30. jan. 2017Lög og réttur, Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðherra tók þátt í fundi dómsmálaráðherra Evrópu
Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, sótti óformlegan fund dóms- og innanríkisráðherra (Informal JHA-Council) í Valetta á Möltu í gær, 26. Janúar, en þar voru málefni tengd hælisleitendum og Schengen ríkjasamstarfinu til umræðu. Aðal umræðuefnin voru hælismál og öryggismál á Schengen-svæðinu.