Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 751–800 af 2979
    Raða eftir:
    16. jún. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

    Sex sóttu um embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem auglýst var laust til umsóknar í maí síðastliðnum.

    15. jún. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Háskólar, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Færni- og hermikennsla í heilbrigðisvísindum stórefld

    Samningur um styrk til uppbyggingar færni- og hermikennslu í heilbrigðisvísindum við HÍ, HA og HR, í samstarfi við Landspítalann og Sjúkrahúsið á Akureyri, var undirritaður í dag af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, heilbrigðisráðherra og fulltrúum samstarfsaðilanna.

    15. jún. 2023Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Greining á þjónustumiðstöðvum fyrir þolendur ofbeldis lögð fram

    Unnin hefur verið greining á þjónustumiðstöðvum fyrir þolendur ofbeldis í samræmi við ákvörðun dómsmálaráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra í samvinnu við heilbrigðisráðherra.

    13. jún. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur undirritaður um uppsteypu bílakjallara Nýs Landspítala

    Í dag undirrituðu heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, og Þorvaldur Gissurarson forstjóri ÞG verk samning Nýs Landspítala ohf. um uppsteypu á bílakjallara undir Sóleyjartorgi við hliðina á meðferðarkjarnanum. Auk þess vottuðu samninginn þær Hjördís Ýrr Skúladóttir, formaður MS félags Íslands og Sigríður Jóhannsdóttir, formaður Samtaka sykursjúkra á Íslandi (Diabetes Ísland).

    13. jún. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lagabreyting: Rýmri skilyrði um geymslu og nýtingu fósturvísa og kynfrumna

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun nr. 55/1999. Með breytingunni verður virtur vilji einstaklinga eða pars, sem hefur geymt kynfrumur eða fósturvísa í tæknifrjóvgunarferli, til að nýta þau þótt áður hafi komið til sambúðarslita eða annar aðilinn látist. Afnumið verður ákvæði gildandi laga um að kynfrumum eða fósturvísum skuli skilyrðislaust eytt við þessar aðstæður.

    13. jún. 2023Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Ný lög: Hækkun starfslokaaldurs heilbrigðisstarfsfólks

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sem felur í sér tímabundna undanþágu frá almennri reglu um 70 ára starfslokaaldur ríkisstarfsmanna. Þar með verður heilbrigðisstarfsfólki sem vinnur klínísk störf gert kleift að starfa til 75 ára aldurs hjá opinberum heilbrigðisstofnunum á grundvelli ráðningarsamnings.

    09. jún. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýr samningur um tannlæknaþjónustu

    Sjúkratryggingar Íslands hafa gert nýjan samning um tannlæknaþjónustu. Þjónustan sem samningurinn fjallar um eru forvarnir og tannlækningar barna til 18 ára aldurs, tannlækningar aldraðra og öryrkja og tannlækningar vegna alvarlegra meðfæddra galla, slysa eða sjúkdóma, annarra en tannréttinga. Samningurinn tekur við af þremur eldri samningum um sömu þjónustu.

    08. jún. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Samþætt þjónusta í heimahúsum: Auglýst eftir þróunarverkefnum

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið auglýsa eftir samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir sem vilja vinna að þróunarverkefnum um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Með samþættingu er átt við að rekstur þjónustunnar sé á einni hendi, jafnt mannafla- sem fjármálastjórn. Þróunarverkefnin eru liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda: Gott að eldast.

    01. jún. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum samþykkt á Alþingi

    Alþingi hefur samþykkt þingsályktunartillögu heilbrigðisráðherra um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til ársins 2027. Áætlunin felur í sér 27 aðgerðir til að hrinda í framkvæmd stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 sem samþykkt var á Alþingi 15. júní 2022. Þingsályktunin var samþykkt einróma með öllum greiddum atkvæðum þingmanna.

    31. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Rúmlega 1730 skömmtum af naloxón neyðarlyfi dreift

    Lyf á nefúðaformi sem inniheldur naloxón getur reynst lífsbjargandi sem fyrstu viðbrögð við ofskömmtun ópíóíða. Breytt fyrirkomulag við afhendingu lyfsins hefur bætt til muna aðgengi að lyfinu um allt land, einstaklingum að kostnaðarlausu.

    30. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Ræður og greinar

    Grein eftir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra: Eitt dauðsfall er of mikið

    Í gær voru áhrifaríkir og fallegir tónleikar haldnir í Hörpu til að vekja athygli á ópíóðafíkn og styrkja skaðaminnkandi úrræði Rauða krossins. Undanfarið hefur mikil umræða skapast í samfélaginu um ópíóðafíkn og þann skaða sem af henni getur hlotist. Hér á landi eru vísbendingar um að ópíóðar séu í aukinni umferð í samfélaginu og að notkun þeirra sé að aukast þrátt fyrir það að dregið hafi úr lyfjaávísunum á ópíóða undanfarin ár. Það er mikilvægt að fylgjast vel með þróuninni, bregðast hratt við og tryggja að viðeigandi úrræði séu til staðar og aðgengi að þeim sé tryggt.

    30. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Ræður og greinar

    Grein eftir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra: Eitt dauðsfall er of mikið

    Í gær voru áhrifaríkir og fallegir tónleikar haldnir í Hörpu til að vekja athygli á ópíóðafíkn og styrkja skaðaminnkandi úrræði Rauða krossins. Undanfarið hefur mikil umræða skapast í samfélaginu um ópíóðafíkn og þann skaða sem af henni getur hlotist. Hér á landi eru vísbendingar um að ópíóðar séu í aukinni umferð í samfélaginu og að notkun þeirra sé að aukast þrátt fyrir það að dregið hafi úr lyfjaávísunum á ópíóða undanfarin ár. Það er mikilvægt að fylgjast vel með þróuninni, bregðast hratt við og tryggja að viðeigandi úrræði séu til staðar og aðgengi að þeim sé tryggt.

    26. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lykiláfanga í sögu tóbaksvarna fagnað – 20 ár frá samþykkt tóbaksvarnasáttmála WHO

    Tuttugu ár eru liðin frá því að alþjóðlegur sáttmáli Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um bann við tóbaksauglýsingum og margvíslegar aðgerðir til að sporna við reykingum var staðfestur. Sáttmálinn var jafnframt fyrsti alþjóðlegi samningurinn um lýðheilsu. Þessara tímamóta verður minnst á morgun á 75. þingi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem nú stendur yfir í Genf.

    26. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins veitir íbúum höfuðborgarsvæðisins alhliða heilsugæsluþjónustu sem grundvallast á sérþekkingu fagstétta og víðtæku þverfaglegu samstarfi. Umsóknarfrestur er til 15. júní næstkomandi.

    25. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tilkynningar um heimilisofbeldi til lögreglu - breyting á lögum um heilbrigðisstarfsmenn

    Samþykkt hefur verið á Alþingi frumvarp Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra til breytingar á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Með lagabreytingunni eru skýrðar heimildir heilbrigðisstarfsfólks til að tilkynna lögreglu um heimilisofbeldi í samráði við þolanda sem leitar á heilbrigðisstofnun. Tilgreint er hvaða upplýsingum er heimilt að miðla til lögreglu þannig að henni sé kleift að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja þolanda nauðsynlega vernd og stuðning.

    25. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný reglugerð um starfsleyfi þriðjaríkisborgara til að starfa sem heilbrigðisstarfsmenn

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur sett heildarreglugerð sem kveður á um meðferð umsókna þriðjaríkisborgara, þ.e. ríkisborgara utan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss sem vilja starfa hér á landi sem heilbrigðisstarfsmenn. Markmið reglugerðarinnar er að einfalda og skýra kröfur til slíkra umsókna og stuðla að aukinni skilvirkni við meðferð þeirra.

    25. maí 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og fjölskyldumál, Efnahagsmál og opinber fjármál, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast: Eldra fólk er virði en ekki byrði

    Eldra fólk leggur mikið til samfélagsins og mikilvægt er að stuðla að auknu heilbrigði þessa hóps. Þetta sýnir kostnaðar- og ábatagreining sem KPMG hefur unnið fyrir stjórnvöld vegna heildarendurskoðunar á þjónustu við eldra fólk: Gott að eldast.

    19. maí 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 12/2023

    Kærð var til ráðuneytisins ákvörðun Lyfjastofnunar um stöðvun á sölu og innköllun á vöru. Kærandi óskaði eftir því að ráðuneytið frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar. Í úrskurði ráðuneytisins var litið til þess að ákvörðunin væri íþyngjandi og fæli í sér fjárhagslegt tjón fyrir kæranda. Þá væru ekki aðrir aðilar að málinu sem hefðu gagnkvæmra hagsmuna að gæta. Féllst ráðuneytið á að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar þar til ráðuneytið hefði kveðið upp úrskurð í málinu.

    17. maí 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 13/2023

    Kærð var til ráðuneytisins gjaldtaka heilbrigðisstofnunar vegna afhendingar á sjúkraskrá. Á kærustigi málsins kvað stofnunin reikning vegna gjaldtökunnar hafa verið sendan fyrir mistök og endurgreiddi kæranda þann kostnað sem hann hafði lagt út. Að því virtu var það mat ráðuneytisins að kærandi hefði ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn um kæruna. Var henni því vísað frá.

    15. maí 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Ráðstefna um nýja sókn gegn kynbundnu ofbeldi og heimilisofbeldi

    Umfangsmikil ráðstefna um nýja sókn gegn kynbundnu ofbeldi og heimilisofbeldi verður haldin dagana 25.-26. maí nk. Markmið ráðstefnunnar er að efla stefnumótun og bæta þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis.

    12. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Norrænt samstarf um heilabilun og kynning á FINGER forvarna- og rannsóknaverkefninu

    Þekkt forvarna- og rannsóknaverkefni um heilabilun sem kallast FINGER verður kynnt á opnum fundi þriðjudaginn 16. maí næstkomandi. Verkefnið er finnskt og var þróað og skipulagt af prófessor Miiu Kivipelto. Niðurstöður þess hafa vakið athygli fyrir góðan árangur hjá þátttakendum og orðið að fyrirmynd margra forvarnaverkefna á þessu sviði víða um lönd. Kynningarfundurinn er haldinn í tengslum við árlegan vorfund norræna samstarfshópsins um heilabilun sem fram fer í Reykjavík dagana 15. og 16. maí.

    12. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stofnuð verði þekkingar- og ráðgjafarmiðstöð um ME-sjúkdóminn

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fela Sjúkrahúsinu á Akureyri í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Norðurlands að koma á fót þekkingar- og ráðgjafarmiðstöð um ME sjúkdóminn. Alþjóðlegi ME dagurinn er í dag sem miðar að því að efla vitund um sjúkdóminn sem veldur langvarandi vöðvaverkjum og bólgum í heila eða mænu.

    11. maí 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 11/2023

    Kærandi óskaði eftir endurupptöku á úrskurði ráðuneytisins nr. 16/2021 í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis. Ráðuneytið hafði vísað kærunni frá á þeim grundvelli að hann hefði ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins, en umboðsmaður taldi niðurstöðuna ekki hafa verið í samræmi við lög. Eftir að hafa fallist á endurupptöku málsins tók ráðuneytið málið til nýrrar skoðunar, en kæran laut að synjun Lyfjastofnunar á undanþágu fyrir lyfið ivermectin. Þar sem lyfinu Ivermectin Medical Valley hafði verið veitt markaðsleyfi og læknum frjálst að ávísa lyfinu utan ábendinga, gegn því að taka á sig sérstaka ábyrgð gagnvart sjúklingi, var það mat ráðuneytisins að kærandi hefði ekki lögvarinna hagsmuna að gæta af því að fá úrlausn um ákvörðun Lyfjastofnunar. Var kærunni því vísað frá.

    10. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Breyting á geymslutíma kynfrumna og fósturvísa vegna tæknifrjóvgunar

    Birt hafa verið til umsagnar drög að breytingu á reglugerð um tæknifrjóvgun sem gerir ráð fyrir að hámarksgeymslutími kynfrumna og fósturvísa verði rýmkaður til muna. Ýmis sjónarmið liggja að baki áformaðri breytingu þar sem horft hefur verið til ólíkra aðstæðna fólks, t.d. sem hefur ungt að aldri þurft að geyma kynfrumur vegna veikinda en gæti enn verið á barneignaaldri þegar núgildandi hámarksgeymslutími kynfrumna er liðinn. ​

    09. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skýrsla: Stafrænt aðgengi barna að klámi og áhrif þess á heilsu og líðan

    Embætti landlæknis hefur lokið mati á áhrifum stafræns aðgengis barna og ungmenna að klámi á heilsu þeirra og líðan og hefur skýrsla með niðurstöðum matsins verið birt. Matið var gert í samræmi við ályktun Alþingis um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi. Á grundvelli þess verða mótaðar tillögur um aðgerðir sem stuðla að kynheilbrigði ungs fólks.

    05. maí 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 10/2023

    Kærandi kærði málsmeðferð embættis landlæknis vegna kvörtunar sem hann hafði lagt fram hjá embættinu. Embættið taldi kvörtunina fela í sér athugasemdir við þjónustu læknis en ekki kvörtun vegna meintra mistaka eða vanrækslu við veitingu heilbrigðisþjónustu. Var kvörtunin þannig ekki tekin til efnislegrar meðferðar. Með vísan til gagna málsins og þess sérfræðimats sem lagt var á efni kvörtunarinnar hjá embætti landlæknis taldi ráðuneytið að embættinu hefði verið heimilt að vísa kvörtuninni frá. Staðfesti ráðuneytið málsmeðferð embættisins í málinu.

    04. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aukið fjármagn til heilsugæslu og heimahjúkrunar

    Heilbrigðisráðherra hefur ráðstafað 300 milljónum króna af fjárlögum ársins til að efla heimahjúkrun um allt land. Jafnframt hefur verið bætt 1,4 milljörðum króna inn í fjármögnunarlíkan heilsugæslu til að styrkja enn frekar hlutverk heilsugæslu á landsvísu sem fyrsta viðkomustað fólks í heilbrigðiskerfinu.

    03. maí 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Hvatningarátakið Hjólað í vinnuna hófst í dag

    Átakið Hjólað í vinnuna var sett í morgun í blíðskaparveðri í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þetta er í 21. sinn sem efnt er til þessa átaks sem miðar að því að hvetja sem flesta til að nýta sér þennan umhverfisvæna, hagkvæma og heilsusamlega ferðamáta.

    28. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillögur um aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóíða kynntar í ríkisstjórn

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar í dag tillögur að aðgerðum til að sporna við skaða af völdum ópíóðafíknar. Tillögurnar verða ræddar í næstu viku í ráðherranefnd um samræmingu mála ásamt fleiri aðgerðum á þessu sviði. Ríkisstjórnin mun síðan fjalla um niðurstöður ráðherranefndarinnar.

    28. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Norrænn samvinna um lyfjamál styrkt með nýrri stefnu

    mráðsvettvangur Norðurlandaþjóða á sviði lyfjamála (Nordisk Lægemiddel Forum) hefur sett sér stefnu um samstarfið til ársins 2025. Megináherslur stefnunnar lúta að skapandi lausnum í samstarfi þjóðanna við útboð og kaup á lyfjum, öruggt framboð lyfja og sterka norræna rödd á evrópskum vettvangi.

    26. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samræmd heilbrigðisþjónusta við börn sem þolendur kynferðisofbeldis

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem á að kortleggja og samræma fyrirkomulag varðandi aðkomu heilbrigðisstarfsfólks þegar upp kemur grunur um kynferðisofbeldi í garð barna. Markmiðið er tryggja rétt viðbrögð heilbrigðisþjónustunnar með hag barnanna að leiðarljósi. Hópnum er m.a. ætlað að skýra boðleiðir milli lögreglu, barnaverndar og heilbrigðiskerfisins að veita yfirsýn yfir núverandi stöðu mála.

    26. apr. 2023Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Vegvísun og fjarráðgjöf í heilbrigðiskerfinu - skýrsla starfshóps

    apríl 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Vegvísun og fjarráðgjöf í heilbrigðiskerfinu - skýrsla starfshóps Vegvísun og fjarráðgjöf í heilbrigðiskerfinu - skýrsla starfshóps

    26. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillögur starfshóps um vegvísun og fjarráðgjöf í heilbrigðiskerfinu

    Starfshópur á vegum Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra, um vegvísun og fjarráðgjöf í heilbrigðiskerfinu hefur skilað tillögum sínum um framtíðarfyrirkomulag þjónustunnar. Markmiðið er að tryggja almenningi greiðar og samræmdar upplýsingar um heilbrigðisþjónustu og vísa fólki rétta leið í heilbrigðiskerfinu í samræmi við aðstæður og þörf hlutaðeigandi fyrir þjónustu hverju sinni. Horft er til þess að bæta þjónustu við sjúklinga, jafnframt því að draga úr og dreifa álagi á heilbrigðiskerfið.

    21. apr. 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 9/2023

    Kærandi í málinu hafði óskað eftir gögnum frá embætti landlæknis á grundvelli upplýsingalaga sem embættið hafði hafnað að afhenda. Eftir úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál var embættinu gert að taka málið til meðferðar á ný. Þar sem kærandi hafði ekki fengið gögnin afhent kærði hann málsmeðferð embættisins til ráðuneytisins. Ráðuneytið taldi málið vera framhald af beiðni kæranda um beiðni um upplýsingar á grundvelli upplýsingalaga, en ákvarðanir á grundvelli þeirra laga væru aðeins kæranlegar til úrskurðarnefndar um upplýsingamál en ekki ráðuneytisins. Var kærunni því vísað frá ráðuneytinu.

    20. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Íslensku lýðheilsuverðlaunin afhent í fyrsta sinn

    Forseti Íslands afhenti íslensku lýðheilsuverðlaunin í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn á Bessastöðum síðasta vetrardag. Verðlaun voru veitt í tveimur flokkum fyrir mikilsvert framlag til eflingar lýðheilsu á Íslandi. Íslensku lýðheilsuverðlaunin eru samvinnuverkefni embættis forseta Íslands, heilbrigðisráðuneytisins, embættis landlæknis, Geðhjálpar og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands.

    19. apr. 2023Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Áætlun um fjárfestingu í heilbrigði þjóðarinnar

    Heildstæð áætlun um uppbyggingu innviða heilbrigðiskerfisins til ársins 2030 var kynnt af forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra í dag. Farið var yfir stöðu Landspítalaverkefnisins og metnaðarfulla áætlun um áframhaldandi fjárfestingu í innviðum heilbrigðiskerfisins.

    13. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Kynningarfundur um heilbrigðistæknimat á lyfjum og lækningatækjum 11. maí

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ásamt Norðurlandaþjóðunum boða til kynningarfundar 11. maí næstkomandi um heilbrigðistæknimat á lyfjum og lækningatækjum. Markmið fundarins er að kynna fyrir haghöfum nýlega reglugerð ESB um heilbrigðistæknimat, innleiðingu hennar og hvað hún felur í sér.

    13. apr. 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 8/2023

    Fagfélag heilbrigðisstéttar sótti um að stéttin yrði löggilt heilbrigðisstétt samkvæmt lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Ráðuneytið dró ekki í efa að starf stéttarinnar gæti haft jákvæð áhrif á skjólstæðinga hennar. Á hinn bóginn bæru gögn málsins ekki með sér að starfið væri þess eðlis að sjúklingar ættu á hættu að verða fyrir skaða eða miska væri ekki staðið rétt að starfi þeirra. Þegar gögn málsins voru virt í heild varð ekki séð að starfið krefðist löggildingar með tilliti til öryggis og hagsmuna sjúklinga, eins og vísað væri til í 3. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn. Var umsókninni því synjað.

    12. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið

    Til umsagnar: Meðferð umsókna þriðjaríkisborgara um leyfi til að starfa sem heilbrigðisstarfsmenn á Íslandi

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð um meðferð umsókna ríkisborgara utan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss (þriðjaríkisborgara) sem vilja starfa hér á landi sem heilbrigðisstarfsmenn. Markmiðið er að einfalda og skýra kröfur til slíkra umsókna og stuðla að aukinni skilvirkni við meðferð þeirra. Umsagnarfrestur er til 16. apríl.

    12. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Reglugerð um menntun lækna, lækningaleyfi og sérfræðileyfi

    Birt hafa verið til umsagnar drög að nýrri reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi. Með reglugerðinni er m.a. kveðið ýtarlega á um um faglega umgjörð sérnáms í læknisfræði sem fer fram hér á landi, til samræmis við öra þróun námsins og aukið umfang þess frá því að núgildandi reglugerð nr. 467/2015 var sett árið 2015.

    31. mar. 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 7/2023

    Kærandi, sem er læknir, kærði ákvörðun embættis landlæknis um að svipta hann, án undangenginnar áminningar, rétti til að ávísa tilteknum lyfjum. Var ákvörðunin byggð á því að kærandi hefði ávísað miklu magni af ópíóðalyfjum til sjúklings með fíknivanda. Í úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að ávísanirnar hefðu verið óhæfilegar í skilningi 1. mgr. 19. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, bæði að því er varðaði magn í heild sem og daglegri skammtastærð. Að því virtu og með vísan til fyrri athugasemda embættis landlæknis við ávísanir kæranda á slíkum lyfjum til umrædds sjúklings taldi ráðuneytið að embættinu hefði verið heimilt að svipta kæranda rétti til að ávísa tilteknum ópíóðalyfjum án þess að veita honum áminningu. Var ákvörðun embættis landlæknis því staðfest.

    31. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið

    Ríkara ákvörðunarvald einstaklinga yfir kynfrumum og fósturvísum sínum með nýju frumvarpi

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun nr. 55/1999. Með frumvarpinu verður virtur vilji einstaklinga eða pars, sem hefur geymt kynfrumur eða fósturvísa í tæknifrjóvgunarferli, til að nýta þau þótt áður hafi komið til sambúðarslita eða annar aðilinn látist. Afnumið verður ákvæði gildandi laga um að kynfrumum eða fósturvísum skuli skilyrðislaust eytt við þessar aðstæður.

    31. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Lið fyrir lið

    31 mars 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Lið fyrir lið Stjórnarráðið Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra Í gær var skrifað undir samninga milli Sjúkratrygginga Íslands, Klíníkarinnar í Ármúla og Handlæknastöðvarinnar í Glæsibæ um framkvæmd 700 liðskiptaaðgerða á þessu ári. Á Íslandi eru tæplega 2000 manns á biðlista eftir liðskiptiaðgerð. Allt of margir á þeim lista hafa beðið of lengi eftir aðgerð þannig að sjúkdómsástandið er farið að skerða lífsgæði og draga verulega úr virkni

    30. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið

    Samningar um 700 liðskiptaaðgerðir undirritaðir

    Samningar milli Sjúkratrygginga Íslands, Klíníkurinnar í Ármúla og Handlæknastöðvarinnar í Glæsibæ um framkvæmd 700 liðskiptaaðgerða á þessu ári voru undirritaðir í dag og staðfestir af heilbrigðisráðherra. Með þessu nýtist betur afkastageta heilbrigðiskerfisins sem leiðir til styttri biðtíma sjúklinga eftir þessari mikilvægu þjónustu. Sjúklingum sem fá þjónustu á grundvelli samninganna er tryggð greiðsluþátttaka í samræmi við reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.

    30. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarp um birgðastöðu lyfja og lækningatækja lagt fram á Alþingi

    Komið verður á fót upplýsingakerfi sem sýnir rauntímabirgðastöðu lyfja og lækningatækja hjá öllum aðilum sem halda þessar birgðir, samkvæmt frumvarpi Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sem lagt var fram á Alþingi í dag. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/123 frá 25. janúar 2022 um að styrkja hlutverk Lyfjastofnunar Evrópu vegna viðbúnaðar við krísu og krísustjórnun. Frumvarpið er einnig fyrsta viðbragð heilbrigðisráðherra við skýrslu starfshóps forsætisráðuneytisins um neyðarbirgðir sem kom út í ágúst 2022.

    29. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælti fyrir þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mælti fyrir tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum á Alþingi í gær. Í áætluninni er megináhersla lögð á forvarnir og snemmtæk úrræði, heildræna, samþætta og notendamiðaða þjónustu, notendasamráð og nýsköpun með bætt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu um allt land að leiðarljósi.

    29. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið

    Mælti fyrir frumvarpi um tilkynningar heimilisofbeldis til lögreglu (lög um heilbrigðisstarfsmenn)

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Markmið breytinganna er að skýra heimildir heilbrigðisstarfsfólks til að tilkynna lögreglu um heimilisofbeldi ef þolandi þess leitar á heilbrigðisstofnun. Áskilið er að slík tilkynning sé gerð í samráði við þolanda.

    28. mar. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Fatlað fólk, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Viljayfirlýsing undirrituð um þróun á lausnum á rafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk

    ​Fjórir ráðherrar undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um þróun á lausnum að rafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk. Átaksverkefni verður hleypt af stokkunum og skal stöðumat með formlegum tillögum liggja fyrir í byrjun júní nk. Undir yfirlýsinguna rituðu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

    27. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisráðherrar Íslands og Grænlands ræddu samstarf á sviði heilbrigðismála

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Mimi Karlsen, heilbrigðisráðherra Grænlands, ræddu samstarf þjóðanna á sviði heilbrigðismála á fundi í liðinni viku. Þau eru sammála um mikilvægi samstarfsins og vilja styrkja það enn frekar.

    25. mar. 2023Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Framtíðarsýn húsnæðis geðþjónustu Landspítala - skýrsla starfshóps

    mars 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Framtíðarsýn húsnæðis geðþjónustu Landspítala - skýrsla starfshóps Framtíðarsýn húsnæðis geðþjónustu Landspítala - skýrsla starfshóps

    • First
    • Prev
    • 14
    • 15
    • 16
    • 17
    • 18
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband