra undirrituðu um jólin styrktarsamning við góðgerðasamtökin Okkar heim. Markmiðið er að styðja við úrræði fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda.

    23. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Stuðningur við Bergið fyrir ungt fólk í vanda

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra undirrituðu í gær styrktarsamning við Bergið – Headspace, stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri.

    22. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sigurður Kári skipaður skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Sigurð Kára Árnason í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu.

    21. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tæpum 330 milljónum króna varið til tækjakaupa vegna bráðaþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að verja 215 milljónum kr. af fjárlögum næsta árs til að bæta tækjabúnað vegna bráðaþjónustu á heilsugæslustöðum um allt land. Úthlutunin kemur til viðbótar tæpum 114 milljónum kr. sem úthlutað var til heilbrigðisstofnana fyrr á þessu ári vegna bráðaþjónustu á sjúkrahúsum. Markmiðið er að halda áfram að jafna aðgengi að bráðaþjónustu um allt land og gera heilbrigðisstofnunum betur kleift að veita þessa mikilvægu þjónustu á starfssvæðum sínum. Ákvörðunin er byggð á tillögum viðbragðsteymis um bráðaþjónustu.

    21. des. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast – aðgerðaáætlun komin í samráðsgátt

    Gott að eldast – drög að aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk – hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið með áætluninni er að ná að flétta saman þeirri þjónustu sem snýr að eldra fólki, hvort sem um ræðir heimaþjónustu á vegum sveitarfélaga eða heilbrigðisþjónustu – með það að leiðarljósi að það eigi að vera gott að eldast á Íslandi. Grunnhugmyndin er að þjónustan við eldra fólk sé veitt þegar hennar er þörf, á forsendum fólksins sjálfs og á réttu þjónustustigi.

    16. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Þingsályktun um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum

    Birt hafa verið til umsagnar drög að tillögu Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til næstu fimm ára. Aðgerðaáætlunin byggist á ályktun Alþingis um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 sem þingið samþykkti í júní síðastliðnum. Í áætluninni er megináhersla lögð á forvarnir og snemmtæk úrræði, heildræna, samþætta og notendamiðaða þjónustu, notendasamráð og nýsköpun með bætt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu um allt land að leiðarljósi. Umsagnarfrestur er til 12. janúar næstkomandi.

    15. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Unnið að framtíðarfyrirkomulagi vegvísunar í heilbrigðisþjónustu

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að skipuleggja fyrirkomulag vegvísunar í heilbrigðiskerfinu til framtíðar. Markmiðið er að tryggja almenningi greiðar og aðgengilegar upplýsingar um hvert leita skuli eftir heilbrigðisþjónustu í samræmi við þörf og aðstæður hvers og eins hverju sinni. Horft er til þess að með samræmdri upplýsingagjöf og aukinni samvinnu þjónustuveitenda megi bæta þjónustu við sjúklinga og dreifa álagi á heilbrigðiskerfið. Fyrsti fundur starfshópsins var í dag.

    15. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Brúum bilið: Verkefni til að auka þátttöku og virkni fatlaðra barna og ungmenna í íþróttastarfi

    Þrír ráðherrar undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu um verkefnið „Farsælt samfélag fyrir öll – brúum bilið“ en það miðar að því að efla íþróttaástundun fatlaðs fólks, ekki síst fatlaðra barna og ungmenna. Alls verður 60 milljónum króna veitt til verkefnisins sem er til þriggja ára. Yfirlýsinguna undirrituðu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

    15. des. 2022Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Samræmd heilbrigðisþjónusta vegna kynferðisofbeldis. Skýrsla starfshóps

    desember 2022 / Heilbrigðisráðuneytið Samræmd heilbrigðisþjónusta vegna kynferðisofbeldis. Skýrsla starfshóps Samræmd heilbrigðisþjónusta vegna kynferðisofbeldis - Skýrsla starfshóps

    15. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samræmd heilbrigðisþjónusta vegna kynferðisofbeldis

    Starfshópur sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fól að móta samræmt verklag um þjónustu við þau sem leita til heilbrigðisstofnana vegna kynferðisofbeldis hefur skilað niðurstöðum sínum. Markmiðið er að tryggja sem jafnast aðgengi þolenda að faglegri heilbrigðisþjónustu í slíkum málum, óháð búsetu, efnahag eða öðrum aðstæðum. Auk tillagna um samræmt verklag og skráningu er lögð til skipulögð fræðsla fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem styður við rétt viðbrögð þess. Þetta getur skipt miklu máli fyrir líðan þolenda og jafnframt ef til málsmeðferðar kemur.

    15. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Stýrihópur um stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað stýrihóp um þróun og stefnumótun varðandi stafrænar lausnir og heilbrigðistækni í heilbrigðisþjónustu. Hópurinn verður samráðsvettvangur og ráðuneytinu til ráðgjafar við að móta stefnu og framtíðarsýn á þessu sviði.

    13. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Guðlaug Rakel ráðin tímabundið í verkefni hjá heilbrigðisráðuneytinu

    Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir fráfarandi framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala hefur verið ráðin til tímabundinna verkefna hjá heilbrigðisráðuneytinu. Verkefnin sem hún mun vinna að snúa m.a. að mönnun í heilbrigðisþjónustu með áherslu á hjúkrun, gerð viðbragðsáætlana og stuðning við innleiðingu Evrópureglugerðar um heilbrigðisvár þvert á landamæri.

    13. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Samningur og samvinna um meðferð við endómetríósu

    13 desember 2022 / Heilbrigðisráðuneytið Samningur og samvinna um meðferð við endómetríósu Stjórnarráðið Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skrifar: Aðgangur að heilbrigðisþjónustu er réttlætismál og áherslumál ríkisstjórnarinnar. Það er mikilvægt að allir hafi jafnt aðgengi að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Aðgengi sé óháð kyni, stöðu, bakgrunni, efnahag og búsetu

    13. des. 2022Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Sálfræðiaðstoð vegna kynferðisofbeldis tryggð að lokinni skýrslutöku hjá lögreglunni

    Dómsmálaráðherra og heilbrigðisráðherra starfa saman að því að tryggja brotaþolum kynferðisofbeldis viðeigandi stuðning hjá sálfræðingi að lokinni skýrslutöku hjá lögreglu

    08. des. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 31/2022

    Í málinu hafði kærandi kært ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um niðurfellingu á lífeyri og þátttöku í dvalarkostnaði á hjúkrunarheimili. Ákvörðun tryggingastofnunar hvað varðar mánaðarlega þátttöku í dvalarkostnaði var staðfest. Hins vegar taldi ráðuneytið að skráning upphafs dvalar á hjúkrunarheimilinu hefði ekki verið í samræmi við lög. Skráningin hefði miðast við þann dag sem kæranda hefði verið boðið pláss á hjúkrunarheimilinu en ekki þann dag sem hann hefði flutt á heimilið, líkt og lög gerðu ráð fyrir. Þar sem dagsetning upphaf dvalar hefði áhrif á niðurfellingu lífeyris og þátttöku í dvalarkostnaði var sá hluti ákvörðunar tryggingastofnunar felldur úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka hann til nýrrar meðferðar.

    07. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarp um hækkun starfslokaaldurs heilbrigðisstarfsmanna ríkisins í samráð

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðisstarfsmenn.

    07. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Ný reglugerð um lyfsöluleyfi og lyfjabúðir tekur gildi 1. janúar 2023

    Heimilt verður að reka lyfjabúðir sem einungis starfrækja netverslun með lyf, lyfjabúðum verður heimilt að semja við þriðja aðila til að sinna afhendingu lyfja utan lyfjabúða og lán og sala lyfja á milli lyfjabúða verður heimiluð.

    07. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fræðsluefni um barneignarþjónustu fyrir verðandi foreldra af erlendum uppruna

    Heilbrigðisráðherra hefur veitt Fæðingarheimili Reykjavíkur þriggja milljóna króna styrk til að útbúa fræðsluefni um barneignarferlið sem miðar að bættri þjónustu við verðandi foreldra af erlendum uppruna.

    07. des. 2022Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Réttarfar, Heilbrigðisráðuneytið, Lög og réttur

    Greining unnin á þjónustumiðstöðvum fyrir þolendur ofbeldis

    Dómsmálaráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra í samvinnu við heilbrigðisráðherra hafa ákveðið að ráðast í greiningu á þjónustumiðstöðvum fyrir þolendur ofbeldis.

    05. des. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast – aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk

    Mörg hundruð manns fylgdust með opnum kynningarfundi félags- og vinnumarkaðsráðherra og heilbrigðisráðherra sem fram fór í dag um drög að aðgerðaáætlun til fjögurra ára um þjónustu við eldra fólk. Ráðherrarnir kynntu enn fremur nafn verkefnisins: Gott að eldast.

    05. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Kynningarfundur: Aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk – bein útsending kl. 11.00

    Félags- og vinnumarkaðsráðherra og heilbrigðisráðherra halda í dag, mánudaginn 5. desember, opinn fund þar sem kynnt verða drög að aðgerðaáætlun til fjögurra ára um heildarendurskoðun þjónustu við eldra fólk. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér.

    30. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samið við Klíníkina um aðgerðir vegna endómetríósu

    Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við Klíníkina um kaup á aðgerðum vegna endómetríósu. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samninginn sem þar með hefur tekið gildi. Samningurinn kveður á um að þeir sem eru í brýnustu þörfinni njóti forgangs. ​

    28. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir verkefni í þágu trans-barna og hinsegin fólks

    Heilbrigðisráðuneytið hefur hlotið rúmar fjórar milljónir króna úr Framkvæmdasjóði hinsegin málefna sem renna til tveggja afmarkaðra verkefna á Landspítala í þágu trans barna og hinsegin fólks. Annars vegar verður ráðist í rannsókn sem miðar að því að kortleggja þarfir og óskir hinsegin fólks sem leitar eftir heilbrigðisþjónustu transteymis Landspítala. Hins vegar er um að ræða þróunarverkefni á barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL) sem felst í því að undirbúa og koma á fót fræðsluhópi fyrir foreldra trans barna sem eru í þjónustu hjá transteymi BUGL.

    24. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Spornað við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis: Þórólfur Guðnason formaður starfshóps um verkefnið

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað þverfaglegan starfshóp til að móta framtíðarsýn og áætlun um aðgerðir til að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Þórólfur Guðnason, fyrrverandi sóttvarnalæknir, er formaður hópsins. Þórólfur hefur verið ráðinn tímabundið til heilbrigðisráðuneytisins til að leiða verkefnið sem unnið er með matvælaráðuneyti og ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála.

    23. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk – kynningarfundur 5. desember

    Félags- og vinnumarkaðsráðherra og heilbrigðisráðherra halda opinn kynningarfund 5. desember kl. 11–13 á hótel Hilton Nordica, þar sem kynnt verða drög að aðgerðaáætlun til fjögurra ára um heildarendurskoðun þjónustu við eldra fólk. Í stuttum erindum verður sagt frá því hvernig á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu. Fundurinn er öllum opinn en óskað eftir því að þau sem ætli að mæta skrái sig fyrir fram. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi.

    22. nóv. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 30/2022

    Í málinu hafði kærandi kært málsmeðferð embættis landlæknis vegna álits embættisins um mistök og vanrækslu við veitingu heilbrigðisþjónustu. Byggði kærandi m.a. á því að tiltekinn starfsmaður embættisins hefði verið vanhæfur auk þess sem andmælaréttur hefði ekki verið virtur. Ráðuneytið hafði þegar tekið afstöðu til málsástæðna um hæfi og vísaði til fyrri úrskurða í málum kæranda. Þá var talið að kæranda hefði verið veitt fullnægjandi tækifæri til að koma að athugasemdum við meðferð kvörtunarinnar, en honum hafði t.a.m. verið send umsögn óháðs sérfræðings til athugasemda í tölvupósti og með ábyrgðarbréfi. Var málsmeðferð embættis landlæknis því staðfest.

    18. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Íslenskir læknanemar í Slóvakíu

    Heilbrigðisráðherra fylgdi forseta Íslands í opinberri heimsókn til Slóvakíu í lok október þar sem þeir kynntu sér meðal annars starfsemi Jessenius-læknadeildar Komeniusarháskólans í borginni Martin. Um 170 íslenskir læknanemar stunda þar nú nám. Fyrstu nemarnir skráðu sig til náms við deildina árið 2012 og frá þeim tíma hafa 79 íslenskir læknar útskrifast frá háskólanum.

    18. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Áform um lagabreytingu sem snýr að varðveislu fósturvísa

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda áform heilbrigðisráðherra um lagasetningu til breytinga á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfruma og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna. Samkvæmt gildandi lögum er skylt að eyða fósturvísum við breyttar aðstæður aðila, s.s. eftir sambúðarslit. Áformuð lagabreyting snýr að því að einstaklingum sem eiga fósturvísa verði í sjálfsvald sett að ákveða um geymslu og notkun þeirra. Markmiðið er m.a. að tryggja jafnræði og fyrirbyggja að einstaklingum sé mismunað eftir ólíkum fjölskylduformum. Heilbrigðisráðuneytið hefur nú til skoðunar hvort ráðast eigi í heildarendurskoðun laganna í framhaldi.

    17. nóv. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 29/2022

    Kærandi kærði meinta ranga sjúkdómsgreiningu og meintar rangfærslur í sjúkraskrá. Ráðuneytið tók fram að embætti landlæknis tæki kvartanir vegna meintrar vanrækslu og mistaka við veitingu heilbrigðisþjónustu til meðferðar en ekki ráðuneytið. Þá þyrfti að beina beiðni um leiðréttingu á sjúkraskrá til umsjónaraðila hennar en hægt væri að skjóta synjun á slíkri beiðni til embættis landlæknis. Hefði ráðuneytið engu hlutverki að gegna í því sambandi. Laut kæra þannig ekki að neinni ákvörðun eða málsmeðferð sem kæranleg væri til ráðuneytisins og var kærunni því vísað frá.

    16. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Á fjórða hundrað sóttu vel heppnað heilbrigðisþing um lýðheilsu

    Húsfyllir var á heilbrigðisþingi um lýðheilsu á hótel Hilton Nordica 10. nóvember síðastliðinn og töldu gestir um 350 manns. Þeir sem ekki komust að gátu fylgst með beinu streymi frá þinginu og voru margir sem nýttu sér það. Upptaka frá þinginu er aðgengileg á www.heilbrigdisthing.is. Þar má einnig nálgast stakar upptökur af erindum allra fyrirlesaranna ásamt upplýsingum um þá og dagskrá þingsins.

    16. nóv. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 28/2022

    Kærandi kærði frávísun embættis landlæknis á kvörtun sem hún hafði lagt fram til embættisins vegna starfa sálfræðings sem dómkvadds matsmanns. Ráðuneytið taldi að kærandi hefði ekki verið notandi heilbrigðisþjónustu í skilningi 2. mgr. 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu. Hún hefði þannig ekki sérstakra eða verulegra hagsmuna að gæta af því að fá kvörtunina til meðferðar. Með sömu rökum taldi ráðuneytið að kærandi gæti ekki átt kærurétt í málinu og var kærunni því vísað frá ráðuneytinu.

    16. nóv. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 27/2022

    Kærandi kærði frávísun embættis landlæknis á kvörtun sem hún hafði lagt fram til embættisins vegna starfa sálfræðings sem dómkvadds matsmanns. Ráðuneytið taldi að kærandi hefði ekki verið notandi heilbrigðisþjónustu í skilningi 2. mgr. 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu. Hún hefði þannig ekki sérstakra eða verulegra hagsmuna að gæta af því að fá kvörtunina til meðferðar. Með sömu rökum taldi ráðuneytið að kærandi gæti ekki átt kærurétt í málinu og var kærunni því vísað frá ráðuneytinu.

    16. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýtt meistaranám í geðhjúkrun skapar margvísleg tækifæri

    Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, geðþjónusta Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri, bjóða nú í fyrsta sinn upp á sameiginlegt tveggja ára klínískt meistaranám í geðhjúkrun hér á landi og er námið vistað hjá Háskóla Íslands. Námið er til tveggja ára. Samstarf þessara fjögurra stofnana felur í sér að háskólarnir í sameiningu bjóða upp á fræðilega undirstöðu og nauðsynlega sérhæfingu og heilbrigðisstofnanirnar bjóða upp á 12 launaðar sérnámsstöður í geðhjúkrun á fyrra ári námsins. Fyrstu nemendurnir innrituðust í haust.

    16. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Úrskurðir, Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 26/2022

    Kærandi kærði frávísun embættis landlæknis á kvörtun sem hún hafði lagt fram til embættisins vegna starfa sálfræðings sem dómkvadds matsmanns. Ráðuneytið taldi að kærandi hefði ekki verið notandi heilbrigðisþjónustu í skilningi 2. mgr. 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu. Hún hefði þannig ekki sérstakra eða verulegra hagsmuna að gæta af því að fá kvörtunina til meðferðar. Með sömu rökum taldi ráðuneytið að kærandi gæti ekki átt kærurétt í málinu og var kærunni því vísað frá ráðuneytinu.

    14. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sérfræðingur á skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu í heilbrigðisráðuneytinu

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starfs sérfræðings á skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu. Verksvið skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu er annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónusta auk eftirmeðferðar og endurhæfingar, sjúkraflutninga, þjónustu hjúkrunarheimila og dagdvalar aldraðra. Skipulag skrifstofunnar byggir á þjónustuflokkum og snýr auglýst starf fyrst og fremst að endurhæfingarþjónustu innan sem utan stofnana.

    09. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Húsfyllir á heilbrigðisþingi um lýðheilsu á morgun – hægt að fylgjast með í beinu streymi

    Mikill áhugi er á heilbrigðisþingi um lýðheilsu sem fram fer á hótel Nordica í Reykjavík á morgun. Rúmlega 300 manns hafa skráð sig á þingið og ekki sæti fyrir fleiri. Hægt er að fylgjast með þinginu í beinu streymi á vefnum www.heilbrigdisthing.is.

    09. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samræmt verklag í heilbrigðisþjónustu við móttöku þolenda heimilisofbeldis

    Unnið er að því að innleiða samræmt verklag og bæta þjónustu heilbrigðiskerfisins við þolendur heimilisofbeldis. Verið er að forrita og setja upp í sjúkraskrá rafrænt skráningarform sem styður við verklagið. Markmið vinnunnar er að tryggja þolendum heimilisofbeldis sem besta þjónustu og þróa og efla þjónustuna til lengri tíma litið.

    08. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Bráðaþjónusta efld um allt land með bættum tækjabúnaði

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita heilbrigðisstofnunum utan höfuðborgarsvæðisins 113,5 milljónir króna til kaupa á tækjabúnaði sem styrkir bráðaþjónustu um allt land. Ákvörðunin er byggð á tillögu viðbragðsteymis um bráðaþjónustu. Markmiðið er að auka getu heilbrigðisstofnana til að veita bráðaþjónustu og stuðla að jafnara aðgengi að þjónustunni á landsvísu.

    04. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Notendaráð heilbrigðisþjónustu skipað í fyrsta sinn

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað notendaráð heilbrigðisþjónustu. Ráðið er skipað samkvæmt tilnefningum sjúklingasamtaka og er tilgangur þess að tryggja að sjónarmið notenda séu höfð til hliðsjónar við ákvarðanatöku um atriði sem varða hagsmuni sjúklinga innan heilbrigðisstofnana.

    03. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýtt skipurit Landspítala tekur gildi 1. janúar 2023

    Breytingar verða á stjórnskipulagi Landspítala með nýju skipuriti sem tekur gildi um næstu áramót. Megináherslan í nýju stjórnskipulagi er að styrkja klíníska starfsemi spítalans með því að færa aukið umboð og ákvörðunarvald nær framlínu þar sem þjónustan er veitt. Þverfagleg klínísk starfsemi allra fagstétta spítalans fái þannig styrkari grunn til að eflast.

    02. nóv. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 23/2022

    Í málinu var kærð ákvörðun embættis landlæknis um að áminna lækni vegna brots á starfsskyldum sínum í tveimur málum. Að mati ráðuneytisins voru skilyrði fyrir áminningu uppfyllt, enda hefði alvarleikastig annars málsins verið mikið. Var ákvörðun embættis landlæknis því staðfest.

    31. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýr samningur um sálfræðiþjónustu

    Sjúkratryggingar Íslands hafa gert nýjan rammasamning um sálfræðiþjónustu sjálfstætt starfandi sálfræðinga. Samningurinn hefur verið uppfærður með það að leiðarljósi að auka aðgengi að sálfræðiþjónustu. Samningurinn nær núna til allra aldurshópa og stuðlar að fjölbreyttari þjónustu. Einnig standa vonir til þess að fleiri sálfræðingar sjái sér fært að starfa samkvæmt nýjum samningi þar sem viðmiðum um starfsreynslu hefur verið breytt.

    28. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka

    Auglýst er eftir umsóknum frá íslenskum félagasamtökum um styrki vegna verkefna á sviði heilbrigðismála. Í ár leggur heilbrigðisráðherra áherslu á að styrkja verkefni sem stuðla að jöfnu aðgengi. Umsóknarfrestur er til og með miðvikudagsins 30. nóvember næstkomandi.

    27. okt. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 22/2022

    Í málinu hafði kærandi kært ákvörðun embættis landlæknis um að vísa frá umsókn hennar um almennt lækningaleyfi á þeim grundvelli að hún hefði ekki lagt fram starfsleyfi, líkt og embættið taldi að gera mætti kröfu um á grundvelli 1. mgr. 16. gr. reglugerðar nr. 465/2015. Var það mat ráðuneytisins að umsókn kæranda um almennt lækningaleyfi yrði ekki vísað frá embætti landlæknis á þeim grundvelli, enda féllu aðstæður kæranda ekki með skýrum hætti undir orðalag ákvæðisins. Taldi ráðuneytið að ákvæði 1. mgr. 2. gr. laga nr.…

    26. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Kaup á lyfinu Paxlovid til meðhöndlunar Covid-sjúklinga

    Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa samið um kaup á lyfinu Paxlovid til meðhöndlunar einstaklinga sem eru smitaðir af SARS-CoV-2 veirunni og í hættu á að veikjast alvarlega af völdum hennar. Á hinum Norðurlöndunum hefur lyfið Paxlovid þegar verið tekið í notkun í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.

    25. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælt með ferðamannabólusetningum við barnaveiki og mænusótt

    Sóttvarnalæknir mælir með bólusetningu gegn barnaveiki og mænusótt fyrir öll ferðalög út fyrir landsteinana, fyrir 24 ára og eldri sem ekki hafa fengið slíkar bólusetningar á síðastliðnum 10 árum. Ástæðan er fjölgun tilvika barnaveiki barnaveiki í Evrópu það sem af er ári og dreifing mænusóttarveiru í Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar. Heilsugæslan og aðilar sem sinna ferðamannaheilsuvernd sinna bólusetningum.

    21. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrsti hópur hjúkrunarfræðinga útskrifast af nýrri námsleið

    Í dag voru brautskráðir frá Háskóla Íslands 14 hjúkrunarfræðingar af nýrri námsleið fyrir fólk sem áður hefur lokið háskólagráðu í öðru fagi en hjúkrun. Námsleiðin er skipulögð sem sex missera nám í að uppfylltum forkröfum, 11 mánuðir hvort ár og er klínísk kennsla þar meðtalin. Námið veitir BS gráðu og telur 240 einingar.

    21. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Til umsóknar: Styrkir til verkefna sem miða að því að vinna gegn fíknisjúkdómum

    Heilbrigðisráðuneytið aulýsir eftir umsóknum frá frjálsum félagasamtökum um styrki til afmarkaðra verkefna sem hafa það að markmiði að vinna gegn fíknisjúkdómum. Styrkupphæð til hvers verkefnis getur verið allt að 10 milljónir en alls eru 30 milljónir til úthlutunar. Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember næstkomandi.

    21. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Lýðheilsa og forvarnir, Atvinnuvegir, Heilbrigðisráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum í Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóð

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði. Sjóðurinn er fjármagnaður af matvælaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti, og renna samtals 30 milljónir kr. í sjóðinn árlega.

    21. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Víðtækari bólusetning gegn HPV veirunni til að auka vörn gegn krabbameini

    Heilbrigðisráðherra áformar að almenn bólusetning gegn HPV veiru (e. Human Papilloma Virus) verði boðin öllum börnum óháð kyni og að jafnframt verði innleitt nýtt breiðvirkara bóluefni sem veitir víðtækari vörn gegn krabbameini af völdum veirunnar.

    • First
    • Prev
    • 16
    • 17
    • 18
    • 19
    • 20
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband