08. feb. 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið
Úrskurður nr. 2/2023
Umsókn kæranda, sem er ríkisborgari utan EES, um starfsleyfi sem lyfjafræðingur var vísað frá embætti landlæknis á þeim grundvelli að hann hefði ekki lagt fram undirritaðan ráðningarsamning. Fram kom í úrskurði ráðuneytisins að ákvæði 2. mgr. 12. gr. reglugerðar nr. 1090/2012, sem embætti landlæknis byggði á til stuðnings frávísun, veiti heimild fyrir því að vísa frá umsókn hafi umsækjandi ekki lagt fram umsókn um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðningarsamningi. Í málinu lá hins vegar fyrir að kærandi væri með gilt dvalarleyfi hér á landi og rétt til atvinnuþátttöku. Taldi ráðuneytið að ákvæðið yrði ekki túlkað með þeim hætti að kröfu um undirritaðan ráðningarsamning yrði sem sjálfstæðu skilyrði í málinu, óháð kröfu um framlagningu umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi.…